Morgunblaðið - 19.08.1995, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 19.08.1995, Blaðsíða 40
40 LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 1995 MORGUNBLAÐIÐ Ferdinand NO; I COULPN T AFFORP THAT..COULP I 6UV JU5T ONE UJORM? Já, herra, ég er að fara að veiða Nei, ég hef ekki efni á því, gæti svo ég þarf dálitla beitu. ég keypt aðeins einn orm? Hvað með að leigja einn? BREF HL BLAÐSINS Kringlunni 1103 Reykjavík 0 Sími 569 1100 0 Símbréf 569 1329 Nagladekk og ný viðgerðar götur Frá Ragnheiði Sigurðardóttur: ÞETTA BRÉF ætlaði ég undirrituð að senda þér í vor, þegar afleiðingar nagladekkjanna blöstu við, en varð ekki af. Nú þegar nagladekkin vofa yfir nýviðgerðum götum Reykjavíkur læt ég verða af að senda þér bréfið. Hvað skyldi eig- inlega vera að gatnamálayfirvöld- um í ■ Reykjavík? Hvernig geta þau áraraðir eftir árar- aðir horft hvern vet- ur á götur Reykja- víkur tætast upp af nagladekkjum 90-95% bifreiða borgarbúa með til- heyrandi afleiðing- um, aðgerðalaus? Á vorin blasa sárin við: Næstum allar götur, umferðargötur þó mest, eru munstraðar af djúpum hjólförum eftir naglana sem fyllast af vatni þegar rignir. Síðan slettist tjöru- blandað vatnið á bílana með þeim afleiðingum sem allir bifreiðaeig- endur þekkja. En verst er kannski mengunin sem tjaran veldur. Fróð- legt væri að vita hvað afleiðingar nagladekkja kosta ríkið árlega og hvaða heilsutjóni þau valda. Nagla- dekk eru alls staðar bönnuð nema á íslandi. í bæjum Alpafjalla, þar sem snjóþyngsli eru miklu meiri en t.d. í Reykjavík, eru snjókeðjur not- aðar þegar þörf krefur en alltaf teknar af þegar malbikið er orðið þurrt. Fyrir u.þ.b. 10-15 árum var uppfinningamaður nokkur kominn langt áleiðis með að þróa nagladekk sem hægt var að draga naglana inn í þegar þeirra er ekki þörf. Hann skorti hins vegar fjárstuðning og ekk- ert varð úr neinu. Líklegt er að hefði hann fullkomnað verkið hefði hann sparað skattborgur- unum ómældar fjár- hæðir. Meðan ein- hvers konar slík dekk eru ekki til ætti að kanna hvort ekki væri rétt að banna nagladekk og skylda þess í stað góð snjódekk og sandpoka í skottið og (eða) fjórhjóla- drifna bíla. Þeir sem ekki treystu sér til að aka við fyrrnefnd skilyrði ættu að taka „strætó“, leigubíl eða að sitja heima og spara þar með ríkinu stórfé sem mætti í staðinn nota til framfara í gatnakerfí borgarinnar. T.d. með byggingu fleiri undir- ganga við miklar umferðargötur. Flestir bílstjórar kannast við ósam- ræmið þegar ein manneskja, sem þarf að komast yfir götu, getur stöðvað heila hraðbraut. í von um að gatnamálayfirvöld fari loksins að átta sig á að það er í þeirra verkahring að leggja heil- ann í bleyti og huga að hvað sé til ráða í þessum efnum. RAGNHEIÐUR SIGURÐARDÓTTIR, Steinavör 2, Seltjarnarnesi. Lofsöngvar Frá Einari Ingva Magnússyni: í BYRJUN þessa kaldasta sumars í mínu minni, flutti ég úr Smáíbúða- hverfinu í austurbænum í Reykjavik og tók á leigu herbergi í Þingholtunum, um einnar mínútu gang frá Þórsgötu 25, sem hann móðurafi minn, hann Einar Einarsson byggði á sínum tíma. Hve þetta er dásam- legt hverfi og róm- antískt. Ég gekk niður Haðarstíginn og upp Lokastíginn eitt kvöld- ið í roki og rigningu. Það var farið að skyggja og ljósin úr turni Hallgrímskirkju voru á að líta sem himinsborg, og ég hugsaði um þessa kirkju. Ég kveið hálfpartinn fyrir því að flytja í námunda við hana, því hún slær á fimmtán mínútna fresti frá klukkan níu á morgnana og til níu á kvöldin. Ég hélt að klukknaspil hennar myndi endanlega gera mig albrjálaðan fyrstu vikuna. Þannig hugsaði ég að minnsta kosti áður en ég flutti inn. En sá ótti reyndist ástæðulaus með öllu. Þegar hún slær, þessi yndislega kirkjuklukka, gerir hún það svo undur blítt, eins og hún sé að biðja um að fá að syngja fallega stefið sitt. Hún byijar svo rólega og syngur líkt og hún ætli sér að hvísla, og hún syngur í auðmýkt og djúpri lotningu. Nú orðið elska ég ásýnd hennar og hef unun af því að heyra sálminn hennar, stefið, söngröddina, frá þeim stað, þar sem hún stendur uppi á Skóla- vörðuholtinu og teygir sig mót himni, flytur Guði okkar dýrð á korters fresti allan daginn. Hve ég elska hana þessa undurfögru sköp- un og horfi í þökk á hana út um gluggann minn, eða þegar ég fæ mér göngutúr um Þingholtin og Skólavörðuholtið. EINARINGVIMAGNÚSSON. Allt efni sem birtist f Morgunblaðinu og Lesbðk verður framvegis varðveitt [ upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það- an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.