Morgunblaðið - 19.08.1995, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 19.08.1995, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 1995 MORGUNBLAÐIÐ FERÐALÖG beinshnúð og áletraðri gullplötu. I nýbyggingunni á efri hæðinni er Péturseyjarskipið í fullri stærð og húsrýmið gerir að verkum að það nýtur sín mjög vel. Á gaflinum aftan við skipið er stór mynd af sjómönnum í bát sínum við Vest- mannaeyjar. Síðan er hægt að horfa á skipið frá efri hæðinni sem er sannarlega skemmtilegt sjónar- horn. Þá er hvarvetna merka gripi að sjá sem grípa niður í sögu sýsln- anna og menningu. 10 þúsund manns heimsóttu byggða- safnið á Skógum í júlí Selfossi. TÍU þúsund manns heimsóttu Byggða- safnið á Skógum undir Eyjafjöllum í júlímánuði. Safnið stendur á merkum tímamótum þar sem nú er nýtt safnahús nær fullgert en það hefur verið í bygg- ingu í sex ár og framundan er að halda vígsluhátíð í haust. „Þessi bætta aðstaða hefur leitt af sér breytingu á allri stöðu safnsins þannig að hlutir njóta sín betur núna og margir hlutir settir upp sem annars væru lokað- ir niðri. Rangæingar og Vestur- Skaftfellingar hafa staðið að þess- ari byggingu af miklum höfðings- skap,“ sagði Þórður Tómasson, safnvörður á Skógum. Hvarvetna merkir gripir í kjallara hússins er komin að- staða fyrir fræðimenn, skjalasafn og handbókasafn fyrir fræðimenn um ættfræði og þjóðlegan fróðleik. „Það er stefnt að því að hér geti orðið starf árið um kring en ekki eingöngu sumaropnun,“ sagði Morgunblaðið/Sig. Jðns. ÞÓRÐUR Tómasson, safnvörður á Skógum, reynir aðstöð- una fyrir fræðimenn. Elísabet Sverrisdóttir, starfsmaður safnsins og hægri hönd safnvarðarins, í konungssófanum frá Þjórsártúni. Þórður, en í hinu nýja húsi er einn- ig lítil fræðimannsíbúð. Nýlega var sett upp í safninu símaminjasafn frá Sigþóri Sig- urðssyni í Litla Hvammi. í þeim sal er meðal muna myndavél sem Ólafur Oddsson ljósmyndari átti, afi Davíðs Oddssonar forsætisráð- herra. Þórður lagði á það áherslu að geymsla í safni þyrfti líka að vera þannig að hana mætti skoða. Þegar gengið er um eina slíka geymslu í kjallaranum kemur í ljós göngustafasafn þar sem er meðal gripa göngustafur Magnúsar Torfasonar sýslumanns, með fíla- Húsgögn frá konungs- komunni 1907 Nýlega fékk safnið á Skógum afhent húsgögn frá Þjórsártúni sem smíðuð voru fyrir konungs- komuna 1907 af Eyjólfi Eiríkssyni frá Minni Völlum í Landsveit. Einnig fylgdi með gestabókin í Þjórsártúni en sá staður var mið- stöð félagslífs á Suðurlandi á fyrri hluta aldairnnar. Fjöldinn allur af merkum íslending- um hefur skrifað nafn sitt í bókina. Á einni síðunni eru nöfn Friðriks kon- ungs áttunda 6. ág- úst 1907 ásamt nöfnum danska for- sætisráðherrans Christiansen og Hannesar Hafstein ráðherra íslands. Þessa merku gripi gáfu synir Olafs Isleifssonar læknis og Guðríðar Eiríks- dóttur í Þjórsártúni, Eggert og Huxley og ljölskyldur þeirra. Uppbyggingin er ævintýri fyrir mig „Öll þessi uppbygging er ævin- týri fyrir mig sem hef verið að safna þessu saman í hálfa öld. Þetta er sú mesta viðurkenning fyrir mig að fólkið skyldi taka svona vel til hendinni,“ sagði Þórð- ur Tómasson, safnvörður á Skóg- um, sem alltaf er boðinn og búinn að fylgja fólki um safnið og leiða það í allan sannleika um lífshætti og menningu fyrri tíma. Það er mikið að gera allan daginn í safn- inu enda stöðugur straumur fólks á einkabílum og í hópferðum Snarfari 20 ára FÉLAGSMENN í Snarfara, félagi sportbáta- eiganda, halda upp á 20 ára afmæli félagsins á morgun, sunnudag. Siglt verður með börn í Viðey og verður grillað og farið í leiki. Síðan er dansleikur fyrir börnin við félagsheimili Snarfara. Um kvöldið er afmælisveisla fyrir fullorðna og dansað fram á nótt. Þegar Snarfari var stofnaður var engin að- staða fyrir sportbáta í Reykjavík. Eftir ára- langa baráttu var því úthlutað svæði í Elliðaár- vogi og hafnar hafnarframkvæmdir. „Við höfum lagt gífurlegt fé og vinnu í þetta,“ segir Hilmar Þorbjömsson, formaður félagsins. „Mér hefur verið sagt að kostnaður- inn við að koma upp svona'hafnaraðstöðu í dag væri á þriðja hundrað milljónir." Mikið var unnið í sjálfboðavinnu en allur kostnaður var greiddur af félagsgjöldum. Nú er félagið skuldlaust, þrátt fyrir allar framkvæmdimar. Félagar í Snarfara um 300 Alls komast 140 bátar í höfnina en yfirleitt eru 120 geymdir þar. Félagar voru fyrst 15-20 en eru nú um 300. Þeir eru úr ýmsum stéttum og á ólíkum aldri, en kynjahlutfall er ójafnt. „Þetta hefur alltaf verið karlasport en konur og börn koma oftar með en áður.“ Sportbátar eru dýrir en Hilmar segir að ekki sé dýrara að eiga þá en t.d. sumarbú- staði. Þeir eru af ýmsum stærðum og gerðum, en sá stærsti er um .45 fet. Félagsmenn í Snarfara sigla oft saman um helgar, til dæmis f Hvalfjörðinn þar sem félag- ið hefur aðstöðu. „Annars er farið héðan á sportbátum um allt land, og stundum jafnvel siglt ybr Atlantshaflð, til Norðurlanda." NÝJA höfnin þar sem 140 bátar komast fyrir. TOURJST iNFfmwiriON centre wmaNGA MIDSTÖÐ feedamAla btkmot srWSKWS KOliNHj.AnAjr Morgunblaðið/Golli ÞÝSKA kennsluseglskipið Roald Amundsen. Kennsluseglskip í Reykjavíkurhöfn EINS og margir hafa eflaust tekið eftir liggur heljarstórt seglskip við Reykjavíkurhöfn. Hér er á ferðinni þýska kennsluseglskipið Roald Amundsen sem kom 10. ágúst s.l. og fer í nokkrar stuttar ferðir í kringum landið en sigl- ir á brott 28. ágúst. I síðustu viku hélt það til Dýrafjarðar á Vestfjörðum og um þrjúleytið í dag leggur það upp í ferð á næsta áfangastað á íslandi. Samnefnt fyrirtæki gerir skip- ið út og selja ferðaskrifstofur námsferðir með því. Skipið er 50,20 m langt og 7,20 m breitt með 34 metra langt mastur. 1 fastri áhöfn eru 17 manns, flestir námsmenn og atvinnumenn og er hægt að taka 30 farþega í námsferð- ir sem standa í 1-2 tvær vikur. Nú hafa þrír hópar verið með skipinu meðan það hefur verið hér við land. Margir eru með skipinu í viku, ferðast aðra viku um landið og fyúga svo heim. Var áður olíu- flutningaskip Hauke Mack, fyrsti stýri- maður seglskipsins, segir að áhersla sé lögð á að allir far- þegar leggi sitt af mörkum við siglingu skipsins, enda sé næst- um ómögulegt að sigla því ein- göngu með 17 mannaáhöfn. Allir gestir skipsins fái æfingu við að sigla skipinu og mörgum finnist þeir hafa öðlast mikla reynslu að námskeiði loknu. Skipið var smíðað 1957 sem olíuflutningaskip en var gert upp fyrir 4-5 árum og 1993 sigldi það fyrstu ferð sína sem seglskip. Nú er gamla vélin aðeins notuð til að leggja skip- inu að bryggju og fara frá bryggju, en þegar komið er út á rúmsjó er aðeins treyst á vindinn og allir á skipinu taka þátt í að að sigla því. Skipið siglir allan ársins hring og er nú á ferð um Norð- ur- Evrópu. Á veturna heldur það til hjá Kanaríeyjum. Hauke Mack segir að mikill áhugi sé hjá ungu fólki að ferð- ast með skipinu og fá slíka reynslu. Stærsti hópurinn er frá 16 ára upp í þrítugt. Reynt er að láta alla farþegana kynn- ast sem flestum verkum sem unnin eru um borð. „Flestir farþeganna eiga að geta klifr- að upp í mastur og fellt seglin og gengið frá þeim. Margir eru hræddir við að klifra upp í mastur í fyrstu," segir Hauke, „en innan tíðar er fólk farið að príla upp í hæstu reiða eins og ekkert sé og margir hafa sagt mér frá því að þeir hafi orðið kjarkaðri eftir að hafa siglt með okkur.“ Skipið verður hér við land næstu daga og er áætlað að það haldi af landi brott 28. ágúst næstkomandi ef veður leyfir og stefnir það á Stavang- er í Noregi. FLESTIR sem sækja namskeið á skipinu eru frá 16 til 30 ára. Safnagluggi í Bankastræti UPPLÝSINGAMIÐSTÖÐ um söfn í Reykjavík, svonefndur „safnagluggi“, verður opnaður í haust á hæðinni fyrir ofan söluskrifstofu Kynnisferða í Bankastræti. Að sögn Önnu Margrétar Guðjónsdóttur, ferðamálafulltrúa Reykjavíkurborgar, verða sýnishorn af munum safna geymd í Safna- glugganum. „Ferðamenn geta því fengið hugmynd um hvað söfnin hafa upp á að bjóða áður en þeir heimsækja þau, og ólíklegra er að þeir verði fyrir vonbrigðum. Starfsmenn á Upplýsingamiðstöðinni hafa hingað til svarað fyrirspurnum um söfnin, en nú verður ráðinn sérfróður starfsmað- ur sem getur veitt frekari upplýsingar.“ Hjálpar erlendum ferðamönnum Vilborg Guðnadóttir, forstöðumaður Upplýsingamiðstöðvar ferðamála, segir að mikil bót verði að Safnaglugganum. „Erlendir ferðamenn hafa litla þekkingu á íslenskri list og þekkja ekki til íslenskra listamanna. Þeir vita því varla hvað þeir eru að fara að sjá á einstökum söfnum. í Safnaglugganum geta þeir gert sér það í hugarlund.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.