Morgunblaðið - 19.08.1995, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 19.08.1995, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 1995 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Brynjar Finnsson í Litlu-Brekku Sjáum að- eins eina lausn BRYNJAR Finnsson í Litlu-Brekku er í forsvari fyrir þá sem standa að bréfínu til biskups og söfnun undir- skrifta. Hann sagði að lítið hefði verið aðhafst í söfnun undirskrifta og menn vildu sýna tillitsemi meðan leitað væri sátta í deilunni. Náist hins vegar ekki viðunandi niður- staða á sáttafundinum nk. mánu- dagskvöld sagði Brynjar að hjólin myndu fara að snúast af fullum krafti. „Við sjáum aðeins eina lausn á málinu og hún er sú að presturinn láti af störfum. Þetta getur ekki gengið svona lengur. Við erum ekki að tala um einstök atvik nú í sumar heldur samskipti prestsins við fólkið hérna frá því hann hóf störf fyrir sex árum,“ sagði Brynjar. Hann sagðist skilja sjónarmið séra Torfa í sambandi við sóknar- bönd mjög vel en eins og málið hefði þróast snerist það um annað og meira. Hann vildi ekki fara nán- ar út í þá sálma og sagði menn vilja gefa vígslubiskupi færi á að ná sátt- um. Brynjar ítrekaði þó að það væri aðeins ein viðunandi lausn á þessu máli því menn ætluðu sér ekki að búa við þetta ástand áfram. „Við erum með stóran hóp sem er reiðubúinn að láta til skarar skríða. Sumir þora náttúrlega ekki að blanda sér í málið en ef hin langa sáttaboðleið til biskups skilar ekki árangri er ljóst að eitthvað verður að gera. Það er ekki hægt að svæfa þetta mál,“ sagði Brynjar. Ekki náðist í Magnús Stefánsson, formann sóknarnefndar Möðru- vallasóknar, en að sögn Brynjars sendu sóknarnefndirnar fjórar bréf til biskups fyrir allnokkru þar sem samskiptaörðugleika við sóknar- prestinn bar á góma. Brynjar sagði að ekki væri eins sterkt tekið til orða í bréfi sóknarnefndanna og bréfinu sem hann og fieiri stæðu að en allt bæri þetta að sama brunni. Séra Torfi S. Hjaltalín vonast eftir sáttum í Möðruvallaprestakalli Segir deiluna snúast um sóknarbönd SÉRA TORFI Stefánsson Hjaltal- ín, sóknarprestur í Möðruvalla- prestakalli, vonast eftir að sættir náist á fundi með sóknarnefndar- mönnum og séra Bolla Gústavssyni vígslubiskup næstkomandi mánu- dagskvöld í deilu þeirri er hefur verið í sviðsljósinu að undanförnu. Hann segir að málið snúist fyrst og fremst um sóknarbönd, það er að segja reglur um að sóknarbörn leiti til eigin sóknarprests. Einnig hljóti málið líka að vera persónu- legt ef tekið sé mið af bréfhausnum sem forsvarsmenn undirskrifta- söfnunar hafa verið að flagga. í upphafi bréfsins, sem stílað er til hr. Ólafs Skúlasonar, biskups, segir eftirfarandi: „Við undirritaðir íbúar í Möðruvallaklausturspresta- kalli í Eyjafjarðarprófastsdæmi telj- um okkur ekki geta unað lengur við það ástand sem ríkir í málefnum kirkjunnar hér. Þetta ástand er í nær öllum samskiptum við sóknar- prestinn og við sjáum enga aðra lausn en þá að sóknarpresturinn fari frá hið allra fyrsta svo hér komist á friður." Síðan er þess far- ið á leit við biskup að hann grípi til aðgerða. Ruddalega orðað „Mér finnst þetta mjög rudda- . lega orðað og til þess eins fallið að koma höggi á mig. Sóknar- nefndarmenn hafa viljað leysa málið á annan hátt og bréfhausinn er ekki á þeirra vegum. Mér er ekki kunnugt um að neinn hafi sett nafn sitt undir þennan bréf- haus þótt öðru hafi verið haldið fram,“ sagðr Torfi. Deilurnar í Möðruvallaprestakalli virðast ekki snúast um embættis- verk séra Torfa. En hvert er þá þrætueplið? í Möðruvallaprestakalli eru fjórar sóknir; Bakkasókn, Bægisársókn, Glæsibæjarsókn og Möðruvalla- sókn. Séra Torfi er sóknarprestur- inn en borið hefur við að sóknar- börnin hafi leitað til annarra presta, ekki síst Þórhalls Höskuldssonar og Péturs Þórarinssonar sem báðir hafa þjónað á Möðruvöllum. Stund- um hafa þeir fengið kirkjur í presta- kallinu til afnota en fyrr í sumar lýsti Torfi sig mótfallinn því að lána Bakkakirkju undir brúðkaup þar eð óskað var eftir öðrum presti og síð- an hafa tvö svipuð tilfelli komið við sögu í sambandi við skírnarathafn- ir. Eftir kvartanir á öldum ljósvak- ans virðist boltinn hafa byijað að rúlla. Óskráðar samskiptareglur Torfi sagði það óskráðar sam- skiptareglur að prestar fari ekki hver í annars prestakall með emb- ættisverk nema í undantekningatil- fellum. Þetta tengist sóknarböndum sem eru í gildi hér á landi og víðar innan lúthersku kirkjunn.ar þótt iðu- lega séu þau ekki virt á fjölmenn- ari stöðum. Samskiptamálin höfðu verið til umræðu meðal presta í Eyjafjarðar- prófastsdæmi og á þeim fundum sagði Torfi að sér fyndist tími til kominn að draga úr því að prestar væru að fara í gömlu sóknirnar sín- ar til að sinna fýrrverandi sóknar- börnum. Nokkru síðar kom brúð- kaupsmálið á Bakka til sögunnar og eftir að kvartað var yfír því í útvarpi ákvað hann að halda fast við þessa samskiptareglu áfram „til að verða ekki vís að því að mismuna Morgunblaðið/Berglind H. Helgadóttir SÉRA Torfi Hjaltalín við Möðruvallakirkju í gær. Hann kveðst munu gera sitt besta til að friður og sátt náist í deilumálinu. fólki,“ eins og Torfi orðaði það. Hann sagðist vera þeirrar skoð- unar að ef sóknarbörnin leituðu til prests út fyrir sóknina ætti sá hinn sami að vísa þeim á sóknarprestinn. Torfi kvaðst yfirleitt ekki taka það persónulega ef fólk vildi fá annan prest í embættisverkin, kannski prest sem það hefði þekkt lengi, en þetta væri mál sem snerti bæði safnaðarstarfið, kjaramál og öll samskipti innan prestakallsins og því væri æskilegt að sami háttur væri hafður á eins og í sambandi við skólahverfi, heilsugæslusvæði, sýslur og fleira. „Mér finnst þetta vissulega mjög erfitt og óþægilegt mál en þegar maður verður fyrir slíkri aðför er ekki hægt annað en spyrna við fótum til að eiga ekki á hættu að missa æruna. Það er engin uppgjöf í mér. Ég verð að takast á við vandamálin og vonast eftir að frið- ur og sátt náist og mun gera mitt besta til að svo verði," sagði Torfi. Messur AKUREYRARKIRKJA: Guðs- þjónusta verður í Akureyrar- kirkju .sunnudaginn 20. ágúst kl. 11.00. GLERÁRKIRKJA: Kvöldguðs- þjónusta verður í Glerárkirkju sunnudaginn 20. ágúst kl. 21.00. KAÞÓLSKA KIRKJAN: Messur verða í Kaþólsku kirkjunni laug- ardaginn 19. ágúst kl. 18.00 og sunnudaginn 20. ágústkl. 11.00. HVÍTASUNNUKIRKJAN: Laugardaginn 19. ágúst kl. 20.30 verður samkoma í umsjá unga fólksins. Sunnudaginn 20. ágúst verður safnaðarsamkoma kl. 11.00 og vakningasamkoma kl. 20.00. Ræðumaður verður G. Rúnar Guðnason. Þá verður bænasamkoma föstudaginn 25. ágúst kl. 20.30. HJÁLPRÆÐISHERINN: Al- menn samkoma verður hjá Hjálpræðishernum sunnudaginn 20. ágúst kl. 20.00. Erlingur Níelsson talar. Allir velkomnir. HEILSUQÆSLUSTÖÐIN A AKUREYRI Hjúkrunarfræöingar Heimahjúkrun! Óskum að ráða hjúkrunarfræðing til starfa víð heimahjúkrun á Heilsugæslustöðinni á Akureyri sem fyrst. Unnið er að einstaklingsbundinni hjúkrun í heimahúsum; sem er lifandi og áhugavert starf. Góður starfsandi er ríkjandi. Upplýsingar gefur deildarstjóri heimahjúkrunar í sima 468-2311. Morgunblaðið/Benjamín LÍF og fjör á iönsýningunni. í kvöld munu „Konnarar“ taka lag- ið en sýningunni lýkur á morgun. Sýningin Iðnaður ’95 á Hrafnagili Skemmtiatriðin vakið mikla lukku Eyjafjarðarsveit. Morgunblaðið. IÐNSÝNINGIN Iðnaður ’95 stend- SCQ •QQQSOfil Jónas Viðar á Karólínu Laugardaginn 19. ágúst verður opnuð sýning á verkum eftir Jónas Viðar á Café Karólínu á Akureyri. Þar sýnir hann málverk sem unnin eru á þessu ári. Sýningin stendur til 23. september. Jónas stundaði nám við Mynd- listaskólann á Akureyri 1983-87 og síðan við Accademia di Belle Arti di Carrara á Ítalíu 1990-94. Hann hefur haldið átta einkasýn- ingar og tekið þátt í samsýningum bæði hér heima og á Ítalíu. Byggingalist í Deiglunni Á laugardaginn verður fyrirlest- ur um byggingalist í Deiglunni á Akureyri. Það eru arkitektarnir Baldur Svavarsson og Jón Þór Þorvaldsson sem tala og sýna lit- skyggnur. Þeir starfa báðir á teiknistofunni Úti-inni, en sú stofa hefur vakið athyglj fyrir nýstárlega hönnun á íslensku umhverfi og má nefna skólpdælustöð og Árbæj- arsundlaug í Reykjavík. Fyrirlest- urinn hefst kl. 17 og er aðgangur ókeypis. ur nú sem hæst á Hrafnagili. Tölu- verður fjöldi fólks hefur lagt leið sína á staðinn og hafa skemmtidag- skrárnar að kvöldi hvers sýningar- dags vakið mikla lukku. I kvöld, laugardagskvöld, er svo- nefnt „Konnarakvöld", en þá munu afkomendur Jóhanns Konráðssonar skemmta gestum með söng. Á morgun, sunnudag, er síðasti dagur sýningarinnar og þá munu hestamenn frá Akureyri og Eyja- firði sýna mestu gæðinga héraðsins í tilefni þess að ákveðið hefur verið að halda Landsmót hestamanna á Melgerðismelum í Eyjafjarðarsveit árið 1998. Klukkan 16 mun strengjakvart- ett frá Tónlistarskólanum á Akur- eyri leika fyrir gesti. Sýningunni lýkur kl. 18.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.