Morgunblaðið - 19.08.1995, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 19.08.1995, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 1995 ________/__________________ MORGUNBLAÐIÐ NEYTENDUR Sælgæti og vín þarf ekki að merkja með síðasta neysludegi KUNNINGI neytendasíðunnar hafði samband og sagði farir sínar ekki sléttar af því þegar hann fékk sér bjór á dögunum. Mjöðurinn bragðaðist ekki eins og venjulega og taldi sveinninn sig svikinn því vökvinn væri orðinn of gamall. Dagsetning sýndi að löngu átti að vera búið að drekka hann. Hjá Áfengis- og tó- baksverslun ríkisins fengust þær upplýsingar að bjórinn ætti alltaf að vera merktur en vín væri undanskilið þeirri reglu. Hjá Hollustuvernd ríkisins feng- ust þær upplýsingar að í reglugerð númer 588 frá árinu 1993 um merkingu, kynningu og auglýs- ingu matvæla komi fram að vín, líkjöra, freyðivín, kryddvín og sambærilegar afurðir úr ávöxtum öðrum en þrúgum þurfi ekki að Ekki þarfað merkja drykki með 10% eða meira af vín- anda merkja með síðasta neysludegi. Ekki þarf heldur að merkja drykkjarvörur sem flokkast undir tollflokkinn 22.06 skv. alþjóða toll- skránni og framleiddar eru úr þrúgum eða þrúgusafa. Þá er ekki nauðsynlegt að merkja drykkjarvörur sem í eru 10% eða meira af vín- anda miðað við rúmmál. Gosdrykki, aldinsafa, nektar og áfenga drykki í ílátum sem rúma 5 1 eða meira og eru til af- greiðslu til stóreldhúsa þarf ekki að merkja með síðasta neysludegi. Samkvæmt þessu á því alltaf að merkja bjór með síðasta neyslu- degi nema um sé að ræða stóra kúta og skal ölvinum því bent á að athuga merkingu. Súkkulaði þarf ekki að merkja Ástfríður Sigurðardóttir hjá Hollustuvernd segir að ekki sé Morgunblaðið/BT Sítrónufiskur Kryddleginn fiskur er góður og fljótgerður matur. Hann getur verið til hátíðabrigða, með fíneríi eins og hörpudiski, en lúða og ýsa svo eitthvað sé nefnt eru fyrirtak líka. Fiskur- inn er hreinsaður, þerraður létt og skorinn i bita. Þeir síð- an lagðir í skál eða fat og kryddlegi, sem aðallega er gerður úr nýkreistum sítrónu- safa, hellt yfir. Lok eða filma er síðan sett yfir diskinn og hann geymdur í ísskáp í hálf- tima og allt upp í sólarhring. Gott er að hreyfa fiskinn stöku sinnum i safanum svo hann sýrist og hvitni jafnt. Áður en fiskurinn er borinn á borð má sigta eitthvað af leginum frá honum, rista brauð og útbúa sósu úr sýrðum ijóma og kryddjurtum. Sumum finnst betra að blanda smá olíu í sítrónuna, líka má hafa hvít- vín eða edik í henni og gjarna blanda í kreistum lime-, greip- eða appelsínusafa. Saxað engi- fer á vel við appelsínusafa og hvítlaukur er alltaf góður í sí- truslöginn. Hver fer eftir sín- um smekk, en hér fylgir tillaga að hörpudiski í sítrónubaði. Hörpudiskurinn er látinn þiðna ásamt rækjum ef um frystan fisk er að ræða. Hann er síðan settur í skál, óþarfi er að skera hann, og kryddlegi hellt yfir: Ferskum sítrónusafa og smávegis nýkreistum app- elsínusafa með ólífuolíuskvettu og söxuðum hvítlauk, ferskum söxuðum engifer, örlitlum rauðlauk, steinselju, nýmöluð- um svörtum pipar og salti. Skálinni er stungið í ísskáp í klukkustund eða svo. Þá má gæða sér á skelfiskinum, kannski með kaldri jógúrtsósu og brauði. skylt að til- greina geymsluþol þegar um er að ræða ýmsar aðrar vörur, s.s. bökunar- vörur sem að öllu jöfnu er neytt innan sólarhrings frá framleiðslu nema þær séu rotvarðar. Þá er ekki skylda að merkja edik, matarsalt og sælgæti sem nær einvörðungu er gert úr bragðbættum og/eða lituðum sykri. Undir þetta ákvæði falla líka sykur, hunang, kakó-, og súkku- laðivörur svo og tyggigúmmí og einstaka einingar af ís þar sem geysmluþol kemur fram á ytri umbúðum. Skýringin á því að ekki þarf að merkja þessar vörur með lágmarksgeymsluþoli segir Ást- fríður að sé að hluta til sú að umræddra matvara er neytt fljót- lega eftir framleiðslu. Aðalástæð- an er hinsvegar sú að matvaran sem um ræðir og er undanskilin merkingum hefur langt geymslu- þol eins og sælgæti og sykurvör- ur. Þó að þessar vörur séu orðnar gamlar og gæðarýrnunar verði vart skaða þær ekki neytandann. Hún segir að sú vara sem Holl- ustuvernd myndi helst vilja sjá merkta af þessum lista er súkku- laði. „Flestir kannast við að kaupa konfektkassa þar sem súkkulaðið er farið að þorna og hvítur blær á því. það er leiðigjarnt en það er ekki skaðlegt. Þó svo að við hefð- um áhuga á því að sjá súkkulaði merkt með síðasta neysludegi er ekkert sem bendir til að það verði á næstunni," segir Ástfríður. í vetur verða íburðarmiklar hár- greiðslur í anda leikhúsa í tísku í VETUR verður í tísku að hafa íburðarmikla hárgreiðslu þar sem línur eru ýktar og meira brugðið á leik með hárið, segir Elsa Haralds- dóttir í Salon Veh, en hún var að senda frá sér nýja vetrarlínu sína. Hárið á að vera í löngum styttum og á að ná niður á hálsinn. Lengd og þyngd verða ráðandi í klippingu og gefur fjölbreytta möguleika á útfærslu á hár- greiðslu, þar sem hægt er að hafa það slétt eða að setja krullur í það. Áhersla er á að fólk geti breytt til í hárgreiðslu án mikillar fyrirhafnar. Sama klippingin gefur kost á mörgum möguleikum. Meginlínan í vetur verður „DIVA“-stíll. Hárið á að vera gljáandi og þungt ef það er slétt og feit áferð ef það er krullað. í klippingu verða útlínur mjúkar og ráðast þær af andlitslagi og persónuleika og eru stytt- urnar látnar fylgja neðstu hárlínu. Það eru tvær reglur sem verður að fylgja eftir í hárgreiðslu. Það er ytra mál hárgreiðsl- unnar, en það ræðst af vaxtarlagi manneskj- unnar. Innanmálið, þ.e. stytturnar, ráðast af andlitsfallinu. En gengið er út frá því að per- sónuleikinn fái notið sín. Nú er meiri vídd í tískunni en áður og eins og sjá má af myndun- um er þetta sama fyrirsætan sem er með sömu klippinguna. Fólk á ekki að vera njörvað niður við eina ákveðna hárgreiðslu heldur hafa ftjálsar hendur að gera það sem það dettur í hug hveiju sinni. Á fyrri myndinni er fyrirsæt- an með slétt hár í anda sjöunda áratugarins, þar sem toppurinn er gerður flatur með miðju- skiptingu, en miðju- og hliðarskipting verður í tísku í vetur, og er toppurinn sleiktur fyrir aftan eyrun og hvirfillinn er gerður umfangs- meiri. Á seinni myndinni er hárið krullað með pípuhreinsurum og gert villt. Línan á ættir að rekja til leikhúsfantasíu og þannig verður áherslan í hárgreiðslutískunni í vetur. Ljósmynd/María Guðmundsdóttir í VETUR verður mikið um ýkt form í hár- greiðslu þar sem hægt er að útfæra sömu klippingu á marga vegu. Um förðun sá Lína Rut. ÞAÐ eru ekki mörg ár síðan flestir hentu hugsunarlaust í ruslafötuna sína málningar- afgöngum, sterkum hreinsiefnum, úðabrús- um, olíu, blýhettum af vínflöskum, kvikasilf- urhitamælum, ljósalömpum, rafhlöðum, eit- urefnum eða ýmsum snyrtivöruafgöngum. Samkvæmt upplýsingum frá Sorpu fjölgar þeim sífellt sem gera sér sérstaka ferð á gámastöðvar með þessi efni enda ekki langt fyrir flesta höfuðborgarbúa að fara á næstu gámastöð. Spilliefnin sem Sorpa tekur við í nýútkominni bók sem heitir Græna bókin og fjallar um neytendur og umhverfi er talað um að úti á landi fjölgi móttökustöðum með hveiju árinu en enn séu þó staðir þar sem slíkar stöðvar eru ekki fyrir hendi og spilliefn- um sé fargað með húsasorpi. Spilliefnin eru flokkuð hjá Sorpu og þau flutt til eyðingar til Danmerkur. Samkvæmt upplýsingum frá Hpllustu- Ekki henda spilli- efnum í ruslatunnuna GRÆNA nan w orylrnduf og umhverfi vernd ríkisins er m.a. hægt að fara með eftirtalin efni á gámastöðvar: Málningu og lakk, terpentínu, þynni, viðarvöm, málningareyði, vítissóda, lút, fúgu-massa, sparsl, lím, viðarolíu, úðabrúsa og kítti. Þá er tekið við illgresiseyði, skor- dýraeitri, rottu- og músaeitri. Pottaplöntuáburður og garð- áburður eru á listanum svo og alkóhól, m.a. tréspíri, spíri, terpent- ína^ bensi'n og hreinsiefni. Urgangsolía, smurolíur, notaðar olíusíur, lampaolía og steinolía flokkast sem Þá er spilliefni. Saltsýra, brennisteins- sýra, saltpéturssýra, ediksýra, vít- issódi og lútur líka. Ryðleysi, vélarhreinsi, lásaolíu og lásaúði, lím, bílabón, áklæðishreinsi og önnur viðhaldsefni má fara með til Sorpu. Almenn hreinsiefni eru á listan- um t.d. klósetthreinsiefni, ofn- hreinsiefni, kalkleysir, blettaeyðir, sóttvamarefni, fægilögur, gólfbón og húsgagnabón. þar að finna frostlög, ísvara fyrir bensín og fyrir rúðusprautu, framköllunar- efni, fixer, ljósmyndir og afgangar, filmur og afgangar, lóðvatn, lím, leiðréttingarvökva og prentliti. Endurhlaðanlegar rafhlöður ætti endilega að fara með á gámastöðvar svo og hnapparaf- hlöður, allar gerðir rafhlaðna, blýrafgeyma, kvikasilfurlampa, ljósalampa, flúrperur, ha- lógenperur, orkusparnaðarperur, snúrulaus raftæki, ryksugur, rafmagnstannbursta, bor- vélar, andlits- og augnfarða, naglalakk og naglalakkseyði, hárliti og bleikiefni, lyfjaleif- ar, blýhettur af flöskum, úðabrúsa, kvikasilf- urhitamæla, bleikiefni fyrir sundlaugar, þrýstihylki, slökkvitæki, þétta fyrir flúrljós, uppkveikilög eða -efni og kveikjaragas. I grænu bókinni er talað um að til skamms tíma hafí kæliskápar og frystikistur innihald- ið freon. Því ber að koma á eyðingarstaði ónýtum kæliskápum og frystikistum þar sem aðstaða er til að tappa af þeim freoninu sem talið er eyða ósonlagi og stuðla að gróður- húsaáhrifum. ! I i I í L I L I i 1 1 1 I I 1 I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.