Morgunblaðið - 19.08.1995, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 19.08.1995, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 1995 19 FERÐALÖG Morgunblaðið/Helgi Þorsteinsson PÁLINA de Groot blaðafulltrúi og túlkur í hestaferðum. Tvöfalt líf Pálínu PÁLINA de Groot lifir tvöföldu lífi. Á veturna er hún blaðafull- trúi stórra hjálparsamtaka í Hol- landi. I sumarfriinu vinnur hún sem leiðsögumaður í hestaferð- um á íslandi. Hún kom fyrst til íslands fyrir tíu árum í hesta- ferð. „Ferðin breytti lífi mínu. Eg hreifst af landinu og hestun- um og síðan þá hef ég ekki getað slitið mig frá íslandi. Það er eina landið utan Hollands sem ég hef fundið til heimþrár til og þó hef ég komið til flestra landa í Evr- ópu.“ Tveimur árum eftir fyrstu Is- landsferðina eignaðist hún fyrsta ísienska hestinn í Hollandi en nú á hún fimm. Hún kom líka árlega til Islands í hestaferðir. Þetta áhugamál tók nýja stefnu þegar hún hitti Arinbjörn Jóhannsson leiðsögumann á hestakaupstefnu í Hollandi. Hann bauð henni vinnu sem túlkur í hestaferðum á Islandi. Hún þáði og hóf störf í fyrsta sinn í fyrra og var sex vikur. Nú er hún komin aftur og ætiar líka að koma á næsta ári ef hún mögulega getur. „Allt sumarfriið mitt fer í þessa auka- vinriu og ég þarf að leggja mjög hart að mér í vinnunni í Hollandi fyrir og eftir ferðirnar. En það er þess virði. í Hollandi sit ég inni við tölvu mestallan daginn en á Islandi fæ ég að vera úti í náttúrunni." Vinnufélagar og vinir Pálínu heima fyrir eiga bágt með að skilja hvað hún er að sækja stöð- ugt til Islands. „Þeir skilja ekki hvað ég er að gera á þessu kalda og sólarlausa landi. Flestir aðrir fara til Grikklands, Frakklands eða Italíu í sólina þegar þeir eiga frí. Það er erfitt að útskýra hvað það er við Island sem heillar, það verður að upplifa það.“ Vill hvorugu sleppa Hjálparsamtökin sem Pálína vinnur fyrir heita Pharos Found- ation for Refugee Health Care. Þau veita flóttamönnum víða um heim læknishjálp og sálfræði- þjónustu. Þau halda einnig ráð- stefnur um efnið, gefa út bækur og tímarit og mennta lækna, hjúkrunarfólk, félagsráðgjafa og fleiri til hjálparstarfa. Að öllum líkindum mun starf- semi Pharos aukast enn fljótlega því í ráði er að samtökunum verði falin yfirumsjón flóttamanna- hjálpar í Evrópu á vegum heil- brigðisstofnunar Sameinuðu þjóðanna, WHO. „Starfið sem ég vinn í Hollandi er fjölbreytt og skemmtilegt og ég vil alls ekki sleppa því, sérstaklega vegna þess hvernig atvinnuástandið er þar nú. Það er mjög erfitt að fá svona langt frí á sumrin en ég ætla að reyna hvað ég get aftur á næsta ári til að komast til Is- lands.“ H-eldriborgaraafsláttur Flugleiða aftur í vetur FRÁ og með 1. október nk. og til 31. maí 1996 fá h-eldriborgarar, 67 ára og eldri, afslátt af fargjöldum hjá Flugleiðum til allra áfangastaða félagsins í Evrópu og Norður-Amer- íku. Afsláttur er gefinn af fullu nor- malfargjaldi og til Banda- ríkjanna aðeins af Saga-far- gjaldi. Sem dæmi má taka að 67 ára h-eldriborgari fengi þá fargjald til Balti- more á 42.800 kr.(plús skatt- ar) í stað 129 þúsund kr. og til Kaupmannahafnar á 32 þúsund kr. í stað 97.200. Hjá markaðsdeild voru einnig gefnar þær upplýsingar að þessi afsláttur færi eftir aldri, þ.e. 67 ára farþegi fær 67% afslátt og þar fram eftir götunum. Maki sem er orðinn 65 ára fær einnig afslátt og sömu prósentuupphæð og makinn sem eldri er. Byijað var með þessi fargjöld um áramót og fram á vor. Mæltust þau afar vel fyrir og því var ákveðið að gefa þau aftur nú. Bóka skal fram og til baka og hjón sem fljúga út saman verða að ferðast saman til baka. Breytingar eru leyfilegar eins oft og þurfa þykir gegn 2.000 kr. greiðslu í hvert skipti. Hjá markaðsdeild var og sagt að h-eldriborgarar sem ferðast á þessu fargjaldi væru sér- staklega ánægðir með að geta stopp- að lengur en ella, margir væru að heimsækja ættingja og vini og þetta gefur fóíki kost á að stoppa miklu lengur en væri farið t.d. á almennum afsláttargjöldum. Opið hús á Hótel Örk OPIÐ hús verður á Hótel Örk í dag og á morgun í tengslum við „blómstrandi daga“ í Hveragerði. Meðal annars verða útitónleikar, brekkusöngvar við varðeld með Árna Johnsen, ókeypis blómaskreyt- inganámskeið hjá Blómaborg, flug- eldasýning, málverkasýning og þyrluflug yfir jarðskjáltftasvæði í Henglinum. Þá býðst fólki að fara í útreiðatúr eða skoða farkosti Sniglanna. Golfmót verður haldið á golfvelli Hótels Arkar, bílasýning haldin og skemmtanir haldnar í Tí- volíhúsinu í kvöld og annað kvöld. Hótel Örk býður ókeypis í sund- laugina, á golfvöll og tennisvöll auk þess sem bíósýning verður fyrir börn kl. 17 báða dagana. Sú nýjung verður nú tekin upp á Hótel Örk að bjóða þeim sem vilja skoða hótel- ið og kynna sér starfsemi þess. Starfsfólk tekur á móti gestum og sýnir herbergi og sali. Boðið er upp á léttar veitingar að lokinni skoðun- arferð. ÚR VERIIMU KRISTJÁN Þ. Jónsson, skipherra á Óðni. Morgunblaðið/Golli Varðskipið Oðinn fer í Smuguna í dag VARÐSKIPIÐ Óðinn heldur í Smug- una í Barentshafi í dag klukkan tíu. Undirbúningur var í fullum gangi í gær enda að mörgu að huga fyrir langt úthald. Kristján Þ. Jónsson, skipherra á Óðni, segir að úthaldið verði að minnsta kosti 57 dagar. Það er u.þ.b. fjögurra og hálfs sólarhrings sigling í Smuguna og segir Kristján að nú séu í skipinu 225 þúsund lítrar af olíu. „Ég reikna með að það dugi allan tímann en það fer að sjálfsögðu eft- ir keyrslu. Við fórum í fyrra einu sinni inn til Noregs og tókum þá olíu þar, auk þess sem við þurftum tvisvar að sigla á móti þyrlu með slasaða sjómenn. Ef í harðbakkann slær þá eru birgðaskip á svæðinu þar sem við getum fengið olíu en það er alltaf miklu öruggara að taka olíu í landi vegna mengunarhættu," sagði Kristján. Mestur tími í sjúklinga Kristján segir að reynslan í fyrra hafi sýnt það að mestur tíminn fari í að sinna sjúklingum en einnig muni þeir reyna að gefa sér tima til að sinna mælingum, bæði á fiski og veiðarfærum, auk þess sem þeir muni kvarna fisk fyrir hafrannsókn- arstofnun líkt og í fyrra. Mörg þeirra skipa sem nú eru í Smugunni hafa verið þar í langan tíma og orðin uppiskroppa með alls- kyns varning. Kristján segir að mik- ið af ýmiskonar varningi verði færð- ur skipunum, til dæmis lyf, umbúðir og varahlutir í vélar og veiðarfæri. Lofaði að vera í landi Nítján manns að lækni meðtöldum verða í áhöfn Óðins í túrnum. Krist- ján segir að túrnum verði sennilega skipt í tvo hluta og að minnsta kosti fimm fari í land að honum meðtöld- um, sennilega í lok september. „Ég get ekki verið allan tímann vegna þess að senn líður að 25 ára brúðkaupsafmæli mínu og Svein- bjargar Guðmarsdóttur konu minnar. Ég er búin að lofa því að vera þá í landi og ef ég svík það Geyma meira að segja mat í lestinni SIGURÐUR Ásgeir Kristjáns- son, læknir, aðstoðar Sigurpál Scheving, sem verður „Smugulæknir" þetta árið, að koma lyfjum og tækjum fyrir í sjúkraklefa Óðnis. verða líklega skornar niður allar fjár- veitingar til mín á næstunni," segir Kristján. Einar H. Valsson, yfirstýrimaður á Óðni, mun taka við skipherrastöðu Kristjáns. Allt fullt af mat Það þarf ekkert smáræði af mat til að metta tuttugu svanga munna í tæpa tvo mánuði. Mikill kostur hefur verið settur um borð í Óðin, í allar hugsanlegar geymslur, tvær nýjar frystikistur hafa verið settar um borð og meira segja settur mat- ur í lestina. Halldóra Ragnarsdóttir er aðstoð- arkona Jóns Friðgeirssonar, brytans á Óðni, og segir hún að nú sé mikið meiri matur með í för en í fyrra og það hafi samt sem áður dugað vel. Það sé reyndar öryggisatriði að hafa eitthvað umfram því enginn viti í raun og veru hvað túrinn verði lang- ur. Auk Halldóru mun Ásmundur Pétursson, messagutti, aðstoða í eld- húsinu en hann er sautján ára gam- all og að fara í fyrsta sinn til sjós. Hann er hvergi banginn, segir að það leggist vel í sig að hefja sjó- mennskuna á tveggja mánaða út- haldi í Barentshafi. Þó líklega verði nóg að gera allan tímann sem Óðinn verður í Smug- unni hafa skipverjar samt sem áður nóg fyrir stafni á dauðum tímúm. Bókasafn skipsins hefur verið tvö- faldað og um eitt hundrað mynd- bandsspólur verða teknar með. Sjúkraklefa mikið breytt Miklar endurbætur hafa verið gerðar á sjúkraklefanum á Óðni enda kom margt í ljós sem betur mátti fara þegar Óðinn var í Smug- unni í fyrra. Sigurður Ásgeir Kristjánsson, sem var læknir þá, hefur haft hönd í bagga með endurskipulagningu klefans enda öllum hnútum kunn- ugur um borð í Óðni. Hann segir að allt geymslupláss fyrir lyf og annað hafi verið aukið til muna og skipulagt betur. Hann segir að ör- yggismál sjómanna séu sér mikið hjartans mál og hann hafi glaður viljað gefa aðra höndina fyrir að fá að fara aftur með, en vinnu sinnar vegna hafi hann ekki getað það. Sigurður sagðist hafa fengið til sín 67 sjúklinga í fyrra en tilfellin hafi orðið um 130 talsins. „Ég hélt mjög nákvæmar skýrslur yfir allt sem ég gerði og öll lyf sem notuð voru í fyrra. Það kemur til með að spara heilmikla vinnu fyrir Sigurpál Scheving sem verður læknir um borð núna. Það er mjög mikilvægt að öðlast reynslu á þessu sviði og von- andi verður hægt að gera enn betur næst,“ sagði Sigurður. verslunum okkar við Holtagarða BÓNUS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.