Morgunblaðið - 19.08.1995, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 19.08.1995, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 1995 31 MIIMNINGAR PÉTUR JÓNSSON + Friðrik Pétur Jónsson fæddist í Bolungarvík 21. mars 1921. Hann lést á Land- spítalanum 12. ágúst síðastlið- inn og fór útför hans fram frá Þorlákshafnarkirkju 18. ágúst. HANN afi minn er horfinn á braut, og á ég frekar erfítt með að venj- ast þeirri staðreynd. Pétur afi var alltaf svo hress og kátur, og minnist ég hans helst í friðsældinni inni í Djúpi, þar sem hann sótti sjóinn á henni Rjúpu sinni á sumrin. Það var alltaf tekið vel á móti okkur þegar við komum til þeirra ömmu og afa í Djúpinu og við vorum alltaf velkomin. Pétur afi var búinn að vera mikið veikur í allt sumar, það hefur reynt mikið á okkur öll, en þó sérstaklega ömmu, sem þó er sterkari og dug- legri en nokkru sinni fyrr, og ég kemst ekki njá því að vera stolt af henni. Afi var alltaf mikill prakkari, og gat maður ekki varist hlátri þegar hann skaut bröndurum sínum inn við öll möguleg tækifæri. Þannig mun ég minnast hans um ókomna framtíð og sem duglega mannsins sem alltaf hafði eitthvað fyrir stafni, því öðruvísi gat hann ekki unað sér, alltaf jafn glaður og ánægður og alltaf jafn góður við okkur barnabörnin. Þau afi og arnma voru mjög samrýnd og gerðu nánast alla hluti saman. Alla tíð frá því að ég fór að muna eftir mér hefur mér fundist þau mjög sam- stiga með alla hluti. En nú hefur guð opnað faðm sinn og tekið hann til sín og ég veit að honum líður vel núna og að það er hugsað vel um hann. Eg veit að góður guð verndar hann afa minn og sér til þess að honum líði vel. Ég vil þakka guði fyrir þann tíma sem við fengum til að kynnast afa og njóta samvista við hann, enda þótt sá tími hefði þurft að vera miklu lengri. En ég hugga mig við það að seinna þegar minn tími kem- ur mun ég hitta hann aftur og ég er ekki í vafa um að þá mun hann taka brosandi á móti mér. Þangað til verðum við öll að taka höndum saman og styðja hvert annað, sér- staklega hana ömmu. Ég veit að guð gefur okkur styrk til að ýta burt sorginni um stund og gleðjast yfir góðum minningum um góðar stundir sem við áttum með yndis- legum manni, Friðrik Pétri Jóns- syni, Pétri afa. Elsku amma, guð blessi ykkur og gefi ykkur styrk. Elísa Rakel Jakobsdóttir. Hann afi minn var maður sem ekki gleymist auðveldlega. Hann var alltaf svo fullur af lífi og gleði, sem geislaði af honum hvar sem hann kom. Um það leyti sem ég fæddist, byrjuðu afi og amma að byggja sumarbústað á Uppsalaeyri við Seyðisfjörð. Þau byggðu með hjálp fjölskyldu og vina, notalegan bústað, og annað minna hús, sem er vinnuskúrinn þar sem amma verkaði grásleppu, en afi átti trillu, sem heitir Rjúpa og réri hann á henni og veiddi grásleppu. Hann á líka lítinn rauðan árabát sem heit- ir Lóa. Það var alltaf gaman að koma í Djúpið. Það var gaman að fara á sjó á Lóu og stundum fékk ég að fara með afa á Rjúpu. Þá leyfði hann mér oft að stýra. Þegar ég stýrði vitlaust þá hló hann og setti strikið aftur. Á kvöidin var svo gripið í spil. Oftast var þá spil- aður Kani. Afa blöskraði oft þegar ég var að segja pass. Hann vissi þá að ég átti betri spil. Þó það hafi verið gaman að fara á sjó og spila, var samt það besta við að koma í Djúpið að hitta afa og ömmu. Mér finnst afi hafa verið yndis- legur maður sem átti yndislega konu og yndislega fjölskyldu, sem ég er svo heppin að tilheyra. Og ég er viss um að þó hann sé farinn í gegnum Gullna hliðið á fund skap- ara síns mun hann alltaf vera hjá okkur og vernda okkur, þar til við hittumst á ný. Elsku amma, mamma, pabbi og allir, góður guð veri með okkur öllum. María Elísabet Jakobsdóttir. Núna þegar afi er dáinn þá hlað- ast upp ótal minningar um hann. Undan farin sjö ár hafa afi og amma búið hérna í Þorlákshöfn, þannig að ég er búin að vera meira og minna inni á þeirra heimili þessi ár. Það er mikill missir að sjá á eftir hónum afa, sem alltaf var okkur svo góður. Mikið hvað það var notalegt að kúra sig upp að honum, þegar hann var að segja einhveija af góðu sögunum sínum, en þær voru fjölmargar. Alltaf gátum við Valli leitað ráða hjá ömmu og afa, þau voru okkur sem bestu vinir. Nú fara í hönd breyttir tímar fyrir okkur öll. Það verður mjög erfitt og skrýtið að njóta ekki leng- ur samvista við afa, en við höfum ömmu, og það er nú meira en lítið að fá að hafa hana áfram hjá okkur. Elsku besti afí, ég þakka þér fyrir allar góðu stundirnar, og ég bið guð að geyma þig. Hvíldu í friði. Elsku amma mín, ég bið guð að varðveita þig og leiða í gegnum þessa þungu sorg. Einnig sendi ég samúðarkveðjur til allra minna ætt- ingja. Þorbjörg Jónína. HERMANN GUÐBJÖRNSSON + Hermann Guðbjörnsson tré- smiður var fæddur á Reykjahóli í Fljótum í Skaga- firði 13. febrúar 1928, og þar ólst hann upp. Hann lést í Reykjavík 11. ágúst síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Guð- björn Jónsson og Jónanna J. Stefánsdóttir. Systkini hans voru alls sex, en þrjú eru á lífi. Hermann flutti til Siglufjarðar og lærði þar trésmíði. Hermann var ókvæntur og bjó í Hátúni 6 í Reykjavík. Utför Hermanns fór fram frá Fossvogskapellu 17. ágúst. ÞAÐ ER erfitt að kveðja þig. Þú varst mér og börnunum góður. Það er svo sárt að missa þig. Bæði svip- ur og fas minnti mig alltaf á pabba minn. Ég man eftir þegar ég var lítil og þú komst í heimsókn, alltaf með eitthvað handa okkur. Ekki má gleyma skíðagöngunni og dans- inum og öllu kappinu í kringum það. Við munum alltaf minnast hvernig þú hreifst alla í kringum þig, börn og fullorðna. Nú eruð þið þrír bræðurnir farn- ir. Minning þín mun ætíð vera með okkur. Við erum þakklát fyrir að hafa kynnst öllum kostum þínum og hlýju. Hermann minn, megir þú hvíla í friði. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem.) Jóna Björg Pálsdóttir og fjölskylda. Þrefaldur pottur!!! VJS / QISQH VIJAH

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.