Morgunblaðið - 19.08.1995, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 1995
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Silfur ekki
hærra í 3
mánuði
SILFUR seldist í gær á hæsta
verði í þijá mánuði, þar sem
framboð vantar á markaðinn.
Sérfræðingar telja, að verð
málmsins geti enn hækkað í
verði. Talið er, að ein eða fleiri
fjármálastofnun standi að baki
hækkuninni, með spákaup-
mennsku í huga. Silfur seldist
á 566 sent únsan í gær, sem
er hæsta verð þess síðan 9. maí.
Talið er að hækkun dollars
hafi hagstæð áhrif á verð allra
iðnaðarmálma. „Hlýrri tilfinn-
ingar til hvítra málma eru rétt-
lætanlegar þar sem útlit er fyr-
ir að heimsviðskipti fái byr í
seglin vegna hækkunar doll-
ars,“ sagði miðlari í London. .
Gull gildir hins vegar sem
fjárfestingarkostur á kreppu-
tímum í heimsviðskiptum, og
því er talið að eftirspurn eftir
því fari minnkandi. Verð gulls
var 384,85 dollarar únsan í
gær, sem var lítil breyting frá
því á fimmtudag.
Platínum hefur hækkað í
verði, og virðist fylgja hækkun
siifurs. Verð þess var skráð 430
dollarar únsan í gær, en var
415,50 þann 14. ágúst. Talið
er að efnahagsbati í Japan í
kjölfar lækkunar jens muni
hækka verðið, en Japanir
kaupa um helmings alls plat-
ínums.
Kom er talið fara hækkandi,
ekki síst vegna þess, að til-
kynnt var í gær að kornupp-’
skeran í Rússlandi gæti orðið
sú versta í 30 ár.
Engin áhrif á áskriftarspariskírteini þó verðtryggð 5 ára skírteini leggist af
Innlend láns-
fjáröflun ríkís
sjoðs l.jan.
til 18. ágúst
(brúttó)
millj. kr.
Ríkisvíxlar, 3 mánuðir 24.958
Ri'kisvíxlar, 6 mánuðir 2.787
Ríkisvíxlar, 12 mánuðir 1.313
Ríkisbréf ríkissjóðs, 3 ár 1.348
ECU- tengd sparisk. ríkissjóðs 2.661
Sparisk.ríkissjóðs verðtr. 4.876
SAMTALS 37.943
5 ára óverðtryggð
ríkisbréf á markað
Morgunblaðið/Golli
FRIÐRIK Sophusson fjármálaráðherra kynnir nýjungar í útgáfu
verðbréfa ríkissjóðs á fundi með fréttamönnum í gær.
Góð afkoma Haraldar Böðvarssonar hf.
Hagnaður
HB 80 millj-
ónir fyrstu 6
mánuðina
imrím
Stærstu hluthafar í Haraldl Böðuarssyni hf.
10,50%
™___, 9’75%
j •Jurúufhii.
víirssan
REKSTUR Haraldar Böðvarsson-
ar hf. á Akranesi skilaði 80 miHj-
ón króna hagnaði fyrstu sex mán-
uði þessa árs. Að sögn Bergþórs
Guðmundssonar, fjármálastjóra
fyrirtækisins, birti það ekki sex
mánaða uppgjör 1994, en hagnað-
ur alls þess árs var 103 milljónir,
og veltan 2.657 milljónir.
Velta HB var 1.553 milljónir
króna fyrri hluta þessa árs, og
eigið fé 773 miljjónir. Eiginfjár-
hlutfall er 26%. Burðarás hf. er
nú stærsti hluthafi í fyrirtækinu
með 10,5% hlutafjár. Heildar-
fjöldi hluthafa er 652 um þessar
mundir.
HB rekur einn frystitogara, tvo
ísfisktogara, tvö loðnuskip, frysti-
hús, fiskimjölsverksmiðju og fisk-
verkun, auk stoðdeilda. A launa-
skrá eru um 400 manns, en árs-
störf eru um 300.
Ný spariskírteini ríkissjóðs til
20 ára boðin út í september
FJARMALARAÐHERRA kynnti í
gær breytingar á útgáfu verðbréfa
ríkissjóðs. Veigamestu breytingarn-
ar eru þær, að óverðtryggð 5 ára
ríkisbréf munu leysa verðtryggð 5
ára spariskírteini af hólmi um næst-
komandi mánaðarmót. Þá mun rík-
issjóður bjóða ný spariskírteini til
20 ára í september, en hingað til
hafa slík skírteini verið boðin til 10
ára lengst. Friðrik Sophussonjár-
málaráðherra, segir þetta gert til
að koma til móts við óskir fjár-
magnsmarkaðar.
Þriðja nýjungin í útgáfu ríkis-
verðbréfa verður kynnt á næst-
unni, en það eru svonefnd greiðslu-
skírteini. Þetta eru verðtryggð
spariskírteini til 10 ára, og eru
greiddar af þeim árlegar afborg-
anir.
Engin áhrif á
spariskírteini í áskrift
Friðrik tók fram, að engin breyt-
ing verði gerð á sölu spariskírteina
í áskrift. Hann benti á að það sé
stefna ríkisstjómarinnar að draga
úr verðtryggingu fjárskuldbind-
inga, og hafí reynslan af útgáfu
þriggja ára óverðtryggðra ríkis-
bréfa hvatt til frekari aðgerða í
þessa átt. Hvað 20 ára spariskír-
teinin varðar sagði Friðrik, að
markaðurinn hafi kallað á bréf af
þessu tagi, sérstaklega stofnanafj-
árfestar eins og lífeyrissjóðir og
tryggingarfélög, sem vildu gjarnan
hafa verðbréf til lengri tíma í safni
sínu. „Ríkissjóður er mikilvægur
aðili á fjármálamarkaði, og hefur
mótandi áhrif á hann,“ sagði Frið-
rik. „Við bindum vonir við það að
þessar nýjungar verði til að styrkja
íslenskan ijármagnsmarkað og þróa
enn frekar.“
Lánasýsla ríkisins hefur á þessu
ári aflað hartnær 38 milljörðum
króna í lánsfé fyrir ríkissjóð, en þar
af eru um 4 milljarðar hrein aukn-
ing lánsfjár ríkisins. Hrein lánsfjár-
þörf ríkisins á fyrri hluta ársins var
12-13 milljarðar króna, þannig að
um þriðjungi þess fjár var aflað
innanlands. Eins og fram hefur
komið fór hlutfall erlendra skulda
fram úr áætlunum á fyrri hluta
ársins, og er breytingunum nú ætl-
að að styðja þá viðleitni ríkissjóðs
að auka hlutfall innlendrar lánsfjár-
öflunar á síðari hluta ársins.
Fögnum fleiri valkostum
Guðmundur Hauksson, forstjóri
Kaupþings, sagði í samtali við
Morgunblaðið að með breytingun-
um væri ríkisstjórnin að fylgja
settri stefnu, og þær aðgerðir sem
hún hefði hingað til gripið til hefðu
heppnast vel. „Við fögnum því að
komin séu ný verðbréf sem gefa
aukna möguleika,“ sagði Guð-
mundur. Aðspurður sagði hann
erfitt að átta sig á áhrifum afnáms
verðtryggingar á fimm ára spari-
skírteinum. „Það kemur í ljós þeg-
ar fjárfestum gefst kostur á að
bjóða í þessi nýju óverðtryggðu
bréf hvort þeir trúi því að efna-
hagslegur stöðugleiki sé kominn
til að vera.“
Þorgeir Eyjólfsson, formaður
landssambands lífeyrissjóða, sagði
að þarna væru áhugaverðar nýjung-
ar á ferðinni, sem hefðu verið tíma-
bærar. „Ég geri ráð fyrir að lífeyris-
sjóðirnir muni taka vel undir þessa
valkosti," sagði Þorgeir.
Business Week segir væntanlegan hluthafa í Stöð 2 í vanda staddan
BANDARÍSKI bankinn Chase Manhattan,
sem nýlega keypti hlut í íslenska útvarpsfé-
laginu, á við töluverðan vanda að stríða, að
því er segir í nýjasta hefti tímaritsins Busi-
ness Week. Telja flestir fjármálasérfræðingar
ólíklegt að bankinn komist hjá því að samein-
ast öðrum banka.
Tímaritið segir þetta um margt minna á
ástandið síðla árs 1990 er Thomas G.
Labrecque tók við stjórn Chase Manhattan.
Þá hafí fasteignaviðskipti verið að sliga lána-
deild bankans og efnahagskreppan olli veru-
legum erfiðleikum varðandi greiðslukortavið-
skipti. Að auki var stöðugur orðrómur á kreiki
um að Chase Manhattan, sem byggður var
upp af Rockefeller-fjölskyldunni, gæti ekki
komist af einn og óstuddur.
Staðan er töluvert skárri í dag. Tekjur
hafa aukist verulega, reksturinn er skilvirk-
ari en arðsemin fremur lítil. Hefur þetta
valdið því að enn á ný er hugsanleg yfirtaka
Chase Manhattan rædd af kappi í fjármála-
heiminum og þrálátur orðrómur er um að
bankinn muni sameinast Chemical Banking
Corporation.
Mikil hækkun hlutabréfa
Kaup Michael F. Price á 6,1% hlut í bank-
anum í apríl si. hefur ýtt enn frekar undir
þessa umræðu en hann varð með þeim stærsti
einstaki hluthafi í Chase Manhattan. Hafa
hlutabréf í bankanum hækkað um 41% frá
því að hann keypti hlut sinn vegna væntinga
um að hann muni knýja í gegn verulegar
breytingar á rekstri og jafnvel sölu bankans.
Price átti í febrúar stóran þátt í því að Nati-
on Australia Bank festi kaup á Michigan
National Corporation en hann rekur Mutual
Series Fund.
Telja sumir að Labrecque hyggist reyna
að friðþægja Price með því að skera veru-
Hart sótt
að Chase
Man-
hattan
lega niður í rekstri bankans. Hefur sérstak-
ur ráðgjafi, Chandrika Tandon hjá Tandon
Capital Associates, verið ráðinn til starfa í
því skyni og fengið það verkefni að skera
niður árleg útgjöld um 400 milljónir dala.
Er tillagna hennar að vænta í janúar á
næsta ári. Margir sérfræðingar telja þó að
meira verði að koma til og að nauðsynlegt
muni reynast að selja einhvern hluta rekst-
ursins. Hafa greiðslukortaviðskipti bankans
verið nefnd í því sambandi en talið er að
markaðsvirði þeirra se um þrír milljarðar
dala.
Kapphlaup við tímann
Það á enn eftir að koma í ljós hvort
Labrecque tekst að sannfæra hluthafa um
að hyggilegt sé að reka bankann áfram sem
sjálfstæða einingu. Hann nýtur virðingar
fyrir að hafa snúið við taprekstri Chase
Manhattan auk þess sem hann þykir hafa
staðið sig vel í stefnumótun. Gengi hluta-
bréfa í bankanum hækkaði hins vegar ekki
að ráði fyrr en að Price kom til sögunnar.
Telja margir hluthafar að það sé fyrst eftir
að Price kom til sögunnar að yfirstjórn bank-
ans reyni að þóknast þeim.
„Chase er í stuttu máli í kapphlaupi við
tímann,“ segir Business Week og telur aðal-
fund bankans í apríl nk. vera mikilvæga
dagsetningu í því samhengi en þá gæti Price
lagt fram tiilögur til breytinga. Þó er ekki
óhugsandi að fjárfestar grípi til aðgerða fyrr.
Vænlegur kostur fyrir Chemical
En hveijum gæti Chase Manhattan sam-
einast? NationsBank Corp. mun hafa sýnt
áhuga um miðjan apríl en hætt við
er í ljós kom að áhuginn var ekki
gagnkvæmur. Þá er talið að Chase
Manhattan hafi átt í viðræðum við
ýmsa erlenda banka.
I júlímánuði var birt skýrsla eftir
sérfræðing hjá Sanford C. Bern-
stein & Co. þar sem leidd voru rök
að því að ef Chase Manhattan sam-
einaðist Chemical Bank gætu bank-
amir dregið úr árlegum útgjöldum
sínum um 1,1 milljarð dala. Þá
myndi hinn sameinaði banki ná ein-
staklega sterkri stöðu í t.d. veð-
lána- og greiðslukortaviðskiptum á
Bandaríkjamarkaði.
Innanbúðarmenn í bankanum
segja þó þrátt fyrir allt að stefnt
sé að því að viðhalda sjálfstæði hans. Að
auki mælir það gegn sameiningu við Chemic-
al að sá banki greindi í síðasta mánuði frá
því að hann hygðist kaupa aftur hlutabréf
í eigin fyrirtæki fyrir 1,2 milljarða dala.
Slíkar aðgerðir eru mjög óvenjulegar
skömmu áður en ráðist er í yfírtöku á öðru
fyrirtæki.
SBS nýtur
samruna
Disney/ABC
SÉRFRÆÐINGAR í hlutbréfaviðskiptum
vestan hafs ráðleggja nú að horfa til Norð-
urlandanna ef menn vilji njóta ávaxta af
hinum óvæntu kaupum Walt Disney á Cap-
ital Cities/ABC-sjónvarpsfyrirtækinu, að
því er segir í Business Week. Þar er ráð-
lagt að fjárfesta í Scandinavian Broadcast-
ing System, en hlutabréf í því fyrirtæki
liðlega 9-földuðust tveimur dögum eftir
tilkynninguna um samrunann.
Astæðan er að Capital Cities á
23,5% hlut í norræna fyrirtæk-
inu, sem aftur á og rekur sex
sjónvarpsstöðvar á Norðurlönd-
um og í Benelux-löndunum auk
útvarpsstöðva í Skandinavíu-
Fyrirtækið er einnig þátttakandi
í sameiginlegri umsókn nokkurra
fyrirtækja um Ijósvakarekstur í
Bretlandi. Samkvæmt upplýsing-
um Morgunblaðsins er Scandina-
vian Broadcasting System einn
þeirra erlendu aðila sem taldir
eru geta haft áhuga á íslenska
útvarpsfélaginu, ef núverandi
eigendur ákveða að bjóða til sölu
einhvern hluta af þeim hlutabréf-
um minnihlutans sem nú er verið að ganga
frá samningum um.
Sérfræðingar segja að samruni Disney
og CC/ABC sé mikill hvalreki fyrir SBS
því að með Disney að bakhjarli standi það
mun betur að vígi í þeirri viðleitni fyrir-
tækisins að sækja inn á nýja markaði á
Norðurlöndum og víðar í Evrópu.