Morgunblaðið - 19.08.1995, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 1995 17
Sveppir á
grillið
GRILLAÐIR sveppir eru algjört
lostæti sé fólk á annað borð fyrir
þessa tegund grænmetis. Skerið
stilka af sveppum og fyllið með
gráðosti. Grillið í nokkrar mínútur
og berið fram sem forrétt.
Tommi tóm-
atur kynnir
grænmeti
TOMMI tómatur kynnir nú
grænmeti í Hagkaupum í
Kringlunni og hvetur alla
krakka til þess að borða græn-
meti svo að þau verði hraust
og stór.
Tommi er risastór tómatur
sem talar og hreyfir augu og
útlimi þegar ýtt er á hnapp
sem er á einu grænmetisborð-
inu.
Örn Kjartansson rekstrar-
stjóri hjá Hagkaup segir að
Tommi ætli að vera til fram-
búðar og meginmarkmiðið sé
að gera verslunarferðina
skemmtilegri fyrir bömin og
auk þess að vera með áróður
um hollari mat. Líklegá kemur
tómaturinn til með að skipta
um texta reglulega.
Tommi verður aðeins í Hag-
kaup í Kringlunni og eru áform
um að fjölga persónum með
tímanum, en fyrst um sinn
verður Tommi þar einn áfram
í grænmetisdeildinni.
Heimilistæki
til sölu í Ikea
Farið er að selja heimilistæki í Ikea.
Tækin eru sérstaklega framleidd
fyrir Ikea og seld í verslunum fyrir-
tækisins um heim allan.
Sem dæmi má nefna að brauð-
rist kostar 1.290 krónur en hún er
á tilboðsverði. Þá kostar t.d. safa-
pressa 1.340 krónur, handþeytari
er á 2.250 krónur og hraðsuðuket-
ill á 3.990 krónur.
Body Shop safnar
undirskriftum
FYRIRTÆKIÐ Body Shop hefur lát-
ið útbúa bækling um mannréttindi
kvenna og undirskriftarlista þar sem
þess er farið á leit við Sameinuðu
þjóðirnar að þær upplýsi hvemig rík-
isstjórnir og aðildarríki hyggjast
tryggja mannréttindi kvenna. Eig-
andi Body Shop, Anita Roddick, mun
afhenda undirskriftarlista frá öllum
löndum þar sem verslanir hennar eru
reknar, á kvennaráðstefnu Samein-
uðu þjóðanna, sem haldin verður í
september í Kína.
í bæklingnum er vakin athygli á
lakri stöðu kvenna víða í heiminum
og ástæða gefín fyrir því að Body
Shop leggur málstaðnum lið: „Flestir
viðskiptavinir The Body Shop og
meirihluti starfsfólks eru konur og
að mati fyrirtækisins hefur forysta
og innsæi kvenna úrslitaþýðingu. í
stefnuyfirlýsingu The Body Shop er
markmiðið að tryggja að mannrétt-
indi séu virt í gegnum allar athafnir
fyrirtækisins, jafnt heima sem heim-
an.“ Bæklingar og undirskriftalistar
liggja meðal annars frammi í versl-
unum fyrirtækisins í Reykjavík.
Frí ábyrgðartrygging í
6 mánuði.
Sjúkrapúði í öllum bílum.
Lánakjör, fyrsta greiðsla
eftir allt að 6 mánuði.
Lán til allt að 48 mánaða,
jafnvel engin útborgun.
lííiii við og gerðu géð katpl
virkadagakl. 9-18
laugardaga kl. 10-17
sunnudaga kl. 13-17
SÆVARHÖfda 2 525 8020 i húsi Ingvars Helgasonar