Morgunblaðið - 19.08.1995, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 1995 21
ERLENT
Konan sem kleif Everest-fjall án súrefnis og ein sín liðs dó á næsthæsta fjalli heims
London. Reuter.
FJALLGÖNGUMAÐUR kvaðst í gær hafa
séð lík breska fjallagarpsins Alison Hargrea-
ves skammt frá tindi K-2, næst hæsta fjalls
heims, og sagði að ekki væri hægt að kom-
ast að líkinu. Hargreaves varð í maí fyrst
kvenna til að klífa Everest-fjall án súrefnis-
tækja og ein sín liðs. í gær átti að reyna
að bjarga fjallgöngumönnum, sem beðið
höfðu um hjálp, en hætt var við það vegna
veðurs.
„Ég hef verið að undirbúa mig undir þenn-
an dag í tíu ár, allt frá því hún fyrst fór
að klifra í Himalajafjöllum,“ sagði James
Ballard, eiginmaður Hargreaves, þegar
fréttist af láti hennar. „Ef hún er látin, þá
dó hún að minnsta kosti þar sem hún vildi
og var á leiðinni niður eftir að hafa klifið
tvo hæstu tinda heims án súrefnisgeyma og
með glans.“
Slæmt veður við fjallið
Slæmt veður hefur verið við K-2 og er
talið að Hargreaves og sex fjallgöngumenn,
sem með henni voru, hafi farist annað hvort
í snjóskriðu eða hávaðaroki á sunnudag.
Peter Hillary, sonur Edmunds Hillarys,
sem kleif Everest fyrstur manna, ætlaði upp
K-2 með ástralsk-nýsjálenskan leiðangur, en
sneri við ásamt einum samferðamanni vegna
Fannst látin
í hlíðum K-2
Reuter
BRESKI fjallgöngumaðurinn Alison
Hargreaves heldur á dóttur sinni, Katie.
Myndin var tekin í lok maí, nokkrum
dögum eftir að hún komst á tind Everest.
veðurs. Peter Hillary talaði á miðvikudag
við föður sinn, sem hafði eftir honum að
„breskafrúin . . . hefði virst mjög ákveðin
og sennilega átt stóran þátt í að hópur [henn-
ar[hélt áfram“.
I gær átti að reyna að komast í þyrlu að
rótum fjallsins til að bjarga tveimur Spán-
verjum, sem væru kalnir og hefðu farið fram
á hjálp, en því var frestað þangað til í dag
vegna veðurs.
Hargreaves skilur eftir sigtvö börn, Tom
sex ára og Kate fjögurra ára. Hún vísaði á
bug gagnrýni um að starf sitt bitnaði á börn-
unum, en viðurkenndi að hún væri ekki
móðir, sem væri mikið heima við: „Sjálfsálit
mitt er á stærð við Everest," sagði Hargrea-
ves, sem var atvinnumaður í fjallgöngum.
Þeirri stöðu náði hún ekki án fórna. Hún
byijaði að klifra í klettum á táningsaldri og
nokkra mánuði lifði fjölskylda hennar í bíl
vegna þess að hús hennar var selt til að
hægt yrði að láta drauminn um atvinnu-
mennsku rætast. A
Árið 1988 varð hún fyrsta breska konan
til að klífa Eiger í Alpafjöllum. Þá var hún
komin sex mánuði á leið.
Talið er að Bandaríkjamaður, Kanada-
maður, Nýsjálendingur og þrír Spánveijar
hafi farist með Hargreaves.
Reuter
ALEXÍJ II patríarki klappar geit á gönguferð með Viktor
Tsjernomyrdín, forsætisráðherra Rússlands.
Vill að lík Lenms
verði grafið
Moskvu. Reuter.
PATRIARKI rússnesku rétt-
trúnaðarkirkjunnar vill að lík
Vladimírs Leníns verði flutt úr
grafhýsinu í Kreml og það jarð-
sett. Segir patríarkinn líkið dap-
urlegt minnismerki um áróður
kommúnista.
„Ástand líks Vladimírs Len-
íns er ekki til marks um virð-
ingu fyrir honum, heldur dapur-
leg minning um hvernig lík hans
var notað af fyrrverandi yfir-
völdum í áróðursskyni gegn vilja
hins látna,“ sagði patríarkinn
Alexíj II við vikublaðið Argu-
mentí i Faktí.
Þetta er í fyrsta sinn sem
leiðtogi rússnesku kirkjunnar
hefur máls á því viðkvæma
máli sem greftrun Leníns er.
Leiðtogarnir i Kreml óttast að
verði hann grafinn bregðist
harðlínusinnaðir kommúnistar
ókvæða við.
Vildi láta jarða sig í
St. Pétursborg
Þegar Lenín lést, í janúar
1924, sagði ekkja hans, Nadez-
hda Krupskaja, að hann skyldi
grafinn í St. Pétursborg við hlið
móður sinnar og systur. Sagði
Krupskaja þetta hafa verið ósk
Leníns sjálfs.
En yfirvöld höfðu þetta að
engu og byggðu dökkrauða
marmaragrafhýsið við Kremlar-
múra á Rauða torginu, og varð
hýsið eitt af sterkustu táknum
kommúnistatímans.
Sprengjutilræðið í París rannsakað
Lögregla undir-
býr teikningu
París. Reuter.
VITNI kvaðst í gær hafa aðstoðað
lögregluna í París við að teikna mynd
af manni, sem gæti hafa komið fyrir
sprengjunni, sem sprakk skammt frá
Sigurboganum í hjarta Parísar á
mesta umferðartíma síðdegis á
fimmtudag með þeim afleiðingum
að 17 manns særðust.
Ónafngreindur hjólreiðamaður
kvaðst hafa séð mann, sem virtist
vera frá Norður-Afríku, troða böggli
í ruslafötuna, þar sem sprengjan
sprakk. Myndin væri af öðrum
tveggja manna, sem sést hefðu flýja
af vettvangi.
Yfirvöld óttast að meira sé í vænd-
um. „Ég get ekki útilokað að það
verði fleiri árásir,“ sagði Jean-Louis
Debre, innanríkisráðherra Frakk-
lands.
Ný rannsókn á afleiðingum reykinga
Reykingafólk
deyr einnig ungt
London. Reuter.
NIÐURSTÖÐUR rannsóknar, sem
birtar voru í London í gær, sýna
að reykingamönnum á fertugs- og
fimmtugsaldri er fimm sinnum
hættara við hjartaáfalli en þeim,
sem ekki reykja.
Samkvæmt rannsókninni, sem
breska Læknarannsóknaráðið og
Konunglegi krabbmeinsrann-
sóknasjóðurinn (ICRF) fjármögn-
uðu, má rekja helming hjartaá-
falla í heiminum meðal fólks á
milli þrítugs og fimmtugs til reyk-
inga. Niðurstöðurnar, sem birtust
í British Medical Journal, eru
sagðar sýna að æskan veitir enga
vernd fyrir áhrifum tóbaks.
„Þessi könnun sýnir að reyking-
ar orsaka fleiri ótímabær hjartaá-
föll, en áður var talið,“ sagði dr.
Rory Collins, starfsmaður Bresku
þjartastofnunarinnar. „Hlutfall
hjartaáfalla af völdum tóbaks
eykst eftir því sem menn eru
yngri.“ Könnunin náði til 14 þús-
und Breta, sem lifað hafa af
hjartaáfall og 32 þúsunda ættingja
þeirra. Þeir, sem að henni stóðu,
sögðu að vandinn væri mestur í
hinum iðnvædda heimi, en hann
færi vaxandi í þróunarríkjunum.
„Árlega fær hálf milljón manna
á milli þrítugs og fimmtugs hjarta-
áfall í þróunarríkjunum og
ástandið fer versnandi," sagði Ric-
hard Peto, starfsmaður ICRF, og
bætti við að sala á sígarettum
hefði aukist í Asíu, Afríku og róm-
önsku Ameríku á undanförnum
tveimur áratugum.
Peto sagði að helmingur tóbaks-
fíkla yrði fíkn sinni að bráð og
sérdeilis mikilvægt væri að niður-
stöður rannsóknarinnar yrðu
kynntar fyrir táningum: „Þeir,
sem byrja að reykja á tánings-
aldri eiga helst á hættu að fá
hjartaslag á fertugs og fimmtugs-
aldri."
HJARTAÁFÖLL
REYKINGAMENN OG REYKLAUSIR
Hlutfall hjartaáfalla
Reykingamenn og reyklausir á sama aldri
Hlutfall
012345678
50-59
60-69 ■ 2,5
70-79 ■ 1,9
A dur
30-39
40-49
Hjartaáföll
g 3 6,3sinnum
algengari
hjá þeim
sem reykja
á aldrinum
30-39 ára
Ekki af
völdum
reykinga
Hjartaáföll
meðal
reykinga-
manna
Tölur úr breskri
rannsókn á rúmlega
10.000 hjartaálöllum
Heimild: Breska hjartastofnunin
73 manns
farast í
flóðum
73 MANNS biðu bana í flóðum
eftir úrhelli í fjallahéraði ná-
lægt borginni Marrakesh í
Marokkó í fyrrinótt. Nokkur
jorp eyðilögðust í flóðunum
og talið er að dánartalan eigi
eftir að hækka.
Börn hrapa
niður foss
ELLEFU börn og prestur voru
talin af í gær þegar bátur
steyptist niður 100 metra háan
foss í suðausturhluta Venezu-
ela. Sex fullvaxta menn - leið-
sögumenn frá Venezuela, tveir
franskir ferðamenn og tveir
þýskir - björguðust þar sem
þeim tókst að stökkva úr bátn-
um áður en hann hrapaði.
„Baðfatastríð-
ið“ brella?
ANDREA Guglieri, bæjar-
stjóri ítalska ferðamannabæj-
arins Daino Marina, varð
heimsþekktur þegar hann lýsti
yfir stríði á hendur feitum og
ólögulegum konum sem klæð-
ast bikini-sundfötum á götum
bæjarins. Hann segir nú að
þetta hafi aðeins verið auglýs-
ingabrella. „Nú veit öll heims-
byggðin um Diano Marina."
Howard
Koch látinn
HOWARD Koch, einn af þrem
höfundum handritsins að kvik-
myndinni „Casablanca“, lést í
New York á fimmtudag, 93
ára að aldri. Koch var settur
á „svartan lista“ yfir meinta
kommúnista í Hollywood árið
1950 og bjó í Evrópu á árunum
1952-56 af þeim sökum.
Bókabanni
mótmælt
MENNTAMENN og rithöf-
undar í Hvíta-Rússlandi for-
dæmdu í gær bann sem for-
seti landsins, Alexander Lúk-
ashenko, setti við nýjum
kennslubókum í sögu og bók-
menntum. Forsetinn segir að
í kennslubókunum sé rangt
farið með sögulegar stað-
reyndir. Bækurnar voru gefn-
ar út eftir að Hvíta-Rússland
öðlaðist sjálfstæði eftir hrun
Sovétríkjanna árið 1991, en
Lúkashenko vill að Hvita-
Rússland sameinist Rússlandi.
Sir John
Swan fer frá
SIR John Swan, forsætisráð-
herra Bermúda, hefur tilkynnt
að hann ætli að standa við þá
hótun sína að segja af sér þar
sem kjósendur urðu ekki við
áskorun hans um að sam-
þykkja sjálfstæði frá Bretlandi
í þjóðaratkvæði á miðvikudag.
73,7% kjósenda höfnuðu sjálf-
stæði og vildu að Bermúda
yrði áfram elsta nýlenda
Breta. Forsætisráðherrann
lætur af störfum þegar stjórn-
arflokkurinn hefur kjörið nýj-
an leiðtoga.