Morgunblaðið - 19.08.1995, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 1995 37
Risafífill
Ligularia Macrophylla
HVERT vaxtartímabil
í garðinum hefur sitt
sérstaka yfirbragð.
Þær jurtir sem
blómstra fyrst á vorin
eru flestar fíngerðar
og smávaxnar, en eft-
ir því sem líður á
sumarið verða þær
plöntur, sem eru mest
áberandi í garðinum,
stærri og stærri. Ág-
úst er mánuður
risanna. Þótt ótrúlegt
megi virðast, eru það
margar tegundir
blómjurta, sem verða
1,5 m á hæð eða
meira. I fljótu bragði
kemur fram í huga
minn bjarnakló, risamjaðurt,
skessujurt, gígjarkollur, riddara-
spori og bláfífill. Ég hef safnað
saman í beð nokkrum stórvöxnum
náungum, sem flestir skarta sínu
fegursta í ágúst. Þessir náungar
vekja stundum furðu þeirra, sem
framhjá fara og ég er jafnvel spurð:
Hvaða risafífill er þetta eiginlega?
- því mörgum er tamt að grípa til
orðanna fífill eða sóley þegar um
blóm er að ræða. Risafífill, svara
ég að bragði. Þá halda sumir, að
ég sé að svara út úr, en þessi ná-
ungi heitir einmitt risafífill. Risafíf-
illinn er skyldur túnfíflinum okkar.
Þar sem hann tilheyrir körfublóma-
ættinni eins og túnfífillinn, en er
af ættkvísl sem heitir Ligularia á
latínu, en hefur verið kölluð skjald-
meyjarblóm á íslensku. Hvers
vegna i ósköpunum veit ég ekki,
helsta skýringin sem ég hef látið
mér detta í hug er að blöðin, sem
geta verið æði stór,
minni á dömuskildi,
sem henti þá skjald-
meyjum. Þessi ætt-
kvísl kallast nökke-
tunga á Norðurlönd-
um, sem myndi út-
leggjast nykurtunga.
Þar er komið nafn,
sem bæði vísar til
kjörlendis og latnesks
nafns jurtarinnar og
er því meira lýsandi
en skjaldmeyjarheitið
okkar.
Ættkvíslin Ligular-
ia hýsir 80-100 teg-
undir. Flestar þeirra
eiga uppruna sinn í
Asíu, einkum Kína,
Japan eða Síberíu, en þó mun
a.m.k. ein tegund vaxa villt í Evr-
ópu. Þó er aðeins lítill hluti þessar-
ar ættkvíslar sem vinsæll er sem
garðjurtir. Allmargar tegundir
hafa verið reyndar hérlendis, bæði
í grasagörðunum á Akureyri og í
Reykjavík og hjá einstaklingum.
Skjaldmeyjarblóm, sem eru svip-
miklar jurtir, hafa reynst hér bæði
harðgerð og langlíf. Risafífíllinn
minn er t.d. nálægt fermingu.
Helsta sérkenni þessarar ættkvísl-
ar er ekki blómin heldur blöðin, sem
oft eru geysistór. Blöðin, sem oft-
ast hafa langan legg, mynda hvirf-
ingu, sem blómstöngullinn vex upp
úr. Stór blaðkan er oft hjarta- eða
nýralaga, aðeins smátennt, en hjá
öðrum tegundum mikið skert, lik-
ust sóleyjarblaði. Á stönglinum eru
oftast nokkur blöð, sem minnka
eftir því sem ofar dregur. Blóm-
stönglamir eru langir, oftast meira
BLÓM
VIKUNNAR
316. þáttur
Umsjón Ágústa
Björnsdóttir
en 1 m. Blómin eru í ýmsum gulln-
um litbrigðum. Blómskipunin er
sett saman úr mörgum biómkörf-
um. í smákörfunum eru tvenns
konar blóm, líkt og hjá baldurs-
bránni íslensku, pípukrýnd hvirfil-
blóm og tungukrýnd jaðarblóm, en
latneska heitið Ligularia þýðir ein-
mitt lítil tunga.
Risafífillinn - Ligularia macrop-
hylla er stærsti meðlimurinn í
skjaldmeyjarblómafjölskyldunni
hérlendis. Blöðin hans minna á
fíflablöð að því leyti að blaðkan
teygist niður eftir blaðleggnum al-
veg til jarðar. Blöðin eru aflöng,
þykk, blágræn að lit. Blaðjaðrarnir
eru smátenntir en að öðru leyti er
blaðkan heil. Til gamans mældi ég
stærstu blöðkuna um miðjan ág-
úst. Hún reyndist 150 sm á lengd
en 40 sm þar sem hún var breið-
ust. Blómstöngullinn var hins vegar
240 sm á lengd. Blómskipanin á
risafíflinum er þéttari og blómin
smærri en á ýmsum þekktum ætt-
ingjum svo sem tröllkonublómi, L.
wilsoniana. Það gefur auga leið að
svona stórvaxin jurt þarf allmikið
olnbogarými og skjaldmeyjarblóm-
in njóta sín jafnvel best stakstæð.
Þeim má ekki ætla þurrasta staðinn
í garðinum, þar sem þau kjósa
helst deigan jarðveg, þó ekki
gegnsósa. I samræmi við þetta
virðast þau dafna betur sunnan
lands en norðan, þar sem oft eru
þurrkasumur. Skjaldmeyjarblóm
gera ekki miklar sérkröfur til jarð-
vegs að öðru leyti en því að þau
kunna vel að meta væna skóflu af
safnhaugamold eða vel mulinn
hrossaskít að vorlagi, því jafnstórar
jurtir og hér um ræðir eru nær-
ingarfrekar. Blaðskrúð jurtanna
nýtur sín vel þótt þær vaxi í nokkr-
um skugga, en það kemur auðvitað
dálítið niður á blómguninni. Aftur
á móti dregur skuggsæll vaxtar-
staður úr vatnsþörfinni, en blöðin
gulna nokkuð og fá brúna jaðra
við ofþornun. Þótt skjaldmeyjar-
blóm séu flest hávaxin þurfa þau
ekki stuðning, nema þau standi
sérlega áveðurs. Nú í ágúst hefur
verið vindasamt í Reykjavík, en
risafífillinn minn stendur jafnkeik-
ur og venjulega. Blóm af skjald-
meyjarættkvíslinni eru mjög
skemmtileg við tjarnir, þau sóma
sér vel í stórum görðum, jafnvel
hálfgerðum náttúrugörðum eða á
ræktunarsvæðum við sumarbú-
staði. Ekki er gott að flytja skjald-
meyjarblóm af vaxtarstað sínum,
þar sem rótarklumpurinn verður
stór og erfíður viðureignar.
Skjaldmeyjarblómum má fjölga
með því að stinga utan af rótar-
klumpnum snemma vors eða að
haustlagi. Eins er unnt að fjölga
þeim með sáningu en fræ ýmissa
tegunda eru iðulega á frælista
Garðyrlq'ufélags íslands.
SKÁK
Opiö alþjóðlcgt
skákmót
Leeuwarden, Hollandi
2.-10. ágúst 1995
ÞRÍR íslenskir stórmeistarar tóku þátt
á öflugu opnu skákmóti í Leeuwarden
í Hollandi fyrr í ágústmánuði. Þetta
voru Jóhann Hjartarson, Hannes Hlíf-
ar Stefánsson og Helgi Áss Grétars-
son. Þátttaka þess síðastnefnda vakti
mesta forvitni, því hann hafði ekki
tekið þátt á alþjóðlegu móti í hálft ár.
Þess er skemmst að minnast að Helgi
Áss er heimsmeistari unglinga 20 ára
og yngri, vann þann titil í Brasilíu í
september í fyrra og hreppti þá stór-
meistaratitil í einu vetfangi. Þetta var
afar skjótur frami og skákáhugamenn
hafa síðan beðið spenntir eftir því að
Helgi Áss sannaði stórmeistarastyrk-
leika sinn með því að ná áfanga sam-
kvæmt venjulegum reglum Alþjóða-
skáksambandsins FIDE.
Á Ólympíuskákmótinu og á tveimur
mótum í Gausdal í Noregi í janúar
tókst þetta ekki, en þá lagðist Helgi
Áss undir feld og tók sér langt frí frá
taflmennsku. Árangurinn kom svo í
ljós á opna mótinu í Leeuwarden.
Þótt Helgi Áss hafi skort hársbreidd
upp á hefðbundinn stórmeistara-
áfanga þá sannaði hann heldur betur
að hann getur teflt eins og stórmeist-
ari.
Hann var óhræddur við að leggja
út í tvísýnar flækjur og lenti oft í
miklu tímahraki. Það sópaði því að
Helga Áss í Leeuwarden, hann tefldi
sumar af tvisýnustu skákum mótsins
og ætlunin er að fjalla um þær í þess-
um pistli. Lesendur fengu reyndar
smjörþefínn af þessu hér í Morgun-
blaðinu á fimmtudaginn en þá birtust
lokin á vinningsskák hans gegn Rúss-
anum Kharlov.
En lítum fyrst á úrslitin í Leeuward-
en:
1-2. Dvoirys og Gleizerov, báðir Rúss-
landi 7 v. af 9 mögulegum
3-5. Kharitonov, Rússlandi, Komarov,
Úkraínu og Lobron, Þýskalandi 6 'h v.
6-12. Jóhann Hjartarson, Tsjútsj-
elov, Belgíu, Grooten, Hollandi, Cs.
Horvath, Ungveijalandi, dr. Nunn,
Englandi, Kharlov og Jakovitsj, Rúss-
Helgi Áss að sanna sig
landi 6 v.
13-22. Helgi Áss Grét-
arsson, Cifuentes, Van
der Wiel, Ligterink,
Reindermann og Za-
gema, Hollandi, J. Hor-
vath, Ungverjalandi,
Liss, Vydeslaver og Mik-
halevsky, ísrael 6 v.
Hannes Hlífar Stef-
ánsson var íjarri sínu
besta og hlaut 4 ‘A v. og
endaði í 35-40. sæti.
Eins og sjá má á þessum
úrslitum stóð Jóhann
Hjartarson vel fyrir sínu.
Það kemur auðvitað
engum á óvart, en það
vekur hins vegar athygli
að Helgi Áss lagði þijá
stórmeistara að velli á mótinu og náði
árangri sem jafngildir 2.607 stigum.
Með smáheppni hefði þetta dugað tit
stórmeistaraáfanga. En hvað sem því
líður þá hækkar Helgi verulega á stig-
um, væntanlega um 15-20 Elo-stig,
en fyrir hefur hann 2.450, sem var
fulllágt fyrir stórmeistara.
í fyrstu umferð vann Helgi stigalág-
an Frakka og í annarri umferð voru
þeir Jóhann svo óheppnir að lenda
saman. Skákin var í járnum þar til
Jóhanni varð á grófur fingurbijótur í
endatafli:
Svart: Jóhann Hjai-tarson
Hvítt: Helgi Áss Grétarsson
Hér gleymdi Jóhann að skipta upp
á peðum á f4 en lék í staðinn strax:
25. - Hb2+?? (Eftir 25.
— gxf4 26. gxf4 —
Hb2+! stendur svartur
hins vegar síst lakár, en
nú lokast riddari hans
inni) 26. Kxb2 — Rd3+
27. Kc2 - Rxel 28.
Kdl - Rd3 29. Be2 -
Rf2+ 30. Kel - Rh3
31. Bg4 - exd5 32. f5!
- Rgl 33. Kfl - h5
34. Bxh5 — dxe4 35.
Kxgl og þar sem svart-
ur hefur allsendis ófull-
nægjandi bætur fyrir
mann þá vann Helgi Áss
örugglega.
Farsæl byrjun og
Helgi fylgdi henni eftir
með glæsilegum sigri á
rússneska stórmeistaranum Kharlov
daginn eftir. Hann gerði síðan jafn-
tefli við annan slíkan, Kharitonov, í
ijórðu umferð. Þá mætti hann þýska
stórmeistaranum Eric Lobron sem var
efstur með fullt hús, fjóra vinninga.
Skákin var söguleg og lokin ótrúleg,
í tímahraki kom upp þessi staða:
Svart: Helgi Áss Grétarsson
Hvítt: Eric Lobron
Svartur stendur vel að vígi og hefði
hér að meinalausu getað krækt sér í
peð og leikið 34. — Dxb2. En teflend-
ur voru í bullandi tímahraki: 35. —
Rc2? 36. Bxc5+ - Dxc5 37. Bxc2 -
Dxc2 38. Df3 - Dc5 39. De4 - Hd8
40. Dh7 - Dxe5 41. Ha7 og Helgi
Áss lagðist nú í djúpa þanka þegar
tímahrakinu var náð. Hann hlýtur að
hafa verið orðinn yfirspenntur því
hann gafst upp í stöðunni, sá ekki
viðunandi vörn við 42. Dh8 mát. Hann
á samt einfalda vörn: 41. — Dd5+ 42.
Kh2 — Hd7. Óútskýranleg skákblinda!
Eftir þessa furðulegu óheppni hefði
einhver misst móðinn en daginn eftir
mætti Helgi víggreifur til leiks gegn
reynda hollenska stórmeistaranum
John Van der Wiel. Hollendingurinn
ætlaði að endurbæta gamla tapskák
sína við Ljubojevic en Helgi Áss reynd-
ist vel lesinn í fræðunum, tók Van der
Wiel á orðinu og vann örugglega:
Hvítt: Helgi Áss Grétarsson
Svart: John Van der Wiel
Kóngsindversk vörn
I. d4 - Rf6 2. c4 - g6 3. Rc3 -
Bg7 4. e4 - d6 5. f4 - 0-0 6. Rf3
- c5 7. dxc5 - Da5 8. Bd3 - Rfd7?!
Þessi leikur hefur haft slæmt orð á
sér eftir skákina Ljubojevic-Van der
Wiel í Hollandi 1986.
9. cxd6! — Bxc3+ 10. bxc3 — Dxc3+
II. Dd2 - Dxal 12. dxe7 - He8
13. e5 - Rc6 14. 0-0 - Rd4 15. Rg5!
Júgóslavinn fylgdi hróksfórninni
eftir með 15. Bb2? sem er afleikur.
Leikur Helga hefur verið rannsakaður
og talinn leiða til hagstæðrar stöðu á
hvítt. Van der Wiel er ekki á sama
máli en eitthvað hefur honum yfirsést.
15. - Rc5!?
Hollenski skákblaðamaðurinn Ligt-
erink taldi 15. — Re6 þvingað og gaf
upp framhaldið 16. Rxe6! — fxe6 17.
Bxg6! — hxg6 18. Ba3 — Dxfl+ 19.
Kxfl - Kf7 20. f5! - gxf5 21. Dh6
- Rxe5 22. Dh7+ - Kf6 23. Bb2
með vinningsstöðu á hvítt. En endur-
bót Van der Wiels virðist engu breyta.
Næstu leikir eru svo gott sem þvingað-
ir:
16. Ba3 - Rcb3 17. Df2! - Dc3 18.
Dh4 - h5
SJÁ STÖÐUMYND III.
19. Re4 - Dxd3 20. Rf6+ - Kh8
21. Rxe8 - Rf5 22. Df6+ - Kg8
23. Rd6
Hvíta staðan hlýtur að mega teljast
unnin og hér lítur 23. Rc7 mjög vel
Helgi Áss
Grétarsson
STÖÐUMYND III
út. En leið sú sem Helgi Áss velur er
bæði einföld og sterk. Svarts bíða
hroðaleg örlög í endatafli þar sem
hann er í hlutverki áhorfandans.
24. - Be6 24. Rxf5 - Bxf5 25. axb3
- Dxb3 26. e6 - De3+ 27. Khl -
Dxe6 28. Bb2 - Dxf6 29. Bxf6 -
He8 30. Hal - a6 31. Kgl - Be6
32. c5 - Bd7 33. Kf2 - Kh7 34.
Ke3 - g5 35. fxg5 - Kg6 36. Kf4
- Bc6 37. g3 - Ha8 38. Hdl - He8
39. Hd8 - a5 40. Ke5 - a4 41. Kd6
- Kf5 42. Kc7 - Ke6 43. Hxe8 -
Bxe8 44. Kd8 og Van der Wiel gafst
upp.
Á meðan þessu fór fram tefldu þeir
Lobron og Jóhann á efsta borði og
vann Þjóðverjinn þar sína sjöttu skák
í röð. Hann virtist eiga sigurinn á
mótinu vísan, en hlaut aðeins hálfan
vinning úr þremur síðustu skákunum.
Helgi Áss fékk það erfiða verkefni
daginn eftir að mæta enska byijanda-
sérfræðingnum John Nunn með
svörtu. Hann stóðst prófið og doktor-
inn bauð jafntefli eftir aðeins 20 leiki
sem Helgi þáði. En í næstsíðustu
umferð náði hann sér ekki vel á strik
gegn Dvoiris, sem sigraði á mótinu.
Þar leyfði Helgi Rússanum að tefla
of einfalt, tókst ekki að flækja taflið.
í síðustu umferð gerði hann svo jafn-
tefli við stórmeistarann Huzman frá
ísrael.
Þegar þetta er ritað situr Helgi Áss
að tafli í Berlín ásamt félaga sínum,
Magnúsi Emi Úlfarssyni. Hann ætti
því að vera kominn í mjög góða þjálf-
un þegar Friðriksmótið hefst í Þjóðar-
bókhlöðunni eftir mánaðamótin.
Margeir Pétursson