Morgunblaðið - 19.08.1995, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 1995 39
FRÉTTIR
Vistvæn framleiðslulína
Ráðstefna um jökul-
rof og framburð
Á SÝNINGUNNI Iðnaði ’95 á
Hrafnagili kynnir Folda hf. nýja
fatalínu sem kemur á markað í íok
ágúst og nefnist hún Folda Natura.
Þetta er vistvæn framleiðslulína
sem er afrakstur vöruþróunarverk-
efnis Foldu og Iðntæknistofnunar
íslands. Við framleiðsluna er notað
ullarband úr ólitaðri og óbleiktri
íslenskri ull sem er sérframleidd
fyrir Foldu og með nýjum prjónavél-
um er hægt að nýta áður ónýtta
möguleika í vélprjóni.
Samkvæmt upplýsingum frá
Árna A. Arasyni, markaðsstjóra
Foldu, er hugmyndin með fram-
leiðslu og markaðssetningu hinnar
nýju línu að bjóða gæðafatnað úr
alíslensku hráefni þar sem sérkenni
íslensku ullarinnar fá að njóta sín
til hins ítrasta og ströngustu skil-
yrði um vistvænan fatnað eru upp-
fyllt.
Náttúrulegt
hráefni
Folda Natura verður þannig tákn
fyrir klassískar flíkur úr náttúrlegu
hráefni fyrir fólk sem er meðvitað
um tískusveiflur og áhrif hefðbund-
innar fataframleiðslu á líkamlega
vellíðan og umhverfisþætti.
„íslensk ull er létt og einangr-
andi og við rétta vinnslu heldur hún
eðlislægri mýkt. Litarefni, bleiking
og þvottur með kemískum efnum
hefur mikil áhrif á mýkt og áferð
hráefnisins til hins verra. Af þessum
sökum höfum við sniðgengið þessa
áhrifavalda. Þá notum við tvinna
og fatamerkingar úr bómull ásamt
því að öll kynningargögn eru úr
endurunnum pappír, að ógleymdum
handunnum tölum úr íslensku dýra-
horni,“ sagði Ámi.
RÁÐSTEFNA á vegum Alþjóð-
lega Jöklarannsóknafélagsins um
jökulrof og framburð jökla og jök-
uláa verður haldin í Reykjavík
dagana 20. til 25. ágúst. Að ráð-
stefnunni standa Háskóli íslands,
Jöklarannsóknafélag íslands,
Vegagerðin, Veðurstofan, Orku-
stofnun og Landsvirkjun.
í tengslum við ráðstefnuna
verður jöklafræðingnum Anthony
J. Gow afhent viðurkenning Al-
þjóða jöklarannsóknafélagsins,
Seligman krystailinn, fyrir fram-
lag hans til jöklarannsókna. Af-
hending viðurkenningarinnar fer
fram í Þingstofu Hótel Loftleiða
þriðjudaginn 22. ágúst kl. 20.30.
I kjölfar hennar flytur Gow erindi
um krystalbyggingu íss og sýnir
litskyggnur af snjókrystöllum,
jökulís, ís af ám og stöðuvötnum
og hafís. Fyrirlesturinn er fluttur
á ensku og er öllum opinn.
KENNARAR Kramhússins f.v. Elva Lilja Gísladóttir, Sigurd
Barrett og Soffía Vagnsdóttir.
Kennaranámskeið
í Kramhúsinu
íslensk frímerki á
Veraldarvefnum
KENNARANÁMSKEIÐ Kram-
hússins verður haldið 26. til 29.
ágúst og þriggja daga aukanám-
skeið 30. ágúst til 1. september.
Á námskeiðinu er unnið með
tónlist, dans, leiklist og spuna og
segir í fréttatilkynningu að áhersla
sé lögð á að örva og virkja sköp-
unargleði þátttakenda.
Gestakennari námskeiðsins er
Sigurd Barrett frá Danmörku.
NÚ ER hægt að skoða og panta
íslensk frímerki á Veraldarvef Al-
netsins. íslenska póststjórnin er
fyrsta póststjórn í Evrópu sem kem-
ur sér upp sérstakri frímerkjasíðu
á netinu og er tilgangurinn sá að
bæta þjónustu Frímerkjasölu við
áskrifendur víða um heim og afla
nýrra áskrifenda.
Margar póststjórnir í Evrópu
vinna um þessar mundir að því að
koma frímerkjatengdum upplýsing-
um á netið, en aðeins er vitað um
þrjár, sem kynna frímerki á Ver-
aldavefnum, Bandaríkin, Kanada
og ísrael. Hægt er að finna heimas-
íðu Landssambands íslenskra frí-
merkjasafnara á Alnetinu og jafn-
framt er ijöldi áhugamanna um frí-
merkjasöfnun hvaðanæva að úr
heiminum með heimasíður á netinu.
Á íslensku frímerkjasíðunum er
hægt að skoða öll frímerki sem
fáanleg eru hjá Frímerkjasölu Pósts
og síma. Hægt er að panta þessi
frímerki og jafnframt lesa nýjar
sölutilkynningar og aðrar frí-
merkjatengdar upplýsingar á fimm
tungumálum. Sérstakar upplýs-
ingar eru ætlaðar fólki sem er að
byija að safna frímerkjum. Fylgst
er með umferð á frímerkjasíðum
Pósts og síma og í ljós hefur komið
að daglega skoða mörg hundruð
manns hvaðanæva að úr heiminum
þessar síður.
Stefnt er að því að birta ítarlegar
upplýsingar um íslensk frímerki
fyrir þá safnara sem hafa aðgang
að tölvum og eiga þeir þannig að
geta fylgst með öllum nýjungum
hjá Frímerkjasölunni. Slóðin til ís-
lensku frímerkjasölunnar er:
http://www.simi.is/postphil. Net-
fang og rafpóstur er: postphil-
simi.is.
Eigendaskipti
að Absalon
EIGENDASKIPTI hafa orðið á
hárgreiðslustofunni Absalon,
Urðarholti 4, Mosfellsbæ. Eigend-
ur stofunnar eru Elín Björk Ein-
arsdóttir sem áður rak hársnyrti-
stofuna Paraprýði og Hafdís Heið-
arsdóttir. Boðið er upp á alhliða
hársnyrtingu fyrir dömur og herra
á öllum aldri. Stofan er opin alla
virka daga frá kl. 9 til 18 eða
eftir samkomulagi.
FYRSTA stjórn klúbbsins f.v. Gunnar Kristjánsson, Bent Russel,
Friðrik Rúnar Friðriksson, Páll Guðmundsson formaður og
Magnús Álfsson.
Golfklúbbur stofn-
aður í Grundarfirði
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
BERGUR Sigmundsson, bakarameistari, ásamt tveimur starfs-
stúlkum, Sif Sverrisdóttur, til vinstri, og Jóhönnu Ágústsdóttur.
Vilberg kökuhús
í nýtt húsnæði
Vestmannaeyjum. Morgunblaðið.
STOFNFUNDUR goifklúbbs í
Grundarfirði var haldinn 27. júlí sl.
Á fundinn mættu rúmlega 30 manns.
Nokkrir Grundfirðingar hafa
stundað golfíþróttina sem félags-
menn í Golfklúbbnum Jökli Ólafsvík
um 20 km leið frá Grundarfirði.
Snemma á þessu ári fór bóndinn í
Suður-Bár að huga að golfvallargerð
á jörð sinni í kjölfar þess að hann
ákvað að hætta búskap. Kom þá
strax fram áhugi fyrir stofnun golf-
klúbbs í Grundarfirði.
Á stofnfundinum var kosin fimm
manna stjórn og tveir endurskoðend-
ur. Mun stjórnin starfa fram að aðal-
fundi sem áformað er að halda sam-
kvæmt lögum klúbbsins í lok október
NÆSTKOMANDI sunnudag verður
farin síðasta gönguferðin um Innbæ-
inn á vegum Minjasafnsins á Akur-
eyri í sumar. Lagt verður af stað frá
Laxdalshúsi kl. 13. Gengið verður
um gömlu kaupstaðarlóðina, inn eft-
ir Fjörunni og endað við Minjasafnið.
Þátttaka er ókeypis og öllum opin.
Laxdalshús verður opið kl. 13-17
á sunnudaginn. Þar hangir uppi ljós-
myndasýningin „Akureyri-svip-
eða byijun nóvember. Hina nýju
stjórn skipa: Páll Guðmundsson for-
maður, Friðrik R. Friðriksson vara-
formaður, Gunnar Kristjánsson rit-
ari, Bent Russel gjaldkeri og Magnús
Álfsson meðstjórnandi. Endurskoð-
endur eru Dóra Haraldsdóttir og
Erna Njálsdóttir.
Eitt helsta verkefni stjómarinnar
fram að aðalfundi verður að ganga
frá samningi við landeigendur í Suð-
ur-Bár um notkun golfvallarins.
Hannes Þorsteinsson golfvallahönn-
uður og kennari við Fjölbrautaskóla
Vesturlands hefur hannað og teiknað
níu holu völl í Suður-Bár. Um leið
og völlurinn verður tilbúinn má vænta
þess að haldið verði opnunarmót.
myndir úr sögu bæjar“ og einnig er
boðið upp á sýningu á myndbandinu
„Gamla Akureyri“.
Minjasafnið á Akureyri er opið
daglega kl. 11-17 og á þriðjudags-
og fimmtudagskvöldum til ágúst-
loka.
Sigurhæðir, minningarsafn um
Matthías Jochumsson skáld og prest,
verða opnar alla daga kl. 14-16 til
15. september.
Fræupp-
skera land-
græðslu-
jurtaer
að hefjast
NÚ ER hafin uppskera á fræi af
landgræðslujurtum. Lúpínan er
fyrst þeirra til að þroska fræ, en
síðan fylgja grastegundirnar mel-
gresi, beringspuntur og túnving-
ull, segir í fréttatilkinningu.
Þrátt fyrir afar óhagstætt tíðar-
far í vor og fram eftir sumri, er
þokkalegt útlit með uppskeru á
Suðurlandi en væntanlega verður
ekki uppskorið melfræ á Norður-
landi vegna þess hve seint voraði
þar.
Uppskera á
Mýrdalssandi
Mánudaginn 21. ágúst hefst
uppskera á Mýrdalssandi á því
svæði sem versta sandfokið hefur
verið á undanförnum árum.
Landgræðslan og Vegagerðin
hafa á síðustu árum sáð þar mel-
fræi, lúpínu, túnvingli og ber-
ingspunti til heftingar sandfoks
og vonast Landgræðslan eftir
góðri uppskeru á þessum sáðslétt-
um á næstu dögum.
Einstakur árangur
Það hlýtur að teljast einstakur
árangur miðað við þær erfiðu að-
stæður sem þar er við að etja.
Þrátt fyrir viðamikla sandgræðslu
þessara stofnana á undanfömum
árum hefur þó aðeins verið sáð í
um 1% af flatarmáli alls Mýrdals-
sands.
VILBERG-kökuhús flutti starfsemi
sína fyrir skömmu í nýtt húsnæði
að Bárustíg 7 í Eyjum. Þar er öll
starfsemi fyrirtækisins
undir einu þaki, bakarí
á efri hæð en pökkun,
afgreiðsla og lítill salur,
þar sem hægt er að
setjast við borð og fá
sér kaffi og meðlæti, á
neðri hæðinni.
Hjónin Bergur Sig-
mundsson, bakara-
meistari, og Vilborg
Gísladóttir hafa átt og
rekið Vilberg í 13 ár. I
fyrstu var bakaríið við
Vestmannabraut en síðustu ár hefur
það verið í iðnaðarhúsnæði við Flat-
ir. Þennan tíma hefur verslunin ver-
ið staðsett annarstaðar og hefur því
þurft að flytja öll brauð og kökur
frá bakaríinu í verslunina en auk
þess eru brauð og kökur frá Vilberg
seld í öllum matvöruverslunum í
Eyjum. Júlía Andersen, innanhús-
arkitekt, hannaði breytingar á hús-
næðinu en öll smíðavinna var í hönd-
um Spóns sf., sem er í eigu Þórarins
Axels og Þorsteins Björgvinssonar.
Egill Egilsson, trésmíðameistari, tók
einnig þátt í trésmíðavinnu, Þor-
steinn Þorsteinsson, sá um raflagn-
ir, Viðar Einarsson um málningar-
vinnu og Þórarinn Þórhallsson um
pípulögn.
Gönguferð um Innbæinn
Akureyri. Morgunblaðið
Salurinn í Vilberg kökuhúsi.