Morgunblaðið - 19.08.1995, Side 42

Morgunblaðið - 19.08.1995, Side 42
42 LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 1995 MORGUNBLAÐIÐ MESSUR Á MORGUINl I DAG BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarsnn EINN ævintýralegasti sagnmisskilningur Evrópu- mótsins kom upp í leik Pól- veija og Norðmanna, þegar eitt ónanfgreint pólskt par varð fyrir því óláni að fara sex niður í redobluðu spili. Suður gefur; NS á hættu. Norður ♦ KG1084 Y G9 ♦ 64 ♦ 10954 Vestur ♦ 9762 Y ÁD75 ♦ - * ÁK763 Austur ♦ 53 V 108432 ♦ DG1092 ♦ 8 Suður ♦ ÁD V K6 ♦ ÁK8753 ♦ DG2 Vestur Norður Austur Suður 1 lauf1 1 hjarta2 Dobl8 2 grönd4 3 grönd Dobl 4 spaðar 4 grönd Pass 5 lauf Dobl Redobl Pass Pass Pass 'Sterkt lauf. 2Hjarta og lauf eða spaði og tígull. 35-7 punktar. ‘„til í allt.“ Ekki þarf að fara í neinar grafgötur með það að redobl- ið var meint ti úttektar, en vestur gat ómögulega túikað sögnina þannig, enda taldi hann sig þegar hafa sýnt hjarta og lauf. Ekki er vitað með vissu hvað fór úrskeiðis, en sennilega hefur austur ekki verið fullkomlega viss um merkingu hjartainná- komunnar. Hvað um það; vestur fékk 6 slagi, sem kost- aði Pólveija 2.800 stig. „Gott við vorum utan hættu,“ sagði vestur eftir spilið. Leikinn unnu Pólveijar 17-13. Með morgunkaffinu HANN er alveg upp- gefinn, enda búinn að bryðja kartöfluflögur í allan dag. SKAK llmsjón Margelr Pétursson HVITUR leikur og vinnur Staðan kom upp á opna mótinu í Leeuwarden í Hol- landi sem lauk fyrir rúmri viku. Enski stórmeistarinn, skákbókahöfundurinn og stærðfræðingurinn dr. John Nunn (2.615) hafði hvítt og átti leik gegn hol- lenska alþjóðlega meistar- anum Hermanni Grooten (2.340). 26. Bxa6! - Be7 (Auð- vitað ekki 26. — Hxa6? 27. Dd8 mát) 27. Hgel — He5 (Skárra var 27. - Hb8) 28. Bxb7 og svartur gafst upp. Nú stendur yfir opna hollenska meistaramót- ið og er Hannes Hlífar Stefánsson þar á meðal keppenda. Hann byijaði ekki vel, hefur tvo vinn- inga af Ijórum möguleg- um, tapaði fyrir heima- manninum Van der Weide í fjórðu umferð. Enski stór- meistarinn Julian Hodgson er efstur með fjóra vinn- inga. VELVAKANDI Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Tapað/fundið Myndavél tapaðist LlTIL myndavél í tösku sem merkt var Icelandair tapaðist úr bíl við Botn- skála í Hvalfirði eða á leið í Hrútafjörð 13. ág- úst sl. Skilvís finnandi hringi í síma 554 1285. Hringur tapaðist MÓDELHRINGUR frá Jens úr silfursmelti og kopar tapaðist á tjald- stæðinu á Seljavöllum í kringum 20. júlí. Hring- urinn er ekki með stein en er með smáramunstri. Finriandi er vinsamlegast beðinn um að hringja í síma 554 6015. Gæludýr beðinn um að láta vita í síma 562 2141. Vaskur missti eiganda sinn LABRADOR retriever- hundurinn Vaskur er sex ára gamall og hefur alla tíð verið afar blíður og húsbóndahollur. Eigandi hans dó fyrir skömmu og því er nú leitað að nýju heimili fyrir Vask. Hann var vanur að fara í vinnu með húsbónda sínum og er því óvanur að vera einn heima. Vaskur er hraustur og þægilegur heimilishund- ur. Dýravinir, sem gætu tekið Vask að sér eru beðnir um að hafa sam- band við Vilhelmínu í síma 561 3962. Golden retriever tík fannst í Hvassaleiti GOLDEN retriever tík með brúna leðuról fannst í Hvassaleiti. Greinilegt er að hún hefur týnst frá heimili sínu því hún er mjög gæf og var hún mjög svöng þegar hún fannst. Eigendurnir eru beðnir um að hringja í lögregluna í Reykjavík. Kisa er týnd ALSVÖRT læða, 10 ára, sem gegnir nafninu Tinna, týndist frá Lauf- ásvegi 47, 23. júlí sl. Hún er merkt og er með gráa sjálflýsandi ól á rauðum grunni, en hún gæti hafa dottið af henni. Tinna var nýflutt til Reykjavíkur utan af landi. Ef einhver skyldi finna hana er hann Vaskur er hreinræktað- ur Labrador retriever. Týndur köttur STEINGRÁ læða hvarf frá Njörvasundi fimmtu- dagskvöldið 10. ágúst sl. Hún er eyrnamerkt, R- 5001, og hafði einnig ól um hálsinn. Hafi einhver orðið ferða hennar var er hann vinsamlega beð- inn um að láta vita í síma 581 3078. LEIÐRETT Bráðlifandi í minningargrein Mar- grétar Ólafsdóttur um Hjördísi Jóhannsdóttur á blaðsíðu 39 í Morgun- blaðinu í gær var bráðlif- andi kona sögð látin. Þarna var vikið frá hand- riti vegna mistaka í vinnslu og eru hlutaðeig- endur innilega beðnir af- sökunar. Hér á eftir fer málsgreinin sem varð fyr- ir hnjaskinu: „Þarna kynntumst við Dísa Jó. og brölluðum margt með öðrum skólasystkinum, sérstaklega þeim Agnesi og Löllu, sem nú er látin.“ Yíkveiji skrifar... Guðspjall dagsins: Jesús grætur yfir Jerúsalem._____________ (Lúk. 19.) ÁSKIRKJA: Sumarferð Safnað- arfélags og kirkjukórs Áskirkju. Farið frá Áskirkju kl. 8.15. Hlýtt á messu á Gaddstaðaflöt og haldið í Odda og undir Eyjafjöll og um Fljótshlíð. Kvöldverður á Selfossi. BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Organisti Guðni Þ. Guð- mundsson. Pálmi Matthíasson. DÓMKIRKJAN: Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. María Ágústsdótt- ir. Dómkórinn syngur. Organleik- ari Marteinn H. Friðriksson. ELLIHEIMILIÐ GRUND: GRENSÁSKIRKJA: Messa kl. 11. Prestur sr. Halldór S. Gröndal. Organisti Jakob Hallgrímsson. HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl. 11. Sr. Karl Sigurbjörnsson. Org- anisti Hörður Áskelsson. Orgel- tónleikar kl. 20.30. Martin Souter organisti frá Oxford, Englandi leikur. LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10. Sr. Ingólfur Guðmundsson. HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir. LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð- brands biskups. Messa kl. 11. Prestur sr. Ólöf Ólafsdóttir. Org- anisti Jón Stefánsson. Kaffisopi eftir messu. LAUGARNESKjRKJA: Sumarleyfi sóknarprests. Ólafur Jóhannsson. NESKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Kjartan Örn Sigurbjörnsson. SELTJARNARNESKIRKJA: Messa kl. 11. Organisti Vera Gul- asciova. Prestur sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir. ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Organisti Sigrún Stein- grímsdóttir. Guðmundur Þor- steinsson. BREIÐHOLTSKIRKJA:Samkoma ungs fólks með hlutverk kl. 20. DIGRANESKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 11. Organisti Smári Óla- son. Gunnar Sigurjónsson. FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðs- þjónusta kl. 20.30. Prestur sr. Hreinn Hjartarson. Organisti Lenka Mátéová. Einleikur á píanó: Ólafur Elíasson. Prestarnir. GRAFARVOGSKIRKJA: Messa kl. 11. Organisti Oddný J. Þorsteins- dóttir. Kristján Einar Þorvarðar- son. HJALLAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Organisti Bjarni Þór Jóna- tansson. Prestarnir. KÓPAVOGSKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 11. Organisti Örn Falkn- er. Ægir Fr. Sigurgeirsson. SELJAKIRKJA: FRÍKIRKJAN, Rvík: KRISTSKIRKJA, Landakoti: Há- messa kl. 10.30. Messa kl. 14. Ensk messa kl. 20. Laugardaga messa kl. 14 og ensk messa kl. 20. Aðra rúmhelga daga messur kl. 8 og kl. 18. KFUM og KFUK, v/Holtaveg: Samkoma á morgun kl. 17. „Sjón- arvottur að hátign Jesú.“ 2. Pét. 1:10-21. Ræðumaður: Sigurbjörn Þorkelsson. Barnagæsla á sama tíma. MARÍUKIRKJA, Breiðholti: Messa kl. 11 á sunnudögum. JÓSEPSKIRKJA, Hafnarfirði: Messa kl. 10.30. Rúmhelga daga er messa kl. 18. HVÍTASUNNUKIRKJAN Filadelf- ía: ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: Á mið- vikudaginn 23. ágúst kl. 19 verður farin Viðeyjarferð fjölskyldunnar. Mæting á bryggju í Sundahöfn með nesti. HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnu- dag kl. 20: Kveðjusamkoma fyrir Ragnheiði Ármannsdóttur. FÆR. sjómannaheimilið: Sam- koma sunnudag kl. 17. MOSFELLSPRESTAKALL: GARÐAKIRKJA: VÍÐISTAÐA- OG GARÐASÓKN- IR: Guðsþjónusta í Hrafnistu kl. 11. Séra Bragi Friðriksson mess- ar. Sóknarprestar. HAFNARFJARÐARKIRKJA: FRÍKIRKJAN, Hafnarfirði: KAPELLA St. Jósefssystra, Garðabæ: Þýsk messa kl. 10. JÓSEFSKIRKJA, Hafnarfirði: Messa kl. 10.30. Rúmhelga daga messa kl. 18. KARMELKLAUSTUR: Messa sunnudaga kl. 8.30. Aðra daga kl. 8. Allir velkomnir. GRINDAVÍKURKIRKJA: Messa kl. 11. Kór kirkjunnar syngur. Organ- isti Siguróli Geirsson. Sóknar- prestur Jóna Kristín Þorvaldsdótt- ir. Sumartónleikar kl. 18. „Gít- ardúett" — Hinrik Bjarnason og Rúnar Þórisson. KIRKJUVOGSKIRKJA: INNRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Helgistund sunnudaginn 20. ág- úst kl. 21. Lagt af stað frá Stekk- jarkoti kl. 20.30 og mun Helga Óskarsdóttir annast leiðsögn á gönguleiðinni Stekkjarkot-lnnri- Njarðvíkurkirkja. Kaffisopi áður en lagt verður af stað. Organisti Steinar Guðmundsson. Baldur Rafn Sigurðsson. YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: KÁLFATJARNARSÓKN: KEFLAVÍKURKIRKJA: KAÞÓLSKA kapellan, Keflavík: Messa kl. 14. HVALSNESKIRKJA: HVERAGERÐISKIRKJA: Messa kl. 11. Organisti Björg Hilmisdótt- ir. KOTSTRANDARKIRKJA: Messa kl. 14. Organisti Björg Hilmisdótt- ir. Tómas Guðmundsson. ÞINGVALLAKIRKJA: Messa kl. 14. Prestur sr. Ingólfur Guð- mundsson. Organisti Ingunn Guð- mundsdóttir. SELFOSSKIRKJA: Messa sunnu- dag kl. 10.30. Sóknarprestur. ÞORLÁKSKIRKJA: STOKKSEYRARKIRKJA: STÓRÓLFSHVOLSKIRKJA, Hvolsvelli: Guðsþjónusta á 10. sunnudegi eftir trínitatis; hinn 20. ágúst kl. 14. Sóknarprestur. ODDAKIRKJA á Rangárvöllum: Guðsþjónusta undir berum himni á Gaddstaðaflötum við Hellu, sunnudaginn 20. ágúst kl. 10 ár- degis í tengslum við Töðugjöld. Viðri ekki til útiguðsþjónustu flyst athöfnin í Oddakirkju og hefst þá kl. 11. Sóknarprestur. LANDAKIRKJA, Vestmannaeyj- um: Almenn guðsþjónusta kl. 11. Barnasamvera í safnaðarheimili meðan á prédikun stendur. Messukaffi. AKRANESKIRKJA: Messa kl. 11. Barn borið til skírnar. Björn Jóns- son. BORGARPRESTAKALL: BREIÐABÓLSTAÐARKIRKJA á Skógarströnd: Fermingarmessa kl. 14. Séra Gunnar Eiríkur Hauks- son. VÍDALÍNSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Sóknarprestur. BESSASTAÐAKIRKJA: Guðs- þjónusta kl. 11. Sóknarprestur. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: Messa í Skálholtskirkju kl. 17. Organisti Hilmar Örn Agnarsson. Sóknarprestur. STÓRA-NÚPSPRESTAKALL: Guðsþjónusta verður í Ólafsvalla- kirkju sunnudaginn 20. ágúst nk. kl. 21. Sóknarprestur. VINKONA Víkveija varð fyrir óskemmtilegri reynslu á dög- unum. Hún var að aka yfir brú í nágrenni Reykjavíkur þegar bíllinn rann til með þeim afleiðingum að afturendinn rakst í brúarhandriðið. Sem betur fer slapp bíllinn af brúnni áður en hann hringsnerist stjóm- laust á veginum. Bíllinn þeyttist síðan út af veginum og rann á hlið töluverða leið niður brekku áður en bílstjórarium tókst að rétta hann af. Ferðalaginu lauk þegar girðing varð á vegi bílsins. xxx SEM betur fer fór þarna betur en á horfðist í fyrstu. Það tek- ur á taugarnar að sitja í stjórnlaus- um bíl og eiga von á hinu versta, en vinkona Víkveija segir þó annað vera henni efst í huga eftir þessa reynslu. Töluverð umferð var á veg- inum þar sem óhappið átti sér stað, en enginn sá ástæðu til þess að hægja á ferð sinni, hvað þá að stansa, til þess að athuga hvort fólkið þyrfti á aðstoð að halda. Það tók þó steininn úr að mati vinkonu Víkveija þegar einn ökumaðurinn sá ástæðu til þess að flauta þegar hann keyrði fram hjá skelkuðu fólk- inu þar sem það sat inni i bílnum úti í móa - og hlæja! xxx ESSI sama vinkona hafði átt erfitt með að trúa fréttum sem birtust fyrr í sumar um konu sem hafði lent í óhappi í Hvalfirðinum. Hana hafði vantað sjúkrakassa til þess að búa um sár móður sinnar, en gekk illa að nálgast hann þrátt fyrir að hún stöðvaði þó nokkra ökumenn sem áttu leið hjá. Ýmist voru menn ekki með sjúkrakassa eða þeir neituðu að lána þann sem þeir voru með. xxx FSKIPTALEYSI gagnvart náunganum hefur hingað til þótt einkenna milljónasamfélög, en þessi dæmi sýna að það eru því miður engar ýkjur þegar menn tala um að hér á landi hafi dregið verulega úr samhjálp náungans. xxx FARSINN í Höfða tekur á sig ýmsar myndir. Eftir að full- trúar R-listans í borgarráði höfðu vísað frá tillögu sjálfstæðismanna um að fundarherbergi þeirra Reag- ans og Gorbatsjovs yrði komið í upprunalegt horf á ný, tönnluðust fjölmiðlar á því að minnast ætti 10 ára „ártíðar" fundarins í Höfða á næsta ári. Morgunblaðið féll í þessa gryfju og notaði orðið ártíð í endursögn frávísunartillögu Ingi- bjargar Sólrúnar Gísladóttur borg- arstjóra. Þetta er að sjálfsögðu röng orðnotkun. Ártíð er dánar- dægur eða dánarafmæli, en ekki afmæli. Orsök vitleysunnar er hins vegar að finna í tillögu borgarstjór- ans, þar sem segir orðrétt: „Minn- ast á 10 ára ártíðar fundarsins t.d. með útgáfu, sýningu í Höfða en síðast en ekki síst, með því að stefna að alþjóðlegri ráðstefnu í Reykjavík á næsta ári þar sem þýðing fundarins fyrir þróun heimsmála verði metin í sögulegu Ijósi.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.