Morgunblaðið - 26.09.1995, Qupperneq 1
64 SÍÐUR B
218. TBL. 83. ÁRG.
ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
ILO-ráðstefnan um velferðarkerfið
Skilningur
á umbótum í
lífeyrismálum
Varsjá. Reuter.
FULLTRÚAR verkalýðsfélaga á
ráðstefnu ILO, Alþjóðavinnumála-
stofnunarinnar, í Varsjá í Póllandi
fallast á að umbætur í lífeyris- og
velferðarkerfinu séu óhjákvæmileg-
ar. Var það haft eftir Colin Gillion,
einum embættismanna stofnunar-
innar, í gær en hann sagði að þeir
væru hins vegar andvígir hækkun
lífeyrisaldurs og breytingum á
vinnutíma af ótta við að það gerði
baráttuna við atvinnuleysið erfiðari.
„Skilningur verkalýðsfélaga á
aukinni fjölbreytni í lífeyrismálum
hefur aukist mikið á fáum árum
en þá er átt við að auk opinbera
kerfisins komi til fijáls lífeyris-
sparnaður," sagði Gillion, sem
nefndi einnig að meðal hugmynda
um hvernig létta skyldi lífeyrisbyrð-
arnar væri að hækka aldursmörkin.
Það hefði þó fallið í fremur grýttan
jarðveg.
Aðalumræðuefnið á ILO-ráð-
stefnunni, sem sótt er af fulltrúum
ríkisstjóma, vinnuveitenda og verka-
lýðsfélaga í 48 löndum, er kreppan,
sem nú ríkir í velferðarkerfí Evrópu-
ríkjanna. Þótt ályktanir hennar séu
ekki bindandi hafa þær jafnan haft
mikil áhrif á stefnumótun í þessum
efnum. Þetta er í fyrsta sinn, sem
ráðstefnan er haldin utan Genfar
og sú fyrsta eftir hrun kommúnis-
mans í Austur-Evrópu.
Alvarlegur vandi
Gillion sagði, að ríkisstjórnir geti
ekki lerrgur skotið sér undan því
að takast á við lífeyrisvandann, sem
aukist með hveiju árinu sem líður.
Hann sé alvarlegur í allri álfunni
og ekki síst í Austur-Evrópu þar
sem lífeyrisaldur hefur lengi verið
miklu lægri en á Vesturlöndum.
Sem dæmi má nefna að í Búlgaríu
er þriðjungur eftirlaunaþega undir
sextugu.
Reuter
Arafat boð-
ar palest-
ínskt ríki
Jerúsalem. Reuter.
YASSER Arafat, leiðtogi Frelsis-
samtaka Palestínumanna (PLO),
sagði í gær að samkomulag Israela
og PLO um takmarkaða sjálfstjórn
Palestínumanna á Vesturbakkan-
um myndi „án efa“ ryðja brautina
fyrir sjálfstætt, palestínskt ríki.
Viðbrögð araba við samkomu-
laginu voru blendin og Arafat var
ýmist vændur um svik við málstað
Palestínumanna eða vegsamaður
fyrir hugrekki. Helstu andstæðing-
ar hans, leiðtogar Hamas-hreyfing-
arinnar, sökuðu hann um uppgjöf
og sögðu _ hann reyna að „helga
hernám ísraela" á palestínsku
landi.
Arafat og Yitzhak Rabin, for-
sætisráðherra ísraels, undirrita
samkomulagið í Washington á
fímmtudag. Tíu dögum síðar hefst
fyrsti áfangi brottflutnings ísra-
elskra hermanna frá Vesturbakk-
anum sem stendur í sex mánuði
og að honum loknum verður efnt
til kosninga á sjálfstjórnarsvæðinu.
Mikil óánægja er með samkomu-
lagið í Hebron og ungir Palestínu-
menn giýttu þar ísraelska hermenn
í gær. A myndinni nær hermaður
einu palestínsku ungmennanna.
■ Ýmist hrós eða svikabrigsl/21
Andreotti
fyrir rétt
Palermo. Reuter.
RÉTTARHÖLD yfir Giulio
Andreotti, fyrrverandi forsæt-
isráðherra Italíu, hefjast í Pal-
ermo á Sikiley í dag en hann
er sakaður um að hafa verið
eins konar pólitískur guðfaðir
mafíunnar. Andreotti kvaðst í
gær geta tekið guð sér til vitn-
is um, að hann væri saklaus.
Andreotti, sem er einn kunn-
asti stjórnmálamaður á Ítalíu
og var sjö sinnum forsætisráð-
herra, er sakaður um að hafa
gætt hagsmuna mafíunnar
gegn pólitísku liðsinni hennar
á Sikiley. Er það haft eftir
mafíumönnum, sem gengið
hafa til liðs við lögregluna, en
Andreotti segir, að um sé að
ræða samsæri gegn sér.
Stjórnvöld í Bosníu fallast á að taka þátt í friðarviðræðunum í New York
Rússar krefjast aðildar
að yfirstjóm gæsluliðs
Sariyevo, Moskvu. Reuter.
SENDIMENN Bandaríkjastjórnar fóru til
Sarajevo í gær og tókst þeim að telja þarlend
stjórnvöld á að taka þátt í fyrirhuguðum samn-
ingaviðræðum Bosníu, Króatíu og Serbíu/Svart-
fjallalands er hefjast eiga í New York í dag.
Varnarmálaráðherra Rússlands, Pavel Gratsjov,
sagði í gær að Moskvustjórnin ætlaði að leggja
til að Atlantshafsbandalagið, NATO, og Rúss-
land skiptust á um yfirstjórn væntanlegs friðar-
gæsluliðs í Bosníu ef friðarsamningar tækjust.
Gratsjov sagði að Borís Jeltsín forseti myndi
bera tillöguna upp á fundi hjá Sameinuðu þjóðun-
um í næsta mánuði. Verið er að leggja síðustu
hönd á áætlanir um fjölþjóðlegan liðsafla og gert
ráð fyrir að yfirstjórn verði á hendi NATO.
Ný sókn Króata?
Fulltrúar Serbíu fara með samningáumboð
Bosníu-Serba í New York og sakaði Haris
Silajdzic, forsætisráðherra Bosníu, leiðtoga Serb-
íu á sunnudag um að vilja halda opnum leiðum
til að stofna ríki allra Serba, Stór-Serbíu.
Heimildarmenn telja nú að Bosníu-Króatar
búi sig undir að hefja nýja sókn með aðstoð liðs
úr Króatíuher gegn Bosníu-Serbum í norður-
hluta Bosníu. Þar tryggir mjó landræma aðflutn-
ingsleiðir Serba til yfirráðasvæða þeirra í vestri,
þ. á m. borgarinnar Banja Luka.
Múslimar ætla að halda áfram sókn sinni í
norðri og segjast hafa fundið þar fjöldagröf rúm-
lega 500 múslima sem Serbar hafi myrt, senni-
lega 1992. Fulltrúar SÞ gátu ekki staðfest sann-
leiksgildi þessara fullyrðinga í gær.
Anand
sigraði
NIUNDU skákinni í einvígi þeirra
Viswanathan Anands og Garrí Kasp-
arovs lauk með sigri þess fyrrnefnda
eftir 35 ieiki. Brutust út mikil fagnað-
arlæti meðal áhorfenda þegar úrslitin
lágu fyrir en öllum hinum skákunum
hefur lokið með jafntefli.
Anand þótti tefla skákina mjög
glæsilega og hann fórnaði meðal
annars skiptamun í 25. leik. Með
sigri sínum hefur honum líka tekist
það, sem Anatólí Karpov tókst aldr-
ei, en það er að sigrast á Schevening-
en-afbrigði Sikileyjarvarnarinnar
hjá Kasparov.
♦
Reuter
Fjallið byltir sér
SÉRFRÆÐINGAR sögðu í gær
að engin ástæða væri til skelf-
ingar vegna eldsumbrota í fjall-
inu Ruapehu á Nýja-Sjálandi.
Fjallið hefur gosið ösku en í gær
virtist sem umbrotunum væri
að linna. Gosið er sagt tign-
arlegt og mátti sjá hraunhnull-
unga á stærð við bíla slettast
upp á gjárbarminn. Flugumferð
hefur verið stöðvuð upp í allt
að 9.145 m hæð yfir austur- og
miðhluta Norðureyjar þegar
skýjað er og að næturlagi. Flug-
vélum er sögð stafa hætta af
öskuskýjum, sem greinast vart
með berum augum eða á ratsjá
og geta skemmt vélar og drepið
á þeim. Tveimur flugvöllum,
sem eru um 200 km frá Ru-
apehu, var lokað. Eldfjallið, sem
er 2.800 m hátt, er í skíðalandi
og hefur þurft að loka þremur
skíðasvæðum. Að minnsta kosti
337 manns hafa látið lífið í eld-
gosum á Nýja-Sjálandi á undan-
förnum 150 árum. Þar af fórust
150 manns þegar járnbrautar-
brú eyðilagðist í eldgosi í Ru-
apchu 1953 rétt áður en Well-
ington-Auckland-hraðlestina
bar að.