Morgunblaðið - 26.09.1995, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 1995 11
FRÉTTIR
Hjólreiðamenn í hrakningum á Laugaveginum
ÞAÐ var glaðbeittur hópur hjólreiðamanna sem lagði af stað frá Landmannalaugum.
Sváfu úti í
snjókomu og
5-6 stiga frosti
Morgunblaðið/Karl Gíslason
AÐSTÆÐUR til að hjóla voru mjög slæmar mestalla leiðina og
því neyddust sexmenningarnir til að teyma hjólin við hlið sér.
HÓPUR hjólreiðamanna lenti í
hrakningum á Laugaveginum,
leiðinni milli Landmannalauga og
Þórsmerkur, um síðustu helgi. I
hópnum voru sex ungir menn og
neyddust þeir til að leggjast til
svefn undir berum himni í 5-6
stiga frosti. Karl Gíslason, einn
hjólreiðamannanna, sagði að litlu
hefði munað að ferðin riði tveim-
ur ferðalanga.nna að fullu.
Piltarnir, sem flestir eru vanir
útivistarmenn, lögðu af stað frá
Landmannalaugum um kl. 11 á
laugardag. Karl sagði að þeir
hefðu fljótlega lent í snjókomu
sem hefði valdið þeim erfiðleikum
við að hjóla. Þeir hefðu þó komist
í Hrafntinnusker á tveimur og
hálfum tíma. Stóran hluta leiðar-
innar hefðu þeir þurft að teyma
hjólin.
„Á leiðinni niður að Álftavatni
gekk okkur vel þar sem við gátum
hjólað á um 10 kílómetra kafla í
þokkalegu færi. Þegar þangað
var komið stóðum við frammi fyr-
ir þeirri spurningu hvort við ætt-
um að halda inn í Emstru eftir
góðum vegi eða halda áfram
Laugaveginn. Við tókum vitlausa
ákvörðun þegar við ákváðum að
halda áfram Laugaveginn,“ sagði
Karl.
Villtir í myrkri
og snjókomu
Hópurinn kom í skálann í Botn-
um um kl. sex. Þrátt fyrir að
þreyta væri kominn í suma var
ákveðið að halda áfram frekar
en að gista í skálanum. Karl sagði
að hópurinn hefði fljótlega lent í
vandræðum eftir að hann fór úr
skáianum. Það hefði verið orðið
dimmt um kl. átta. Menn hefðu
átt í erfiðleikum með að greina
stikur á leiðinni vegna myrkurs
og snjókomu. Þrátt fyrir að um
vana hjólreiðamenn væri að ræða
var aðeins einn með ljós á hjólinu
og urðu þeir að spara það.
„Á þessum kafla leiðarinnar
byrjuðum við að villast þannig að
þessir 48 kílómetrar, sem eru á
milli Landmannalauga og Þórs-
merkur, urðu að um 65 kílómetr-
um í okkar ferð. Síðasti spottinn
er rúmlega 15 kílómetrar, en við
þvældumst um og fórum um 30
kílómetra.
Um kl. 4 um nóttina vorum við
orðnir mjög hraktir og kaldir.
Einn var sérstaklega illa haldinn,
kaldur og kvartaði undan verk í
maga. Annar var það kaldur að
röddin var drafandi. Við sáum því
að við gætum ekki haldið áfram
nema að hvíla okkur. Við vorum
ekki með neina svefnpoka eða
tjald, en við komum okkur þétt
fyrir í skjóli bak við klett og lág-
um þar í tvo klukkutíma í 5-6 stiga
frosti,“ sagði Karl.
Þegar birti áttaði Karl sig á
því hvar hann var staddur og
hélt hópurinn þá áfram för og
kom í Þórsmörk um kl. 8 um
morguninn. Karl sagði að það
hefði ekki verið auðvelt að koma
hópnum af stað aftur. Sumir
hefðu ekki treyst sér til að halda
áfram.
Skildu hjólin eftir
Fyrr um nóttina tóku piltarnir
ákvörðun um að skilja hjólin eft-
ir, en Karl sagðist vera sannfærð-
ur um að þeir hefðu ekki komist
í Þórsmörk ef þeir hefðu þurft
að draga þaú með sér alla leið.
Hann sagði að reyndar hefðu
sumir átt í erfiðleikum með að
sætta sig við að þurfa að skilja
hjólin eftir, en flest eru þetta
mjög dýrmæt fjallahjól. Dýrasta
hjólið kostar yfir 200 þúsund
krónur.
Freyr Franksson keyrði hópinn
í Landmannalaugar og fór síðan
til að taka á móti honum í Þórs-
mörk. Áætlað var að hann myndi
koma þangað fyrir myrkur. Freyr
og Karl höfðu rætt um að Freyr
léti björgunarsveitir vita ef hóp-
urinn hefði ekki skilað sér fyrir
kl. 3 um nóttina. Freyr sagðist
hafa ákveðið að kalla björgunar-
sveitir ekki út um nóttina vegna
þess að veður í Þórsmörk hefði
ekki verið mjög slæmt. Hann
sagðist hafa vonast eftir að hóp-
urinn hefði gist í skálum á leið-
inni.
Frank sagði þessa ferð lær-
dómsrika. Þrátt fyrir að um vana
menn væri að ræða og þrátt fyrir
að ekki hefði verið um neitt af-
takaveður að ræða hefði mátt litlu
muna að stórslys yrði.
Formaður Félags
fasteignasala um
kaup Húsnæðisnefnd-
ar á notuðum íbúðum
Erfitt
vegna af-
skriftar-
reglna
JÓN Guðmundsson, formaður Fé-
lags fasteignasala, segist telja mjög
erfitt fyrir fasteignamarkaðinn að
selja notaðar íbúðir inn í félagslega
íbúðakerfið vegna þeirra afskriftar-
reglna sem gildi í kerfinu, en Hús-
næðisnefnd Reykjavíkur auglýsir
nú í fyrsta skipti beinlínis eftir
notuðum íbúðum til kaups vegna
félagslega íbúðakerfisins.
Jón sagðist telja að afskriftar-
reglurnar kæmu í veg fyrir að
Húsnæðisnefndin gæti verslað á
hinum hefðbundna fasteignamark-
aði, þar sem markaðurinn muni
trúlega ekki sætta sig við það verð
sem kerfið hafi upp á að bjóða.
Til dæmis um þetta tók hann
tveggja herbergja íbúð, en'sam-
kvæmt gildandi reglum má slík
íbúð ekki vera stærri en 70 fermetr-
ar og má ekki kosta meira en um
5,9 milljónir ef um nýja íbúð er að
ræða. Áfskriftir miðist síðan við
þetta nýbyggingarverð, en miðað
sé við 1% afskrift á ári. Verð 10-15
ára gamals húss sé lægra sem
þessu nemi og að auki sé ástand
eignanna tekið út af tæknideild
Húsnæðisstofnunar og það geti
orðið til þess að verðfella eignirnar
enn frekar.
„Þótt þeir séu að bjóða eigendum
þessara eigna nokkurs konar stað-
greiðslu held ég samt að það verði
mjög erfitt fyrir Húsnæðisnefndina
að kaupa á hefðbundnum fast-
eignamarkaði,“ sagði Jón.
Hærra lánshlutfall
Hann sagði að þó væri þetta
sennilegast frekast hægt í Reykja-
vík, þar sem fjölbreytni fasteigna-
markaðarins væri mest, en erfiðara
í öðrum sveitarfélögum. Hann
sagði að fasteignasalar fögnuðu því
að sjálfsögðu að fleiri kaupendur
kæmu inn á þennan markað.
„Hins vegar vildum við frekar
að stjórnvöld kæmu til móts við
þetta fólk og lánuðu hærra hlutfall
þannig að við gætum smátt og
smátt lagt þetta félagslega kerfi
af. Það er ósk okkar,“ sagði Jón.
EKTA HANDHNÝTT
AUSTURLENSK TEPPI
EMÍRf.
JL-húsinu. ^
Opið: Virka daga kl. 13-18,
laugardaga kl. 10-16.
Sáust í
kíkivið
innbrot
ÞRÍR piltar á aldrinum 15
og 17 ára voru handsamaðir
eftir að þeir höfðu brotist inn
í söluturn við Breiðumýri á
Álftanesi í fyrrinótt.
Að sögn lögreglunnar í
Hafnarfirði sá íbúi á Álfta-
nesi til piltanna við iðju sína
þegar hann var að svipast um
með sjónauka. Tilkynnti hann
lögreglunni um innbrotið og
voru piltarnir handsamaðir á
innbrotsstað. Þeir munu ekki
hafa komið við sögu hjá lög-
reglunni áður.
HRAÐLESTRARNÁMSKEIÐ
✓ Viltu margfalda lestrarhraðann og afköst i námi?
✓ Viltu auka afköst í starfi um alla framtíð?
✓ Viltu lesa góðar bækur með meiri ánægju?
Ef svar þitt er jákvætt Við einhverri ofangreindra spuminga
skaltu skrá þig strax á næsta hraðlestramámskeið.
Skráning er í símum 564-2100 og 564-1091.
HRAÐLJBírrRARSKÓUNN
Námskeið fyrir þá sem vilja lengra:
NútímaForritun
VisualBasic er kjaminn í nútima forritun í gluggaumhverfi.
Enginn sem á annað borð vill nýta tölvuna og forritin
betur getur verið án þekkingar á VisualBasic!
36 klst námskeið, kr. 44.900 stgr.
hk 95091
Dagskrá:
• Undirbúningur forritunar, greining og hönnun
• Fonitun með VisualBasic
• Access og notkun hans við VisualBasic foiTÍtagerð
Námskeið á fímmtudögum og laugardögum
Tölvu- og verkfræðiþjónustan
Tölvuráðgjöf • námskeið • útgáfa
Grensásvegi 16 • sími 568 8090
Raðgreiðslur Euro/VISA