Morgunblaðið - 26.09.1995, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 1995 15
LANDIÐ
Morgunblaðið/Silli
*
Attræður
skákmeistari
Húsavík - Hinn norðlenski skák-
meistari Hjálmar Theodórsson á
Húsavík varð áttræður hinn 12.
september sl. og vildi hann
minnast dagsins með því að
Taflfélag Húsavíkur hæfi vetr-
arstarfsemi sína þann dag án
veislufagnaðar og var kvöldinu
eytt við taflborðið með 15
áhugasömum skákmönnum.
Hjálmar var um árabil skák-
meistari Norðurlands og var þá
í landsliðsflokki. Hann tekur
enn þátt í flestum innanfélags-
mótum Taflfélags Húsavíkur og
sækir alla æfingafundi og teflir
þar jafnt við hina þjálfuðu og
byrjendur sem hann hefur oft
leiðbeint með fyrstu leikina á
hinu flókna skákborði. Það
munu ekki vera margir á Hjálm-
ars aldri sem hafa setið svo lengi
við skákborðið.
í tilefni af því að Taflfélag
Húsavíkur er á þessu ári 70 ára
og Hjálmar 80 ára hefur verið
ákveðið að efna til atskákmóts
síðustu helgina í október. Þetta
verður stigamót og tefldar 11
umferðir og til þessa móts hefur
verið boðið okkar fremstu skák-
meisturum.
----♦ ♦ ♦--
Meðalvigt
dilka fer
hækkandi
Egilsstöðum - Búið var að slátra
15.200 fjár á föstudag hjá Slátur-
húsi KHB að Fossvöllum síðan
slátrun hófst 29. ágúst. Slátrun
stendur yfir út október og er gert
ráð fyrir að slátra um 38.000 fjár
þar.
Meðalvigt dilka fer hækkandi
eftir því sem líður á sláturtíð og
er nú um 15 kg á dilk, en var í
fyrstu viku slátrunar aðeins um
14 kg. Meðalvigt dilka á síðasta
ári var 16,2 kg. Að sögn Björns
Ágústssonar hjá KHB verður
3.000 dilkum af svæðinu slátrað á
Húsavík og Höfn. Samtals verður
því sláturfé um 41.000 fjár, en það
er mesti fjöldi sem verið hefur síð-
an 1988, sem þá var 55.000 fjár.
OSTAVEISLA í 10-11 MIKILL AFSLÁTTUR
íslenskir ostar standa fyrir sínu. Þeir eru rómaðir hér heima og marg-viðurkenndir erlendis.
Enda er hráefnið hreint og gott, framleiðslan öguð og vönduð.
Komið, bragðið og gerið góð kaup.
Hvernig væri að útbúa ostabakka heima?
BRAUÐOSTUR
639.- kg.
Gamli, góói, alltaf traustur.
Reynslan af þessum lyftir honum
yfir alla gagnrýni.
298.-
USA hágæóavínberrsteinalaus.
ti\»
GRÁÐAOSTUR
85,-
Islenska heitið é hinum fræga
Roquefort-osti frá Suður
Fmkklandi.
Góður beint, en einnig
í ýmiskonar matargerð.
Bónda BRIE
. 99.-
Mjúkur i gegn, mest borðaður
beint, en einnig góður
innbakaður eða djúpsteiktur.
Sjálfsagður á ostabakkann.
PIPAROSTUR
89.-
Er bræddur ostur og geymist
því mjög vel. Góður með kexi
og bmuði, en einnig í sósur
ogsúpur.
LÚXUS YRJA
HVITUR KASTALI
Mjúkur I gegn, bmgðmikill;
þó ekki sterkur fyrr en
tveggja mánaöa gamall!
Borðaður eins og hann kemur fyrir.
OSTAKAKA
Með mandarínubmgði.
6-8 manna. Uppistaðan er hreinn
rjómaostur. Borín fmm sem
ábætisréttur eða ein sér, t.d. með
kaffi. Geymist vel i kæli og enn
betur í frosti.
Mjukurostur, mmmrá sambland
af Camenbert og Gráðaosti.
Borðaður eins og hann kemur
fyrir, en einnig góður djúpsteiktui
eða sem fvllina íkjöt.
CAMENBERT
178.-
Alltaf vinsæll, enda „konungur
fslenskm osta“. Góður með kexi,
bmuði og ávöxtum, blátt áfrnrn
yndislegur djúpsteiktur með
rístuðu bmuði og sultu.
PORT SALUT
732.- kg.
Mjög bmgðmikill, erþviekki allm,
en sannir ostavinir elska hann.
Með olffu eða sýrðri gúrku er
hann hmint og klárt konfekt!
KIWI
179.-
Stórt og gott.
VÍNBER
| GLÆSIBÆ • LAUGALÆK • BORGARKRINGLU • ENGIHJALLA • IVHÐBÆ Hafnarfirði
milljónir
í Sjónvarpinu