Morgunblaðið - 26.09.1995, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 1995 17
VIÐSKIPTI
VI safnar
Skýrsluvélum ríkisins og Reykjavíkurborgar breytt í hlutafélag um næstu áramót
upplýsing-
um um
samkeppn-
ishömlur
VERSLUNARRÁÐ íslands hefur
auglýst eftir upplýsingum um sam-
keppnishömlur, sem eiga rætur að
rekja til ójafnrar stöðu einkaaðila
í samkeppni við opinber fyrirtæki
eða fyrirtæki, sem njóta opinberrar
vemdar. Ráðið hyggst koma þeim
upplýsingum sem safnast á fram-
færi við stjórnvöld ásamt tillögum
til úrbóta.
Jónas Fr. Jónsson, lögfræðingur
Verslunarráðs, segir að því berist
reglulega kvartanir frá aðilum í
einkarekstri, sem telji að þeir keppi
í ójafnri stöðu við opinber fyrirtæki
eða fyrirtæki, sem njóti óeðlilegrar
verndar hins opinbera. Aðstöðu-
munurinn geti t.d. falist í í mismun-
andi skattlagningu, ábyrgðum, að-
gangi að lánsfé og lánskjörum.
Mikið um kvartanir
Jónas segir kvartanir félags-
manna hafa færst mjög í aukana.
„Svo rammt hefur kveðið að kvört-
unum að undanförnu að við teljum
rétt að hvetja félagsmenn Verslun-
arráðsins og aðra aðila í einka-
rekstri til að koma upplýsingum
um slíkar samkeppnishömlur og í
hvaða mynd þær birtast til okkar.
Við munum síðan taka málið upp
í heild sinni við stjórnvöld og koma
með tillögur til úrbóta.“
Finnur Ingólfsson, viðskiptaráð-
herra, skipaði í síðasta mánuði
nefnd, sem ætlað er að kanna
hvaða opinber fyrirtæki eða fyrir-
tæki, sem njóta opinberrar vernd-
ar, séu í samkeppni við einkaaðiia.
Jónas segir að auglýsing Verslun-
arráðsins tengist nefndinni ekki en
viðkomandi upplýsingum verði
komið á framfæri við hana.
-----♦—♦—4----
Reuters semja
við Ráðgjöf og
efnahagsspár
RÁÐGJÖF og efnahagsspár hf.
hafa undirritað samning við frétta-
og upplýsingasamsteypuna Reut-
ers um að verða markaðsfulltrúi
fjármálaþjónustu Reuters hér á
landi. Starfsfólk söludeildar og
þjónustufulltrúar Reuters í Osló
mun þó áfram veita þjónustu frá
Noregi.
Reuters er stærsta fyrirtæki í
fréttaþjónustu og dreifingu fjár-
málaupplýsinga í heiminum en
310.000 notendur hafa beinan að-
gang að upplýsingakerfum fyrir-
tækisins. Á Islandi eru yfir 20
áskrifendur.
Ráðgjöf og efnahagsspár er
sjálfstætt fyrirtæki í eigu Yngva
Harðarsonar og Sverrir Sverrisson-
ar. Fyrirtækið sérhæfir sig í fjár-
málaráðgjöf og ráðgefandi upplýs-
ingaþjónustu við fyrirtæki og fjár-
málastofnanir á íslandi.
SEMENTSBUNDIN
FLOTEFNI
Mest seldu flotefni í Evrópu
ö
h/f.
IÐNAÐARQÓLF1
Smiöjuvegur 70, 200 Kópavogur
Simar: 564 1740, 892 4170, Fax: 654 1769
Ekki einkíi-
vætt í bráð
NÝTT hlutafélag, Skýrr hf., tekur
um næstu áramót við eignum og
skuldbindingum sameignarfélagsins
Skýrsluvéla ríkisins og Reykjavíkur-
borgar og verður sameignarfélagið
þá lagt niður. Eigendur Skýrr hf.
hafa lýst því yfir að öllum núver-
andi starfsmönnum sameignarfé-
lagsins verði boðin störf hjá hinu
nýja félagi.
Pjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs
og borgarstjóri f.h. borgarsjóðs og
Rafmagnsveitu Reykjavíkur undir-
rituðu samning um stofnun nýja
hlutafélagsins meðan á fundi borg-
arstjórnar stóð á fimmtudag. Til-
gangur félagsins er hvers konar
starfsemi á sviði upplýsingaiðnaðar
og annar skyldur rekstur. Hlutafé
félagsins er 172 milljónir króna og
skiptist að jöfnu milli ríkis og
Reykj avíkurborgar.
Eigendur hlutafélagsins hafa
skuldbundið sig til að eiga meiri-
hluta í félaginu a.m.k. þrjú fyrstu
starfsár þess, og er meginástæða
þess sú að hjá Skýrsluvélum hafa
ríki og borg haldið veigamestu
uppiýsingaskrár þjóðarinnar, svo
sem þjóðskrá og fyrirtækjaskrá,
skatt-og álagningaskrár, skrár al-
mannatrygginga og fasteigna-
skrár.
Á stofnfundi félagsins voru eftir-
taldir kjörnir í stjórn þess fram til
fyrsta aðalfundar: Brynja Halldórs-
dóttir, viðskiptafræðingur, Hallgrím-
ur Snorrason, hagstofustjóri, Haukur
Pálmason, aðstoðarrafmagnsstjóri,
Magnús Pétursson, ráðuneytisstjóri
og Óskar G. Óskarsson, borgarbók-
ari.
Samkeppnisstaðajöfnuð
í ræðu borgarstjóra á fundi borg-
arstjórnar kom fram að hún teidi
rétt að selja hlutabréf borgarinnar
í Skýrr hf, en ekki hefði verið tekin
ákvörðun um hversu stór hluti af
þeim yrði seldur.
í samtali við Morgunblaðið sagði
Þór Sigfússon ráðgjafi fjármálaráð-
herra að ráðherra hafi fullan hug á
því að selja hlutabréf ríkisins í Skýrr,
en fylgi að sjálfsögðu þeim samning-
um sem gerðir hafi verið við borgina
í þeim efnum: „Með sölu hlutabréf-
anna verður samkeppnisstaða fyrir-
tækja í upplýsingaiðnaði á Islandi
helst jöfnuð enn frekar.“
Aukin þjónusta
við Þýskaland
með beinum
siglingum til
Bremerhaven
Samskip sigla nú beint til
Bremerhaven og er þá megin
flutningaleib félagsins inn
í Þýskaland í gegnum
Bremerhaven. Þar meb auka Samskip mjög viö
flutningaþjónustu sína fyrir íslenska inn- og
útflytjendur til og frá Þýskalandi. Eftir sem áöur er
viöskiptavinum boöin vörumóttaka og afgreiðsla
í Hamborg.
Bremerhaven er í dag miöstöö sjávarafuröa
í Þýskalandi og þar eru stærstu fyrirtækin í þeim
iðnaði staðsett með framleibslufyrirtæki sín og
dreifikerfi. Höfnin í Bremerhaven er ein sú stærsta
í Evrópu með á fjórba þúsund starfsmenn og lengsta
viblegukant í heimi.
Meb stöbugri stækkun Evrópumarkaöarins er
Bremerhaven mjög vel staðsett fyrir íslensk fyrirtæki
sem leita nýrra markaötækifæra á meginlandi
Evrópu.
Þú færb allar nánari upplýsingar hjá Samskipum
í síma 569 8B00.
SAMSKIP
Holtabakka við Holtaveg, 104 Reykjavík
Sími 569 8300 - Fax 569 8327