Morgunblaðið - 26.09.1995, Page 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
NATO-
æfing í
Frakklandi
FLUGHERIR frá sjö aðildar-
löndum Atlantshafsbandalags-
ins, NATO, hófu í gær fyrstu
heræfingar bandalagsins í
Frakklandi frá því að Frakkar
drógu sig út úr Hernaðarnefnd
þess fyrir 30 árum. Um 60 flug-
vélar og um 1.000 hermenn
taka þátt í æfíngunni sem
standa mun í fjóra daga.
Ciller biðlar
til Föður-
landsflokks
TANSU Ciller, forsætisráð-
herra Tyrklands, kvaðst í gær
hafa óskað eftir því við leiðtoga
Föðurlandsflokksins, sem er í
stjórnarandstöðu, að ganga til
stjórnarsamstarfs en upp úr
núverandi stjórnarsamstarfi
slitnaði í síðustu viku. Býst
Ciller við svari á morgun, mið-
vikudag.
Norðmenn
í 7. sæti
NOREGUR er sjöundi mesti
olíuframleiðandi heims en á
hverjum degi nemur framleiðsl-
an um 2,7 milljónum fata af
olíu. Mest framleiða Sádi-Arab-
ar af olíu, um 8,9 milljón föt á
dag.
Belgar neita
Zhírínovskíj
BELGÍSK stjórnvöld hafa neit-
að rússneska þjóðemissinnan-
um Vladimír Zhírínovskíj um
vegabréfsáritun til landsins.
Ekki hafa 'verið gefnar opinber-
ar skýringar á neituninni en
Zhírínovskíj sótti um áritunina
vegna heimsóknar sendinefnd-
ar rússnesku Dúmunnar, sem
hann situr í, til Belgíu.
Bjerregaard
gagnrýnd
RITT Bjerregaard, sem fer með
umhverfismál í framkvæmda-
stjóm Evrópusambandsins, var
harðlega gagnrýnd í gær fyrir
að þiggja fé fyrir greinaskrif.
Samkvæmt reglum ESB mega
fulltrúar í framkvæmdastjórn-
inni ekki sinna öðrum störfum,
hvort sem að þeir hljóta
greiðslu fyrir eður ei.
Mannfall á
Sri Lanka
TALSMENN Lækna án landa-
mæra sögðu í gær að 68 manns
hefðu látið lífið í loft- og
sprengjuárásum hersins á Sri
Lanka í Jaffna-héraði á eynni
undanfarna daga. Af hinum
látnu var að minnsta kosti
helmingurinn börn undir 12 ára
aldri.
Vilja bróður
Berlusconis í
fangelsi
SAKSÓKNARI í Mílanó krafð-
ist í gær tveggja og hálfs árs
fangavistar yfir Paolo, bróður
Silvio Berlusconi,_ fyrrverandi
forsætisráðherra Italíu. Paolo
er ákærður fyrir að hafa mútað
stjórnmálamönnum en hann
stýrir fjármálaumsvifum fjöl-
skyldunnar.
ERLENT
16 ára gamall unglingur gekk berserksgang í frönskum smábæ
Myrti fjöl-
skyldu sína og
tíu til viðbótar
Reuter
Sextán ára unglingur gekk berserksgang í tveimur þorpum í gær
og myrti fjölskyldu sína og tíu manns til viðbótar. Hér sjást blóm-
vendir við skrifstofu í bænum Cuers þar sem tvö fórnarlamba
unglingsins, Erics Borels, létu lífið.
Cuers, Frakklandi. Reuter.
FRANSKUR táningur, sem talið
er að hafi aðhyllst hugmyndir
nýnasista, gekk berserksgang í
smábæjunum Sollies-Pont og Cuers
í Frakklandi um helgina, myrti
stjúpföður sinn, 11 ára gamlan
hálfbróður og móður sína með
hamri og hafnaboltakylfu, skaut tíu
manns til bana og framdi sjálfs-
morð. Frakkar eru slegnir óhug
vegna morðanna.
Franska lögreglan sagði að
drengurinn héti Eric Borel og hefði
verið 16 ára.
Borel myrti fjölskyldu sína í
Sollies-Pont á laugardag, en líkin
fundust ekki fyrr en síðar. í dag-
renningu á sunnudag birtist hann
í Cuers, sem er nokkra km í burtu,
með riffil í hönd. Hann hóf að
skjóta og kvaðst einn þorpsbúi fyrst
hafa talið að drengurinn væri að
sprengja púðurkerlingar eða skjóta
á dúfur.
Fljótt kom í ljós að hér var al-
vara á ferð.
„Þá sáum við mann, sem var
særður fótsári," sagði sjónarvottur-
inn. „Svipur morðingjans var frið-
sæll og hann hlóð riffil sinn sallaró-
legur á ný. Hann hélt í átt að ráð-
húsinu, en sneri við til þess að
ganga frá manninum, sem hann
hafði sært á fæti.“
Skaut á allt sem hreyfðist
„Hann skaut á allt, sem hreyfð-
ist,“ sagði annað vitni.
Auk hinna látnu særðust átta
manns alvarlega og barðist einn
þeirra, lítill drengur, fyrir lífi sínu.
Guy Guigou, bæjarstjóri Cuers,
sagði að rannsóknarlögregla hefði
fundið myndir af Adolf Hitler og
nýnasistabækur og -bæklinga í
herbergi Borels. í dagblaðinu
France-Soir sagði að einnig hefðu
fundist veggspjöld, sem vegsömuðu
þriðja ríki Hitlers
Borel var allajafna svartklædd-
ur og hafði mikinn áhuga á skot-
vopnum og hermennsku. France-
Soir hafði eftir sálfræðingi einum,
Jacques Leyrie, að augljóst væri
að Borel hefði þjáðst af hastarleg-
um geðklofa. Sjálfsmorð hans eft-
ir blóðsúthellingarnar bæri því
vitni.
Þættir Solzhenítsyns í
sjónvarpi lagðir niður
Moskvu. Reuter.
RUSSNESKA ríkissjónvarpið hef-
ur ákveðið að leggja niður þætti
nóbelsverðlaunahafans Alexanders
Solzhenítsyns og ástæðan er sögð
sú að þeir hafí notið lítilla vinsælda
samkvæmt könnunum meðal
áhorfenda. Eiginkona Solzhenít-
syns, Natalja, sagði í gær að beitt
hefði verið aðferðum, sem minntu
á tíma Sovétríkjanna, til að múl-
binda gagnrýnendur Kremlveija.
„Ég fékk þetta staðfest í dag,“
sagði Olvar Kakútsjaja, yfírmaður
deildar sem annast framleiðslu 15
mínútna þátta þar sem Solzhenít-
syn hefur rætt skoðanir sínar tvisv-
ar á mánuði. „Þeir segja að þetta
sé vegna lítilla vinsælda sam-
kvæmt könnunum en við fáum þær
reglulega og vinsældirnar hafa
farið vaxandi," bætti Kakútsjaja
við.
Þættirnir hafa verið sýndir seint
á kvöldin frá því Solzhenítsyn kom
aftur til Rússlands í maí í fyrra
eftir rúmlega 20 ára útlegð í
Bandaríkjunum. Hánn hefur notað
þættina til að veita Rússum ádrepu
vegna hnignandi siðferðis og gagn-
rýna stefnu stjórnarinnar.
Natalja Solzhenítsyn sagði að
kveikjan að því að því að þátturinn
var bannaður hefði verið grein í
dagblaðinu Ísvestíu, þar sem sagt
var að rithöfundurinn væri ekki
samstíga Rússlandi nútímans.
„Þetta minnir á tíma kommún-
ista, þegar dagblöðin voru notuð
sem stórskotalið til að undirbúa
almenning undir árásir," hafði
fréttastofan Itar-Tass eftir henni.
Of gagnrýninn?
Kakútsjaja kvaðst telja að yfir-
menn sjónvarpsins hefðu ákveðið
að þagga niður í Solzhenítsyn
vegna gagnrýni rithöfundarins á
stefnu stjórnarinnar í málefnum
Tsjetsjníju og Rússa sem búa í
öðrum fyrrverandi lýðveldum
Sovétríkjanna. Solzhenítsyn hefur
í þáttunum lagt til að Rússar heim-
ili uppreisnarhéraðinu Tsjetsjníju
að öðlast sjálfstæði.
„Ég tel að þessi ákvörðun teng-
ist nýlegum ræðum hans. Hann
hefur verið gagnrýninn á margt,“
sagði Kakútsjaja.
Þættirnir hafa verið teknir upp
í bókaherbergi Solzhenítsyns og
mörgum áhorfendum þykja þeir
leiðinlegir, framkoman hrokafull
og málin sem hann tekur fyrir lítt
áhugaverð.
Mál Alains Juppe
Vinir og ráðgjafar Powells á móti forsetaframboði
Vara við eitruðu and-
rúmslofti stjórnmálanna
Ástæða
sögð til
saksóknar
París. Reuter.
FRANSKA dagblaðið Le Monde
skýrði frá því í gær að yfírmaður
stofnunar, sem beitir sér gegn spill-
ingu í stjómkerfinu, hefði komist að
þeirri niðurstöðu að ástæða væri til
saksóknar vegna máls Alains Juppe
forsætisráðherra, sem lét Parísarborg
lækka íbúðarleigu sonar síns.
Blaðið sagði að yfirmaðurinn,
Bernard Challe, hefði komist að
þeirri niðurstöðu að slík hegðun
gæti falið í sér ólögleg afskipti af
opinberri stjórnsýslu. í skýrslu
Challe er þó Juppe ekki nefndur á
nafn og yfírvöld eru ekki skyldug
til að fara eftir henni.
Þingmenn Sósíalistaflokksins
höfðu óskað eftir skýrslunni og
Jacques Toubon dómsmálaráðherra,
sem reyndi án árangurs að víkja
Challe frá í vikunni sem leið, kvaðst
á sunnudag ætla að virða skýrsluna
að vettugi ef mælt yrði með saksókn.
Juppe var aðstoðarborgarstjóri
Parísar á þessum tíma og varð for-
sætisráðherra í maí í ár.
Washington. The Daily Telegraph.
NÁNIR vinir og ráðgjafar Colins
Powells hafa varað hann við því að
reyna að verða forseti Bandaríkj-
anna og segja að andstæðingarnir
muni tæta hann í sig í slag þar sem
kynþáttafordómar verði efst á baugi.
Þetta er haft eftir blaðamanninum
Bob Woodward, sem frægur varð
fyrir að fletta ofan af Watergate-
hneykslinu fyrir tveim áratugum.
Vitað er að eiginkona Powells, Alma,
er mjög andvíg framboði hans, hún
óttast að hann verði myrtur.
Meðal þessara ráðgjafa er Thomas
Griscom, sem var á sínum tíma hátt-
settur í Hvíta húsinu í tíð Ronalds
Reagans forseta. Griscom mun hafa
tjáð Powell að Bandaríkjamenn, eink-
um í suðurríkjunum, væru „sennilega
ekki reiðubúnir" að kjósa yfír sig
forseta úr röðum blökkumanna.
„Af öllum mönnum ert þú sá sem
ég vildi helst að bryti niður múra
kynþáttafordómanna. Jafnframt vil
ég ekki verða vitni að því að þú
verðir sjálfur brotinn niður meðan
það er að gerast“, sagði Griscom.
Ýmsir vinir hershöfðingjans fyrr-
verandi eru sagðir óttast að allt
umtalið um líkur á framboði og
hetjudýrkunin stígi honum til höf--
uðs. Hann hafi ávallt lagt áherslu á
að skorast ekki undan því að gegna
þeim störfum sem Bandaríkin krefj-
ist af borgurum sínum. Eðlislæg
varkárni hans láti því ef til vill und-
an síga og hann helli sér í forseta-
slaginn.
Talið er að mikilvægustu ráðgjaf-
ar Powells séu Richard Armitage,
sem barðist í Víetnamstríðinu og var
um hrið aðstoðarvarnarmálaráð-
herra, og Kenneth Duberstein, sem
var skrifstofustjóri Reagans síðustu
mánuðina í Hvíta húsinu. Duberstein
er sagður hafa sannfært Powell
nokkurn veginn um að framboð utan
flokka myndi ekki duga til sigurs.
Til að vera sannfærandi yrði slíkur
frambjóðandi að vera án allra
tengsla við valdakerfið í Washington
og hershöfðinginn væri einmitt
dæmigerður fyrir andstæðuna, þá
sem þekktu valdakerfið innan frá.
„Ekki þess virði“
Alma Powell mun hafa beðið Arm-
itage um að ráðleggja hershöfðingj-
anum fyrrverandi að hugsa ekki um
framboð og er Armitage sagður
hafa orðið við þeirri ósk. „Þetta er
ekki þess virði,“ sagði hann við Pow-
ell. Sagði Armitage að pólitískt and-
rúmsloft væri orðið svo eitrað í land-
inu að jafnvel strangheiðarlegir
menn með mikið þrek gætu slcaðað
mannorð sitt.
I æviminningum sínum, sem nú
seljast eins og heitar lummur,.segir
Poweli að hann hafí stundum notað
þá aðferð að „leka“ með vandlega
dulbúnum hætti í fjölmiðla því sem
hann vildi koma þannig óbeint á
framfæri við almenning. Menn velta
því fyrir sér hvort sú sé einnig raun-
in að þessu sinni. Hann vilji ef til
vill með þessu annaðhvoct viðhalda
áhuganum á vangaveltum um for-
setaframboð en líklegra sé að hann
vilji draga úr væntingum fólks um
að af því verði.