Morgunblaðið - 26.09.1995, Page 21

Morgunblaðið - 26.09.1995, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 1995 21 Helstu atriði samkomulagsins milli Israela og PLO Kosningar eftir rúma sex mánuði Taba. Reuter. SAMKOMULAGIÐ, sem samn- ingamenn ísraela og Frelsissam- taka Palestínumanna (PLO) náðu á sunnudag, kveður á um að brott- flutningur ísraelskra hermanna frá Vesturbakkanum hefjist tíu dögum eftir að samningurinn verður und- irritaður í Hvíta húsinu í Washing- ton á fimmtudag. Samkomulagið er alls 400 blaðsíður og samkvæmt því stendur fyrsti áfangi brott- flutningsins í sex mánuði og 22 dögum eftir að honum lýkur verður efnt til kosninga meðal Palestínu- manna. Embættismenn PLO sögðu að 90% Vesturbakkans yrðu undir stjórn Palestínumanna þegar brottflutningi ísraelsku hermann- anna lýkur að fullu í júlí 1997. Gaza-svæðið og Jeríkó á Vestur- bakkanum hafa haft takmarkaða sjálfstjórn í 16 mánuði. Hér verður stiklað á helstu atriðum samkomu- lagsins. • í fyrsta áfanga brottflutnings- ins verða hermenn fluttir frá sjö borgum á Vesturbakkanum - Jen- ín, Nablus, Tulkarm, Qalqilya, Ramallah, Betlehem og hluta Hebron - og frá 450 þorpum. Honum lýkur eftir sex mánuði. • ísraelskir hermenn halda þó áfram uppi eftirliti í byggðum gyð- inga á Vesturbakkanum. Alþjóð- legir eftirlitsmenn verða tímabund- ið í Hebron og ísraelar halda rétti sínum til að vernda 400 gyðinga, sem búa þar meðal 100.000 araba, og ísraela sem koma þangað til að skoða helga staði. • Hermennirnir eiga ennfremur að hafa eftirlit með vegum sem gyðingar búsettir á svæðinu ferð- ast um. • Annar áfangi brottflutnings hermannanna hefst eftir að lög- gjafarsamkunda Palestínumanna hefur verið kjörin og stendur í sex mánuði. • Samkomulagið kveður enn- fremur á um að margir af þúsund- um palestínskra fanga í ísraelskum fangelsum verði látnir lausir í þremur áföngum. • Framtíð Jerúsalem, byggða gyðinga og palestínskra flótta- manna verður ákveðin í viðræðum um „lokastöðu" Gaza-svæðisins og Vesturbakkans sem heijast ekki síðar en í maí á næsta ári. Gert er ráð fyrir að viðræðunum ljúki tveimur árum síðar. • Um 12.000 palestínskir lög- reglumenn hefja störf í áföngum á Vesturbakkanum og heildarfjöldi lögregluliðsins, að Gaza-svæðinu meðtöldu, verður um 30.000. • A þessum tíma fer stjórn Isra- els með utanríkismál og eftirlit með landamærum sjálfstjórnar- svæðanna. • 82 menn verða kjörnir í löggjaf- arsamkundu Palestínumanna sem ber ábyrgð á flestum öðrum svið- um á Vesturbakkanum og Gaza- svæðinu. • Gerðar verða sérstakar ráðstaf- anir til þess að Palestínumenn, sem búa í Austur-Jerúsalem, geti tekið þátt í kosningunum. Palestínumenn í Jerúsalem geta boðið sig fram svo fremi sem þeir eigi ánnað heimili á Gaza eða Vesturbakkanum. • Eftirlitsnefnd verður skipuð fulltrúum frá Evrópusambandinu, Sameinuðu þjóðunum, Bandaríkj- unum, Rússlandi, Kanada, Egypta- landi, Japan, Jórdaníu, Noregi, Suður-Afríku, óháðu ríkjunum og samtökum íslamskra þjóða. • PLO lofar að beita sér fyrir HERMENN FLUTTIR ABROTT Samningur ísraela og PLO frá því á sunnudag kveöur á um aö hefja eigi brottflutning ísraelskra hermanna frá sjö borgum og 450 þorpum á Vesturbakka Jórdanar 90% Vesturbakkans veröa undir stjórn Palestínumanna þegar brottflutningi hermannanna lýkur í júlt áriö 1997 UBANONx SYRLAND Tulkarm 1 Qalqilya TS / ® ® Ramallah / ' ® Nablus Jeríkó Betlehem Hebron JORDANIA Palestínumenn hafa stjórnað Gaza-svæðinu og Jeríkó á Vesturbakkanum í 16 mánuöi REUTER afnámi tveggja greina í Palestínu- sáttmálanum, sem kveða á um tortímingu ísraels, innan tveggja mánaða eftir að löggjafarsam- kundan verður sett í fyrsta skipti. Blendin viðbrögð við samkomulagi ísraela og PLO Ýmist hrós fyrir hug- rekki eða svikabrigsl Damaskus. Reuter. VIÐBRÖGÐIN við samkomulagi ísraela og Frelsissamtaka Palest- ínumanna (PLO) um að stækka sjálfstjórnarsvæði Palestínumanna voru blendin í gær. Sumir fögnuðu því sem tímamótasamkomulagi sem bæri vott um hugrekki leiðtoga ísraels og PLO en aðrir fordæmdu það sem svik við málstað Palestínu- manna. Stjórnvöld í Sýrlandi, Líbýu, íran og hreyfingar róttækra Palestínú- manna lýstu samkomulaginu sem uppgjöf af hálfu Yassers Arafats, leiðtoga PLO, sem myndi valda aukinni spennu og ofbeldi á Gaza- svæðinu og Vesturbakkanum. Ráðamenn á Vesturlöndum og bandamenn þeirra í Miðausturlönd- um hrósuðu hins vegar leiðtogum Ísraels og PLO fyrir hugrekki og sögðu samkomulagið marka tíma- mót. Samkomulagið náðist í bænum Taba í Egyptalandi á sunnudag eftir langar og erfiðar viðræður Arafats og Shimons Peres, utanrík- isráðherra ísraels. Samkomulagið felur í sér að takmörkuð sjálfstjórn Palestínumanna á Gaza-svæðinu og Jeríkó á Vesturbakkanum ,nær einnig til annarra staða Palestínu- manna á Vesturbakkanum nema Austur-Jerúsalem. Hóta vopnaðri baráttu Hægrisinnaðir ísraelar for- dæmdu samkomulagið og sögðu það stefna öryggi ísraels í hættu. Leiðtogar Hamas, helstu and- stæðingar Arafats, lýstu sam- komulaginu sem svikum við mál- stað Palestínumanna sem „færðu Israelum allt sem þeir vildu ... ekkert sjálfstæði fyrir Palestínu- menn“. Þeir sögðust ætla að snið- ganga kosningar sem samkomu- lagið kveður á um. Leiðtogar tveggja róttækra hreyfinga Palestínumanna, Al- þýðufylkingarinnar fyrir frelsi Pal- estínu og Lýðræðisfylkingarinnar fyrir frelsi Palestínu, gáfu út sam- eiginlega yfírlýsingu þar sem sam- komulaginu er lýst sem „hættulegu afsali réttinda Palestínumanna sem þjóðar". Þeir sögðust staðráðnir í að halda áfram vopnaðri baráttu gegn yfirráðum ísraeia. Sýríendingar sögðu að sam- komulagið gæti leitt til frekari spennu á svæðum Palestínumanna og íranir spáðu því að það myndi efla andstæðinga PLO meðal Pal- estínumanna. Líbýska fréttastofan JANA lýsti samkomulaginu sem „nýju skrefi í átt að frekari tilslök- unum gagnvart óvinum araba og málamiðlun um réttindi Palestínu- araba, niður blekkingarleið hins svokallaða friðar“. „Sigur fyrir Arafat“ Arababandalagið sagði hins veg- ar samkómulagið skref í rétta átt og leiðtogar arabaríkja, sem hafa friðmælst við fsraela, töldu það marka tímamót. „Eg tel árangur þeirra sigur fyrir Arafat og samn- ingamenn hans,“ sagði Hosni Mub- arak, forseti Egyptalands. Warren Christoper, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, kvað samkomulagið „til marks um hug- rekki og staðfestu leiðtoga ísraels og PLO og hversu öfiug aðferð beinar samningaviðræður eru við lausn flókinna vandamála". Nokkrir fréttaskýrendur vöruðu þó við því að samkomulagið gæti leitt til aukins ofbeldis af hálfu öfgamanna úr röðum ísraela og Palestínumanna sem vilja hindra friðarsamninga. „Því meiri sem árangurinn af friðarumleitununum verður því meira gera andstæðing- ar þeirra til að stöðva þær og blóðs- úthellingar eru eina leiðin til þess,“ sagði ítalska dagblaðið La Republica. „Við ættum því að búa okkur undir fréttir af fleiri hörmu- legum atburðum." I SEPTEMBER í hverjum mánuði frá september fram í apríl verður sérstakt PLÚS-tilboð mánaðarins auglýst í fjölmiðlum. PLÚS-afsláttur nemur 100® kr. fyrir handhafa almennra VISA-korta. 2000 kr. f.hjón/ferðafélaga. fyrir handhafa Farkorta V3SA. 4000 kr. f.hjón/ferðafélaga. fyrir handhafa Gullkorta VISA. 6000 kr. f.hjón/ferðafélaga. Lágmúla 4: sími 569 9300, Hafnarfiröi: stmi 565 2366, Keflavík: sími 421 1353, Selfossi: sími 482 1666, Akureyri: simi 462 5000 - og hjá umboðsmönnum um land alll. 4 orí Frábær ný sólarparadís við Mexíkóflóa Glóðheitir dagar, blá- tærar öldur og hreinar strendur. Vönduð gisting. Glæsilegir golfvellir. Hagstætt bílaleiguverð. 3000 kr. Gull-plús. Innifalið: flug, gisting og flugvallarskattar. Tilboðið gildir til 30. september. Verð frá 71.510 á manninn m.v. 2 í íbúð á Santa Maria í 2 vikur. V/SA •vjs/'iti NvioiíV3Nis*ionv vismiij

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.