Morgunblaðið - 26.09.1995, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 1995 23
Daufar
langlokur
MYNPOST
Kjarvalsstaðir
VIDEO-list
Samsýning
Opið kl. 10-18 alla dagatil 15. okt.
Sýningarskrá kr. 450.
Aðgangur kr. 300 (gildir á allar
sýningar).
SÍÐUSTU tvo áratugi eða svo
hefur myndlistin tæplega tekið eins
mikinn kipp á nokkru öðru sviði og
orðið hefur í notkun myndbandsins,
og video-list hefur orðið áberandi
sem tjáningarform listamanna í
kjöifar gjörninga og uppákoma af
ýmsu tagi, sem ruddu þessu formi
Frá styrktartónleikum
Bandalags leikfélaga
Tímarit
• LEIKLISTARBLAÐIÐ, 2. tb].
þessa árs er komið út. Meðal efnis
er: Bandalagsþing 1995; Listin að
,joggla“; Joe Orton; Pínlegasta at-
vikið; Leiklist á Seyðisfirði; Fyrir
ánægjuna eina; og Endasprettur.
Blaðinu fylgir Einþáttungasafn
Leiklistarblaðsins: Andinn eftir
Stefán Jóhannes Sigurðsson. í
kynningu segir að hér kveðji sér
hljóðs nýtt vestfirskt leikskáld með
bráðfyndnum þætti um ástir ósam-
lyndra hjóna, áfengisböl og vín-
anda.
Leiklistarblaðið kemur út þrisvar
til fjórum sinnum á ári. Það er ein-
göngu selt í áskrift og kostar ár-
gangurinn 1.200 kr.
Útgefandi er Bandalag íslenskra
leikfélaga, ritstjóri ogábyrgðar-
maður Bjarni Guðmarsson. Stein-
mark prentaði.
veginn og hafa haldið áfram að
þróast samhliða því.
Þessi miðill hefur hins vegar aldr-
ei náð þeim almennu vinsældum
sem hefðbundnari listmiðlar hafa
búið við, og því fremur þróast og
sótt fram í afmörkuðum heimi lista-
fólksins sjálfs, þó almenningur njóti
daglega afsprengis þessarar listar,
t.d. í formi tónlistarmyndbanda.
Fyrir þessu má eflaust finna ýmsar
ástæður, en takmörk miðilsins eru
þar helst; forsenda video-listar er
aðgangur að ákveðinni tækni, bæði
til að skapa verkin sem og til að
sýna þau. Loks er tíminn sem verk
af þessu tagi krefjast af áhorfand-
anum annar þröskuldur sem reynist
mörgum óyfirstíganlegur.
Listafólk hefur verið að vinna i
þessum miðli mun lengur en ætla
mætti af útbreiðslu verka af þessu
tagi, og á vesturgangi Kjarvalsstaða
er nú hægt að kynna sér nokkuð
úrval af verkum þeirra listakvenna,
sem fylltu fyrstu kynslóð video-lista-
fólks, og er þá miðað við tímabilið
1970-75. Hér má segja að bæði sé
um söguleg björgunarstörf að ræða,
þar sem líkur eru á að margt af
þessu elsta efni falli annars í
gleymsku, eins og greinilega kemur
fram í ritgerð JoAnn Hanley í sýn-
ingarskrá, og hins vegar býður sýn-
ing af þessu tagi einnig upp á gott
tækifæri til að bera fyrri vinnubrögð
og viðfangsefni saman við það sem
mest er áberandi nú á dögum.
Þessi sýning var upphaflega
skipulögð af samtökum sjálfstæðra
sýningarstjóra í New York, og hef-
ur frá hausti 1993 ferðast víða um
Kanada og Bandaríkin, og má ætla
að nú sé ætlunin að dreifa henni
enn frekar. Hér er um að ræða
samantekt á videomyndum eftir
tuttugu og eina listakonu, en alls
er boðið upp á þrjátíu og fimm sjálf-
stæð myndverk frá þeirra hendi,
sem eru allt frá hálfri mínútu upp
í tæpa klukkustund að lengd, þann-
ig að af nógu er að taka fyrir áhuga-
fólk um þennan listmiðil. Hins veg-
ar er vart við því að búast að marg-
ir hafi úthald til að sitja yfir öllu
því sem hér getur að líta, en heildar-
lengd efnisins mun nærri níu og
hálf klukkustund, svo það væri
gott dagsverk að skoða það allt.
Renningar
MYNPLIST
Við llamarinn -
llafnarfiröi
MÁLVERK
Sigríður Júlía Bjarnadóttir. Opið kl.
14-18 alla dagatil 1. okt. Aðgangur
ókeypis
LISTAMENN telja oft mikilvægt
að finna sér ýmsar tilvísanir til að
vinna út frá eða einkenna sín verk
með. Slíkar tilvísanir virka oftar en
ekki sem ljósker upplýsinga, vitar
sem segja áhorfandanum eitthvað
um hvaðan listamaðurinn er að koma
í verkum sínum, og hvaða lykilatriði
hann hefur kosið að takast á við í
listinni. Gildi listsýninga felst síðan
oft í því hversu vel gestir fínna fyr-
ir þessum lykilatriðum í verkunum
og hvort þau ná að koma fram þeirri
listsýn, sem listamaðurinn er að leit-
ast við að tjá.
Sigríður Júlía Bjarnadóttir út-
skrifaðist frá Kennaradeild Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands 1988,
og hélt þaðan til framhaldsnáms til
San Francisco. Hún hefur áður tekið
þátt í tveimur samsýningum, en hér
mun á ferðinni fyrsta einkasýning
hennar.
Sú tilvísun sem Sigríður Júlía
Bjarnadóttir hefur kosið sem yfir-
skrift þessarar sýningar er orðið
„Renningar". í hugum flestra vísar
það fyrst og fremst til formsins;
orðabókin skilgreinir renning sem
mjóa rekaviðarspýtu, eins og lista-
konan bendir á í örlitlum inngangi.
En hún bætir síðan við:
„Þessir renningar eru spýtur,
strigi, olíulitir og hugrenningar.
Hugrenningar um hluti, merkingar,
hugsun og framrás lífsins. Hugsun
án orða hlýtur að koma langt að,
jafnvel lengra en rekaviðarspýta.“
Þessi samlíking við renninga er
skýr þegar litið er yfir sýningarsal-
inn; heildin er samtengd í forminu.
Hvert verk er langt og mjótt, líkt
og málaður strigarenningur í tré-
ramma, og þessi formfesta gengur
jafnvel svo langt að eitt málverkið
beygir fyrir horn, ef svo má að orði
komast.
Hvaða hugrenningar eiga að
koma fram í verkunum er hins veg-
ar öllu óljósara. Myndirnar eru mál-
aðar með grófum hætti þar sem lag-
skipting litanna hylur yfirborð þess-
ara litlu flata, án þess að einstakir
litatónar nái að geisla á þann veg
sem vert væri; formnotkun er ein-
feldningsleg og ber ekki með sér
skýrar merkingar, hvort sem um er
í ítarlegri ritgerð sinni í sýning-
arskrá rekur Ann-Sargent Wooster
sögu upphafs video-listarinnar vest-
anhafs og þróun hennar hjá ýmsum
þeim listakonum, sem hér eru
kynntar, og bendir m.a. á þær miklu
tækniframfarir sem hafa orðið til
að skapa listafólki möguleika til
sköpunar, sem fáa hefði dreymt um
fyrir tveimur áratugum. Um leið
er vert að hafa í huga að ýmsar
af þeim nýjungum sem almenningur
þekkir úr kvikmyndum og tónlistar-
myndböndum voru fyrst þróaðar
af listafólki á þessu sviði, og þann-
ig hefur videolistin snert almenning
meira en flestir gera sér grein fyrir.
í svo viðamikilli sýningu er ekki
réttlætanlegt að ræða mikið um
einstök verk, enda skal fúslega við-
urkennt að undirritaður gaf sér
ekki heilan vinnudag til að skoða
úrvalið. í sýningarskrá er hins veg-
ar að fínna stuttar lýsingar á mynd-
böndunum, og þar má auðveldlega
velja það sem menn vilja skoða
nánar.
Hér skiptir viðhorf listafólksins
miklu um hvernig áhorfendur taka
verkunum. Þar sem kímnigáfan er
höfð með í ráðum verður útkoman
oft bæði skemmtileg og boðskapur-
inn sterkur (eins og t.d. í verki
Mörthu Rosler, „Semiotics of the
Kitchen" og í verkum Ilene Seg-
alove), en þar sem listakonumar
taka sjálfar sig og boðskapinn of
alvarlega verður útkoman hreinlega
leiðinleg, einkum ef hin formræna
uppbygging er ekki heldur til mik-
illa bóta.
Því miður eru verkin í seinni
flokknum mun fleiri hér en í þeim
fyrri. Það er erfitt að hugsa sér að
margir hafi áhuga á að horfa á
langlokuverk eins og „What a Wo-
man Made“ eftir Mako Idemitsu,
„Raumsehen und Raumhören" eftir
Valie Export eða „Mumble“ eftir
Lyndu Benglis, og þegar við bætast
athuganir á formrænum möguleik-
um miðilsins og afar persónulegar
(en ekki alltaf áhugaverðar) frá-
sagnir frá hendi listakonunnar verð-
ur heildarsvipur sýningarinnar
fremur daufur, svo ekki sé meira
sagt.
Slíkt úrval verka er ekki til þess
fallið að vekja áhuga hinna ókunn-
ugu á þessu listformi, sem getur
þó verið gjöfult og ríkulegt ef vel
er á haldið, eins og mátt hefur sjá
á ýmsum sýningum innlendra lista-
manna á þessu sviði á undanförnum
árum. Upphafið sem getur að líta
hér er þannig fremur söguleg heim-
ild en lifandi þáttur þeirrar listar,
sem nú er sköpuð í þessum miðli
um allan heim.
Eiríkur Þorláksson
að ræða hús, horn, skálar eða báta.
Loks er titill eins og „Þetta er eins
og far eftir straujárn en eru bátar“
(nr. 12) ekki líklegur til að fá marga
til að velta fyrir sér mögulegum
dýpri merkingum verksins um fram-
rás lífsins - með slíku væri ef til
vill seilst of langt í því að leita að
innihaldi og merkingu fyrir mynd-
verk, sem ná ekki að standa á eigin
verðleikum.
Þekkilegustu verkin hér forðast
slíkar vangaveltur, og einfaldir litir
og leikir forma ná að ráða framvind-
unni í myndunum „Krummi" (nr. 6)
og „Án titils“ (nr. 10) án nokkurrar
þarfar á frekari skýringum. Hér
nýtur verklag listakonunnar sín best,
á sama tíma og litatónarnir verða
tærastir.
Þessi sýning verður helst eftir-
minnileg fyrir formið, hina löngu og
mjóu renninga málverksins. Lista-
konan mun vonandi fylgja henni eft-
ir í hinni eilífu leit að jafnvægi forms
og innihalds, sem myndlistarmenn
eru sífellt að takast á við; verkin
tvö, sem hér eru nefnd að ofan benda
til að þar kunni hún að finna ýmis-
legt, sé betur að gáð.
Eiríkur Þorláksson
HREINAR SNYRTIVÖRUR
- Þú færð ekkert betra -
ÞUMALÍNA
Pósthússtræti 13 -S. 551 2136
Upplýsingamiðstöð
myndlistar
UPPLÝSINGAMIÐSTÖÐ myndlistar
hefur tekið til starfa. Að henni standa
menntamálaráðuneytið, Samband ís-
lenskra myndlistarmanna og Mynd-
stef. Samstarfssamningur hefur ver-
ið undirritaður milli þessara aðila og
verkefnisstjórn skipuð til að hafa
umsjón með verkefninu. í henni sitja
Þórunn J. Hafstein, fyrir hönd ráðu-
neytisins, formaður, Sólveig Egg-
ertsdóttir, fyrir Samband íslenskra
myndlistarmanna, og Knútur Bruun,
fyrir Myndstef.
Hlutverk upplýsingamiðstöðvar-
innar er að koma á fót og reka
gagnabanka um íslenska myndhöf-
unda og verk þeirra og um íslenska
myndlistarviðburði til kynningar inn-
anlands og utan í samvinnu við hags-
munasamtök myndlistarmanna.
Upplýsingamiðstöð myndlistar skal
ekki síður afla og miðla upplýsingum
um sýningarframboð, söfn, náms-
framboð, vinnuaðstöðu, styrki,
samninga og útboð og þannig þjóna
myndiistarmönnum við vinnu sína.
Hrafnhildur Þorgeirsdóttir bóka-
safns- og upplýsingafræðingur hefur
verið ráðin starfsmaður Upplýs-
ingamiðstöðvar myndlistar frá 1.
september 1995. Aðaláhersla verður
í fyrstu lögð á gagnasöfnun og að
skipuleggja miðlun og upplýsinga-
streymi jafnt að og frá Upplýsingam-
iðstöð myndlistar. Þessi gögn verða
síðar notuð til kynningar og upplýs-
inga fyrir listneytendur og listamenn
jafnt innanlands sem utan.
Upplýsingamiðstöð myndlistar
verður fyrst um sinn til húsa áð
Þórsgötu 24, sími 5627711. Opið kl.
12.30-16.
INTERNET
NÁMSKEIÐ, 12 klst.
Kynning á uppbyggingu og sögu Internetsins,
tölvupósti og veraldarvefnum. Fariö í helstu þætti
Netscape fyrir vefinn og Eudora fyrir póstinn. Farið
í skráarflutning með FTP og IRC samtalsrásirnar.
Farið í noktun Telnet til að tengja saman tölvur.
Finger notað til að leita að tölvum og notendum.
Gagna leitað.
Með námskeiðinu fylgir bók um Internetið og frí
áskrift í einn mánuð að Trekneti, sem veitir alhliða
Internet þjónustu.
Upplýsingar og skráning í síma 561 6699.
Tölvuskóli Revkjavíkur
Borgartúni 28, sími 561 6699.
Hvergi meira úrval
til af hjónarúmum frá
Evrópu og Ameríku
en hjá okkur.
Sjón er sögu ríkari
Teg: Anm danskt hjénarúm úr baÍkL
140x200cm með komfort fjaðradýnum kr. 76.220,-
180x200cm með komfort fjaðradýnum kr. 85.920,-
Náttborð kr. 16.060,- stk.
Staðgreiðsluaf sláttur
eða góð greíðslukjör
fDEma)b/er
ISLANDI
Danskur smekkur er "dejlig'
V/SA
MMMSi
EUROCARD
Húsgagnahöllinni
S: 587 1199 - Bíldshöfði 20 - 112 Reykjavík