Morgunblaðið - 26.09.1995, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 1995 27
AÐSENDAR GREINAR
Tryggjum stöðugleikann
Sveiflujöfnun í sjávar-
útvegi - ráðstafanir í tíma
í UMRÆÐUNNI um efnahags-
mál hefur talsvert verið rætt og
ritað um sveiflujöfnun í þjóðarbú-
skapnum. Á heildina litið hafa
efnistökin verið flókin og fræðileg.
Það hefur fælt fólk frá umræðunni
og gert það að verkum að hún
hefur ekki fengið þann hljómgrunn
sem skildi. Þessari grein er ætlað
að útskýra sveiflujöfnun með ein-
földum hætti og hvers vegna hún
er nauðsynleg fyrir vöxt og viðgang
þjóðarbúsins.
Einkenni íslensks
efnahagslífs
Það er kunnara en frá þurfi að
segja að íslenskt efnahagslíf hefur
í áranna rás einkennst af miklum
sviptingum. Oftar en ekki hafa
umskiptin átt rætur að rekja til
verðsveiflna á sjávarafurðum á er-
lendum mörkuðum eða breytinga á
aflaföngum. Reynslan hefur kennt
okkur að þegar vel árar til sjós,
verð á sjávarafurðum er hátt og
veiði mikil, þá leiðir það til hækk-
andi launa og annarra kostnaðarl-
iða í öðrum atvinnugreinum en
bara .útgerð og vinnslu. Til að
mæta auknum kostnaði er afurða-
verð hækkað með þeim afleiðingum
að skriða verðhækkana fer af stað
og verðbólga rýkur upp. Launa-
hækkanir renna út í sandinn. Von
um raunverulega kjarabót var
byggð á fölskum forsendum.
Almennt gildir að þegar verð-
bólga er meiri hér en í viðskiptalönd-
unum þá þarf fýrr eða síðar að fella
gengið. Fastgengis-
stefna við skilyrði mis-
ræmis_ í verðlagsþróun
milli íslands og sam-
keppnislandanna fær
ekki staðist nema tak-
markaðan tíma. Raun-
in hefur verið sú að
genginu hefur verið
haldi föstu meðan sjáv-
arútvegurinn þolir það
en síðan er það fellt
þegar afli minnkar eða
verð á sjávarafurðum
lækkar.
Tvö dæmi
Þorsteinn M,
Jónsson
Tökum dæmi af íslensku fyrir-
tæki í iðnaði eða þjónustu sem
keppir á heimamarkaði við inn-
flutning. Nú hefst uppgangur í
sjávarútvegi og laun og verð á
aðföngum innanlands hækka þann-
ig að framleiðslukostnaður eykst.
Til að mæta auknum kostnaði þarf
fyrirtækið að hækka verð á sínum
afurðum, en af því að ekki er hrófl-
að við gengi þá er verð á innfluttu
samkeppnisvörunni óbreytt í krón-
um talið. Þá liggur í augum uppi
að samkeppnisstaða innlenda fram-
leiðandans hefur versnað gagnvart
þeim erlenda. Neytendur munu í
auknum mæli kaupa innflutta vöru
í stað þeirrar innlendu. Hlutfallið
milli innlends verðlags og erlends
mælt í krónum, raungengið, hefur
hækkað.
Sömu sögu er að segja af íslensk-
um framleiðanda sem selur vöru á
erlendan markað. Þeg-
ar verðlag hækkar inn-
anlands umfram það
sem gerist í sam-
keppnislöndunum
neyðist útflytjandinn
til að hækka verð í
erlendri mynt. Það
gerir hann i því skyni
að fá fleiri krónur til
að standa straum af
kostnaðaraukanum við
framleiðsluna. Sam-
keppnisaðilarnir í út-
löndum eru ósnortnir
af hækkun á verði að-
fanga og halda sínu
verði óbreyttu. Þannig
styrkist samkeppnis-
staða þeirra. Sala hjá íslenska út-
flytjandanum dregst saman en
eykst hjá erlendu keppinautunum.
Hvort tveggja, verri samkeppnis-
staða útflutnings- og samkeppnis-
greina, hefur síðan þau heildar-
áhrif að auka innflutning og draga
úr útflutningi. Þannig minnkar af-
gangur eða eykst halli á viðskiptum
við útlönd með tilheyrandi aukn-
ingu erlendra skulda. Þetta er saga
sem hefur endurtekið sig margoft
í íslenskum þjóðarbúskap eins og
glöggt má sjá af viðvarandi við-
skiptahalla og skuldasöfnun í út-
löndum.
Annar fylgikvilli mikilla og
óvæntra sviptinga í rekstrarskil-
yrðum, eins og hér hefur verið lýst,
er minni áhersla á vöruþróunar-
og markaðsstarf, sem er í eðli sínu
langtímaverkefrii. Þegar framtíðin
er hjúpuð óvissu þá takmarkast sýn
við þröng tímamörk. Menn veigra
sér við að leggja útí mikla vinnu
íslendingar hafa ekki
ráð á því að endurtaka
hagstjórnarmistök enn
á ný, segir Þorsteinn
M. Jónsson, og spilla
þannig stöðu okkar
gagnvart erlendum
keppinautum.
og kostnað sem getur farið í súginn
fyrirvaralítið. Þetta hefur án efa
staðið vexti íslenskra fyrirtækja og
sókn þeirra á erlenda markaði fyr-
ir þrifum.
Hlutverk
sveiflujöfnunar
Sveiflujöfnun gegnir því hlut-
verki að koma í veg fyrir að verð-
hækkunarskriða fari af stað í kjöl-
far uppsveiflu í sjávarútvegi.Þann-
ig er komið í veg fyrir að sam-
keppnisstaðan versni. Sveiflujöfn-
un kemur líka fyrirtækjum í sjávar-
útvegi til góða með því að viðhalda
dýrmætum stöðugleika og skapa
traust á framtíðina, sem hvetur
fyrirtæki til dáða í vöruþróunar-
og markaðsstarfi.
Sveiflujöfnunin gengur þannig
fyrir sig að þegar hagur vænkast
í sjávarútvegi er hiuti af tekjuauk-
anum sem þá myndast lagður til
hliðar í sérstakan sjóð. Þar situr
hann eftir í stað þess að ’feka út í
hagkerfið og hleypa af stað skriðu
verðhækkana. Þegar svo á móti
blæs í sjávarútvegi kemur til
greiðslu úr sjóðnum, sem auðveldar
fyrirtækjum að takast á við andbyr-
inn. Þannig minnka sveiflurnar í
þjóðarbúinu og aðrar atvinnugrein-
ar geta stundað öflugt uppbygging-
arstarf óháð genginu í sjávarút-
vegi.
Sveiflujöfnunarhugmyndin er
ekki ný af nálinni. Tvívegis hafa
verið settir á laggirnar verðjöfnun-
arsjóðir í því skyni að draga úr
efnahagssveiflum. í báðum tilfell-
um hafa inn- og útborganir við
verðþróun sjávarafurða á erlendum
mörkuðum. Reynslan hefur nú
kveðið upp sinn dóm um að verði-
jöfnun ein sér dugar ekki. Það er
reginmunur á verðjöfnun annars
vegar og tekjujöfnun hins vegar.
Inngreiðslur eða útborganir úr
sveiflujöfnunarsjóði þurfa að mið-
ast víð verðmæti en ekki bara verð.
Annars er hætta á að sjóðurinn
virki öfugt. Til dæmis má ímynda
sér þá stöðu að verð fari hækkandi
á meðan að verðmæti aflans fer
minnkandi af því að aflinn dregst
það mikið saman. Þá kemur til inn-
borgunar samkvæmt reglum en til
að jafna sveiflur ætti frekar að
greiða úr sjóðnum við þessar að-
stæður.
Lokaorð
íslendingar hafa ekki ráð á því
að endurtaka hagstjórnarmistök
enn eina ferðina. Við megum ekki
oftar spilla stöðu okkar gagnvart
erlendum keppinautum og koma
þannig í veg fyrir aukna hagsæld
og öflugra atvinnulíf í eigin landi.
Búa þarf svo um hnútana að tiltæk-
ar séu leiðir til að takast á við
vandann þegar hann ber að garði.
Það væri slæm búsýsla að sofna á
verðinum.
Höfundur er hagfræðingur Sam-
taka iðnaðarins.
Windows
Upgrade
Windows 95 ki*. 8.500,- Geisladrif frá kr. 12.900,- Afritunarstöðvar 800 MH kr. 22.900,-
Með 2x gcisladrifi kr.19.900,- Hljóðkort, 16 bita víðóma kr. 8.600,-
Við enim f Mörkinni 6. Sími 588 2061 - Fax 588 2062 BGÐEIND
Mtm
More 486 66 MHz tölvur
Frákr. 96.175,-
More Pentíum tölvur
Frákr. 123.478,-