Morgunblaðið - 26.09.1995, Síða 33

Morgunblaðið - 26.09.1995, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 1995 33 MINNINGAR + Margrét Ing- unn Jónsdóttir var fædd í Reykja- vík 13. október 1919. Hún lést í Borgarspítalanum 18. september síð- astliðinn. Foreldr- ar Ingunnar voru Valdís Ragnheiður Jónsdóttir og Jón Armann Bene- diktsson, sem bjuggu lengst af á Krossi í Innri Akraneshreppi, bæði látin. Systur Ingunnar eru Bergþóra Bald- ursdóttir, hennar maki var Ásgeir Sigurjónsson, látinn, Sigríður Jóna Jónsdóttir, maki Einar Jónsson, Matthildur Jónsdóttir, maki ívar Hannes- son, Katrín Rut Jónsdóttir, maki Valdimar Kristinsson, látinn, og Guðbjörg Svanhildur ÞEGAR vinir kveðja horfum við oft um öxl og rifjum upp kærar minn- ingar, þegar sólin skein og gleði- hlátrar kváðu við. Lífið er margsl- ungið og oftar en ekki liggur það tímabundið um þymibrautir. Þannig var það hjá Ingu frænku, sem nú hefur kvatt okkur. Löng og ströng var leiðin sem lá inn og út á sjúkrastofnanir allt frá 17 ára aldri, en þrátt fyrir að á móti blési hafði hún ótrúlegt þrek, trú á lífið og aftur og aftur reis hún upp og tók til starfa, þegar aðrir vom þess fullvissir, að nú væri öll von úti. Margrét Ingunn hét hún fullu Jónsdóttir, maki Gunnar Sigtryggs- son. Eiginmaður Ingunnar var Sig- urður Hólmsteinn Matthíasson, vél- stjóri, f. 11. sept- ember 1908, d. 20. júlí 1974. Dóttir Margrétar Ingunn- ar og Sigurðar er Steinvör Sigurðar- dóttir, fulltrúi á krabbameinsdeild Landspítalans, f. 27. maí 1942. Henn- ar barn er Sigríður Ingunn Elíasdóttir, f. 25. októ- ber 1961, börn Sigríðar eru Haukur Elías Benediktsson, f. 17. desember 1985, og Eygló Benediktsdóttir, f. 2. maí 1987. Útför Margrétar Ingunnar verður gerð frá Fossvogskap- ellu í dag og hefst athöfnin kl. 13.30. nafni. Fyrra nafnið eftir langömmu en það seinna, sem hún notaði jafn- an, eftir ömmu, sem henni var svo kær. Foreldrar hennar bjuggu tímabundið í húsi afa og ömmu á Frakkastíg og þar fæddust þrjár af sex dætrum þeirra, þar á meðal Inga. Oftast var Inga hjá ömmu og afa og börn þeirra voru jafnt systkini hennar, sem hennar eigin systur. Haustið 1940 urðu tímamót í lífi hennar, en þá giftist Inga Sigurði Matthíassyni vélstjóra. Hann reyndist henni farsæll föm- nautur, sem studdi hana í gegnum margvísleg veikindi með stakri ró og háttprýði er einkenndu hann í hvívetna. Eina dóttir eignuðust þau er fékk nafnið Steinvör eftir öm- musystur Ingu, sem ekki varð barna auðið, það nafn styttist í „Dinna“, sem vinir og fjölskylda þekkja betur. Kærleikar era miklir milli heim- ila okkar. Mamma mín leit alltaf á Ingu sem eina af systrum sínum og bar aldrei skugga á þeirra vin- áttu og frændsemi. Oft minntist Inga þess sem sérstaks viðburðar fyrir sig, þegar hún fékk að vera viðstödd brúðakup foreldra minna, sem haldið var á níu ára afmælis- degi hennar 13. október 1928. Eins og ég rifjaði upp áður skein sólin inn á milli og allt var gott. Inga pijónaði og heklaði fallega hluti, bakaði og matreiddi af mikl- um myndarskap og smekkvísi. Gestir komu og fóru. Gott var kaffið og heimagerða konfektið sem gladdi augu og munn, þegar skipst var á jólagjöfum og um margt var þá skrafað. Inga sagði skemmtilega frá og sá oftar en ekki spaugilegu hliðam- ar á málunum. Sigurður, hennar stoð og stytta, féll frá 1974 eftir fárra mánaða sjúkralegu. Dinna bjó þá með eiginmanni sínum, Elíasi Ámasyni, í húsinu á Kaplaskjóls- veginum ásamt Ingu og litu þau til með henni. Einkabam þeirra, Sigríður Ingunn, var uppáhald ömmu Ingu og barnabömin tvö, Haukur Elías og Eygló, augastein- amir hennar og heimsóknir þeirra glöddu og umhyggja hennar snerist mikið um þau. Inga naut mikillar og góðrar aðhlynningar Maríönnu Haralds- dóttur hjúkrunarfræðings og Guð- mundar Sigurðssonar læknis, sem fylgdust með líðan hennar í mörg ár. Þeim ber að þakka umhyggju alla. Þegar kraftar fóra þverrandi INGUNN JÓNSDÓTTIR HELGI EYJÓLFSSON Helgi Eyjólfs- son húsasmíða- meistari fæddist á Grímslæk í Ölfusi 29. september 1906. Hann lést á hjúkrunarheimil- inu Eir í Reykjavík 17. september síð- astliðinn, 88 ára að aldri. Foreldrar hans voru Eyjólfur Guðmundsson bóndi þar og kona hans, Herdís Jóns- dóttir. Helgi hóf nám í húsasmíði 1924 og hlaut meistararéttindi 1928. Hann stundaði sjálfstæð- an rekstur við byggingar og sölu íbúðarhúsnæðis á árunum 1928-1944 og byggði á því tímabili m.a. síldarverksmiðj- urnar á Djúpuvík og Hjalteyri. Helgi sat í Sölunefnd varnar- Iiðseigna 1944-1948 er nefndin var lögð niður og var honum þá falið að ljúka störfum hennar og svo- nefndrar bíla- og tækjanefndar hers- ins. Hann var fjár- festingafulltrúi Fjárhagsráðs frá stofnun þess 1948 til 1952 og sá jafn- framt um uppgjör á viðskiptum ríkisins við herinn. Helgi varð framkvæmda- sljóri Sölu vamarl- iðseigna 1952 og lét af því starfi sökum aldurs 1976. Helgi kvæntist Guðbjörgu Sigurðardóttur og áttu þau þrjú börn, Hermann, Sigurð Ragnar og Helgu. Útför Helga Eyjólfssonar fer fram frá Hallgrímskirkju í dag og hefst athöfnin klukk- an -13.30. HELGI Eyjólfsson, fyrrverandi forstjóri Sölu varnarliðseigna, var umsvifamikill byggingarmeistari í Reykjavík áður en hann tók við störfum fyrir Sölunefnd varnarliðs- eigna, sem reyndar hét Sölunefnd setuliðseigna áður. Fræg er byggingarsaga tveggja síldarverksmiðja, sem risu með undraverðum hraða undir stjórn Helga Eyjólfssonar, annars vegar i Djúpuvík og hins vegar á Hjalt- eyri. Er fjallað um þessa sögu í bók Birgis Sigurðssonar rithöfund- ar „Svartur sjór af síld“. Er með ólíkindum hvernig Helga tókst að reisa stærstu byggingu, sem reist hafði verið úr steinsteypu hér á landi við þær aðstæður, sem ríktu á miðjum fjórða áratugnum, en Djúpavík á vestanverðum Húna- flóa var þá í engu vegasambandi og því allir aðflutningar frá sjó. Síldarverksmiðjan á Hjalteyri var ekki síður afrek, því að hún var byggð á algerum mettíma og hafist handa á miðjum vetri. Fann Helgi upp aðferð til að steypa í frosti, þó að ýmsir væru vantrúað- ir á þá aðferð. Allt gekk þó eftir í þeim efnum og Hjalteyrarverk- smiðjan varð mikil búbót fyrir Kveldúlf og Thorsarana. Þessar tvær miklu síldarverk- smiðjur tengdust merkilegum kafla í atvinnusögu íslendinga, þegar síldin kom mikið við sögu. Árið 1944 gaf ríkisstjóm Bjöms Þórðarsonar út bráðabirgðalög um heimild fyrir ríkisstjómina til að kaupa eignir setuliðsins á íslandi. Samkvæmt þeim var skipuð 5 manna nefnd til-að fjalla um þau mál og skyldi einn þeirra vera fram- kvæmdastjóri nefndarinnar. Var Helgi skipaður í nefndina og 1. maí 1948 fól þáverandi fjármálaráðhera Jóhann Þ. Jósefsson Helga að reka skrifstofu nefndarinnar . og átti hann að ljúka störfum hennar. Ekki mun það hafa hvarflað að Helga að hann ætti eftir að vinna að þessum málum næstu 30 árin eins og raunin varð, því að flestir reiknuðu með, að dvöl varnarliðs- ins yrði skammvinn. Óhætt er að fullyrða, að Helga Eyjólfssyni og þeim mönnum, sem með honum störfuðu, hafi tekizt að móta farsæla stefnu í viðskipt- um íslenzkra stjórnvalda og varn- arliðsins á Keflavíkurflugvelli. Er enn þann dag í dag stuðst við þær viðskiptaaðferðir. Helga Eyjólfssyni varð snemma ljóst að Sala vamarliðseigna, eins og fyrirtækið hét eftir að Sölu- nefndin var lögð niður á áttunda áratugnum, yrði að eignast eigið húsnæði, en allt til ársins 1964, þegar fyrirtækið flutti í eigið hús- næði á Grensásvegi 9, hafði það hrakist milli staða í Reykjavík, m.a. hafði Sala varnarliðseigna haft aðsetur í Faxaskála í Örfiris- ey, Kveldúlfshúsi við Skúlagötu. Og enn síðar í Skúlatúni og Suður- landsbraut, þar sem Hótel Esja reis síðar. Helgi Eyjólfsson stjórnaði bygg- ingu Grensásvegar 9 og hafði áform uppi um að byggja allar þijár hæðir hússins ásamt kjallara, en pólitískur styrr á Alþingi kom í veg fyrir það. Stretsbuxur kr. 2.900 Konubuxur kr. 1.490 Mikið úrval af allskonar buxum Opið ó laugardögum tók Inga þá ákvörðun að fá inni á Elliheimilinu Grand. Þar var hún nýlega komin í fallegt einbýlisher- bergi og undi hag sínum vel. Dinna stóð við hlið mömmu sinn- ar í blíðu og stríðu öll árin. Erfið vora árin fyrir bamið og unglinginn að fylgja móðurinni ótal sinnum á sjúkrastofnanir og vitja hennar þar. Síðari árin stóð Elli við hlið hennar með prýði svo og Sigga dóttir þeirra. Ég, Gísli og Magga frænka sendum systrum Ingu og fjölskyldum, sem fylgdust með henni öll árin af kærleika, samúð- arkveðjur. Elsku Dinna, Elli, Sigga, Haukur Elías og Eygló inni- legar samúðar og kærleikskveðjur. Minningin lifir. Guð blessi ykkur í Jesú nafni. Rannveig Björg. Mig langar að minnast frænku minnar, Ingunnar Jónsdóttur, Ka- plaskjólsvegi 58, en hún verður til moldar borin í dag. Hún lést aðfara- nótt síðastliðins mánudags. Hún var dóttir afabróður míns, Jóns Benediktssonar, bónda á Krossi í Innri-Akraneshreppi, og konu hans, Valdísar Jónsdóttur. Hún var gift Sigurði Hólmsteini Matthías- syni og áttu þau eina dóttur, Stein- vör. Ingunni kynntist ég á barns- aldri og átti oft hjá henni skjól og góðar stundir. Þó að hún væri heilsulítil lengst af ævi sinnar bar hún sig ávallt vel og sýndi hetju- skap þó á móti blési. Til hennar var gott að sækja styrk, gleði og vináttu og hjálpsemi hennar brást aldrei þegar til hennar var leitað. Oft nutum við mæðgur gestrisni hennar. Fyrir allt þetta skal þakkað að leiðarlokum. Öllum ástyinum hennar votta ég samúð mína. Bless- uð sé minning þessarar góðu konu. Rósa Guðrún Sveinsdóttir. Um margar ára skeið stundaði Helgi útleigu íbúða, sem hann átti hér í Reykjavík. Þótti hann mjög sanngjarn leigusali. Eftirlætisiðja hans var skógrækt og laxveiði í Botnsdal í Hvalfirði, sem hann eignaðist upp úr 1940. Var skemmtilegt að heimsækja Helga og renna fyrir lax í Botnsá. Ahugamál hans voru fjölmörg, m.a. var bygging Hallgrímskirkju honum hjartfólgin. Hann tók einn- ig þátt í störfum fyrir Sjálfstæðis- flokkinn og sat í fjármálaráði hans í mörg ár. Var góður kunnings- skapur með Helga og foringjum Sjálfstæðisflokksins, þeim Olafi Thors og Bjarna Benediktssyni. Starfsfólki Sölu varnarliðseigna ber saman um, að Helgi Eyjólfsson hafi verið góður og sanngjam hús- bóndi og viðskiptavinir fyrirtækis- ins bera honum einnig vel söguna. Kynni okkar hófust 1977, er ég tók við starfi hans. Með okkur tókst góður kunningsskapur og var jafnan fróðlegt að hlusta á hann segja frá atburðum fyrri ára, allt frá því að hann ólst upp sem ung- ur drengur austur í Ölfusi. Um Helga Eyjólfsson má segja að hann hafi verið farsæll í starfi og eiga margir góðar minningar um þennan mikla athafnamann. Blessuð sé minning Helga Ey- jólfssonar. Alfreð Þorsteinsson. VIÐSKIPTAKERFI Frá kr. 22.410. CT KERFISÞROUN HF. “ Fákafeni 11 - Sími 568 8055 Bílamarkadurinn Smiðjuvegi 46E v/Reykjanesbraut. Kopavogi, sími 567-1800 ^ Löggild bílasala Fjöldi bifreiða á mjög góðum lánakjörum. Bílaskipti oft möguleg. Nissan Sunny GTi 2000 '93, 5 g., ek. 54 þ. km.t sóllúga, rafm. í öllu. V. 1.290 þús. Grand Cherokee Laredo '93, rauður, sjálfsk., ek. 71 þ. km., rafm. í öllu, álfelgur o.fl. V. 3.2 millj. Einnig: Grand Cherokee Limited (8 cyt.) '94, sjálfsk., leðirinnr. o.fl., ek. 14 þ. km. V. 4.150 þús. MMc L-300 Minibus ’88, grásans., 5 g., ek. 120 þ. km., vél yfirfarin (tímareim o.fl). V. 1.050 þús. Mjög hagstæð lánakjör. Nissan Pathfinder EX V-6 (3000) '92, 5 dyra, 5 g., ek. 54 þ. km. Fallegur jeppi. V. 2.290 þús. Subaru Justy J-12 GL II ’90, 5 dyra, sjálfsk., ek. aðeins 57 þ. km. V. 590 þús. V.W Golf 1.8 Gl Station ’94, 5 dyra, ek. 30 þ. km. V. 1.250 þús. Subaru Legacy Station '91, 5 g., ek. 66 þ. km. V. 1.190 þús. Sjaldgæfur sportbíll: Nissan 300 ZX V-6 ’e5, m/t-topp, 5 g., ek. 135 þ. km., rafm. í rúðum o.fl. V. 1.200 þús. Skipti á dýrari jeppa eða PUP (+800-1.200 þ. kr.). BMW 325 IX Station 4x4 '90, grásans., sjálfsk., ek. 75 þ. km., sóllúga, rafm. í öllu o.fl. Sérstakur bíll. V. 1.950 þús. Honda Accord EX Sedan '87, sjálfsk., ek. 124 þ. km. Gott eintak. V. 650 þús. Góð lánakjör. MMC Lancer GLi Sedan ’93, rauður, 5 g., ek. 56 þ. km. V. 990 þús. Peugeot 205 XL 3ja dyra '90, rauður, 5 g., ek. 107 þ. km. Gott ástand. V. 450 þús. GMC Geo Tracker 4x4 ’90, (USA týpa af Suzuki Vitara), hvítur, sjálfsk., ek. 83 þ. km. V. 1.050 þús. Toyota 4Runner V-6 '95, dökkgrænn, sjálfsk., ek. 13 þ. km., rafm. í öllu, 31“ dekk, brettakantar, álfelgur o.fl. V. 3.390 þús. Hyundai Pony SE '94, 4ra dyra, rauður, 5 g., ek. aðeins 11 þ. km., spoiler, samlit- ir stuðarar o.fl. V. 890 þús. Ford Econoline 150 4x4 '84, innréttaður ferðabíll, 8 cyl. (351), sjálfsk., vél nýupp- tekin. V. 1.080 þús. Skipti. Nissan Sunny SR Twin Cam 16V ’88, svartur, 5 g., ek. 120 þ. km., ný tímareim, sóllúga, spoiler o.fl. V. 590 þús. Tilboðsv. 490 þús. Toyota Celica Supra 2.8i 784, hvítur, 5 g., álfelgur o.fl., 170 ha. Gott eintak. V. 490 þús. Hyundai Accent GS ’95, 5 g., ek. 12 þ. km. V. 1.020 þús. Audi 100 CC '81, 5 dyra, grár, 4 g., góð vél. Ný skoðaður. V. 110 þús. Mazda 323 1.6 GLX ’91, dökkgrænn, sjálfsk., ek. 58 þ. km., rafm. í rúðum. hiti í sætum o.fl. Toppeintak. V. 930 þús. MMC Pajero V-6 (3000) '92, vínrauður, sjálfsk., ek. 113 þ. km., Einn m/öllu. V. 2.850 þús. Nissan Sunny Sedan 4x4 '90, ek. 69 þ. km., gullsans., 5 g. V. 790 þús. Toyota Corolla Liftback ’88, ek. 65 þ. km., hvítur, 5 g. Fallegur bíll. V. 590 þús. Suzuki Sidekick JX 5 dyra '91, ek. 85 þ. km., vínrauður, 5 g. V. 1.360 þús. Sk. ód. Toyota Corolla XL Sedan ’91, sjálfsk., ek. 71 þ .km. V. 750 þús. Daihatsu Feroza EL II ’90, grár, 5 g., ek. 80 þ. km. V. 850 þús. Toyota Corolla GLi 1600 Liftback '93, 5 g., ek. aðeins 21 þ. km., spoiler o.fl. Sem nýr. V. 1.190 þús. Nissan Pathfinder V-6 SE '93, sjálfsk., m/öllu, ek. 38 þ. km. V. 2.950 þús.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.