Morgunblaðið - 26.09.1995, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FRIÐBJÖRG
JÓNSDÓTTIR
+ Friðbjörg Jóns-
dóttir fæddist á
Kálfsskinni á Ár-
skógsströnd 25. ág-
úst árið 1900 og ólst
upp hjá foreldrum
sinum í Sörlatungu
í Hörgárdal. Hún
lést í Landspítalan-
um 19. september
síðastliðinn. Hún
giftist Sigurði Ingi-
mar Helgasyni sem
lést árið 1940. Þau
eignuðust þrjú
börn, Sigríði
Urðar Úu á Grundarstígnum.
Heimili þeirra var sem segull á
fjölda fólks, sem var að spretta fram
í tónlist þess tíma sem markaði spor
í söguna. Þar var vettvangur skap-
andi skoðanaskipta. Óhjákvæmilega
veitti maður athygli þessari skarp-
greindu konu sem alltaf var viljug
til að leggja til málanna sannfæringu
sína, þegar við lögðum á ráðin. Hún
stóð þar alltaf keik, stundum sposk
á svip en alltaf með í einlægum
áhuga sínum á viðfangsefninu. Vi-
van er manni ógleymanleg í þeirri
atburðarás. Þáttur hennar er svo
stór þegar upp er staðið.
Svo margt í framgöngu Vivan
varð til þess að þrátt fyrir árafjölda
frá föðurlandinu datt ekki úr minni
manns persóna hennar, svo at-
kvæðamikil sem hún var. Enn fínnst
mér hún í hugskotinu nálæg. Hún
var uppfull sjálfstrausts, treysti vel
öðrum, þó afgerandi lífinu sjálfu.
Það er synd að sjá slíku trausti
brugðist. Tilhugsunin víkur ekki frá
mér. Eitt sinn sótti hún stóran vina-
hóp sinn til kirkju. Tilefnið var skírn
dótturinnar. Hún var elsk að fólki
og hafði hæfileikann til að þjappa
saman vinunum.
Vivan duldi engan, hvar sem hún
fór, ást sína á Urði Úu, stúlkunni
sem hún ætlaði að koma til manns
með myndarlegum hætti. Stúlkan
sú var hjartanu hennar kærast.
Ekki renndi mig nokkurn grun í
hvorki þá né nú að klukkan skyldi
hringja henni núna, svo ungri. Ég
rita þetta sem örlítinn þakklætis-
vott og til að kveðja hinsta sinni
góðan vin minn. Harmur allra henn-
ar vina er mikill, en þó hjóm eitt í
samanburði við það sem lagt er á
hennar nánustu. Þeim sendi ég
samúðarkveðjur.
Vivan, minning þín lifir.
Magnús Guðmundsson.
Dáinn, horfinn! - Harmafregn!
Hvílíkt orð mig dynur yfír.
En ég veit að látinn lifir.
Það er huggun harmi gep.
(Jónas Hallgrímsson.)
Haustið 1972 hittist sundurleitur
hópur ungmenna í fyrsta sinn í
Versló. Leiðir okkar áttu eftir að
liggja saman í tvö ár við ærsl og
kæti. Við vorum ólík og hvert með
sín sérkenni og þar var Vivan eng-
in undantekning. Hún var sjálfstæð
og fór sínar eigin leiðir, hvatvís og
skemmtileg. Umburðarlynd og
vænti þess sama af öðrum.
Við eigum öll góðar endurminn-
ingar frá þessum árum og erfitt er
að þurfa að kveðja svo snemma.
Af eilífðar ljósi bjarma ber,
sem brautina þungu greiðir.
Vort líf, sem svo stutt og stopult er,
það stefnir á æðri leiðir
og upphiminn fegri en augað sér
mót öllum oss faðminn breiðir.
(Einar Ben.)
Við sendum dóttur Vivan, Urði
Úu, og öðrum aðstandendum okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Guð gefi ykkur styrk til að kom-
ast yfir þessa miklu sorg.
Bekkjarsystkini VÍ.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Ættingjum og vinum vottum við
okkar dýpstu samúð.
Þér er þökkuð samfylgdin og
beðið blessunar á vegi eilífðarinnar.
Sigríður Ebenesardóttir,
Jón H. Þorbergsson.
• Fleiri minningargreinar um
Vivan Hrefnu Óttarsdðttur bíða
birtingar ogmunu birtast í blað-
inu næstu daga.
Freyju, f. 1931, d.
1970, Ingimar Erlend, f. 1933
og Birgi, f. 1937. Sambýlismað-
ur Friðbjargar frá 1947 og til
dauðadags hennar var Þór
Ingimarsson. Þau bjuggu á
Framnesvegi 27 í Reykjavík.
Útför Friðbjargar fer fram
frá Fossvogskapellu í dag og
hefst athöfnin kl. 15.
FYRIR rúmum 95 árum fæddist
lítil stúlka í norðlenskri sveit. Hún
ólst þar upp með bræðrum sínum
tveimur við ástríki foreldranna. Hún
var góðum gáfum gædd og þráði
að menntast, en fyrir stúlkur var
naumast um slíkt að ræða á þeim
tíma. Þess í stað varð hún stoð og
stytta foreldra sinna við búskapinn
og kunni því raunar vel. Það kom
gjarnan í her.nar hlut að smala og
sitja yfir kvíaánum. En fjöllin í
Hörgárdalnum eru bæði há og brött
og það þurfti kapp og staðfestu til
að smala þau. Það kom líka fljótt
í ljós að litla stúlkan átti þessa eig-
inleika í ríkum mæli. Hún sigraði
fjöllin ofan við Sörlatungu á sama
hátt og hún síðar á ævinni sigraði
önnur og mun torfærari fjöll.
Friðbjörg lýsti æskuárum sínum
í sveitinni sinni af mikilli hlýju en
líka af kímni sem hún átti næga.
Mér er sem ég heyri hana segja:
„Árin sem ég var smali voru mín
bestu ár. Þá leið mér vel, einni með
sjálfri mér og tíkinni minni við
smalakofann minn með nóg og gott
nesti frá henni mömmu minni. Já,
þá var nú margt brallað. Ég stalst
meira að segja til að mjólka eina
kúna upp í mig heilt sumar.“ Og
hún hlær dátt að tilhugsuninni. Ég
fann glöggt að þá lifði hún ham-
ingjurík ár, þar átti hún minninga-
sjóð sem hún sótti í þegar erfiðleik-
ar steðjuðu að.
Örlögin ætluðu Friðbjörgu annað
og torveldara hlutverk en að hlaupa
um fjöllin, þeysa um á Hnokka sín-
um og tala við blómálfana. Á fer-
tugsaldri stendur hún uppi allslaus
ekkja með þijú lítil börn. Þá kom
sér vel að hafa sterk bein því ekki
kom til mála af hennar hálfu að
leita á náðir hins opinbera, enda
fáir sjóðir að sækja í. Með ótrúleg-
um kjarki og dugnaði tókst henni
að eignast þak yfir höfuðið, litla
kjallaraíbúð í fyrstu en loks ágæta
íbúð á hæð á Framnesvegi 27. Hún
sagði líka frá þessari baráttu með
nokkru stolti og ánægju, og hún
hló að því hvernig hún upp á eigin
spýtur samdi við fasteignasalana
og lét aldeilis ekki snúa á sig. Þá
var Friðbjörg í essinu sínu. Ég held
LCGSTCINDR
að í raun og veru hafi
hún haft dálítið gaman
af þessari glímu, enda
stóð hún þar uppi sem
sigurvegari.
Það var önnur glíam
sem erfiðara var að
sigra, en það var glím-
an við heilsuleysi og
dauða. Sigurð mann
sinn missti hún á unga
aldri og einkadóttir
hennar, Sigríður
Freyja, þessi góða og
gáfaða stúlka, veiktist
alvarlega á unglingsá-
rum og mátti líða mikl-
ar raunir uns hún lést 37 ára göm-
ul. Friðbjörg brást ekki fremur en
endranær. Hún stóð við hlið hennar
eins og klettur alla hennar þrauta-
göngu og miðlaði af styrk sínum.
Það er raunar það sem Friðbjörg
gerði alla tíð, hún miðlaði öðrum.
Hennar stærsta gleði var að gefa,
sama þótt hún hefði ekki alltaf
mikið handa á milli. Þess naut ég
ekki síður en aðrir. Hún sýndi mér
alla tíð sömu hlýjuna og höfðings-
skapinn, það skipti hana engu þótt
staða mín í fjölskyldu hennar
breyttist. Fyrir það og ótal margt
annað vil ég þakka af alhug.
Friðbjörg hlýtur að verða öllum
sem kynntust henni minnisstæð.
Hún var óvenju heilsteypt og traust
manneskja og þess nutu jafnt yngri
sem eldri. Hún sýndi unglingum og
vandamálum þeirra meiri skilning
en flestir af hennar kynslóð og átti
trúnað þeirra margra. Aldursmun-
urinn kom þar ekki að sök. Hún
gerði glöggan greinarmun á réttu
og röngu og breytti eftir því. Hún
dæmdi fólk eftir manngildi þess og
heiðarleika og leit ekki á stöðu eða
stétt. Hún átti þá lífsorku sem lét
ekki erfiðleika og böl vinna bug á
meðfæddri kímnigáfu. Hún kunni
að hlæja smitandi hlátri sem hreif
mann með.
Síðustu æviárin urðu Friðbjörgu
erfið. Hún var farin að heilsu, en
eins og áður kaus hún að bjarga
sér sjálf og gat dvalið á heimili sínu
að heita mátti til síðustu stundar,
dyggiiega studd af skyldmennum
sínum og ekki síst af Þór sem var
lífsförunautur hennar siðari hluta
ævinnar.
Höfðingskona hefur kvatt, langri
og erfiðri ferð um torfleiði er lokið,
og þá er gott að koma heim og
hvílast. Hún átti örugga trúarvissu,
góða heimvon. Þess vegna sam-
gleðjumst við henni.
Mig langar að lokum að tilfæra
orð sem hún sagði oftar en einu
sinni þegar hún heimsótti mig í
' sveitina, við ferðuðumst saman og
hún leit yfir landið. „Æ, mér hlýnar
allri innan þegar ég kem í sveitina,
það er eins og að koma heim.“
Ég veit að nú er Friðbjörg heima,
þar sem hlýja, friður og gleði rík-
ir. Ég votta sonum Friðbjargar,
Btómastofa
Fríðfimts
Suðuriandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opíð öil kvöld
tíl Id. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.
1 I.
ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 1995 37 -
fjölskyldum þeirra og Þór innilega
samúð.
Jóhanna Steinþórsdóttir.
„Ég er nú ekki mikið fyrir
glannaskap, en mér leiðist að vera
á eftir þessum asskotans draug-
um.“ Þessi orð sagði amma í einni
af árlegum ökuferðum okkar þegar
við vorum krakkar. Henni gramdist
seinagangur bílstjórans á undan á
leið yfir Lyngdalsheiði.
Þessi orð segja meira um hana
en mann grunar. Glampinn í augun-
um, sposkur svipurinn, húmorinn,
og hjartahlýjan er myndin af þess-
ari konu sem nú er ekki með okkur
lengur.
Spenningurinn við að fá hana í
heimsókn austur í afmælismánuðin-
um ágúst og sýna henni síðustu
jarðabætur í leggjabúinu eða nýj-
ustu drullukökuuppskriftina í
drullubúinu var alltaf jafn mikill.
Þessi barnslegi spenningur var af
nákvæmlega sömu rótum runninn
og tilfmningin sem maður fann fyr-
ir þegar maður var orðinn eldri og
sat hjá henni í eldhúsinu. Þó það
væru aðrir hlutir sem stóðu hjart-
anu nær þá en áður var það alltaf
það sama í fari hennar sem fékk
mann til að líða vel. Hæfileiki henn-
ar til þess að skilja og setja sig inn
í vandamál ömmubarna sinna var
ekki minni en örlæti hennar þegar
á þurfti að halda. Ekki var þar að *'''
fínna að kynslóðabilið háði henni.
Þótt hún væri jafngömul þessari
öld hafði hún viðhorf sem margir
helmingi yngri en hún mættu óska
sér að hafa. Það vafðist heldur ekki
fyrir henni að vera hreinskiptin og
meiningu sína sagði hún umbúða-
laust, jafnvel þannig að sumir kippt-
ust við. Við hveiju var að búast við
frá manneskju sem hálf níræð stóð
sveitt í því að þvo gluggana hjá sér
á þriðju hæð — að utan.
En æfin var orðin löng. Erfíðleik-
arnir og sár missir margra sem -
stóðu henni nær hafa örugglega
sett mark sitt á þessa sterku konu
og gert hana að manneskju með
stórt hjarta sem hafði ýmigust á
sjálfsvorkunn.
Það er erfítt að viðhafa einhver
kveðjuorð en það er eftirlifendum
huggun að hún yfirgaf þennan heim
sátt við það hlutskipti. Hún var að
fara yfír í þann næsta sem hún
sagði okkur á unga aldri að hún
hefði séð inn í; og sá var miklu
betri og fagurri en þessi.
Steinþór, Steinunn og Freyja.
t
EINAR JÓNSSON,
dvalarheimilinu Hlíð,
áður Eyrarvegi 35,
Akureyri,
andaðist í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri þann 22. september.
Jónina Sigmundsdóttir,
börn og tengdabörn.
t
Bróðir okkar,
RÍKARÐUR GESTSSON,
Bakkagerði,
Svarfaðardal,
lést í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri aðfaranótt 23. september.
Systkini hins látna.
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
ÞORLÁKUR ÞÓRARINSSON,
Viðihvammi 21,
Kópavogi,
er látinn.
Stella Ragnheiður Sveinsdóttir,
Jón Hafþór Þoriáksson, Helga Elínborg Jónsdóttir,
Auður Jónsdóttir, Ari Elberg Jónsson.
Lokað
Lokað verður í dag milli kl. 12-16 vegna jarðafarar
ÓLAFAR SIGURÐARDÓTTUR.
Málarameistarinn,
Síðumúla 8.
Lokað
Lokað verður hjá Sjóvá-Almennum tryggingum
hf., Kringlunni 5, þriðjudaginn 26. september frá
kl. 13.00-15.00 vegna útfarar
ÓLAFAR SIGURÐARDÓTTUR.
Sjóvá-Almennar tryggingar hf.
Lokað
vegna jarðarfarar HELGA EYJÓLFSSONAR verður
skrifstofa Sölu varnarliðseigna lokuð í dag, þriðju-
daginn 26. september, milli kl. 13-15.
Sala varnarliðseigna.