Morgunblaðið - 26.09.1995, Síða 38

Morgunblaðið - 26.09.1995, Síða 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 1995 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ t Móðir okkar, frú AÐALBJÖRG BJÖRNSDÓTTIR, Miklubraut 18, Reykjavik, lést í Borgarspítalanum 23. september. Útför auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Sigurlaug Jóhannsdóttir, Þorfinnur Jóhannsson, Björn Jóhannsson. t Eiginmaður minn, ERLENDUR VILHJÁLMSSON, fyrrv. deildarstjóri, Flyðrugranda 16, lést þann 24. september. Fyrir hönd aðstandenda. Herdís Guðnadóttir. t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, INGUNN ÓFEIGSDÓTTIR, Ljósvallagötu 30, lést á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund sunnudaginn 24. september. Grétar Árnason, Sigríður Sigurðardóttir, Haraldur Árnason, Auður Gunnarsdóttir, Guðrún Anna Árnadóttir, Ólafur G. Karlsson, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn. t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN ÞORBERGSDÓTTIR, Fossagötu 14, lést á Hvítabandinu að morgni 25. sept- ember. Sigurður Þórðarson, Þóra Gísladóttir, Helga Þórðardóttir, Guðmundur Ingi Þórarinsson, ömmubörn og langömmubörn. t Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR A. ERLENDSSON Ijósmyndari, Skeiðarvogi 25, lést í Landspítalanum laugardaginn 23. september. Auður Guðmundsdóttir, Maria Guðmundsdóttir, Kristín Guðmundsdóttir, Yngvi Högnason, Sigrún Guðmundsdóttir, Vilhjálmur Þorláksson, Anna Dóra Guðmundsdóttir, Gunnlaugur Sigurðsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær afabróðir minn, GUÐBJARTUR GUÐMUNDSSON leigubifreiðarstjóri, Njálsgötu 15a, lést í Landspítalanum föstudaginn 22. september sl. Útförin ferfram frá Dómkirkjunni mánu- daginn 2. október kl. 10.30. Fyrir hönd aðstandenda, Guðmundur Helgi Guðmundsson. JÓN EYJÓLFUR EINARSSON + Jón Eyjólfur Einarsson, pró- fastur í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd, fæddist í Langholti í Andakílshreppi 15. júlí 1933. Hann lést á Sjúkrahúsi Akraness 14. sept- ember síðastliðinn og fór útför hans fram frá Hallgríms- kirkju í Saurbæ 23. september. ÞAÐ voru glæsileg hjón sem tóku á móti mér á heimili sínu í októbermánuði á síðasta ári, þegar ég heimsótti þau í fyrsta skipti. Enn man ég hlýtt og vinalegt handtak þeirra, þegar þau buðu mig velkomna. Ég var komin á fund sr. Jóns E. Einars- sonar prófasts sem umsækjandi um Hvanneyrarprestakall. Ekki vissi ég þennan dag, að ég yrði svo lánsöm að fá að kynnast þeim hjónum bet- ur. Svo varð og er ég innilega þakk- lát fyrir þær stundir, sem ég hef átt með þeim. Það er ómetanlegt fyrir ungan prest, að geta leitað til sér eldri og reyndari prests. Þess hef ég notið því ég hef getað leitað til sr. Jóns og borið upp mín mál. Hann hafði alltaf svör við spurningum mínum og mikið var gaman að spjalla við hann um menn og málefni. Hann var hafsjór af fróðleik og kunni frá mörgu skemmtilegu og fróðlegu að segja. Nú þegar ég hugsá með vinsemd og þökk til sr. Jóns sendi ég Hug- rúnu og börnum þeirra mínar inni- legustu samúðarkveðjur. Ég var svo gæfusöm, að mér gafst tækifæri til að heimsækja sr. Jón á sjúkrahúsið mánudaginn 11. september. Alltaf tók hann mér jafn hlýlega og alúðlega og brosti við mér. Þessi stund sem ég átti með prófastinum mínum hefur gefíð mér mikið. Það var þroskandi reynsla, að sitja með honum og tala við hann. Finna hvað hann í raun og veru hafði gefið mér mikið með orðum sínum og hlýlegu viðmóti. Það var yndislegt að sjá glampann sem kom í augun hans þegar Hug- rún birtist í dyrunum og sjá kær- leikann milli þeirra. Ekki vissi ég þennan dag, að þetta yrði í síðasta skiptið, sem ég hitti þau hjón saman. Ég er þakklát Guði fyrir það, að ég gat kvatt sr. Jón E. Einarsson prófast í Saurbæ með hlýju handtaki og þakklæti í huga. Sigríður Guðmundsdóttir. Jón Eyjólfur Einarsson ólst upp hjá foreldrum sínum í Reykholtsdal og á unglingsárunum vann hann við búskapinn, en hugur sveita- drengsins stóð til mennta og hann lauk landsprófi frá Reykholtsskóla vorið 1953, tvítugur að aldri. Jón hafði þá þegar mótaðar hugsjónir og hugur hans stefndi hærra. Hann settist í Menntaskólann á Akureyri haustið 1955, en þá bar fundum okkar saman í fyrsta sinn. Það voru glaðir og eftirvænting- arfullir unglingar, sem settust í 3. bekk MA þetta haust. Við komum alls staðar að af landinu og flest vorum við um það bil 16 ára göm- ul. Nokkrir í hópnum voru þó nokk- uð eldri, en einn var greinilega elst- ur. Þetta var sveitapilturinn Jón Eyjólfur Einarsson frá Kletti í Reykholtsdal. Fas hans og fram- koma var hins þroskaða og hugs- andi manns. Sumum fannst að Jón hlyti að vera miklu eldri heldur en við flest vorum, enda var hann þá 22 ára gamall. Jón tók þó sannar- lega fullan þátt í gamni og alvöru hinna ógleymanlegu og þroskandi unglingsára í MA. Fljótlega fund- um við þó bekkjarsystkinin, að Jón hafði þá þegar mótaðar hugsjóhir, sem horfðu til krist- innar trúrækni, holl- ustu við land og þjóð og mannbætandi starfa og það duldist engum, að þar fór verðandi prestur og Guðs þjónn. Á kveðjustund sem þessari reikar hugur- inn til daganna í heimavist MA, þar sem við unglingarnir ólum hver annan upp og hver lagði fram þann manngildissjóð sem honum fylgdi úr heimahúsum. Jón bjó alla tíð í gömlu heimavistinni í skólahúsinu og setti svip sinn á samfélag nem- endanna sem þar bjuggu. Á mótun- arárum sem þessum reynir á, að vandaðir, sterkir og góðir stofnar ráði stefnunni og móti atferli og þroska. Þannig finnst mér einmitt að hafi verið með þennan árgang okkar frá MA og þar átti Jón drjúg- an hlut að máli. Við vorum 66 stúdentarnir, sem settum upp hvítu kollana á Sal MenntaskólanS' á Akureyri hin 17. júní 1959. Glaðar og bjartar minn- ingar voru að baki um félaga og vini sem við höfðum kynnst, átt samleið með fáein æskuár, í námi, starfi og leik og bundist þeim bönd- um vináttu og félagsskapar, sem traustast eru knýtt í lífinu, en það er einmitt á þessum árum ævinnar. Þegar Þórarinn Björnsson skóla- meistari kvaddi okkur, sagði hann m.a. í skólaslitaræðunni: „Þó að skólinn hafi frá upphafi átt því láni að fagna að til hans sækti margt úrvalsmanna og héðan hafi farið margur fríður og mann- vænlegur hópur, efast ég um, að oft - eða jafnvel nokkru sinni - hafi farið héðan í einni sveit jafn margt traustra drengja. Það hefur verið sálubót að kynnast slíkum mönnum. Og það hefur verið hug- arfró og hvíld að vita af ykkur inn- an veggja skólans, að finna nálægð ykkar. Jafnvel það að koma á her- bergi sumra ykkar í heimavistinni og sjá hirðusemi ykkar og reglu- semi, hefir oft mýkt skap mitt og vakið hinar betri kenndir. Fyrir allt slíkt er ég ykkur persónulega þakklátur. Og hinn harði kjarni 6. bekkjar hefir verið skólanum eins- konar öryggismúr. Þið hafið viljað sæmd skólans og heill.“ Þessi orð skólameistara voru ekki síst töluð til Jóns E. Einarsson- ar, sem var alla tíð hinn fasti ör- uggi persónuleiki, sem æðraðist ekki eða hikaði, hvað sem fyrir bar, hreinn og beinn í orði sem æði. Hann varð sannarlega ein vandaðra stoða í þessum óvenju- lega samstæða og sterka árgangi okkar, sem útskrifaðist vorið 1959, þar sem hver studdi annan, allt frá upphafi kynna haustið 1955 til þessa dags. Jón hafði afburða tök á íslenskri tungu, hann var skemmtilega hagmæltur, hann rit- aði gott mál og hann var snjall ræðumaður og trúfastur kennimað- ur kristinnar kirkju. Við bekkjarsystkinin höfum haldið vel saman í 40 ár og hist reglulega, oftast á hverju ári. Mak- ar okkar eru fyrir löngu orðnir hluti hópsins og á hverju ári er tilhlökk- unin mikil að hittast. Ég veit, að við félagarnir minnumst þess þegar þau Jón og Hugrún komu síðast á bekkjarkvöld okkar. Hann var þar enn einu sinni að verðleikum skip- aður veislustjóri og hann fór þá á kostum, var hrókur alls fagnaðar og kastaði fram gamansömum stökum að venju. Síðastliðið vor kom í ljós, að ill- vígur sjúkdómur hafði grafið um sig í líkama Jóns og varð skjótt ekkert við ráðið. Jón æðraðist ekki, heldur tók hörðum örlögum með sínum meðfædda sálarstyrk og trúnni á hinn hæsta höfuðsmið. Á þessum erfiða tíma naut hann sem fyrr styrks eiginkonu sinnar og fjöl- skyldu. Hugur okkar Sjafnar hefur oft verið hjá Jóni síðan í vor og við höfum sent honum hlýjar og heitar bænir okkar um styrk honum til handa í baráttunni við hið óumflýj- anlega. Ég veit að svo hefur verið með fleiri vini þeirra hjóna úr hópn- um_ okkar frá MA. Ég tek mér að lokum ljóð Ás- mundar Jónssonar frá Skúfsstöðum í munn, þegar hann kvaddi kæran vin sinn hinstu kveðju: Far þú í friði frændi og vinur, falinn alheims föðurarmi. Sjáumst aftur þá sól er úr hafi. Heilsumst aftur fyrir árröðli. Skúli Jón Sigurðarson. Við ótímabært fráfall sr. Jóns Einarssonar, prófasts í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd, koma upp í hug- ann fjölmargar minningar frá kynnum okkar og samstarfi á mörgum sviðum sem staðið hefur með nokkrum hléum í meira en fjóra áratugi. Ég kynntist honum fyrst á þing- um Ungmennasambands Borgar- fjarðar meðan við vorum báðir ung- ir menn og kappsfullir. Ekki fóru þó skoðanir okkar á málum ætíð saman og minnir mig að við höfum deilt af talsverðu kappi um mark- mið og leiðir. Þá kynntist ég vel málafylgju hans og rökfimi. Stuttu eftir þetta hvarf hann úr héraði til náms og var því ekki næstu ár virk- ur í félagslífi hér, en alltaf fannst mér stundin góð þegar fundum bar saman og ánægjulegt að fylgjast með námsferli hans og þátttöku í félagslífi stúdenta. . Eftir að hann vígðist prestur að Saurbæ fjölgaði fundum. Svipaðar aðstæður í uppvexti og hugsunar- hætti heima fyrir höfðu ásamt starfinu í ungmennafélögunum og þeirri félagshyggju sem þar ríkti mótað hjá báðum það lífsviðhorf, að við áttum í mörgum efnum and- lega samleið og meginlífsskoðun okkar féll í svipaðan farveg. Því lágu leiðir saman í starfi innan Framsóknarflokksins. Mest og nánast varð þó sam- starf okkar í skólanefnd Reykholts- skóla á þeim árum þegar baráttan fyrir tilveru þeirrar merku skóla- stofnunar var hvað hörðust. í því starfí var sr. Jón bæði ótrauður og fylginn sér og brýndi okkur félaga sína, forystumenn í héraði og þá sem með umboð þess fóru á Ál- þingi til stuðnings við skólann og var ósínkur á tíma sinn og hugsun í þágu málefna hans. Formaður fræðsluráðs Vestur- lands var hann á árunum 1978 til 1982. Undir forystu hans hélt ráðið uppi öflugu starfi með heimsóknum í skóla og öflun upplýsinga um húsnæði og aðstöðu skólanna. Hafði hann frumkvæði að því að árlega var á haustdögum efnt til fundar með alþingismönnum kjör- dæmisins og þeim kynnt ástand húsnæðismála skólanna og bent á hver þörfín væri fyrir fjárveitingar til nýbygginga, en einnig hvar hún væri brýnust. Þessir fundir og þær skýrslur sem fyrir þá voru unnar höfðu mikil áhrif ekki aðeins á Alþingi heldur einnig í sveitar- stjórnum sem hljóp kapp í kinn að ráða bót á því sem betur mátti fara og fræðsluráð hafði bent á. Er minnst á þetta hér sem dæmi um það með hvaða hætti hann sinnti þeim verkefnum sem hann tók að sér og hve sýnt honum var um að fínna farvegi til þess að koma málum fram. Síðast en ekki síst minnist ég starfs hans fyrir Sögufélag Borgar- fjarðar en hann var framkvæmda- stjóri þess frá 1977 til 1990 og vann mikið og gott starf fyrir félag- ið og átti stóran þátt í því að koma útgáfustarfí þess og fjárhag á traustan grundvöll. Fyrir það stendur félagið og raunar héraðsbúar allir í mikilli

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.