Morgunblaðið - 26.09.1995, Side 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ATVINIMIMAUGL ÝSINGAR
Ekki apótek - heldur
LYFJA
Ný lyfjalög taka gildi 1. nóvember nk. og í tilefni af því leitum við eftir starfsfólki fyrir
nýja lyfjaverslun sem tekur til starfa í Reykjavík. Hér er ekki um hefðbundið apótek að
ræða og því hefur versluninni verið valið nýtt nafn; Lyfja'.Við leitum eftir traustum og
duglegum einstaldingum sem eiga auðvelt með að umgangast fólk og vilja starfa í nýju
og spennandi umhverfi.
Um er að ræða eftirtalin störf:
Lyfjafræðíngur Krefjandi starf sem gefur kost á ábyrgð í starfi og auknum starfsframa. Þú tekur þátt í að
þróa nýja lyfjaverslun sem fer ótroðnar slóðir. Þú þarft að hafa góða skipulagshæfileika,
hafa frumkvæði og þor til að ryðja nýjar brautir. Þú þarft að vera hugmyndaríkur, hafa
faglegan metnað og auk þess bera skynbragð á viðskiptalegt umhverfi Lyfju. Einhver
starfsreynsla sem apótekslyfjafræðingur er æskileg (1-3 ár).
Lyfjatæknir Þú þarft helst að hafa öðlast nokkurra ára starfsreynslu í apóteki úr reseptúr og
afgreiðslu. Góð þekking á lausasölulyfjum, hjúkrunarvörum og tengdum vörum er
æskileg. Um er að ræða störf í reseptúr ásamt almennum afgreiðslustörfum.
Afgreiðslufólk Við erum að leita að traustu og samstarfsfúsu fólki með góða og þægilega framkomu.
Um er að ræða almenn afgreiðslustörf á lyfjum, hjúkrunarvörum og öðrum vörum Lyfju.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til Morgunblaðsins merktar „Lyfja 1995“ fyrir
7. október nk. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Lyfja - nýtt tiugtak, Orðið Lyfja er nýyrði í íslensku máli sem nafnorð en er hinsvegar fornt sagnorð. Sögnin
nýtt Olð að lyfja þýðir að lækna eða gera heilan heilsu. „Að lyfja einhverjum elli“ táknar þannig að
lækna einhvern af elli. Nýyrðið Lyfja er nafnorð í kvenkyni, myndað á svipaðan hátt og
Njála, Sorpa eða Egla og beygist eins og Lilja. Ný merking orðsins er því þessi:
Lyfja; Lyfjaverslun í opnu umhverfi sem býður fjölbreytt úrval af sjálfsafgreiðslu-
vörum og leggur áherslu á nútímalega viðskiptahætti.
ttAOAUGLYSINGAR
Traustur leigjandi
Við leitum að vel staðsettu 250-500 fm versl-
unarhúsnæði til leigu undir fataverslun.
Umbjóðandi okkar er erlend verslunarkeðja,
sem verslar með föt og veltir árlega á
6. milljarð ísl. kr.
Áhugasamir vinsamlega hafið samband' við
Guðlaug Örn Þorsteinsson í síma 511 -1600.
Lífeyrissjóðurinn Hlíf
Aðalfundur
verður haldinn laugardaginn 30. september
í B-sal Hótel Sögu kl. 14.00.
Venjuleg aðalfundarstörf og reglugerðar-
breitingar.
Stjórnin.
I
n
EIGULISTINN
Skipholti 50b, 105 Reykjavík.
FJÖIBRAUTASXÓUNN
BREiÐHOLTI
Foreldrafundur
Fundur verður með foreldrum nemenda í
Fjölbrautaskólanum í Breiðholti fimmtudag-
inn 28. sept. nk. kl. 20.00.
Foreldrar nýnema eru séstaklega hvattir til
að mæta.
Forsvarsmenn skólans munu kynna skólann
og svara fyrirspurnum.
Skóiameistari.
Söngfólk óskast
Óskum eftirsöngfólki íkór Laugarneskirkju.
Upplýsingar gefur Gunnar Gunnarsson,
organisti, í símum 562-9499 og 588-9422.
Laugarneskirkja.
Söngáhugafólk
Snæfellingakórinn í Reykjavík vill bæta við
sig karlsöngvurum og hvetur hér með þá
karlmenn (reynda söngmenn sem óreynda)
sem enn eru að hugsa um hvaða áhugamál
þeir ætla að taka sér fyrir hendur í vetur,
að rífa sig upp og byrja að syngja í kór með
samstilltum og skemmtilegum hóp.
Við æfum einu sinni í viku á fimmtudags-
kvöldum. Tenórar og bassar hafið endilega
samband við Steinunni í síma 554-3870 eða
Eggert í síma 557-9153.
Kynningarfólk óskast
til að kynna mat og hreinlætisvörur.
Einnig óskast stúlka til að kynna snyrtivörur
í snyrtivöruverslunum.
Umsóknir sendist afgreiðslu Mbl., merktar:
„A - 18270“, fyrir 30. september.
Stykkishólmur
Reglusamt fólk á aldrinum 20-40 ára vantar
til starfa sem fyrst í ígulkerjaverksmiðju.
Leiguhúsnæði til staðar.
Nánari upplýsingar í síma 438 1242.
Atvinnutækifæri
erlendis
Vegna aukinna umsvifa í Þýskalandi óskum
við eftir að ráða smiði og eða byggingar-
verkamenn/handverksmenn með fjölbreytta
reynslu í byggingariðnaði.
Þýsku- eða ensicukunnátta æskileg.
Umsóknir skilist til afgreiðslu Mbl. til og með
2. október, merktar: „Traustir - 13558“.
HGGG
wwtff.-mmí- mm
Tölvuþjónusta
Stórt þjónustufyrirtæki í Reykjavík óskar eft-
ir að ráða starfsfólk í tölvuþjónustudeild fyrir-
tækisins.
Starfið felst í tölvuþjónustu innan fyrirtækisins.
Leitað er að tölvumenntuðu fólki, með góða
þekkingu á einmenningstölvum og staðar-
netum.
Umsóknarfrestur er til og með 29. sept. nk.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu Liðs-
auka hf., sem opin er frá kl. 9-14.
Afleysinga- og ráðningaþjónusta MílSmk
Lidsauki hf. tff
Skólavörðustíg 1a -101 Reykjavík - Sími: 562 1355
Fax: 562 1311 - Kt. 600182-0729
Sjálfstæðisflokkurinn
Hafnarfirði
Aðalfundur Landsmálafélagsins FRAM verður haldinn í Sjálfstaeðis-
húsnu þriðjudaginn 3. október nk. kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Stjómin.
Félag sjálfstæðismanna
f Hlfða- og Holtahverfi
Félagsfundur verður haldinn í Valhöll fimmtudaginn 28. september
kl. 18.00.
Fundarefni: Kosning landsfundarfulltrúa.
Árni Sigfússon, borgarfulltrúi, mætir á fundinn.
Stjórnin.
Upplýsinganefnd Sjálfstæðisflokksins
Opinn fundur
Stefna Sjálfstæðisflokks-
ins f uppíýsingamálum
AlmennurfunduríValhöil, sal 2, þriðjudaginn 26. septemberkl. 20.00.
Markmið fundarins:
- Að kynna.hvað ráðuneytin eru að aöhafast í upplýsingamálum.
- Að kynna drög að landsfundarályktun.
Umræður.
Framsögumenn í panel eru:
- Þór Sigfússon.
- Ásdís Halla Bragadóttir.
- Ármann Kr. Ólafsson.
- Vilhjálmur Egilsson.
- Guðbjörg Sigurðardóttir.
Fundarstjóri: Óskar B. Hauksson.
Stjórnin.