Morgunblaðið - 26.09.1995, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 1995 45
BREF TIL BLAÐSINS
Yíkveipi
og bílahúsin
Frá Stefáni Haraldssyni:
KENNSLUDAGURINN sem Vík-
vetji nefndi í pistli sínum 6. septem-
ber síðastliðinn tókst vel, ijölmargir
ökumenn komu og nýttu sér tilboð-
ið um leiðbeiningar og kennslu og
nutu síðan veðurblíðunnar á göngu
um miðborgina.
Greinarhöfundur lýsti því hvernig
hann notaði bílahús daglega meðan
hann bjó í Þýskalandi en af ein-
hvetjum ástæðum ekki í Reykjavík.
Þetta er þekkt fyrirbæri, þeir sem
hafa ekið bíl erlendis hafa flestir
notað slíka þjónustu á ferðum sín-
um en segjast jafnframt nota bíla-
húsin í Reykjavík minna en efni
standi til. Kostir ökumanna við val
á bílastæði í miðborginni eru fjöl-
margir en vaninn ræður líklega
ferðinni hjá mörgum okkar. Þeim
sem kunna að vilja breyta til má
benda á að notendur bílahúsanna
eru upp til hópa fólk sem kýs að
vetja tíma sínum til annars en að
hringsóla í bílastæðisleit.
Staðsetning
Staðsetning bílahúsanna í
Reykjavík er óþijótandi umræðu-
efni og auðvitað væri best að hver
húseigandi byggði nægilega mörg
stæði á sinni lóð til samræmis við
þörfina hvetju sinni. Það er hins
vegar dýrt í framkvæmd, þó erlend-
is þyki kannski ekki tiltökumál að
endurbyggja heilu hverfin til aðlög-
unar' að breyttum aðstæðum, til
- dæmis aukínni notkun einkabíla. í
Reykjavík hafa þijú af sex bílahús-
um verið byggð í tengslum við aðr-
ar opinberar byggingar til að auka
nýtingu þeirra og draga úr stofn-
kostnaði, dæmi um þetta eru Vest-
urgata 7, Ráðhúskjallarinn og Vita-
torg. Staðsetning þeirra er hagstæð
með tilliti til tenginga við stofn-
brautir og mjög hóflegrar göngu-
fjarlægðar frá verslun og þjónustu.
Traðarkot við Hverfisgötu og Berg-
staðir við Bergstaðastræti eru mjög
vel staðsett, enda sjálfstæðar bygg-
ingar helgaðar bílastæðaþjónustu,
og Kolaportið við Kalkofnsveg er
mjög vel í sveit sett með tilliti til
akandi umferðar. Húsin eru tiltölu-
lega lítil hvert fyrir sig og þeim er
dreift um miðborgina til að stytta
göngufjarlægðir eins og kostur er,
í stað þess að byggja eitt eða tvö
stærri hús og spara þannig stofn-
kostnað. Bílahúsin í Reykjavík eru
því staðsett og hönnuð með tilliti
tii íslenskra aðstæðna og í anda
þeirrar stefnu að miðborgin eigi að
vera fyrir fólk fyrst og fremst, en
einkabíllinn í mikilvægu aukahlut-
verki.
Tæknin
Þegar bílahúsin voru hönnuð og
byggð var seðlameðhöndlun í sjálf-
sölum dýrari og ófullkomnari en
hún er í dag, og reynsla af rekstri
sjálfsala sem tóku íslenska seðla
var slæm. Tækninni hefur fleygt
fram, en búnaðurinn er ennþá nokk-
uð dýr auk þess sem nokkrir kostir
varðandi samræmt myntkort hafa
verið til athugunar. Vissulega eru
greiðsluvélar í bílahúsum víða er-
lendis gerðar fyrir mynt og seðla,
að ónefndum greiðslukortum ýmis-
konar. Að þessu leyti stöndumst við
ekki samanburð, en óhætt er að
draga fram önnur atriði sem eru
okkur hagstæðari: verði þjón-
ustunnar í bílahúsum í Reykjavík
er ákaflega í hóf stillt, meðan að-
staða og aðbúnaður allur eru eins
og best gerist. Tæknilega er ekkert
því til fyrirstöðu að ráðast í „seðla-
væðingu", en vandamálið liggur í
fjármögnun svo kostnaðarsamra
breytinga. Meðan andstaðan gegn
íjárfestingu í bílastæðum er svo
mikil sem raun ber vitni er ákaflega
erfitt að koma við eðlilegri end-
urnýjun, þróun og uppbyggingu.
Þess vegna verðum við líkast til enn
um sinn að láta okkur nægja að
geta greitt þjónustu í bílahúsum
með 5, 10 og 50 krónu mynt í
Vesturgötu 7, Bergstöðum og Vita-
torgi, en tekið skal fram að í
Ráðhúskjallara, Kolaporti og Trað-
arkoti eru vaktmenn sem fúslega
taka peningaseðla sem greiðslu fyr-
ir veitta þjónustu.
STEFÁN HARALDSSON,
framkvæmdastjóri Bílastæðasjóðs
Reykjavíkur.
NÁTTÚRULEGT
i 180 töflur
hciuá tur cá
HaLtu þér hraustum í vetur með MULTI VIT
Fæst i heilsuverslunum, apótekum og heilsuhillum matvöruverslana.
Úhei
eilsuhúsiö
Skótavörðustíg & Kringlunni
LTI
VI
FJÖLVÍTAMÍN
MEÐ STEINEFNUM
Guli miðinn
tryggir gæðin
Þegar þú tekur irm MULTI VIT ert þú aö innbyróa
11 steinefni, 12 vítamín og 22 valin bætiefni.
Dagleg neysta byggir upp likamann og stuólar að hreysti og góóri heilsu.
í frumskógi vítamína og bætiefna getur verió erfitt að velja rétta glasió.
Gtösin meó gula mióanum tryggja að þú fáir vönduð náttúruleg bætiefni, sem sett
eru saman meÓ þarfir íslendinga aó leiðarljósi.
J-{eimiLisiðnaðarsfLóLinn
XauJdsvecji 2., sími 551 7800
Námskeið í október og nóvember 1995
Kennt er mánudaga til fimmtudaga milli kl. 19.30—22.30
V
5
i
BALDÝRING
27. sept.-29. nóv.
miðvikudaga, lOskipti.
Elínbjört Jónsdóttir.
BÚTASAUMUR
16. okt.—13. nóv.
mánudaga kl. 18-21.
Bára Guðmundsdóttir.
DÚKAPRJÓN
31. okt.-28. nóv.
þriðjudaga, 5 skipti.
Ragna Þórhallsdóttir.
FATASAUMUk
Jólaföt á börn og matrósaföt.
20. nóvM. des.
mánudaga og miðvikudaga.
Herdís Kristjánsdóttir.
HROSSHÁRSSPUNI
3 daga námskeið, ótímasett.
Skráning stendur yfir.
Sigurlaug Jóhannesdóttir.
JURTALITUN
15. nóv.-7. des.
miðviku- og fimmtudaga,
8 skipti.
Guðrún Kolbeins.
KEMISK LITUN
18. okt.-8. nóv.
miðvikudaga, 4 skipti.
Guðrún Kolbeins.
LITAFRÆÐI
2. okt.-16. okt.
inánu- og fimmtudaga, 8 skipti.
Guðrún Guðmundsdóttir.
MYNDVEFNAÐUR
28. sept.-16. nóv.
fimmtudaga, 8 skipti.
Unnur Jónsdóttir.
PRJÓN- OG
PRJÓNATÆKNI
26. sept.-24. okt.
þriðjudaga, 5 skipti.
Ragna Þórhallsdóttir.
PRJÓNAHÖNNUN
7. nóv.-5. des.
þriðjudaga, 5 skipti.
Arnþrúður Ösp Karlsdóttir.
PÁPPÍRSGERÐ
2. okt.-30. okt.
mánudaga, 5 skipti.
Þorgerður Hlöðversdóttir.
SPJALDVEFNAÐUR
Ótímasett, skráning stendur yfir.
ÚTSKURÐUR
17. okt.-14. nóv.
þriðjudaga, 5 skipti.
Bjarni Kristjánsson.
ÞJÓÐBÚNINGASAUMUR
3. okt.-5. des.
þriðjudaga, lOskipti.
Vilborg Stephensen og Oddný Kristjánsd.
FYRIRLESTRAR
í NORRÆNA HÚSINU
21. októbcr: Umeldsmíði.
30. september: kl. 14.00-16.00
Handverk í nútímasamfélagi -
Ingólfur Ingólfsson, lektor í KHÍ - Án
þekkingar ú handverkinu deyr menningin.
Allar upplýsingar og skráning á skrifstofu skólans í síma 551 7800 mánudaga til fimmtudaga kl. 10.00-15.00.
•f
í
}
í
I
5
}
í
í
I
•}
í
}
>,
i
Ji