Morgunblaðið - 26.09.1995, Síða 46
46 ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Frystiskápar - kæliskápar á
GAMAVERÐI!
'Tardo
Gæðatæki frá
einum stærsta heimilistækja-
framleiðanda í Evrópu
- á frábæru verði
Dæmi um verð:
Að auki bjóðum við þvottavélar, þurrkara og
uppþvottavélar frá ARDO á frábæru verði. Kynntu
þér ARDO heimilistækin, þú gerir vart betri kaup!
KÆLISKAPAR
KFS 250. Mál: H141xBS4xD57,
195L kælir/49L frystir. Verð kr. 43.605.
KFS280. Mál: H153xB54xD57,
219L kælir/53L frystir. VerS kr. 46.455.
KFS330. Mál: H179xB59xD60,
170L kælir/105L frystir. Verð kr. 65.455.
KFS 140. Mál: H85xB54xD57,
113L kælir/18L frystir. Verð kr. 28.975.
FRYSTISKAPAR
FS130. Mál: H85xB54xD47,103 lítrar.
Verð 32.205.
IjyOO. Mál: H120xB54xÐ57,109
Verð 38.855.
Margar aðrar stærðir fáanlegar.
Ath.: Öll verð eru staðgreiðsluverð
og öll lítramál eru nettó.
HÉROGNÚ
, 1 ýí __________________
" w
Borgortúni 29, simat 562-7666 og 562-7667.
frl Stjórntækniskóli íslands
Hö'fðabakka 9.
Sími 567 1466
MARKAÐSFRÆÐI
Stjórntækniskóli Islands
gefur þér kost á beinskeyttu 250 stunda námi í
markaðsfræðum. Náminu er ætlað að koma til
móts við sívaxandi kröfur atvinnulífsins um
hæfari starfskrafta. Námið er ætlað fólki með
góða almenna menntun, starfsreynslu í viðskip-
talífinu eða þeim sem vilja bæta við sig þekkingu
og fá innsýn í heim markaðsfræðanna.
Markmið
námsins er meðal annars að þátttakendur tileinki
sér markaðshugsun í íslensku viðskipta- og
athafnalífi og nái þannig betri árangri.
Námið
er í formi fyrirlestra og verkefnavinnu og tekin eru
próf í einstökum greinum.
Kennarar
eru allir háskólamenntaðir og eiga að baki góða
reynslu við kennslu og í viðskiptalífinu.
Námsgreinar:
Markaðsfræði.
Sölustjórnun og
sölutækni.
Vöruþróun.
Vörustjórnun.
Ekki hika lengur!
Stjórnun og sjálfstyrking.
Auglýsingar.
Tölvunotkun í
áætlanagerð.
Viðskiptasiðferði.
Starfsmenntun. Fjárfesting til framtíðar.
Sími 567 1466. Opið til kl. 22.00.
I3ICMIEGA
vítamín og kalk
fæst í apótekinu
I DAG
Með morgunkaffinu
Ást er...
9-21
skref í rétta átt.
Viltu skilja strax? Má
það ekki bíða þar til
leikurinn er búinn.
Farsi
/, Vcrum um kyrrt. - hef fteyrt cÁ
þcÁ e/pi oá> reka^noftftra. úráftöfh/nnC."
SKÁK
Umsjön Margeir
Pétursson
HVÍTUR leikur og vinnur
Staðan kom upp í tíu skáka
einvígi stigahæstu skák-
manna Hollands sem nú
stendur yfir. Jan Timman
(2.590) hafði hvítt og átti leik
gegn Jeroen Piket (2.625)
Svartur lék síðast 28. - h6-
h5?
29. Rh6+! (Hann bað um
það!) 29. - gxh6 30. Hg3+
- Kf7 (Reynir að bjarga sér
á flótta, því 30. - Kh7 31.
Dd4 - d5 32. Bb2 með mát-
hótun á h8 er með öllu von-
laust) 31. Dxh5+ - Ke6 32.
Dg4+ - Kd5 33. He3 -
De7 (Eða 33. - Bh7 34.
Df3+ - Kc5 35. Hc3+ og
svartur er í mátneti) 34.
f3 - Bg7 35. Hxe4 - Be5
36. Hel - Dh7 37.Hdl +
- Kc6 38. f4 og Piket
gafst upp. Þetta var önnur
skákin í einvíginu, en
þeirri fyrstu lauk með
jafntefli. Timman var í
fijálsu falli niður skák-
stigalistann þangað til í
Amsterdam í ágúst að
hann sigraði, en Piket varð
neðstur. Það er engin logn-
molla yfir fremstu skákmönn-
um Hollands en svo virðist
sem þeir Timman og Piket
geti ekki báðir teflt vel í einu.
Það er því líklegt að annar-
hvor þeirra verði burstaður í
einvíginu.
Kasparov hefur hvítt í 10.
einvígisskákinni við Anand í
kvöld.
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Um
skattfríðindi
þingmanna
KONRÁÐ hringdi og
vildi koma eftirfarandi á
framfæri:
„Varðandi þá umræðu
sem í gangi er um þessar
fjörutíu þúsund krónur
sem þingmenn hafa
ákveðið að greiða sjálf-
um sér skattfrítt vil ég
segja það að þetta er
svolítið úr takt við annað
sem hefur verið að ger-
ast í þessu þjóðfélagi. Því
sannleikurinn er að varla
er hægt að snúa sér við
án þess að greiða skatt,
ef svo má að orði kom-
ast. Að öðru leyti finnst
mér þessi launahækkun
vera í lagi en skilyrðið
er að borgaðir séu skatt-
ar af þeim launum. Og
ég er fylgjandi því að
greiða þingmönnum gott
kaup, en skatta verða
allir að borga af öllu sem
þeir hafa á milli hand-
anna.“
Konráð Friðfinnsson,
Neskaupstað.
Tapað/fundið
Lyklar töpuðust
Nokkrir lyklar á kippu
töpuðust sl. laugardag.
Mögulegir staðir eru fyr-
ir utan Borgarspítalann,
fyrir utan Háskólabíó
eða í Kópavogi. Kippan
er gyllt með kringlóttu
merki og á henni voru
m.a. húslykill og lykill
að reiðhjólaiás. Hafi ein-
hver fundið kippuna er
hann vinsamlega beðinn
að hringja í síma
564-3938 á kvöldin eða
í síma 569-1323 frá kl.
8-16.
Eyrnalokkur
tapaðist
TAPAST hefur smelltur,
kringlóttur, gylltur
eyrnalokkur með bláum
lapis lazuli steini.
Finnandi vinsamlegast
hringi í síma 561-2355.
Gæludýr
Kettlingur í
óskilum
STÁLPAÐUR kettlingur
hefur verið í óskilum í
austurbæ Kópavogs frá
föstudeginum 15. sept-
ember.
Hann er svartur og
hvítur. Uppl. í síma
554-1044.
Kettling vantar
heimili
SJÖ vikna kettling vant-
ar heimili. Dýravinir vin-
samlega hringi í síma
456-6215.
Hlutavelta
ÞESSAR duglegu stúlkur hafa lagt söfnun Rauða
kross íslands Konur og börn í neyð lið og safnað
1758 krónum þeim til styrktar. Stúlkurnar eru
Bjarma Magnúsdóttir, Anna Lind Björnsdóttir,
Sunna Lilja Björnsdóttir og Auður Viðarsdóttir.
Víkveiji skrifar...
NÝR umræðuþáttur Stefáns
Jóns Hafstein, Almannaróm-
ur, sem hóf göngu sína í síðustu
viku, var vel upp byggður og lífleg-
ur, þótt búast hefði mátt við, að
stjórnandinn tæki „nýrra“ mál til
umræðu en för íslenzkra kvenna á
kvennaráðstefnurnar í Kína. Þær
konur, sem fram komu í þættinum
voru vel að sér og málefnalegri í
umræðunum en sumir karlanna,
sem þátt tóku í þeim.
Ein kvennanna vakti þó sérstaka
athygli fyrir sterkan málflutning,
en það var Inga Jóna Þórðardóttir.
Þar fór saman yfirsýn yfir réttinda-
baráttu kvenna bæði hér heima og
erlendis, rökfastur málflutningur
og mikill þungi, þegar það átti við.
Inga Jóna situr nú í borgarstjórn
Reykj avíkur fyrir Sjálfstæðisflokk-
inn. Hún hefur ekki áður sýnt slíka
yfirburði í umræðum um þjóðfélags-
mál sem nú. Verði framhald á því
má ætla, að Sjálfstæðisflokkurinn
hafi eignast nýjan og sterkan for-
ystumann á vettvangi borgarmála.
ÞAÐ vakti töluverða athygli
fyrir rúmum áratug, þegar
sænskir iðjuhöldar, með Curt
Nicolin, einn af helztu forystu-
mönnum Wallenberg-samsteyp-
unnar, í fararbroddi ákváðu að
leggja fé í fiskeldi og til varð fyrir-
tækið Silfurlax hf. Sl. laugardag
var frá því skýrt hér í blaðinu, að
stjórn fyrirtækisins hefði ákveðið
að gefa það upp til gjaldþrota-
skipta.
Þetta fyrirtæki hafði yfir um-
talsverðu eigin fé að ráða, en
skortur á því er oft talinn skýring
á þvi, að fyrirtækjarekstur gangi
ekki upp. Á bak við það stóðu
menn með mikla reynslu í viðskipt-
um og stjórnun, svo að ekki hefur
verið skortur á slíkri þekkingu í
rekstri fyrirtækisins. Úr því að
hinum sænsku iðjuhöldum tókst
ekki að reka fiskeldisfyrirtæki með
viðunandi árangri, þurfa aðrir
tæpast að skammast sín fyrir það,
að þeim hafi mistekizt í þessari
nýju atvinnugrein.
SPARISJÓÐIRNIR tilkynntu nú
um heigina, að þeir mundu
kynna heimabanka sinn á tölvu-
sýningu í Laugardalshöll síðar í
þessari viku. Aður hafði Búnað-
arbankinn tilkynnt að viðskipta-
vinir hans ættu kost á slíkri þjón-
ustu síðar í þessum mánuði. En
eins og kunnugt er hafði íslands-
banki forystu um að taka þessa
nýjung upp fyrir nokkrum vik-
um.
Enginn vafi leikur á því, að
þetta form bankaþjónustu mun
breiðast út á næstu árum. Sá
tækjabúnaður, sem til þarf er til
á æ fleiri heimilum og fólk mun
fljótt finna hve þægilegt það er
að geta sinnt bankaviðskiptum á
heimili sínu.
Hvenær kemur að því að hægt
verður að sinna innkaupum með
sama hætti? Heimilisfólk sitji við
tölvu og kaupi inn matvörur og
aðrar nauðsynjar og fái þær heim-
sendar. Er það ekki næsta skref-
ið?