Morgunblaðið - 05.10.1995, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
PIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 1995 25
Sannleikur-
inn er sagna
bestur
Þjóðleikhúsið frumsýnir annað kvöld á Litla
sviðinu leikritið Sannur karlmaður eftir
þýska leikritaskáldið Tankred Dorst. Orri
Páll Ormarsson fór á æfíngu og var leidd-
ur í sannleikann um verkið - eða hvað?
HVAÐ er satt og hvað er logið, er
spurningin sem áhorfendum er látið
eftir að svara að lokinni sýningu á
leikritinu Sannur karlmaður eftir
eitt ástsælasta leikritaskáld Þjóð-
veija, Tankred Dorst. Má kaupa ást
fyrir peninga og getur ástin breytt
lygum í sannleik eða sannleika í
lygar?
„Hvernig getum við lifað? Öll
leikrit mín spyrja þess,“ hefur Dorst
sagt sjálfur. „Hvaða afl knýr okkur
til dáða og glæpa, til sturlunar —
hvaða myrka sveifla hugarfiugsins
rekur okkur loks í stríð og endalok
alls? Ekkert er öruggt og sannleik-
ann, sem við leitum í lífi og skrif-
um, er hvergi að finna.“
Sannur karlmaður er saga um
ástir og örlög. Fernando Krapp er
lífið holdi klætt: Ríkur, þróttmikill
og ákveðinn — „hinn sanni karlmað-
ur.“ Hann kvænist Júlíu, sem er
falleg sem hugur himnaföður.
Henni er hjónabandið þvert um geð
í fyrstu en ástin lætur ekki að sér
hæða. Engu að síður eru blikur á
lofti og sannleikur, traust og af-
brýðisemi eru ofarlega á baugi í
æðisgengnu valdatafli elskendanna
sem hlýtur að enda með uppgjöri.
Gerir miklar kröfur
María Kristjánsdóttir, leikstjóri,
segir að Sannur karlmaður sé flók-
ið verk. Dorst geri miklar kröfur
til leikstjóra, leikenda og áhorfenda.
„Grunnurinn í verkinu er þessi hríf-
andi ástarsaga Femandos Krapp
og Júlíu, en höfundurinn veltir að
auki upp fjölmörgum spurningum
um samskipti manna, einkum hvað
varðar sannleikann: Getur sannleik-
urinn minn komist til skila til ann-
ars fólks og öfugt?"
María segir að Sannur karlmaður
eigi fullt erindi við íslendinga, en
leikritið er byggt á smásögu sem
spænski rithöfundurinn Miguel de
Unamuno skrifaði á þriðja áratug
aldarinnar. Sannarlega fjölþjóðlegt
verk og segir María það við hæfi,
enda séu viðfangsefni þess - ástin
og sannleikurinn - fjölþjóðleg fyrir-
bæri. „Við erum alltaf að glíma við
ákveðnar lykilspurningar í lífinu og
í þessu verki snýst lykilspurningin
sennilega um það hvernig við getum
lifað hvert með öðru.“
Ingvar E. Sigurðsson fer með
hlutverk Fernandos Krapp. „Fortíð
Fernandos er á huldu og það er
eins og hann vilji gleyma æsku
sinni," segir hann og vitnar í orð
Fernandos í verkinu: „Ég er upp-
runi ættar minnar“ og „ég er ég,
það bjó enginn mig til.“
Ingvar segir að
Fernando sé upptekinn
af því að vera hann
sjálfur og enginn ann-
ar. „Hann er þar af
leiðandi geysilega lok-
aður og afneitar í sjálfu
sér öllum tilfinningum.
Tilfinningar eru, að
hans mati, fyrir konur
og veimiltítur."
Stálin stinn
Að sögn Ingvars
leynir það sér þó ekki
að Fernando hefur til-
finningar. „Hann er
ríkur og leitar því uppi
fegurstu konu héraðs-
ins. Þau gifta sig og
hann fellur greinilega
fyrir henni, þótt hann
þori ekki að viðurkenna
það. Júlía er ekki ein-
ungis falleg, heldur
einnig sterkur og sjálf-
stæður karakter - hún
hugsar. Það mætast
því stálin stinn.“
Halldóra Björnsdótt-
ir, sem leikur Júlíu,
segir að henni. þyki
skemmtilegt að brosa að lífinu og
hinum hefðbundnu leiðum sem fólk
velji. „Þrátt fyrir það lendir hún
sjálf í hringiðunni, eftir að hún
kynnist Fernando Krapp, þar sem
hún er svo óheppin að verða ást-
fangin af manninum sem hún ætlar
ekki að verða ástfangin af.“
Halldóra segir að Júlía sé ævin-
týrakona. „Hún hefur heitar óskir
og þrár sem reynist erfitt að upp-
fylla. Hún er líka dreymin og held-
ur oft að lífíð sé eins og hún vill
hafa það.“
Hilmar Jónsson leikur sálufélaga
Júlíu, Juan, geðþekkan greifa sem
má muna sinn fífil fegri. „Hann
venur komur sínar á heimili herra
og frú Krapp og hrífst af Júlíu,“
segir Hilmar. „Að hans mati er
þessi greinda og fallega kona van-
rækt af eiginmanni sínum. Honum
finnst hún því eiga betra skilið."
Hilmar segir að greifmn sé nokk-
urskonar Don Juan - fágaður
kvennamaður. „A ákveðnum punkti
í verkinu er gefið í skyn að þau
Júlía hafí farið yfir strikið hvað
velsæmi varðar. Það verður til þess
að Fernando Krapp grípur inn í
atburðarásina."
Morgunblaðið/Halldór
GREIFINN (Hilmar Jónsson) hrífst af hinni
íðilfögru Júlíu (Halldóra Björnsdóttir).
FERNANDO Krapp (Ingvar E. Sigurðsson) ber ekki tilfinningar
sinar á torg enda „sannur karlmaður".
FAÐIR Júlíu (Rúrik Haraldsson) leggur mikla áherslu á að dóttir
hans giftist efnuðum manni.
Fjórði leikarinn í sýningunni er
Rúrik Haraldsson, sem er í hlut-
verki föður Júlíu. Þá bregða þeir
Ingvar og Hilmar sér í gervi geð-
lækna í einu atriði.
Virkilega gaman
María leikstjóri lýkur lofsorði á
leikarana í leikritinu og segir að
það hafi verið óvenju skemmtilegt
að vinna með þeim. „Þetta er í
fyrsta skipti sem mér hefur þótt
virkilega gaman að vinna í íslensku
leikhúsi. Stór orð en engu að síður
sönn.“
Tankred Dorst fæddist í Þýska-
landi fyrir réttum sjötíu árum eða
um líkt leyti og smásaga Miguels
de Unamuno, sem Sannur karlmað-
ur byggist á, kom út. Fyrstu leikrit
hans þóttu draga dám af „Comme-
dia dell’arte", en síðar hefur hann
skrifað heimildaleikrit sem einkenn-
ast af þjóðfélagsgagnrýni. Má þar
nefna Toller um skáldið róttæka
Ernst Toller og Eiszeit um samband
Knuts Hamsun við nasista.
Verk Dorst hafa notið mikillar
hylli í Þýskalandi og víðar, sérstak-
lega á síðustu árum. Hafa þau ver-
ið tíðir gestir á fjölum leikhúsa á
Norðurlöndum, en Sannur karlmað-
ur, sem er í hópi vinsælustu leikrita
Dorst, er það fyrsta sem tekið er
til sýninga hér á landi.
Bjarni Jónsson þýddi verkið, Ás-
mundur Karlsson sér um lýsingu
og Helga Rún Pálsdóttir búninga.
Leikmynd er eftir Óskar Jónasson
og danshöfundur er Ástrós Gunn-
arsdóttir. Sannur karlmaður verður
frumsýnt á Litla sviði Þjóðleikhúss-
ins annað kvöld.
(•PR,
&steinar
*PR
Pípugeröinh/
Verksmiðja:
Sævarhöfða 12
112 Reykjavík
Sími: 587 2530
Fax: 587 4576
Dagana 5.-8. október gefst einstakt tækifæri á
að kaupa hellur og steina á góðu verði.
PR Pípugerðin tekur til og býður mikið úrval
af umframframleiðslu og lítilsháttar gölluðum
vorum.
• Hellur af ýmsum stærðum og gerðum
• Steinar í stéttar, innkeyrslur og hleðslur
Vörurnar eru til sýnis og sölu á athafnasvæði
PR Pípugerðarinnar við Sævarhöfða.
Grípið tækifærið, komið,
skoðið og gerið góð kaup
á hellum
og steinum