Morgunblaðið - 12.10.1995, Qupperneq 1
80 SIÐUR B/C/D
232. TBL. 83. ÁRG. FIMMTUDAGUR12. OKTÓBER1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Yahi segir af
sér í Eistlandi
Tallinn. Reuter.
STJÓRNARKREPPA skall á í Eistlandi í gærkvöldi eftir að Tiit
Váhi forsætisráðherra sagði af sér. Þingið verður að samþykkja eða
hafna afsögninni áður en hún kemur til kasta Lennarts Meri forseta.
Samkomulag um vopnahlé í Bosníu undirritað í gær
Reuter
ÍBÚAR borgarinnar Zenica í Bosníu fagna sveitum stjórnarhersins, sem náðu borginni úr klóm Bosn-
íu-Serba í gær í átökum við Ozran-fjall. Talsmenn Bosníustjórnar sögðu stjórnarherinn við það að
„freisa" borgirnar Banja Luka og Prijedor í gærkvöldi.
Hart barist fram
á síðustu stundu
Sarajevo. Reuter.
BOSNÍUSTJÓRN skrifaði í gær
Ágreiningur blossaði upp innan
stjórnarinnar þegar Lennart Meri
forseti ákvað að víkja Edgar Savi-
saar innanríkisráðherra frá vegna
hneykslismálsins.
Savisaar var leiðtogi þriðja
stjórnarflokksins, Miðflokksins, en
útvarpið í Tallinn skýrði frá því að
hann hefði sagt af sér leiðtogaemb-
ættinu.
Áður hafði Sambandsflokkurinn
lagt til við Dreifbýlissambandið að
flokkarnir segðu báðir skilið við
stjórnina.
Óljóst var í gær hvort stjórnar-
slit leiða til nýrra kosninga eða
Asókn
í grafir
París. Daily Telegraph.
ÓVENJULEGT kapphlaup er
hafið í Frakklandi þar sem fólk
freistar þess að kaupa sér leg-
stað sem næst þeim stað sem
Francois Mitterránd fyrrver-
andi forseti hefur valið sem
grafreit þeirra hjóna.
Mitterrand-hjónin keyptu
100 fermetra spildu í söguleg-
um garði í Mount Beuvray í
Búrgúndí-héraði, skammt þar
frá sem talið er að Vercinget-
orix hafi safnað saman sveitum
Gallveija til uppreisnar gegn
yfirráðum Júlíusar Cesar keis-
ara Rómveija í Gallíu. Fyrir
skikann borguðu forsetahjónin
einn franka. Hafa þau sætt
gagnrýni og Mitterrand sagður
sækjast eftir upphefð með því
að láta grafa sig í Mount Be-
auvray. Þar stóð Bibracte, höf-
uðstaður Gallíu. Eftir að út
spurðist að Mitterrand yrði bor-
inn til grafar þar hafa tugir
manna óskað eftir því að fá að
leggjast þar til hinstu hvílu. Því
hefur verið hafnað.
hvort einum fiokkanna verður falið
að mynda nýja stjórn.
Savisaar var vikið frá eftir að
hann var sakaður um að hafa tekið
upp samtöl hans við aðra stjórn-
málamenn, þeirra á meðal Váhi
forsætisráðherra, með leynd. Eist-
neskir fjölmiðlar lýsa málinu sem
„ISatergate-hneyksli Eistlands".
Savisaar er einn af þekktustu
stjórnmálamönnum Eistlands og
var forsætisráðherra á árunum
1990-92 þegar sjálfstæði landsins
var viðurkennt formlega eftir að
það hafði verið hluti af Sovétríkjun-
um í 50 ár.
Taleban sækir
að Kabúl
Islamabad. Reuter.
TALEBAN-hreyfingin í Afgan-
istan hefur hafið stórsókn að
Kabúl, höfuðborg landsins og
voru miklir bardagar háðir rétt
sunnan af henni, að því er haft
var eftir embættismönnum Sam-
einuðu þjóðanna og liðsmönnum
Taleban.
Stjórnarerindrekar í Isl-
amabad í Pakistan staðfestu að
sveitir hreyfingarinnar hefðu
náð bænum Charasiyab, sem er
um 20 km suður af Kabúl, úr
höndum herliðs á bandi Burha-
nuddins Rabbanis forseta. Sagt
var að miklir bardagar geisuðu
við Rishkor á milli Charasiyab
og Kabúl. Haft var eftir félaga
úr Taleban-hreyfingunni að hún
hefði hafið sókn að Kabúl úr
þremur áttum, vestri, suðri og
suðvestri, á þriðjudag. Einnig
hefði tekist að rjúfa varnir
sljórnarliða í Arghandeh, sem
er 15 km suðvestur af Kabúl, og
í Pahgman, sem er 15 km vestur
af höfuðborginni.
Á myndinni sjást liðsmenn
Taleban standa á skriðdrekum,
en þeir búa einnig yfir orrustu-
þotum, að því er talið er.
undir samkomulag við serbneska
fjendur sína um tveggja mánaða
vopnahlé, sem taka átti gildi klukk-
an 23.01 að íslenskum tíma í gær-
kvöldi. Hörð átök geisuðu í landinu
í gær þar sem stríðsaðilar freistuðu
þess að vinna sem mesta landvinn-
inga áður en vopnahléð kæmi til
framkvæmda. í gærkvöldi gáfu
yfirstjórnir heija deiluaðila út fyrir-
mæli til manna sinna um að leggja
niður vopn. Tugþúsundir flótta-
manna hröktust undan heijunum
beggja vegna átakalínunnar.
Um tíma var óttast að ekkert
yrði af vopnahléssamkomulagi, þar
sem lokafrestur, sem Serbum var
gefinn, rann út án þess að þeir
undirrituðu samkomulagið. Það
gerðu þeir þó síðar um daginn og
er talið að landvinningar heija Kró-
ata og sveita Bosníustjórnar í norð-
vesturhluta landsins hafi ráðið úr-
slitum.
Ógnuðu Banja Luka
í gærmorgun féll borgin Sanski
Most í hendur Króötum og músl-
ima, en nokkrum stundum áður
höfðu þeir einnig náð borginni
Mrkonjic Grad úr klóm Serba. Þar
með náðu þeir öllum yfirráðum yfir
þjóðveginum milli Bihac og
Sarajevo á sitt vald og ógnuðu borg-
inni Banja Luka í fyrsta sinn frá
því Bosníustríðið braust út fyrir
hálfu fjórða ári.
Andrej Kozyrev utanrikisráð-
herra Rússlands sagði í gær, að
raunhæft væri að ætla að sam-
komulag um pólitíska lausn deilu-
mála í Bosníu tækist innan mánað-
ar. Ráðhert er að friðarviðræður
deiluaðila hefjist í Washington síðar
í október. Fastafulltrúar Atlants-
hafsbandalagsins (NATO) sátu á
rökstólum og freistuðu þess að ná
samkomulagi um áætlun, sem gerir
ráð fyrir því að 60.000 þungvopnað-
ir hermenn taki við friðargæslu í
Bosníu, náist friðarsamningar þar.
Gert er ráð fyrir að Bandaríkjamenn
leggi til 20.000 hermenn og Bretar
15.000, en í gær buðust Þjóðveijar
til að senda 5.000 hermenn til þátt-
töku í sveitunum. í gær sáust merki
vaxandi aðstöðu í Bandaríkjunum
við því að bandarískir hermenn yrðu
sendir til friðargæslu í Bosníu.
aammmmm
Reuter
Juppe kemst
hjá málsókn
París. Reuter.
ALAIN Juppe, forsætisráðherra
Frakklands, komst í gær hjá máls-
höfðun vegna aðildar hans að hús-
næðishneyksli í París. Saksóknari
lýsti því hins vegar yfir að ráðherr-
ann hefði brotið lög um hagsmuna-
árekstra og skipaði honum að flytja
sig um set.
Með þessum úrskurði kemst
Juppe hjá því að segja af sér en
málið kann engu að síður að skaða
hann. Staða forsætisráðherrans er
afar erfið um þessar mundir, vin-
sældir hans hafa dalað mjög að
undanförnu og hann á í stríði við
verkalýðsfélög og opinbera starfs-
menn, sem mótmæltu efnahagsráð-
stöfunum ’stjórnar hans með alls-
heijarverkfalli á þriðjudag.
Juppe er sakaður um að hafa
tekið glæsiíbúð í eigu borgarinnar
á leigu fyrir afar lága upphæð er
hann var aðstoðarborgarstjóri.
Hann býr þar enn og setti saksókn-
arinn í París það að skilyrði fyrir
því að málsókn yrði látin niður
falla, að Juppe flytti út fyrir ára-
mót.