Morgunblaðið - 12.10.1995, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 12.10.1995, Blaðsíða 29
28 FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 1995 29 STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. SMU GUDEIL AN OG HAGSMUNIR í RÚSSLANDI SÁ JÁKVÆÐI tónn, sem virðist hafa verið í viðræð- um Halldórs Ásgrímssonar utanríkisráðherra og Andreis Kozyrev, utanríkisráðherra Rússlands, í Rovan- iemi í fyrradag, gefur vonandi til kynna að samskipti ríkjanna á sviði sjávarútvegsmála muni batna á næst- unni. Vegna veiða íslenzkra togara í Barentshafi hafa Rússar á undanförnum misserum lagt hömlur á fisk- sölu til íslands, þótt eitthvað af Rússafiski hafi borizt hingað. Jafnframt hefur annað samstarf ríkjanna í sjáv- arútvegsmálum liðið fyrir Smugudeiluna. Halldór Ásgrímsson segir í samtali við Morgunblaðið í gær að samkomulag um veiðarnar í Smugunni muni opna ýmsa möguleika á samstarfi við Rússa. SáÆkrið- ur, sem nú er kominn á viðræður um lausn deilunnar, virðist þegar hafa orðið til þess að milda afstöðu rúss- neskra stjórnvalda. Kozyrev utanríkisráðherra bauð ís- lendingum til ráðstefnu um fjárfestingarmöguleika í Norður-Rússlandi og hefur utanríkisráðuneytið í hyggju að stuðla að þátttöku íslenzkra aðila, sem geti tekið upp þráðinn þar sem frá var horfið, hvað varðar við- skipti með fisk og samstarf í sjávarútvegsmálum. Það er áreiðanlega rétt mat hjá Halldóri Ásgrímssyni að ísland hefur misst af ýmsum möguleikum í Rúss- landi vegna Smugudeilunnar og önnur ríki hafa öðlazt forskot á okkur. Möguleikarnir á samstarfi við Rússa eru miklir. Auk þess að vinna rússneskan fisk gætu íslenzk fyrirtæki veitt Rússum aðstoð við að nútíma- væða sjávarútveg þeirra og jafnvel lagt þeim til skip og tekið þátt í veiðunum með þeim. Þannig gæti íslenzk- ur sjávarútvegur notið góðs af uppbyggingu fiskstofna í Barentshafi með fjölbreytilegri hætti en eingöngu vegna veiða íslenzkra togara. Hagurinn af lausn Smugudeilunnar getur því orðið miklu meiri en sem nemur þeim þorskkvóta, sem samið verður um íslendingum til handa. Ef rétt er haldið á málum, getur samstarf við Rússland orðið íslenzkum sjávarútvegi til mikilla hagsbóta. TÍÐARFARIÐ EÐA STJÓRNARFARIÐ? HÆKKUN á verði grænmetis undanfarna mánuði er ein orsök þess að hraði verðbólgunnar hefur aukizt að undanförnu. Sú þróun er að sjálfsögðu áhyggjuefni, bæði fyrir stöðugleikann í efnahagslífinu almennt og hvað varðar kjarasamninga á almennum vinnumarkaði, eins og forystumenn vinnuveitenda og launþega hafa bent á að undanförnu. Hjá stjórnmálamönnum og forsvarsmönnum inn- lendra framleiðenda grænmetis hefur sú skýring heyrzt á verðhækkuninni að tíðarfarið hafi verið slæmt og sprettan lítil. Sú skýring er rétt, svo langt sem hún nær. Framboð af innlendu grænmeti hefur verið minna en eftirspurnin og þess vegna hefur verðið hækkað. Röksemdafærslan er hins vegar meingölluð, vegna þess að með háum tollum, sem lagðir eru á.erlent græn- meti þessa fáu mánuði, sem innlend framleiðsla er á markaði, er í raun skrúfað fyrir framboðið að utan, þótt formlegt innflutningsbann sé ekki Iengur í gildi. Með gríðarlega háum magntollum er verið að hindra að innlenda framleiðslan fái nokkra erlenda sam- keppni. Neytendur greiða fyrir þessa stefnu stjórnvalda með hærra grænmetisverði en vera þyrfti. Þótt pólitískur vilji kunni ennþá að vera fyrir því hér á landi að reka verndarstefnu af þessu tagi til að hlífa íslenzkum garðyrkjubændum við útlendri samkeppni, er rétt að kalla hlutina sínum réttu nöfnum. Hina raun- verulegu ástæðu fyrir hækkun grænmetisverðs á ís- landi er að finna í stjórnarfarinu, ekki í tíðarfarinu. DEILUR í KJÖLFAR NORD-SOL Nýr flokksformaður, lífskjör og framtíð vinstri hreyfingar meginmál 12, landsfundar Alþýðubandalagsins Stjórnandi biðst nndan afskiptum dagskrárstjóra OSMÓ Vanska sagði í bréfi til útvarpsstjóra, sem hann meðal annars sendi öilum hljóðfæraleikurum sinfó- níunnar, að Guðmundur hafi komið fram sem einræðisherra í undirbúningi og framkvæmd keppni ungra tónlist- armanna, Nord-Sol, sem lauk á iaug- ardag, og hrifsað sæti sitt í dómnefnd- inni. Guðmundur vísaði ásökunum Vánská á bug í gærkvöldi og kvaðst aðeins hafa sest í dómnefnd keppninn- ar fyrir áeggjan samstarfsmanna sinna. „Á lokatónleikunum var hljómsveit- mni sýnd fyrirlitning og óvirðing," skrifaði Vánská í bréfi sínu, sem er dagsett 9. október og er stílað á Björn Bjarnason menntamálaráðherra, Hall- dór Haraldsson, skólastjóra Tónlistar- skólans í Reykjavík og fulltrúa íslands í tónlistarháskólaráðinu , Hörð Sigur- gestsson, stjórnarformann Sinfóníu- hljómsveitar Isiands, Runólf B. Leifs- son, framkvæmdastjóra Sinfóníu- hljómsveitarinnar, Guðmund Emilsson og alla hljóðfæraleikara sinfóníunnar. „Þetta bréf er greinilega skrifað af ofstopa og reiði,“ sagði Guðmundir í samtali við Morgunblaðið. „Það er augljóst að það er jafnvægislaus mað- ur, sem stýrir þeim penna.“ Heimir Steinsson kvaðst í gær- kvöldi hafa fengið bréf Vánskás í hendur og rætt málið við Guðmund, en viidi ekki ræða það frekar. „Ég vil sjá fleiri hliðar málsins áður en ég tek til máls,“ sagði Heimir. Aðeins hluta lokatónleika Norsd- Sol var sjónvarpað beint á laugardag. Síðasta hlutanum, hljómsveitarverk- inu „En Saga“ eftir Sibelius, var flutt eftir að verðlaun höfðu verið afhent. í sjónvarpinu hófst hins vegar bein útsending frá knattspymuleik. Vánská heldur því fram að hægt hefði verið að sýna alla tónleikana í beinni útsendingu. „Á föstudag fékk ég þær upplýsingar frá sjónvarpinu að hefðu þeir vitað af „En Saga“ fyr- ir viku hefði verið hægt ---------------------- að framlengja útsending- Qe||f um §gfu una þannig að hún tæki ________>__; til allra tónleikanna,- Guðmundar I skrifaði Vánská og spurði: „Er þetta góð ímynd til að dómnefnd gefa alþjóðlegum áhorfendum?" Guðmundur sagði að „En Saga“ væri eins og rauður þráður í forsögu þessa máls. Þegar ákveðið hefði verið að halda Nord-Sol á íslandi hefði ver- ið Ijóst að sinfónían myndi taka þar þátt. Vánska hefði þegar gert kröfu um að stjóma, þótt það væri ekki í hans verkahring, enda borgaði sinfón- ían honum ekki. Engu að síður hefði verið iátið undan þessari kröfu og hann hefði litið á þetta sem tækifæri til að koma sjálfum sér á framfæri. Þegar liðið hefði að keppninni hefði Vánská krafist þess að á iokatónleik- unum yrði „En Saga“ flutt og ekkert hefði verið séð því til fyrirstöðu. Osmo hefði einnig sett fram þá Osmo Vánská, aðalstjómandi Sinfóníuhljóm- sveitar íslands, hefur mælst til þess við út- varpsstjóra að Guðmundur Emilsson tónlistar- dagskrárstjóri hætti öllum afskiptum af mál- efnum sveitarinnar. Karl Blöndal kynnti sér bréfið og leitaði m.a. viðbragða Guðmundar. hending forseta fallið út og það hefði strítt gegn þeim tilgangi keppninnar að koma ungum tónlistar- mönnum á framfæri." Guðmundur sagði að Vánská hefði verið greint frá þessum málavöxtum. „Hann bregst æfur við og neitar að stjórna nema „En Saga“ sé fyrst á dag- skrá,“ sagði Guðmundur. Á föstudagskvöld var haldinn fundur tónlistarr- áðs Norðurlanda. „Fund- armenn ályktuðu að koma ætti í veg fyrir að Vánská gæti beitt fólk svona ofrí- ki,“ sagði Guðmundur. „Klukkan tólf á miðnætti var skrifað bréf til Þorgeirs Gunnars- sonar, aðstoðardagskrárstjóra Sjón- varps, og afrit boðsent til Vánskás. Með bréfinu fylgdu símleiðis skilaboð um að gerði Vánská nokkuð til að skyggja á gleði lokatónleikanna eða verða forseta ísiands til vansa myndi norræna tónlistarháskólaráðið og rektorar þess leggjast gegn honum hvar sem því yrði við komið og á laug- ardeginum yrði haldinn blaðamanna- fundur í stað tónieikanna þar sem ofstopi Vánskas yrði afhjúpaður og sannleikurinn sagður." Guðmundur kvað Vánská hafa svarað undir hádegi á laugardegi fyr- ir milligöngu Helgu Hauksdóttur, starfsmanns sinfóníunnar. ------ „Hann lét undan og sagðist mundu stjóma tónléikun- um, en með því skilyrði að forseti íslands sæti tónleik- ana á enda,“ sagði Guð- “ mundur. Guðmundur kvaðst hafa Osmo Vanska Guðmundur Emilsson kröfu að verkið yrði flutt síðast á dagskrá lokatónleikanna (til þess að hann gæti einn baðað sig í fagnaðarl- átunum í lokin og þyrfti ekki að deila sviðsljósinu með öðrum, að sögn Guð- mundar) og einnig hefði verið faliist á hana. Miðvikudaginn 4. október barst Guðmundi hins vegar bréf frá Þor- geiri Gunnarssyni, aðstoðardagskrár- stjóra innlendrar dagskrárdeildar Sjónvarps, þar sem fram kemur „eins og þú kannski veist" að bein útsend- ing frá tónleikunum þremur dögum síðar geti aðeins staðið frá klukkan tvö til kortér yfir þijú eða hálf fjögur í mesta lagi vegna þess að ------- sama kvikmyndatökuteymi þurfi að sinna útsendingu knattspyrnuleiksins. Vánská fékk veður af ________ þessu og setti nú fram kröfu um að „En Saga“ yrði fyrst á dagskrá. „Sjónvarpsútsendingin náði aðeins til fyrsta hluta tónleikanna og röðin á tónleikunum með stuttu hljómsveitarverki (Sibelius: „En Saga“) í lokin er gjörsamlega fáránleg listræn hugsun," sagði Vánská í bréfi sínu. Að sögn Guðmundar hafði finnski hljómsveitarstjórinn hins vegar fengið að ráða staðsetningunni, en skipt um skoðun þegar hann komst að því að hljómsveitarverkið yrði aðeins ieikið fyrir áheyrendur í Háskólabíói. „Við skoðuðum dagskránna og reyndum að þjappa henni saman, en tímasetningar buðu ekki upp á það,“ sagði Guðmundur. „Ef „En Saga“ hefði verið fært til hefði verðlaunaaf- Krafa um að forseti sæti út tónleikana dregið Vigdísi Finnbogadóttur forseta afsíðis þegar hún kom í Háskólabíó, en vildi ekki segja hvað þeim hefði farið á milli. Aðeins að forsetinn hefði setið út tónleikana og aldrei ætlað sér ann- að. „Þarna var mælirinn orðinn fullur," sagði Guðmundur. „Ég held að það hljóti að vera einsdæmi í listasögunni að þjóðhöfðingi sklui tekinn í gíslingu af listamanni." Vánská hélt því fram í bréfinu að komið hefði verið í veg fyrir að hann sæti í dómnefndinni, en hefði hins vegar sjálfur „stokkið" inn í hana og „skyndilega var hann formaður dóm- nefndarinnar!! Er þetta ekki skrítið!" Að sögn Vánskás lagði Sibeliusaraka- demían í Helsinki til í síma að hann tæki sæti Kaija Saarikettu, prófessors við akademíuna, þegar hún veiktist og hefði þetta verið staðfest í bréfi. Guðmundur sagði að veikindin hefðu komið fram föstudaginn 29. september og þá hefði verið lítill tími tii stefnu. Arangurslaust hefði verið reynt að fá mann til að hlaupa í skarð- ið og kvaðst Guðmundur þá hafa bent ritara Sibeliusarakademíunnar á að hér væri hæfur maður, Osmo Vánská. Þessu var vel tekið og staðfest í bréfi til Guðmundar. Undirbúningsnefnd keppninnar fagnaði þessu einnig og taldi málið leyst. Þá náðist hins vegar ekki í Vánská og þegar komið var fram á sunnudagskvöld og aðrir dóm- nefndarmenn komnir til landsins þótti ljóst að grípa yrði til annarra ráða, þótt það leiddi til þess að enginn dóm- ari yrði frá Finnlandi og tveir frá ein- hveiju öðru Norðurlandanna. Hins vegar varð að bæta við dómara því að annars hefðu þeir aðeins verið fjór- ir og vantað oddamann. „Það hefði verið ósmekklegt að biðja einhvern að hlaupa í skarðið með svo skömmum fyrirvara," sagði Halldór Haraldsson, skólastjóri, sem einnig sat í undirbúningsnefndinni. „Guðmundur sló til. Það hefur ugg- laust komið illa við suma og auðvelt að láta líta illa út, en það er ljóst að við báðum hann um þetta,“ sagði Halldór og vísaði þar til sín og Eriks Bachs, skólastjóra tónlistarskólans í Árósum, sem einnig sat í undirbún- ingsnefndinni. í bréfí Vánskás er ekki aðeins vísað til keppninnar í síðustu viku. Þar gagnrýnir Vánská Guðmund fyrir störf hans í hlutverki tónlistardag- skrárstjóra útvarps, segir að útvarps- vikur sinfóníuhljómsveitarinnar hafi verið illa skiplagðar, upplýsingar um stjómendur, dagskrá og einleikara borist seint og það hafi skapað ýmis _________ vandamál. „Guðmundur Emilsson ber ábyrgð á þessum vikum fyrir hönd útvarpsins," skrifaði Vánská. „Það er erfitt að eiga samskipti við hann vegna þess að hann vill halda öllum hlutum fyrir sjálfan sig og ráða.“ Hann ýjaði einnig að því að Guð- mundur _sé fallinn í ónáð hjá sinfón- íunni. „íslenska sinfóníuhljómsveitin hefur neitað að halda áfram að leika undir hans stjórn af listrænum ástæð- um,“ skrifaði Vánská. „Það leiðir til augljósra vandamála." Guðmundur vísar þessari ásökun á bug og segir að það hafa verið ljóst þegar hann tók við stöðu tónlistardag- skrárstjóra árið 1989 að hann myndi ekki stjórna sinfóníunni, enda gæti hann ekki staðið beggja vegna borðs- ins. Hann hefði hins vegar haldið áfram að stjórna hljómsveitum erlendis. FRESTUR til að skila at- kvæðum í formannskosn- ingunum rennur út á há- degi á morgun og kynna á niðurstöður kosninganna kl. 19 ann- að kvöld. Þá mun Ólafur Ragnar Grímsson láta af formennsku í Al- þýðubandalaginu eftir að hafa leitt flokkinn í átta ár. Heimildarmenn blaðsins telja að Ólafur Ragnar muni áfram verða mjög virkur í forystu- sveit flokksins og hann muni fylgja mun fastar og ákveðið fram sínum áhugamálum í stjórnmálum en til þessa, þar sem hann verði eftirleiðis óbundinn af málamiðlunum sem fylgja flokksformennsku. Þessa muni strax verða vart á landsfundinum. Landsfundur Alþýðubandalagsins hefst í dag kl. 17 á Hótel Sögu með ræðu fráfarandi formanns. Stendur þingið fram á sunnudag. Þrátt fyrir að formlegri kosningabaráttu í for- mannskjöri á milli Margrétar Frí- mannsdóttur og Steingríms J. Sig- fússonar hafi lokið fyrir hálfum mánuði, þegar kjörskrá var lokað og bréfleg kosning félagsmanna hófst, stendur baráttan milli frambjóðend- anna engu að síður yfir fram á sjálf- an landfundinn, þar sem kosningunni lýkur ekki fyrr en á hádegi á morg- un. Frambjóðendur og stuðnings- menn þeirra smöluðu stíft í flokkinn í sumar og haust og hefur flokksfé- lögum fjölgað umtalsvert í aðdrag- anda kosninga. Um 3.500 manns hafa kosningarétt en í gær höfðu borist milli 1.500-2.000 atkvæði til skrifstofu fiokksins, skv. upplýsing- um Einars Karls Haraldssonar, framkvæmdastjóra flokksins. Af samtölum við alþýðubanda- lagsmenn má ráða að mikil óvissa er um raunverulegt fylgi frambjóð- endanna, en flestir eru á því máli, að mjög mjótt geti orðið á munum. Yfirleitt eru menn einnig þeirrar skoðunar, að formannskosningarnar hafí ekki leitt til mikilla átaka eða úlfúðar í flokknum í líkingu við að- draganda formannskosninganna árið 1987, „þótt mörgum stuðnings- manna sé orðið heitt í hamsi,“ eins og einn viðmælenda komst að orði. Engum vafa er þó undirorpið að stuðningsmenn Steingríms og Mar- grétar skiptast nokkuð eftir þeim átakalínum sem einkennt hafa Al- þýðubandalagið á undanförnum árum. Alþýðubandalagsmenn úr svo- kölluðum flokkseigendaarmi eru sagðir fremur á bandi Steingríms, en svokölluð lýðræðisfylk- ing úr stuðningsmannaliði Ólafs Ragnars fylki sér yf- irleitt að baki Margrétar. Þó sé þetta engan veginn einhlít skipting og sumir halda því raunar fram að allar flokkafylkingar hafi riðlast í formannskjörinu. Baráttan sé þannig ekki nema að hluta til uppgjör milli átakaarma í flokknum og snúist fyrst og fremst um persón- ur, hugmyndir frambjóðendanna um starfshætti og hlutverk flokksins og hvor þeirra verði trúverðugri leiðtogi. Óvissan er engu minni um kosn- ingu varaformanns, en enginn Alls eiga 350-400 manns seturétt á 12. lands- fundi Alþýðubandalagsins sem hefst á Hótel Sögu í dag, eða fleiri en nokkru sinni. Ástæðan er sú að fjölgað hefur í flokkn- um að undanfömu vegna formannskjörsins, sem mun yfírskyggja allt annað á fyrstu dög- um landsfundar. * > I grein Omars Friðrikssonar kemur fram mikil spenna innan flokksins þar sem flestir telja að úrslitin verði afar tvísýn. Margrét Frímannsdóttir Steingrímur J. Sigfússon Ahersla á samstarf eða sameiningu vinstri flokka flokksmaður hefur enn lýst yfír framboði sínu í það embætti. Fer kosning varaformanns, ritara og gjaldkera fram á þinginu kl. 14 á laugardag. Áhrifamaður innan flokksins taldi að útkoman í for- mannskjörinu gæti skipt sköpum um hvernig mál skipuðust við val vara- formanns. Ef mjótt verði á munum verði reynt að viðhalda jafnvægi milli fylkinganna sem myndast hafa að baki formannsefnanna og ná sam- komulagi um varaformannsefni, sem flestir geti sætt sig við. En sigri annar frambjóðandinn með miklum atkvæðamun geti sú staða komið upp að stuðnings- menn hans reyni að fá kjörinn varaformann úr sínum röðum til að fá skýr- ar línur í forystusveitinni. Það myndi þá óhjákvæmi- lega leiða til mikilla átaka og hugsanlega uppgjörs við kosning- arnar á laugardaginn. Steingrímur segir hins vegar um þessi mál í samtali við Morgunblað- ið: „Ég held að það sé ekki útlit fyr- ir að það verði um þau stórtíðindi í atkvæðagreiðslunni að ræða að það hafi áhrif á slíkt. Ég held að það sjónarmið verði ofarlega á baugi og það verður það örugglega af minni hálfu, að reyna að skipa forystu flokksins þannig að hún endurspegli sem mesta breidd og samstöðu og að allir flokksmenn sjái sinn fulltrúa í forystusveit flokksins, í stjórn og framkvæmdastjórn, þannig að flokk- urinn geti staðið heill og óskiptur á bak við sína forystu," segir hann. „Ég hef lítið velt þessu fyrir mér. Mér finnst slæmt að það skyldi eng- inn gefa kost á sér í þetta embætti, en ég er sannfærð um að einhveijir muni gera það á landsfundi, en það mun eflaust eitthvað ráðast af úrslit- um í formannskjörinu," segir Margrét um varafor- mannsmálið. Hún segist aðspurð ekki ætla að gefa kost á sér til varaformanns, verði hún undir í formanns- kjörinu. Hún telur að vara- formaður eigi að einbeita sér að því að byggja upp innra starf flokksins og eigi t.a.m. ekki að koma úr þingliðinu. Áðspurður hvort til greina kæmi að gegna áfram varaformennsku, byði hann lægri hlut í formanns- kjöri, sagði Steingrímur að hann útilokaði ekkert fyrirfram en benti á að hann væri búinn með reglubundið kjörtímabil varaformanns og ef til þess kæmi þyrfti hann að gegna starfinu tvö ár í viðbót á grundvelli undanþágureglu flokkslaganna. Meðal þeirra sem rætt hefur verið um sem hugsanleg varaformannsefni eru Elín Björg Jónsdóttir, gjaldkeri flokksins, Jóhann Ársælsson, fyrrv. þingmaður, Guðbjartur Hannesson á Akranesi, Árni Þ. Sigurðsson, borg- arfulltrúi, Bryndís Hlöðversdóttir, alþingismaður, Einar Karl Haralds- son, framkvæmdastjóri flokksins og bæjarfulltrúamir Sigríður Stefáns- dóttir og Valþór Hlöðversson. Á landsfundinum verður fjallað sérstaklega um fjóra málaflokka; atvinnu og lífskjör, starf- semi sveitarfélaga, fram- tíð vinstri hreyfingar ojf” ofbeldishneigð og vímuefna- vanda. Nokkrar tillögur og um- ræðuplögg af miðstjórnarfundi, sem haldinn var í byrjun september, hafa verið til umræðu innan flokksins á undanförnum vikum. Þar eru lagðar Iínur fyrir landsfundarfulltrúa og stefnumörkun og ályktanir fundar- ins. I þeim segir m.a. um ríkisfjár- málavandann að þótt sjálfsagt sé að gagnrýna ýmislegt í tilraunum til niðurskurðar í ríkiskerfinu, verði aö viðurkenna að alvarleg skuldasöfnun ríkisins og sveitarfélaga sé risavaxið verkefni í íslensku þjóðfélagi. Al- þýðubandalagið verði að horfast af raunsæi í augu við ástand ríkisfjár- mála og að eingöngu séu til reiðu óþægilegar lausnir í glímunni við ríkisfjármálin. Einnig er íjallað um stóriðju í plöggunum og bent á fyrirhugaða stækkun álversins ogjárnblendiverk- smiðjunnar. „Þótt ýmislegt megi sjálfsagt finna að slíkri samninga- gerð þá er greinilegt að engar aðrar leiðir eru sjáanlegar til þess að nýta umframorkuna sem nú þegar er til í landinu og minnka þar með hina hrikalegu erlendu skuldasöfnu»- landsmanna. Það er því mikilvægt að Alþýðubandalagið taki með já- kvæðum hætti á þessum tveimur verkefnum," segir þar. í samantekt um framtíð vinstri hreyfingar, sem tekin hefur verið saman fyrir landsfundinn, segir: „Á vettvangi Alþýðubandalagsins og annarra stjórnarandstöðuflokka þarf á næstunni að fara fram umræða með þátttöku sem flestra." „Það væri í sjálfu sér ekkert meira kraftaverk að sameina fólk sem nú skipar sér í raðir ólíkra flokka stjórn- arandstöðunnar en að hafa haldið fjölmörgum einstaklingum og hópum innan Alþýðubandalagsins á undan- förnum 10-20 árum.“ Þar er ennfremur bent á að áfram- haldandi sundrung vinstri hreyfing- arinnar muni leiða til þess að litlar líkur séu á að annars konar ríkis- stjórn en nú situr verði mynduð á næstu árum nema verulegar breyt- _________ ingar verði á vinstri vængnum. „Hún getur orðið með tvennum hætti. Annaðhvort að núverand, flokkar nái saman, allir eða hluti þeirra, og búi ——— þannig til sterkt mótvægi við núverandi ríkisstjóm. Eða að einhver af núverandi stjórn- arandstöðuflokkum keyri það langt fram úr hinum að hann skilji þá eft- ir. Ýmsir hafa reynt að ná þannig forystu á undanförnum 10-15 árum. Það hefur Alþýðubandalagið reynt. Það hefur Alþýðuflokkurinn reynt. Það hefur Þjóðvaki reynt. Sú leið hefur aldrei tekist.“ Mikil óvissa ríkir um kosningu varaformanns SPENNA í TVÍSÝNU FORMANNSKJÖRI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.