Morgunblaðið - 12.10.1995, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 12.10.1995, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 1995 23 LISTIR Sýning á grafík- verkum Dieter Roth LISTASAFN Kópavogs og Nýlistasafnið hafa tekið höndum saman um að efna til sýningar á grafíkverkum eftir þýsk-svissneska lista- manninn Dieter Roth. Uppistaðan í sýning- imni eru myndir sem Dieter hefur fært Ný- listasafninu að gjöf á undanförnum 13 árum. Sýningin verður opnuð á laugardaginn kl. 16 og stendur til 29. októ- ber. í kynningu segir: „Dieter var búsettur hér á landi um nokk- urra ára skeið. Hann hefur aldrei verið við eina fjölina feldur í list- sköpun sinni. Hann vinnur jöfnum höndum við gjörninga, innsetn- ingar, skrif og ljóða- gerð, upptökur á mynd- bönd og filmur, tón- sköpun, hljóðfæraleik og útgáfur bóka, tíma- rita og hljómplatna. Dieter lærði ungur hönnun og hefur unn- ið grafíkverk frá upp- hafi ferils síns. A sýn- inguni í Listasafni Kópavogs eru rúm- lega 200 grafíkmynd- ir, sem unnar eru á síðustu fjórum ára- tugunum. Hann notar hefðbundnar aðferðir eins og steinprent, koparstungu, þurrnál, ætingu og sáldþrykk, en einnig nýstárlegar aðferðir, ýmiss konar ljós- myndatækni og líf- ræn efni sem hann ber á eða pressar inn í myndir sínar. Dieter er nú talinn vera í hópi bestu graf- íklistamanna heims. Grafíkmyndir hans í eigu Nýlistasafnsins eru stórvirki sem mik- ill fengur er að hér á landi og tímabært að efnt sé til sýningar á DIETER Roth. „Við sjóinn, baksvipur", 1972. þessari gjöf.“ „ Allt eða ekkert“ MYNPLIST Listhús 39 NAUMHYGGJA Þorfinnur Signrgeirsson Opið virka daga frá 10-18. Laugar- daga frá 12-18. Sunnudaga 14-18. Aðgangur ókeypis. Til 15. október. KYRRSTAÐAN í tíma og rúmi er sem fyrr þungamiðjan í mynd- verkum Þorfinns Sigurgeirssonar, og hafi hann fyrrum sótt mynd- efni sitt til hins hlutvakta mann- heims, er hann nú vígður forminu einu og einfaldleika þess. í öllu falli eru verk hans í Listhúsi 39 í Hafnarfirði því marki brennd, að helst er sem naumhyggjan taki hug hans allan, og sem fyrr velur hann sér erfitt hlutskipti. Líkt og rýnirinn vakti athygli á varðandi sýningu hans í Hafnarborg á sl. ári, er Þorfinnur að fást við þau flóknu vandamál sem upp koma, er einfaldleikinn og kyrrðin eru virkjuð í algjörleik sínum. Nú hefur hann alfarið lagt út frá átökunum við sjálfa myndbygging- una, sem oftar en ekki var hans veika hlið. Þorfinnur hefur haldið tylft sýninga en þær flestar litlar, og svo er einnig með þessa, sem hann nefn- ir réttilega „allt eða ekkert". Af þeim sem ég hef séð, er fyrr- nefnd sýning í Hafn- arborg mér minnis- stæðust, og þá einkum fyrir nokkrar teikningar, sem báru vott um ríka tilhneigingu til ein- földunar. í sjálfu sér er svo harla stutt frá hlutlægu rissi hans sem byggðist á baksvip á manni á þeirri sýningu, og til marksæ- knustu myndarinnar á þessari sýningu sem nefnist „Sitt af hvoru“ og telst alveg óhlutbundin. Hún er þrískipt og afar vel upp byggð í einfald- leika sínum, jafnri hægri formrænni stígandi, þar sem mettuð egglaga form og rauð miðja líkt og glóa á myndfletin- um, þetta á einnig við um myndirnar „hvað sem er“ og „allt eða ekkert“ en þær virka þó ekki eins markvissar í byggingu. Hins veg- ar á ég erfiðara með að melta myndirnar „hvor tveggja“ og „beggja vegna“, því formin eru eitthvað svo ómarkviss og undarlega hálf í staðsetningu sinni á myndfletinum, þótt hér sé glímt við tvíræðnina sem öll sýn- ingin gengur raunar útfrá og nafn sýningarinnar gefur til kynna. Bragi Ásgeirsson Þorfinnur Sigurgeirsson ítalir vilja endurheimta verk sem Þjóðverjar höfðu á brott í heimsstyijöldinni síðari Gera kröfu um 2.000 listaverk Róm. The Daily Telegraph. ÍTALIR birtu á þriðjudag lista yfir rúmlega 2.000 málverk gömlu meistaranna og önnur listaverk sem þýskir nasistar höfðu á brott með sér í heimsstyrjöldinni síðari. Gera ítalir kröfu um að fá verkin aftur en lítil von er talin á því að þeim verði nokkuð ágengt. Ólíkt „Flórens-fjársjóðnum"; hundruðum verka sem Þjóðveijar höfðu á brott með sér úr Uffizi- safninu og földu í austurrísku fang- elsi árið 1944, er um að ræða lista- verk sem foringjar í liði nasista tóku traustataki úr geymslum og einkasöfnum er þýski herinn hörf- aði frá Ítalíu. „Flórens-fjársjóðin- um“ var skilað árið 1945 en ítölum hefur hins vegar ekki tekist að end- urheimta hin verkin, þrátt fyrir samning þar að lútandi sem gerður var við Konrad Adenauer, kanslara Þýskalands, árið 1953. Listanum yfír horfnu verkin var lokið árið 1972 en hann var aldrei birtur. Ein ástæðan var sú að ítalir vildu ekki styggja Þjóðveija, banda- menn sína í Atlantshafsbandalag- inu. Listinn gufaði upp skömmu síðar en afrit af honum fannst fyr- ir nokkrum árum og ákváðu ítalir að láta til skarar skríða eftir að Berlínarmúrinn féll, þar sem Þjóð- veijar gera nú svipaða kröfu og ítalir á hendur Rússum um lista- verk sem þeir höfðu með sér frá Þýskalandi í stríðslok. Telja ítalir sig hafa sterk rök fyrir því að end- urheimta myndirnar. Hvað varðar fjöldaog gæði lista- verkanna sem ítalir gera kröfu um, jafnast safnið á við eignir þjóðar- listasafna víða á Vesturlöndum. Á meðal þeirra verka sem ítalir vilja endurheimta eru fyrstu höggmynd- irnar sem Michelangelo gerði, mál- verk eftir Botticelli, E1 Greco, Tinto- retto, Veronese, Perugino, Ghir- landaio, Vasari, Memling, Bernardo Daddi, Murillo, Joos van Cleve, Bronzino, Lucas Cranach, Dossi Dosso og Jan Gossaert. Þá eru leirmyndir eftir Andrea og Luca Della Robbia, tugir fiðlna, þar af nokkrar eftir Stradivarius og heilt þjóðháttafræðisafn frá Napólí auk loftskreytinganna úr Palazzo Mocenigo í Fenéyjum sem Hitler lét fjarlægja. Vonir um 10% Mörg verkanna sem ítalir gera kröfu um, eru ekki lengur í eigu Þjóðveija. Þau er að finna í einka- eigu og í söfnum um allan heim. Gera ítölsk yfirvöld sér vonir um að endurheimta um 10% verkanna. Líkurnar á því eru þó taldar enn minni en að Þjóðveijar fái aftur verkin sem sovéski herinn tók trau- stataki í Þýskalandi. Rússneska dúman mun greiða atkvæði um það í mars á næsta ári hvort afhenda eigi þau verk. Ástæðurnar til þess, að ólíklegt er að verkin endurheimtist, eru þær að mörg þeirra voru gjöf frá Mus- solini til Hitlers, önnur keyptu Her- man Göring og stofnunin Kunstsc- hutz af ítölskum fjölskyldum, jafn- vel þótt salan hafi oft farið fram „undir þrýstingi". Nú er rétti tíminn til að spara og taka slátur. Á sláturmarkaði GOÐA, Kirkjusandi v/Laugamesveg, færðu Borgarnesslátur og Búðardalsslátur og einnig nýtt kjöt og innmat á góðu verði. Sláturmarkaður GOÐA er opinn mánudaga til föstudaga kl. 10-18 og laugardaga kl. 10-14. Sími 568 1370.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.