Morgunblaðið - 12.10.1995, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 12.10.1995, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 1995 33 Faccio Jakkar Yegurinn yfir Gilsfjörð RÍKISSTJÓRNIN hefur einsett sér að ná fjárlagahallanum niður til þess að tryggja jafn- vægi í efnahagsmálum og hóflega vexti. Af þeim sökum var óhjá- kvæmilegt að skera nokkuð niður fram- kvæmdir í samgöngu- málum. Jafnframt hef- ur verið unnið að því að lækka hin eiginlegu rekstrargjöld og stemma stigu við sjálf- virkum kostnaðar- hækkunum. Við þessar aðstæður er vitaskuld óhjá- kvæmilegt að samgönguráðuneytið taki öll framkvæmdaáform til end- urskoðunar og endurmats. í sam- ræmi við það hafa ný útboð verið stöðvuð, en í Vegagerðinni, í Hafnamálastofnun og hjá Flugmálastjóm er unnið að áætlunargerð í samræmi við hin nýju viðhorf. Þeirri vinnu verður hraðað eins og kostur er og vonast ég til að unnt verði að leggja tillögur fyrir Alþingi í lok þessa mánaðar. Samkvæmt veg- áætlun hefur verið gert ráð fyrir því að nýr vegur yfir Gilsfjörð verði tekinn í notkun haustið 1997, þó að fullnaðarfram- kvæmd ljúki ekki fyrr en árið 1998. Maður skyldi halda, að svo mikil Vegaáætlun gerir ráð fyrir því, segir Halldór Blöndal, að nýr vegur yfir Gilsfjörð verði tekinn í notkun haustið 1997. sveigja væri í þessu verki að ekki munaði um það hvort verkið yrði boðið út á þessum októberdögum eða þótt það drægist einhverjar vik- ur. Einkanlega vegna^ess að þung- inn í fjárveitingunum fellur til á árunum 1997 og 1998. Það era alþekkt vinnubrögð á Alþingi að hnika til fjárveitingum til að flýta verklokum á einum stað án þess að það bitni á öðrum. Ég þekki ekki dæmi þess, að við slíku hafi verið amast. Miklu fremur hafa þingmenn verið áhugasamir um vinnubrögð af þessum toga, af því að þau bitna ekki á neinum, en geta komið mörgum að gagni. Auðvitað er ekki einfalt að skera niður vegaframkvæmdir eftir að Alþingi hefur tímasett hvenær í þær skuli ráðist. Það er viðkvæmt í öll- um byggðarlögum, hvort sem við tölum um Reykjavík eða Akureyri, Gilsfjörð eða N-Þingeyjarsýslu, Vestfirði eða Suðurnes. Það hef ég fundið rækilega eftir að ég varð samgönguráðherra. Ég hef ekki fundið annað en að þingmenn Vesturlands og Vest- fjarða vilji standa við þau fyrirheit sem gefin hafa verið um Gilsfjörð- inn. I því sambandi skipta verklokin máli, en ekki hvenær ráðist verður í verkið. Á næstu dögum eða vikum verða drög að nýrri vegáætlun lögð fýrir þingmenn kjördæmanna. Þá munu málin skýrast og í kjölfar þess verður unnt að gefa heimild til þess að ákveðin verk verði boðin út. En á þessari stundu tel ég bein- línis rangt að ég kveði einn upp úr um það víðsvegar um landið hvaða verkefni verði látin sitja fýrir. Framtíð Iðnó aldrei tryggari en nú Halldór Blöndal Scærðir: S - M - L - XL - XXL - XXXL Litir: Gulc - Orange -Grænc Rautt og dökkblátt. létt oq Uqm Verð 4.ffíi- 5% stgr.afsláttur Sendum i póstkröfu whummél^ SPORTBÚÐIN Ármuli 40 sími 581 3555 FYRIR nokkru birt- ist hér í blaðinu hug- leiðing Ingu Bjarna- son leikstjóra þar sem fram komu nokkrar áhyggjur hennar af framtíð Iðnó. Þetta þótti mér óþarfur kvíði nema ef vera kynni að núverandi borgar- yfirvöld hafi horfið frá fyrri ákvörðunum um að ljúka við að endur- byggja húsið. Það er þó ekki einfalt mál, því að endurbygging- unni var að verulegu leyti lokið fyrir siðustu borgarstjórnarkosn- ingar. Húsið er orðið hið glæsileg- asta eins og sjá má. Eins og menn rekur minni til stóð Iðnó hrörlegt og yfirgefið um nokkurt árabil. Menn vísuðu hver á annan þegar fjallað var um aðild borgar eða ríkis að endurbyggingu og varðveizlu þessa sögufræga húss, sem setur óafmáanlegan svip á umhverfí Tjamarinnar og hefur gert svo í nærri heila öld. Málið var heldur ekki einfalt viðureignar, því að hvorki borg né ríki átti Iðnó. Ég beitti mér fyrir því sem borg- arstjóri að teknar voru upp viðræð- ur við verkalýðsfélögin í Reykjavík, aðaleigendur Iðnó, með það fyrir augum að Reykjavíkurborg legði sitt lóð á vogarskálarnar til að þjarga húsinu frá frekari hrörnun. A hátíðarfundi borgarstjórnar við vígslu Ráðhússins mælti ég fyrir tillögu um endurreisn Iðnó og stóðu allir borgarfulltrúar að samþykkt hennar. Reykjavíkurborg skipaði Hjörleif Kvaran, þáverandi for- stöðumann stjórnsýsludeildar borg- arinnar í húsnefnd, og verkalýðsfé- lögin Guðmund J. Guðmundsson, formann Dagsbrúnar. Oddamaður skyldi skipaður með samþykki aðila og var það eindregin ósk Guð- mundar J. Guðmunds- sonar að Haraldur Blöndal, hæstaréttar- lögmaður og varaborg- arfulltrúi, yrði kvaddur til þess starfs. Á það var að sjálfsögðu fall- izt. Húsnefndin tók síð- an til óspilltra málanna og vann sitt verk hratt og vel. Fljótlega var unnt að hefjast handa við viðgerðirnar. í einu og öllu hafa fram- kvæmdir verið í sam- ræmi við samhljóða niðurstöður borgarráðs, sem fékk tillögur hús- nefndarinnar til afgreiðslu. Gler- skálinn við suðurhlið hússins er með talinn, því að deilur um hann hófust ekki fyrr en löngu eftir sam- þykkt borgarráðs og eftir að hann var risinn. Glerskálinn kom í stað steinkumbalda fyrir fatageymslu og miðasölu, sem bætt var við hús- ið á sínum tíma. Það hefði ekki verið hægt að minnka Iðnó sem honum næmi. Um skeið stóð í nokkru þrefi við húsfriðunarnefnd um frágang glugga en að öðru leyti var framvinda verksins snurðulausc Nokkrir hópar áhugasamra lista- manna, m.a. forystumenn Banda- lags ísl, listamanna annars vegar og hins vegar leiðtogar Leikfélags Reykjavíkur, tjáðu sig um hlutverk Iðnó í framtíðinni. Sumir gengu svo langt að bjóðast til að taka að sér reksturinn á eigin ábyrgð. Reynsla borgarinnar af stuðningi við leik- húsrekstur og aðra menningar- starfsemi veldur því að slíkum rausnartilboðum þarf að taka með fyrirvara. Iðnó hefur gegnt fjölþættu hlut- Tímabært er að hefja sem fyrst gerð áætlana um starfsemina í Iðnó, •• segir Markús Orn Antonsson, og verða tillögur listamannhópa og annarra áreiðanlega vel þegnar. verki í félags- og menningarmálum Reykvíkinga á liðnum 98 árum. Og hreinræktað leikhús hefur hún ekki verið nema hluta af þessu tímabili. Því er rétt að gera ráð fyrir margvíslegum notum af Iðnó í framtíðinni enda hafa viðgerðirn- ar á húsinu við það miðazt. Hús- nefndinni er bezt treystandi til að vinna áfram að útfærslu tillagna sinna. Á hinn bóginn er tímabært að hefja sem fyrst gerð áætlana um starfsemina í húsinu. Tillögur lista- mannahópa og annarra verða áreiðanlega vel þegnar. Hið fyrsta þarf að ráða forstöðumann að Iðnó til að móta hugmyndir um rekstur- inn í húsinu með húsnefndinni og bera ábyrgð á þróttmikilli og marg- breytilegri starfsemi þar á næstu árum. Höfundur er framkvæmdastjóri Útvarps. HREINAR SNYRTIVÖRUR - Þú færð ekkert betra - ÞUMALÍNA Pósthússtræti 13 - S. 551 2136 Markús Örn Antonsson Höfundur er samgönguráðherra. Faber-Castell ur ^►índesíí IW 860 • VinduhraSi 800 sn/mín. • 14 þvottakerfi • Stiglaus hitastillir • Orkunotkun 2,3 kwst • HæS: 85 cm • Breidd: 60 cm • Dýpt: 60 cm Afborgunarverð: kr. 52.527,- 49 Verð stgr. 999,-/ Umbobsmenn um land allt Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi, Kf. Borgfiröinga, Borgarnesi.Blómsturvellir, Hellissandi.Guöni Hallgrímsson, Grundarfiröi. Vestflrölr: Rafbúö Jónasar Þór, Patreksfiröi. Rafverk.Bolungarvík.Straumur, ísafiröi. Noröurland: Kf. Húnvetninga, Blönduósi. SkagfirÖingabúÖ, Sauöárkróki. KEA -byggingavörur Lónsbakka Akureyri. KEA.Ðalvík. Kf. Þingeyinga, Húsavík. Austuriand: Sveinn Guömundsson, Egilsstööum. Stál, Seyöisfiröi. Verslunin Vík, Neskaupsstaö. Kf. FáskrúÖsfirÖinga, Fáskrúösfiröi. KASK, Höfn Suöurland: Kf. Rangæinga, Hvolsvelli. Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Brimnes, Vestmannaeyjum.Reykjanes: Stapafell, Keflavík. Rafborg, Grindavík. - BRÆÐURNIR I ŒMSSÖNHFi Lágmúla 8, Sími 553 8820 s
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.