Morgunblaðið - 12.10.1995, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 1995 ._________________________________________________________MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Landsfundur Alþýðubandalagsins hefst í dag
Urslit í formanns-
kjöri á föstudag
TÓLFTI landsfundur Alþýðu-
bandalagsins hefst kl. 17 í dag á
Hótel Sögu með ræðu fráfarandi
formanns Ólafs Ragnars Gríms-
sonar. Kl. 12 á hádegi á morgun
rennur út frestur til að skila at-
kvæðum í formannskjöri flokksins
og hefst þá talning atkvæða. Til-
kynna á úrslit í formannskjörinu
kl. 19 annað kvöld.
350-400 flokksfélagar í Alþýðu-
bandalaginu eiga seturétt á lands-
fundinum og er það meiri fjöldi
en nokkru sinni fyrr og stafar það
af fjölgun flokksfélaga í aðdrag-
anda formannskjörsins á undan-
förnum mánuðum, en um 3.500
manns hafa rétt til að greiða at-
kvæði um formann flokksins. Eng-
inn hefur enn lýst yfir framboði
til varaformanns en kosning vara-
formanns, gjaldkera og ritara og
kosning framkvæmdastjórnar fer
fram eftir hádegi á laugardag.
Kosið verður til miðstjórnar og
ályktanir landsfundar afgreiddar
á sunnudag.
Á landsfundinum fer fram sér-
stök umræða um fjóra málaflokka;
atvinnu og lífskjör, framtíð vinstri
hreyfingar, starfsemi sveitarfé-
laga og ofbeldishneigð og vímu-
efnavanda. Landsfundinum lýkur
síðdegis á sunnudag.
■ Spenna/29
Kauptilboð í þrota-
búSilfurlax
BÚSTJÓRI þrotabús hafbeitar-
stöðvarinnar Silfurlax í Hrauns-
firði hefur fengið kauptilboð í búið
frá ótilgreindum norskum aðilum,
en Silfurlax var lýstur gjaldþrota
í síðasta mánuði með heildarskuld-
ir upp á 500 milljónir króna.
Bústjórinn, Ásgeir Magnússon
hdl., staðfesti í samtali við M vrg-
unblaðið í gærkvöldi að tilboð
væri komið inn á borð. Hann sagði
ótímabært að greina frá því hvaða
aðilar væru á ferðinni og ekki
væri hægt að svo stöddu að segja
til um gæði tilboðsins.
„Þetta er búið að liggja í loft-
inu. Þessir norsku aðilar hafa ver-
ið hér á landi síðustu daga og
skoðað gögn og búnað Silfurlax.
Við höfum vonast eftir því að fá
bitastætt tilboð frá þeim og nú
munum við meta hvort að hér sé
hagstætt tilboð á ferðinni," sagði
Ásgeir.
Þrír slasast í bílveltu
FÓLKSBÍLL valt á Rangárvalla-
vegi skammt frá gatnamótunum
við hringveginn i gærmorgun og
var ökumaður bílsins fluttur á
slysadeild í Reykjavík vegna
meiðsla sem hann hlaut á höfði.
Að sögn lögreglunnar á Hvols-
velli slösuðust tveir farþegar sem
í bílnum voru minna, en þeir hlutu
einhveijar skrámur.
Talið er að ökumaður bílsins
hafí misst stjórn á honum þegar
hann lenti í lausamöl í kanti vegar-
ins.
Morgunblaðið/Silli
„Leist
ekkert á
blikuna“
„ÉG HÉLT að þetta myndi allt
gerast í rólegheitunum og þetta
var því heilmikil lífsreynsla,“
segir Vigdís Sigvarðardóttir,
sem fæddi fjórtán marka stúlku-
barn í bíl á Tjörnesi aðfaranótt
þriðjudagsins. Vigdís og eigin-
maður hennar, Sigurður
Tryggvason, búa á Lyngási í
Kelduhverfi og óku þau afstað
til Húsavíkur um nóttina. Á leið-
inni komu þau við á næsta bæ,
Hóli, þar sem Hrefna María
Magnúsdóttir, fyrrum ljósmóðir
og móðir Sigurðar, býr og slóst
hún með í förina. Dóttirin litla
beið þess hins vegar ekki að
koma til Húsavíkur, heldur fædd-
ist á miðju Tjörnesinu. Þær
mæðgur dveljast nú á sjúkrahús-
inu á Húsavík og heilsastbáðum
ljómandi vel, að sögn Vigdísar.
„Mér leist ekkert á blikuna í
byijun þegar ég fór að gera mér
grein fyrir að þetta ætlaði að
gerast, en svo var bara ekki tími
til að velta sér neitt upp úr því.
Maður ákvað bara að takast á
við þetta og þetta gekk allt mjög
vel, en hún var fljót að koma í
heiminn,“ sagði Vigdís.
Miðstjórn Alþýðusambandsins ósátt við stefnu stjórnvalda
Mótmælir fjárlagafrum-
varpi og búvörusamningi
MIÐSTJÓRN Alþýðusambands ís-
lands hefur sent frá sér ályktanir
þar sem þeirri efnahagsstefnu sem
ríkisstjórnin hefur sett fram í fjár-
lagafrumvarpinu fyrir árið 1996 er
mótmælt, og harmað að sú víðtæka
sátt sem náðist á árinu 1990 um
stefnumörkun í landbúnaði skuli hafa
verið rofín af stjórnvöldum og bænd-
um.
Miðstjórn ASÍ telur óhjákvæmilegt
að líta á áherslumar í stefnu ríkis-
stjórnarinnar sem hreina ögrun við
launafólk og að stjórnvöld séu að
efna til harðrar deilu um efnahags-
stefnuna, kjörin og velferðarkerfíð.
í ályktuninni segir að ekkert þeirra
markmiða sem lögð hafí verið áhersla
á í kjarasamningum ASÍ og lands-
sambanda innan þess á undanfömum
árum, sem forsendu fyrir því að sátt
geti ríkt um efnahagsstefnuna, hafí
verið haft að leiðarljósi við gerð fjár-
lagafrumvarpsins.
„Miðstjórn ASÍ telur því að stjórn-
völd hafí með þeirri stefnumörkun
sem í fmmvarpinu felst vikið alvar-
lega frá fyrri yfirlýsingum um að-
ferðir og aðgerðir til þess að nýta
hinn meinta efnahagsbata til þess
að efla hér atvinnustigið og að bæta
kjör þeirra sem lakar em settir í þjóð-
félaginu. Framferði stjómvalda hlýt-
ur að framkalla hörð átök á vinnu-
markaði og lýsir miðstjórn ASÍ fullri
ábyrgð á framvindu mála á hendur
ríkisstjórnar og Alþingis", segir orð-
rétt í ályktuninni.
Þátttöku ASÍ hafnað
í ályktun miðstjómar ASÍ um
búvörusamninginn segir m.a. að
hann sé alfarið gerður af stjórnvöld-
um og samtökum bænda og beri
þessir aðilar því einir fulla ábyrgð á
framkvæmd hans og afleiðingum.
Þátttöku ASÍ í stefnumörkun í
landbúnaði hafi verið hafnað og
þannig hafi helstu forsendum verið
kippt undan störfum fulltrúa ASÍ í
verðlagsnefndum landbúnaðarins.
ASÍ verði því óhjákvæmilega að end-
urmeta ákvarðanir um þátttöku sam-
takanna í þessum nefndum.
Vanská gagnrýnir tónlistardagskrárstjóra í bréfi til útvarpsstjora
Dla faríð meðsinfóníu-
hljómsveit Islands
Guðmundur Emilsson vísar ásökunum á bug
UPP er komin deila milli Osmos
Vánská, sem stjórnað hefur Sinfón-
íuhljómsveit íslands undanfarin tvö
ár, og Guðmundar Emilssonar, tón-
listardagskrárstjóra útvarpsins, í
kjölfar keppni ungra tónlistar-
manna, sem lauk með tónleikum í
beinni útsendingu á laugardag.
Vánská krefst þess að Heimir
Steinsson sjái til þess að Guðmund-
ur hafi ekki frekari afskipti af sin-
fóníunni. Guðmundur sakar Vánská
um að hafa haldið forseta íslands,
sem afhenti sigurvegara keppninn-
ar verðlaun, í gíslingu meðan á
lokatónleikunum stóð.
Vanská skrifaði útvarpsstjóra
bréf á mánudag þar sem hann sak-
ar Guðmund, sem sat í undirbún-
ingsnefnd keppninnar ásamt Hall-
dóri Haraldssyni, skólastjóra Tón-
listarskóla íslands, og Erik Bach,
skólastjóra tónlistarháskólans í
Árósum, um gerræðisleg vinnu-
brögð og að hafa komið sér í dóm-
nefnd keppninnar í sinn stað.
Guðmundur sagði í gærkvöldi að
þessar ásakanir væru tilhæfu-
lausar. Seta hans í dómnefndinni
hefði verið neyðarúrræði. Þegar
finnskur dómari veiktist skömmu
áður en keppnin hófst hefði átt að
fá Vánská til að taka sæti hans,
en hann hefði verið erlendis .og
ekki náðst í hann í tæka tíð.
Vánská sagði í samtali við Morg-
unblaðið seint í gærkvöldi að engin
tilraun hefði verið gerð til að ná í
sig. Hann væri með farsíma, sem
alltaf væri hægt að ná í sig í, en
það hefði ekki verið gert.
Vánská gagnrýndi í bréfi sínu
að hljómsveitarverk eftir Sibelius
hefði ekki verið hluti beinnar út-
sendingar frá lokatónleikunum.
Guðmundur sagði að vegna þessa
hefði hann hótað að stjóma ekki
tónleikunum nema Vigdís Finn-
bogadóttir forseti yrði viðstödd alla
tónleikana.
Vánská sagði í samtalinu að
ástæða bréfsins væri sú að Guð-
mundur hefði farið illa með hljóm-
sveitina. „Ætlunin var að keppend-
urnir þrír fengju að spreyta sig,
verk Sibeliusar yrði flutt á meðan
dómnefndin kæmist að niðurstöðu
og því næst afhenti forsetinn verð-
launin,“ sagði Vánská. „En skyndi-
lega átti keppnin og verðlaunaaf-
hendingin að eiga sér stað í beinni
útsendingu og síðan yrði leikið stutt
hljómsveitarverk. Þá var í raun allt
afstaðið og engin ástæða til að leika
verkið. Þetta olli hljómsveitinni
miklum vonbrigðum."
Vánská sagði að hann hefði ver-
ið að hugsa um að stjórna ekki tón-
leikunum og hann hefði sett fram
þá kröfu að Vigdís Finnbogadóttir
sæti út tónleikana. „Þegar ég vissi
að hún yrði áfram höfðum við ærna
ástæðu til að ljúka tónleikunum,“
sagði Vánská.
■ Stjórnandi biðst/28
Víkingalottó
Sjö unnu
en enginn
á Islandi
SJÖ skiptu með sér 1. vinningi
í Víkingalottóinu í gærkvöldi,
en enginn vinninganna rataði
hins vegar til íslands. Tvær
vinningsraðanna voru keyptar
í Danmörku, þijár í Noregi og
tvær í Svíþjóð, og fær hver
vinningshafanna tæplega 6,6
milljónir króna í sinn hlut.
Vinningstölurnar í gær-
kvöldi voru 2, 5, 9, 19, 29 og
32, og bónustölurnar voru 4,
24 og 36. Enginn á íslandi var
með fimm tölur réttar og bón-
ustölu, o£ flyst því vinnings-
upphæðin, 1.320.548 kr. til
næsta útdráttar, en tveir voru
með fimm tölur réttar og fá
þeir 108.080 kr. hvor. Alls var
heildarupphæð vinninga í Vík-
ingalottóinu í gærkvöldi
48.081.768 kr. og í hlut íslend-
inga komu 2.021.768 kr.
1