Morgunblaðið - 12.10.1995, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 12.10.1995, Blaðsíða 26
26 FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ BILATRYGGINGAR ÖKUTÆKJATRYGGINGAR Tjónahlutfall í bílatryggingum 1994 Tjón ársins sem hlutfall af iögjöldum ársins í^MtmVlS Sjóvá-Alm. Trygg.miðst. Trygging Skandia 95,1% 99,9% | 100,4% | 100,3% 99,4%\ MEÐALTAL: I Tjónahlutfall í Evrópu Hlutfall af iðgjöidum 1993 Sviss Bretland Portúgal Grikkland Spánn Austurríki Ítalía Finnland Noregur Holland írland Belgía Frakkland Þýskaland ísland Svíþjóð 65,5% 71,3% 73,0% 76,9% 78,5% I 78,6% 1 79,3% | 84,1% L 84,4% | 84,6% f 88,9% | 93,2% | 94,1% % 98,9% | 99% | 113% hærri sums staðar, til dæmis 18% í Frakklandi, 27% í Belgíu og 50% í Danmörku. Sá samanburður sém settur er upp í þessari grein og áður í könn- un FÍB hefur verið reyndur víðar, sérstaklega eftir að farið var að samræma reglugerðir og auka möguleika tryggingafélaga á að bjóða þjónustu sína í öðrum lönd- um Evrópska efnahagssvæðisins. Samband evrópskra tryggingafé- laga varar hins vegar eindregið við samanburði með einstökum dæmum, segir að slíkt geti leitt til villandi niðurstöðu. Hafa þurfi í huga tvö grundvallaratriði. Ið- gjalda- og bónuskerfi séu mjög mismunandi milli landa og milli félaga innan sömu landa, það er að segja hvernig kostnaði við tjón og rekstur trygginganna er deilt niður á áhættuflokka. Þá sé áhætt- an afar mismunandi, en hún ræðst af tjónakostnaði, bótareglum og fleiru. Sakarregla á Norðurlöndum { könnum Morgunblaðsins var spurt um ýmis atriði sem skipta máli við þá vátryggingavemd sem iðgjaldagreiðendur eru að kaupa. Misjafnlega góðar upplýsingar fengust um þessi atriði. Ljóst er þó að íslendingar búa við áþekkt fyrirkomulag og aðrir Norður- landabúar en meiri munur er á reglunum í öðrum Evrópuríkjum. I íslensku umferðarlögunum er mælt fyrir um fortakslausa bóta- skyldu, svokallaða hlutlæga ábyrgð eða ábyrgð án sakar. í slíkri ábyrgð felst að skaðabóta- skylda er fyrir hendi þótt slys verði ekki rakið til ámælisverðrar hátt- semi eða óvarkárni ökumanns bif- reiðar sem veldur tjóni. Sem dæmi um þetta má nefna að slasist til dæmis gangandi vegfarandi af völdum bifreiðar greiðir trygg- ingafélag bifreiðarinnar honum fullar bætur, óháð því hvort hann eigi sök á slysinu sjálfur. Þessi regla gildir á öllum Norðurlöndun- um og í fleiri ríkjum. í sumum öðrum ríkjum Evrópu er stuðst við almennar skaðabóta- reglur, svokallaða sakarreglu, eða sakarlíkindareglu. Er tjóni þá skipt í hlutfalli við sök. Það þýðir að til dæmis gangangi vegfarandi getur þurft að bera tjón sitt að hluta eða öllu leyti ef hann er talinn eiga sök á slysinu. Vitað er að sakar- regla, sakarlíkindaregla eða önnur afbrigði gilda í Englandi, Frakk- Kaupmannahöfn Bílasal- arnir bjóða tryggingar S AMKEPPNI milli dönsku trygg- ingafélaganna er geysihörð. I bílatryggingunum kemur hún helst fram í því að við bílakaup á kaupandi kost á ýmsum góðum tilboðum. Bílasalar eru í slagtogi við tryggingarfélögin og bjóða tryggingar til sölu, um leið og bílana. Nýlega hugði kunningjafólk mitt á bílakaup. Þau áttu ekki bíl fyrir og höfðu í fyrstu hugsað sér að kaupa notaðan en fremur nýlegan bíl. Þau sáu hins vegar fljótt að hvað tryggingarnar snerti, borgaði sig mun betur að kaupa nýjan bíl. Þau spurðust fyrir um bíl hjá bílasala nokkr- um, sem sendi þeim þá upplýs- ingar um bílinn. Með þvi fylgdu þær upplýsingar að ef tekið væri lán fyrir bilnum í gegnum ákveð- ið fjármögnunarfyrirtæki feng- ist líka trygging á mjög hag- stæðu verði. Ef bílakaupandinn var orðinn 23 ára gafst honum kostur á húftryggingu með 35 þúsund króna sjálfsábyrgð. Iðgjaldið var miðað við að hann hefði keyrt tjónlaust, jafnvel þótt hann hefði ekki áður átt bíl. Iðgjaldið er 34 þúsund krónur islenskar á ári fyrir bíla, sem kosta undir 2,1 milljón kr. Við skaða hækkar iðgjaldið ekki, en sjálfsábyrgðin hækkar eftir 3. Ijón. Hjá bílaumboðunum tíðkast að bjóða einhvers konar trygginga- pakka sem innifelur þjónustuvið- hald. Þannig er hægt að kaupa nýjan bíl og borga fyrir trygg- ingu og viðhald í þijú ár 246 þúsund krónur af ódýrari bílum. Þjónustuviðhaldið felur í sér helsta viðhald, svo sem olíuskipti en einnig minniháttar bilanir eins og brotnar rúðuþurrkur. Við bilakaup hér er því að mörgu að huga, þegar trygging- ar eru annars vegar og úr mörgu að velja. Tryggingar virðast ekki vera dýrar hér, en hins vegar er mjög dýrt að tryggja bíl á erlendu númeri, ef einhveijir ís- lendingar skildu hugsa sér að koma hingað með bíl ogtryggja. Sigrún Davíðsdóttir iandi, írlandi, Þýskalandi, Belgíu og Sviss. Skiptingin er ekki hrein í öllum tilvikum, þannig er sums staðar byggt á mati á aðstæðum. Víða ótakmörkuð bótafjárhæð Vátryggingafjárhæðir eru nokkuð mismunandi milli landa. Samkvæmt umferðarlögum á ís- iandi eru hámarksbætur vegna slyss á fólki af völdum bifreiðar 447 milljónir kr. í hvert skipti og til viðbótar greiðast allt að 105 milljónir vegna eignatjóns. Sam- kvæmt upplýsingum tengiliða Morgunblaðsins er bótafjárhæð víða ótakmörkuð í heild í ná- grannalöndunum, þótt oft sé sett hámark á bætur til sérhvers ein: staklings og vegna eignatjóns. í Danmörku eru hámarksbætur vegna hvers slyss tæpar 800 millj- ónir kr. og 164 milljónir kr. vegna munatjóns en hámarksbætur í Svíþjóð eru tæpir 3 milljarðar. í Noregi og Finnlandi er bótafjárhæð ótakmörk- uð í slysatjónum en 20 milljóna kr. hámark á munatjón í Noregi. í Bretlandi og á ír- landi er slysatjón ótakmarkað en 25 milljóna kr. hámark á munatjón í Bretlandi og 8 milljónir í írlandi. í Sviss er 170 milljóna kr. há- marksbætur í heild, þó þannig að slysabætur hafa forgang og eigna- tjón bætist með því sem þá kann að vera eftir. Almenn vátrygg- ingafjárhæð er alls 80 milljónir í Hollandi. Þjóðveijar hafa þær reglur að hámark slysatjóns er 45 milljónir kr. en hækkar í 67 milljónir ef fleiri en einn slasast í einu. Munatjón er þar bætt allt að 18 milljónum kr. Fjárhæð vátryggingar hefur þá þýðingu að ef hún dugar ekki fyr- ir öllu tjóninu í viðkomandi slysi gæti hinn slasaði átt það á hættu að fá tjón sitt ekki að fullu bætt. Umræddar fjárhæðir eru almenn- ar vátryggingafjárhæðir sam- kvæmt umferðarlögum viðkom- andi landa, sú trygging sem allir verða að kaupa. Það kom í ljós í könnun Morgunblaðsins að sum tryggingafélög miða verð sitt við hærri fjárhæðir en hér hafa verið nefndar. Hlutfall tjóna af iðgjöldum Ýmsar aðferðir hafa verið farn- ar til að bera saman iðgjöld milli landa, aðrar en að bera saman tilbúin dæmi, og segir hver aðferð sína sögu. Samband evrópskra tryggingafélaga gefur árlega út yfirlit yfir bíla- tryggingar. Þar er heildariðgjöldum í ökutækja- tryggingum meðal annars deilt á alla bíla í viðkomandi löndum. Af átján löndum í slíkum saman- burði fyrir árið 1993 eru iðgjöldin lægst á hvern bíl í Grikklandi, 13 þúsund krónur, og hæst í Sviss, 56 þúsund kr. íslendingar greiða sem svarar 40 þúsund kr. UMFERDIN P a r í s Hálfir út um bílgluggann ALVARLEGUSTU slysin verða á hraðbrautum umhverfis París. Inni í borginni er meira um skrámur og æsing. Umferðin er afar þung fyrst á morgnana sér- staklega, sem og síðdegis, og al- _ gengt er áð sjá menn hálfa út um bílglugga æpandi á næsta bíl- stjóra. Bílflautur eru undirspil mann- lífsins virka daga og kveður svo að ati í umferðinni að íbúðaverð miðast að hluta við það. Þrengsli lýsa aðstæðum bílstjóra í París prýðilega og ókunnugum finnst ótrúlegt hvernig umferðin flýtur áfram þrátt fyrir allt, sveigjur teknar af vana svo litlu má skeika. Þórunn Þórsdóttir Tiibingen Bílarnir útilokaðir TUBINGEN í Þýskalandi er dæmigerð háskólaborg. Fólk á reiðhjólum er áberandi og mikið af lyólabrautum. Sterk hreyfing er fyrir því að takmarka bílaumferð og búið er að loka stórum hluta gamla mið- bæjarins. Fólk virðir umferðar- reglur. Helgi Þorsteinsson Lúxemborg Lítið svínað ámann MIKIÐ er um umferðarslys í Lúx- emborg. Oft er það vegna ölv- unaraksturs eða hraðaksturs á mjóum og hlykkjóttum sveitaveg- um. Aðalslysatíminn er um helg- ar, á föstudags- og laugardags- kvöldum. Þrátt fyrir mikla umferð eru bílstjórar nær undantekningar- laust mjög tillitssamir og lítil hætta á að það sé svínað fyrir mann. Einnig er töluvert fylgst með hraðakstri með ratsjármæl- ingu en þó mætti gera meira af því. Linda Kristín UagTiarsdóttir Lo n d o n Umferðarteppa um nótt MIKIL bílamenning er í London, ekki síst vegna þess að íhalds- stjórnin hefur leyft almennings- samgöngum að drabbast niður. Sú mikla aukning sem orðið hefur á umferðinni undanfarin ár veld- ur áhyggjum, bæði vegna meng- unar, og einnig vegna þess að stíflur verða, ekki bara á annatím- um heldur hvenær sem er, dag og nótt - ég hef setið í umferðar- teppu á Piccadilly Circus klukkan eitt að nóttu! Bretar hafa alltaf talist tillits- samir og kurteisir í umferð og eru það reyndar enn, en að sjálf- sögðu er orðin miklu meiri streita og pirringum í ökumönnum nútil- dags - og þar af leiðandi meiri slysahætta. Einnig er mikiil skort- ur á stæðum fyrir allan þennan bílafjölda, sem leiðir til þess að menn eiga það til að skrapa og skemma sínar eigin og aðrar bif- reiðir þegar þeir eru að reyna að bora sér inn í allt of lítið stæði. Samt eru Lundúnabúar yfir höfuð miklu betri bílstjórar en Reykvíkingar - ökuprófið er miklu strangara og umferðin meira krefjandi. Islendingar sem hingað flytja þurfa oft að læra að aka alveg upp á nýtt. Birna Helgadóttir ÖKUTÆKJATRYGGINGAR Verð á bifreiða- tryggingum í Evrópu Eigandinn 42 ára skrifstofumaður. Ekið tjónlaust í 10 ár. Kona hans á sama aldri og 18 ára sonur aka einnig. Akstur 15.000 km á ári. Eigandinn 23 ára, ekið tjónlaust frá 17 ára aldri. 15.000 km/ári. Bíllinn: Toyota Corolla 1300, Bíllinn: Volvo 850, 2000, árg. 1994, 4 dyra, sjálfskiptur Bíllinn: Toyota Corolla 1300, árg. 1994,4 dyra, beinskiptur Borg: Trygg.félag: Lögboðin ábyrgðartrygging Lögb. ábyrgðartr. og húftrygging (kaskó) að auki Lögboðin ábyrgðartrygging Lögb. ábyrgðartr. og húftrygging (kaskó) að auki Lögboðin ábyrgðartrygging Lögb. ábyrgðartr. og húftrygging (kaskó)að auki Reykjavík vís 31.798 kr. 52.505 kr. 34.061 kr. 62.748 kr. 48.452 kr. 73.033 kr. Stokkhólmur Skandia 6.587 kr. 18.805 kr. 8.804 kr. 32.972 kr. 9.991 kr. 35.309 kr. 1 Gautaborg Folksam 5.732 kr. 26.248 kr. 7.608 kr. 46.055 kr. i • ' " 1 Osló Uni-Storebrand 16.459 kr. 35.081 ÍO 18.272 kr. 45.371 kr. 34.196 kr. 80.688 kr“Í Helsinki Pohjola 16.429 kr. 34.892 kr. 21.312 kr. 52.347 kr. 16.429 kr. 34.892 krTl Helsinki Fennia 13.373 kr. 55.411 kTj 17.259 kr. 58.995 kr. 13.373 kr. 56.196 kr. i Kaupmannahöfn Tryg Danica 19.738 kr. 37.931 kr. 20.533 kr. 50.380 kr. '1 Tubingen, Þýs. Allianz 20.316 kr. 41.150 kr. 24.116 kr. 59.891 kr. 20.316 kr. 41.150 kr. 1 París GMF 19.781 kr. 51.994 kr. 44.894 kr. 144.035 kr. - T Lúxemborg Le Foyer 17.655 kr. 70.1300 23.861 kr. 109.239 kr. 17.655 kr. 78.956 kr. Zúrich Wintherthur 17.939 kr. 49.969 kr. 1 - T - - j London Swinton 40.494 kr. 85.476 kr. - 85.476 kr. _ Dirpntlinfi- 48 407 kr London ALS - 187.272 kr. - 225.216 kr. Amsterdam Delta Loyd 16.321 kr. 40.135 kr. 43.983 74.318 kr. F 58.604 132.921 kr. Verðleggja sig eftir áhættunni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.