Morgunblaðið - 12.10.1995, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 12.10.1995, Blaðsíða 38
38 FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 1995 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ Bróðir minn, HJÖRLEIFUR ZOFONÍASSON kennari og organisti frá Læk í Dýrafirði, sfðar búsettur í Hafnarfirði og Ange í Sviþjóð, andaðist laugardaginn 30. september. Útförin fer fram frá Borgsjökirkju föstudaginn 13. október. Fyrir hönd aðstandenda, Jón Zofoníasson. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, PÁLL ÖGMUNDSSON bifreiðastjóri frá Sauðárkróki, til heimilis á Skúlagötu 80, lést í Borgarspítalanum 10. október. Útförin auglýst síðar. Halla Sigurðardóttir, Hreinn Pálsson, Stella Kristjánsdóttir, Elsa Pálsdóttir, Edvard Lövdahl, Guðmundur Guðbrandsson, Sigrún Grimsdóttir, Magnús Pálsson, Ingunn Vilhjálmsdóttir, Þorbjörg Guðbrandsdóttir, Theódór Magnússon, Kristín Pálsdóttir, Guðjón Guðiaugsson, Guðný Pálsdóttir, Sigurður I. Svavarsson, Páll Pálsson, Agnes Hrafnsdóttir, Kolbrún Pálsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Bróðir okkar, KRISTJÁN KRISTJÁNSSON, Laugateigi 19, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Áskirkju föstu- daginn 13. október kl. 13.30. Fyrir hönd aðstandenda, systkini hins látna. + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, dóttir, systir, mágkona og tengdadóttir, ÞÓRDÍS BJARNADÓTTIR, sem lést 5. október sl., verður jarðsung- inn frá Bústaðakirkju á morgun, föstu- daginn 13. október, kl. 13.30. Henrik G. Thorarensen, Gunnþórunn Arnarsdóttir, Ragnar Hilmarsson, Hulda Henriksdóttir, Gunnþórunn Björnsdóttir, Bjarni Guðbjörnsson, Björn Ragnar Bjarnason, Jóhanna Brynjólfsdóttir, Gunnar Þór Bjarnason, Jóhanna Einarsdóttir, Gunnlaugur Þórarinsson og fjölskyldur. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, MARGRÉT GUÐRÚN GÍSLADÓTTIR Ijósmóðir frá Fagurhóli, Grundarfirði, sem lést 6. október, verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði föstu- daginn 13. október kl. 13.30. Jarðsett verður í Hafnarfjarðarkirkju- garði. Runólfur Þorkelsson, Fjóla Þorkelsdóttir, Stefán Helgason, Gfsli Þorkelsson, Páll Þorkelsson, Klara Kristjánsdóttir, Lilja Þorkelsdóttir, Hulda Þorkelsdóttir, Guðrún Kristjánsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. ALBERT G UÐBRANDSSON + Albert Guð- brandsson var fæddur á Kambs- nesi í Laxárdal 20. október 1926. Hann lést á Vífilsstaða- spítala 1. sept- ember síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Frið- björg Eyjólfsdóttir og Guðbrandur Gíslason, sem bæði eru látin. Þau eign- uðust sex börn og var Albert fjórði í röðinni og sá fyrsti sem kveður. Systkin hans eru: Gísli, Ólafur, Sigurður, Eyjólf- ur og Áslaug. 20. október 1950 kvæntist Albert Ingibjörgu Þórorms- dóttur, f. 24. maí 1928, frá Fáskrúðsfirði, en hún lést 4. nóvember 1991. Þeim varð fjögurra barna auðið. Þau eru: 1) Þórný, f. 1946, d. 1951. 2) Auður, f. 1948, gift Isleifi Péturssyni, starfsmanni Sam- einuðu þjóðanna í Sýrlandi, og á hún fimm börn: Albert Svan, Drífu Björk, Dagbjart Geir, Auði Ingu, Irisi Öldu og auk þess tvö stjúpbörn Gísla Kristin og Kristínu. 3) Þór Pálmi, f. 1952, við fram- haldsnám i Osló, var kvæntur Krist- ínu Lúthersdóttur og eiga þau tvo syni, Albert Inga og Árna Þór. 4) Árný, f. 1957, kórstjóri við Breiðholts- kirkju, gift Gísla Jónassyni sóknarpresti og eiga þau fimm börn, Ingibjörgu, Friðbjörgu, Margréti Ingu, Jónas Sturlu og Guðbrand Aron. Útför Alberts fór fram frá Fossvogskirkju 8. september. AÐ KVEÐJA náinn ástvin er ekki auðvelt. Fyrir tæpum fjórum árum kvöddum við móður okkar og nú kveðjum við föður okkar. í rúm 40 ár starfaði pabbi hjá „Shell gamla“ eins og við sögðum alltaf heima. Mínar elstu minningar eru í sam- bandi við kvöldbænimar mínar, en þá bað ég Guð að passa „Shell gamla“ að hann mætti lifa lengi því í barnshuganum var þetta gam- all maður. Það var kannski vegna þess að mamma sagði alltaf að hún væri viss um að pabbi færi í gröf- ina með „Shell garnla". Svo traust- ur var hann starfí sínu. Það voru honum erfíð spor er hann var látinn hætta störfum 66 ára að aldri og það á sama tíma og hann sá á eft- ir eiginkonu sinni. Nú er pabbi horfínn okkur og eftir sitjum við hnípin og með sorg í hjarta. Eftir að mamma dó höfum við pabbi búið saman og var það mér og fjölskyldu minni mikil gleði. Nú kynntist ég pabba á nýjan hátt, kynntist honum sem afa barnanna minna og það var hlutverk sem hæfði honum vel. Hann lék og spil- aði við þau og hafði alltaf tíma fyrir þau. Það varð mikil gleði hjá okkur í sumar þegar alnafni afa míns, Guðbrandur, fæddist. Aldrei held ég að ég hafi séð pabba stolt- ari en við skírnarathöfnina. Pabbi hafði mikla ánægju af garðyrkju og ber skikinn hans í Skammadal þess glöggt vitni, þar áttu mamma og pabbi sínar ánægjustundir. Þar voru sett niður tré og ræktaðar kartöflur. Nú er það okkar að taka við og rækta garðinn þeirra. Pabbi saknaði alltaf bamabarnanna sem búsett eru erlendis og það var hon- um mikil gleði þegar þau komu heim til íslands. Glaðastur var hann þegar öll fjölskyldan var saman- komin. En nú er hann farinn frá okkur og til fundar við mömmu sem hann saknaði svo sárt og Þórnýju sem þau misstu aðeins fimm ára gamla. Viljum við fá að þakka hon- um allar gleðistundimar sem hann veitti okkur og biðjum honum bless- unar Guðs. _ Árný og fjölskylda. Ég sá hann fyrst á benzínstöð Shell við Miklubrautina. Sennilega stafar það af einhverri sérvizku, en ég hef frá upphafi eingöngu keypt benzín hjá Shell, enda hafa mér fallið þau viðskipti vel. Starfs- menn félagsins eru sérlega liprir og þægilegir og það hefur sitt að segja, þótt viðdvöl á benzínstöð sé yfírleitt afar stutt hverju sinni. En út af því getur brugðið. Oft þarf að gjöra bílnum eitthvað til góða, mæla olíuna, mæla loftið í hjólbörð- unum og - á vetrum - gæta að, hvort frostlögurinn sé nægur, og spyrjast fyrir um færðina, er leiðin liggur út úr borginni. Ég fór yfírleitt á sömu benzín- stöðina - þessa við Miklubrautina - enda bjuggum við austarlega í borginni. Ég þekkti því í sjón flesta starfsmennina, er unnu þar. Einn þessara manna er mér sér- lega minnisstæður - yfírmaðurinn á einni vaktinni. Hann var fremur lágvaxinn og grannholda, sýnilega léttur á fæti - og léttur í lund - mér sýndist hann oftast í góðu skapi. Hann tók við greiðslu fyrir benzínið og var þá oft skrafhreyf- inn. Mér líkaði ágætlega við hann, en mér kom ekki til hugar þá, að við ættum eftir að kynnast náið og verða góðir vinir. Sú varð þó raunin á. Við hjónin eigum tvo syni. Er að því kom, að þeir fóru að líta í kringum sig eftir lífsförunaut, var það þeirra mál - ekki okkar - en óneitanlega höfðum við mikinn áhuga á, hvaða stúlka yrði fyrir valinu. Þegar þeir höfðu valið sér lífs- förunaut, kom að því mikilvæga augnabliki að þeirri „útvöldu" væri boðið að líta á væntanlega tengda- foreldra og - eins og allir vita, sem reynt hafa - tekur hjartað oft nokk- GUNNAR MAGNÚSSON + Gunnar Magnússon fædd- ist í Vestmannaeyjum 4. apríl 1928. Hann lést á Land- spítalanum 5. september síð- astliðinn og fór útför hans fram frá Oddakirkju 16. sept- ember. ÉG KYNNTIST Gunnari Magnús- syni fyrst þegar við urðum ásáttir um að ég tæki að mér störf í Ártún- um. Strax varð það ljóst að sam- vinnan gekk vel og vel fór á með okkur. Ég kem frá Póllandi og eftir stutta veru á íslandi var það mér, og síðar fjölskyldu minni sem átti viðdvöl á Islandi, mikið lán og hvatning að kynnast Gunnari og Sillu og stundimar eru eftirminni- .legar í starfí með þeim og öllum samskiptum við hjónin í Ártúnum. Það var ómæld ánægja fyrir mig,.konu mína og börn þegar þau gerðu okkur fjölskyldunni kleift að sameinast hér á íslandi og sam- veran í Ártúnum er eftirminnileg og ekki minnkaði gleði okkar þeg- ar dætur mínar sem höfðu ekki ur aukaslög við það tækifæri - hjá öllum fjórum jafnt. Oft reynist þá erfítt að halda uppi samræðum og ætli flestir verðandi tengdaforeldr- ar reyni ekki að forvitnast um ætt og uppruna stúlkunnar - eða pilts- ins - sem er að gjörast nýr fjöl- skyldumeðlimur þeirra? Þegar Gísli sonur okkar kom með unga stúlku heim og kynnti hana fyrir okkur - hún hét Árný og var Albertsdóttir - varð okkur að vonum starsýnt á ungu stúlkuna og eitthvað forvitnuðumst við um ætt hennar og uppruna. Þá man ég ekki betur en Árný segði við mig - glettin á svip: „Hann pabbi minn þekkir þig!“ Það kom mér á óvart, en er ég spurði hana nánar, kom í ljós, að hann var vaktformaðurinn, sem ég spjallaði mest við, á Shellstöðinni við Miklubraut. Næst þegar ég keypti benzín, varð viðdvölin lengri en áður, enda var nú fleira - og sýnilega mikilvægara - um að skrafa. Mörg ár eru liðin, síðan þetta var, og auðvitað urðu kynnin stöðugt nánari, er við urðum afar sömu barna - sem nú eru fímm. Fyrir nokkrum árum fluttu þau Albert og eiginkona hans - Ingi- björg Þórormsdóttir - mikilhæf myndarkona - í fjölbýlishúsið, þar sem Árný og Gísli bjuggu. Mikill harmur var kveðinn að fjölskyld- unni fyrir tæpum fjórum árum, er Ingibjörg andaðist skyndilega, og mér fannst Albert aldrei jafna sig til fulls eftir fráfall hennar. Eftir lát eiginkonunnar keyptu Árný og Gísli íbúð á hæðinni, þar sem Albert bjó og dyr voru opnað- ar á veggnum milli íbúðanna. Eftir það bjuggu þau öll í nánu sambýli eins og ein fjölskylda í stórri íbúð, báðum til gagns og gleði. Þannig gat Albert búið í skjóli dóttur sinnar og fjölskyldu hennar á ævikvöldi sínu, jafnframt því sem hann gat betur sinnt barnabörnum sínum og auðsýnt þeim umhyggju og kær- leika. Ingibjörg og Albert eignuð- ust fjögur börn, elstu dóttur sína misstu þau fímm ára gamla, en tvö eru búsett erlendis. Eftir að Albert var þannig kom- inn í sambýli við son okkar og tengdadóttur, urðu samfundir okk- ar margfalt fleiri en áður og ég kynntist honum vel. Hann var eink- ar ljúfur á heimili og aldrei heyrði ég hann skipta skapi eða hækka róminn, þó að bömin á heimilinu væm orðin fimm og gestagangur mikill. Kom þá vel í ljós, hve annt hann lét sér um bamabörnin, enda var Albert afí í miklu uppáhaldi hjá þeim öllum, sem von var. Sökn- uður þeirra er því sár. Ég get ekki hugsað mér betri afa en hann. Þessum fáum orðum var ekki ætlað að vera ævisaga Alberts Guðbrandssonar, en ég get ekki látið hjá líða að flytja honum kveðju og hjartans þakkir fyrir samfylgd- ina frá okkur hjónunum, og sér- stakar þakkir flyt ég honum frá barnabörnunum, sem mest hafa misst. Seinustu árin tók heilsa hans að bila og hann varð að hætta störfum fyrir aldur fram. Háði hann harða baráttu undir lokin, en hefur nú hlotið hvíld. Ég fel Albert í hendur Guðs og blessa minningu hans. Jónas Gíslason. verið heilsuhraustar bættu- heilsu sína á meðan á dvölinni stóð svo að nú er ekki líku saman að jafna. Öll kynni mín af Gunnari Magn- ússyni báru vott um góðmennsku, dugnað og umhyggjusemi ásamt kímni sem Gunnari var auðvelt að blanda hæfílega saman við. Nú þegar að leiðarlokum er komið í lífi Gunnars hugsa ég til þess að góður drengur er fallinn, ótímabært, en liðin tíð og góðar minningar verða eilífar og lifa með okkur og verða okkur gott vega- nesti. Fyrir hönd konu minnar, barna og mín sjálfs sendi ég Sillu, fjöl- skyldu hennar og ættingjum Gunn- ars innilegar samúðarkveðjur. Tadeusz Wiszniewski.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.