Morgunblaðið - 12.10.1995, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 1995 9
FRÉTTIR
Sparnaður í heilbrigðiskerfinu og lokanir geðdeilda
„LOKANIR geðdeilda í sumar,
sem kallaðar voru sparnaður,
bitnuðu mjög illa á sjúklingum.
Sumir þeirra voru sendir of
snemma heim, til að rýma fyrir
öðrum og náðu sér því ekki að
fullu. Aðrir þurftu að bíða vik-
um saman eftir þjónustu. Þegar
þeir loks komust að voru þeir
mjög veikir og meðferðin tók
því miklu lengri tíma en ella.
Sparnaðurinn var því enginn og
í raun er undarlegt að nefna
sparnað í þessu sambandi, því
þetta snýst um sjúklinga, fólk,
en ekki tölur á blaði.“
Þetta segja þijár konur, sem
allar hafa leitað til geðdeildar
Landspítalans. Þær óskuðu eftir
að fá að koma sjónarmiðum sín-
um á framfæri í tilefni alþjóða-
dags geðheilbrigðis, sem var á
þriðjudag, 10. október. „Það
heyrist aUt of sjaldan í þeim sem
nota þjónustu geðdeildanna og
við viljum bæta þar úr,“ segja
konurnar, sem óska nafnleyndar.
Konurnar segja allar að
starfsfólk ogþjónusta geðdeild-
arinnar sé til fyrirmyndar. Hins
vegar hefur sparnaðurinn bitn-
að á þeim. „f sumar var einni
deild lokað í sex vikur,“ segir
ein þeirra. „Þá var ég send heim,
allt of fljótt, sem leiddi til þess
að ég varð enn veikari en áður.
Þegar ég komst aftur inn á
deildina beið mín því lengri
meðferð og að sjálfsögðu dýrari
en ef ég hefði fengið að ljúka
meðferðinni upphaflega."
Óvinnufær svo vikum skipti
Önnur tekur undir þetta. „Ég
var óvinnufær vegna þunglynd-
is, en í þessum niðurskurði
verða læknar að meta hver þurf i
allra mest á hjálp að halda. A
meðan ég beið versnaði mér
stöðugt og ástandið var orðið
þannig að ég var algjörlega
óvirk heima. Loks greip systir
mín í taumana og ég fór til sál-
fræðings, sem lagði mig inn á
landspítalinn
GFODEIl „D
HUS 3 "LH
I a~|b' c LLi
« \ \ t
Snýst um
sjúklinga
en ekki töl-
ur á blaði
sjúkrahús. Þá var ég orðin mjög
veik og búin að missa öll tök á
raunveruleikanum. Svona mikið
þunglyndi er mjög hættulegt,
þar sem sjálfsmorðshugleiðing-
ar láta fljótt á sér kræla.“
Hún segir að eftir margra
vikna hjálp hafi hún smám sam-
an náð sér. Iðjuþjálfun hafi átt
stóran hlut í því. „Það trúir því
enginn, sem ekki hefur reynt,
hvað það er erfitt fyrir þung-
lyndissjúkling að gera einföld-
ustu hluti, en ef ég hefði fengið
hjálp fyrr þá hefði iðjuþjálfunin
ein kannski nægt, ásamt göngu-
deildarþjónustu. Þar sem ég
þurfti hins vegar að bíða svo
lengi eftir hjálp var ég orðin
mjög veik og þurfti að dvelja á
geðdeildinni í margar vikur.
Kostnaður heilbrigðiskerfisins
við það er auðvitað mikill, fyrir
utan að ég hafði ekki getað
stundað vinnu mjög lengi.“
Annar fylgifiskur sparnaðar-
ins er, að þegar deildum er lok-
að eru sjúklingar af ólíkum
deildum hafðir saman. „Þessir
sjúklingar eiga alls ekki heima
saman, þar sem vandamál þeirra
eru af mjög ólíkum toga,“ segja
konurnar. „Starfsfólkið er líka
fáliðað, en vinnur ótrúlegt
starf.“
Þriðja konan í hópnum segir
að hún haf i komist inn á geð-
deild án fyrirvara, eftir að sum-
arlokanir liðu hjá. „Ég get ekki
ímyndað mér hvernig hefði far-
ið fyrir mér, hefði ég ekki getað
leitað hjálpar strax. Iðjuþjálfun-
in kom mér aftur á skrið og ég
fékk einnig aðstoð félagsráð-
gjafa.“
Snertir marga
Konurnar þijár benda á, að
Iokanir geðdeilda vegna sparn-
aðar bitni ekki á lokuðum hópi
örfárra sjúklinga. „Stór hluti
þeirra, sem íeita sér hjálpar,
nær sér aftur á strik og þarf
ekki að leita til geðdeilda oftar.
Hins vegar er mikilvægt að fólk
fái hjálpina strax. Annað leiðir
til þess að veikindin versna og
bitna enn verr á sjúklingnum,
fjölskyldu hans og heilbrigðis-
kerfinu, því kostnaður við með-
ferðina eykst. Það mætti gjarn-
an efla dagdeildir, svo fólk geti
til dæmis leitað beint í iðjuþjálf-
un.“
Loks bæta konurnar þijár því
við, að geðfatlaðir eigi kost á
því að njóta svokallaðrar lið-
veislu. „Fatlaðir og geðfatlaðir
geta fengið einhvern í heim-
sókn, með sér í bíó eða leikhús
eða annað slíkt. Vegna fjár-
skorts er hins vegar ekki tekið
við fleiri skjólstæðingum fram
að áramótum."
Starfsmaður ráðinn til að sinna
reynslu hverfi í Grafarvogi
STARFSMAÐUR, Snjólaug Stefáns-
dóttir, hefur verið ráðinn til að vinna
að útfærslu á tillögu um að Grafar-
vogur og Borgahverfí í Reykjavík
verði eitt reynsluhverfi frá 1997.
Markmiðið er að samræma þjón-
ustu opinberra aðila eins og Félags-
málastofnunar, skólaskrifstofu,
fræðsluskrifstofu, Dagvist barna,
íþrótta- og tómstundaráðs, heilsu-
gæslu og lögreglu. Hugmyndin er
að stofna eina hverfaskrifstofu fyr-
ir starfsemina með einni yfirstjórn
þessara málaflokka.
Að sögn Láru Björnsdóttur félags-
máiastjóra Reykjavíkurborgar eru
allir aðilar, hverfasamtök, borgin og
yfirvöld heilbrigðismála og lög-
gæslu, áhugasamir um að koma
þessu reynsluhverfi á fót. Lára segir
að fleiri málaflokkar hafi verið
nefndir til dæmis málefni fatlaðra
og bókasafn.
Fá hverfin meira
sjálfstæði?
Hún segir að fundir hafi verið
haldnir með fulltrúum dómsmála-
og heilbrigðisráðuneyta. Formleg
afstaða þeirra verður ljós þegar
starfsmaðurinn hefur lokið störfum
eða 1. júlí 1996. Kosturinn við
reynsluhverfi, að mati Láru, er að
þjónustan yrði ekki lengur dreifð.
Samvinna stofnana yrði tryggð og
ekki væru lengur margar stofnanir
að vinna að sama málinu óháð hver
annarri. <
Lára Björnsdóttir segir að í fram-
haldi af þessu mætti kanna hvort
raunhæft sé að hverfi borgarinnar
fengju meira sjálfstæði.
. 4.390
takmai
magn,
Styttri opnunartími - lægri verð
Opid alla virka dagafrá kl. 12-18.30
laugardaga kl. 10-16.
Sendum í póstkröfu, s. 581 41
ÞORl’Il)
BORGARKRINGLUNNI
Þykkar, síðar peysur
Verð frá kr. 13.200
TESS
Opið laugardag frá kl. 10-14
- Verið velkomin -
neðst við °Pið virka ðaga
. . . kl. 9-18,
Dunhaga, laugardaga
sími 562 2230 kl. 10-14.
Rýmingarsala
a kjólutn
ELÍZUBÚÐIN
Skipholti 5
20% AFSLÁTTUR
Á TAKMÖRKUÐUM FJÖLDA VÉLA í SKAMMAN TÍMA
liibemo
ÞVOTTAVÉL GERÐ LV-158T
(Verð áður kr. 52.600,-)
Nú 42.080,- » 39.980,- stgr.
Láttu ekki happ úr hendi sleppa!
Tilboðið gildir aðeins meðan
takmarkaðar birgðir endast.
EURO/VISA raðgreiðslur án útb.
Frí heimsending - og við fjarlægjum
gömlu vélina þér að kosnaðarlausu.
IBERNA er góður kostur: Regnúða-vatnsdreifing * frjálst kerfis- og
hitaval * ullarkerfi * hraðþvottarofi * heitskolunarrofi * stillanleg
vinding 500/850 sn. * íslenskur leiðarvísir * Fönix ábyrgð og þjónusta.
iberno flokks /?anix
ÞVOTTAVÉLAR - l’URRKARAR frá HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SÍMI 552 4420
Barnaskór. Teg. 2332
St. 29-33. Litir: Blátt og rautt.
Kr. 1.495
Kr. 1.995
Loðfóðraðir barnakuldaskór. Teg. 9674.
St. 22-35. Litir: Rautt, brúnt og grænt.
Kuldaskór m/riflás. Teg. 571.
St. 28-39. Litir: Blátt og rautt.
Gönguskór. Teg. 7717.
St. 22-35. Litir: Grænt, blátt.
OpiOkl. 12-18.30.
Laugard. kl. 10-16.
ÞORPII)
Geirsbúð
BORGARKRINGLUNNI
Sendum í póstkröfu.
Simi 581 1290.
Tískufataefni - vetrarefni
• Nýjar sendingar í hverri viku.
• Flísefnaúrvalið aldrei meira.
• Teygjuflís og skyrtuflís nýkomin.
• Malden flís kr. 1.380 pr. m. og venjuleg kr. 890.
Qvirka °t“-
.'.Vv Mörkin 3 við Suðurlandsbraut. np laueard
Sími 568-7477 kl.10-14.’