Morgunblaðið - 12.10.1995, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 1995 11
FRÉTTIR
Menntamálaráðherra fagnar tillögu á danska
þinginu um framlag til dönskukennslu hér
Flutningsmaður væntir
víðtæks stuðnings
um í Reykjavík. Fé sem varið væri
til hótelbyggingar og reksturs í
Hafnarfírði væri því áhættufé í orðs-
ins fyllstu merkingu.
Enginn fæst til að kaupa
eða reka hótel
Á fundi bæjarráðs, 8. desember
1994, er lagt fram erindi frá Miðbæ
Hafnarfjarðar hf., þar sem óskað er
eftir að felld verði niður kvöð um
hótel, þar sem árangurslaust hafi
verið að leita eftir kaupanda eða
rekstraraðila að hóteli. Hugmyndin
væri að selja Sambandi ísl. fiskfram-
leiðenda tvær hæðir undir skrifstof-
ur, en samningar um sölu
væru á lokastigi. Óskað
var eftir stuðningi bæjar-
yfirvalda við að ná samn-
ingnum í höfn. Bæjarráð
samþykkti að fella niður
kvöðina og tók jafnframt jákvætt
undir hugmyndir um að Miðbær
Hafnarfjarðar hf. skoðaði síðar
byggingu hótels annars staðar í
miðbænum.
Bílakjallari boðinn til kaups
í lok apríl sl. var lagt fram í
bæjarráði erindi Miðbæjar Hafnar-
fjarðar hf., þar sem bæjarsjóði er
boðið að kaupa bílakjallara félagsins
við Fjarðargötu. Erindinu var vísað
til Miðbæjarnefndar. Á fundi bæjar-
ráðs 1. júní gerir Jóhann G. Berg-
þórsson grein fyrir störfum og at-
hugun Miðbæjarnefndar í bæjarráði
og lagði fram fundargerðir. Bæjar-
ráð samþykkir á þeim fundi að leita
til utanaðkomandi aðila [Sinnu hf.]
um ráðgjöf varðandi kaup bæjarins
á bílakjallaranum.
Hinn 8. júní 1995 er minnisblað
fjármálastjóra lagt fram í bæjarráði
ásamt bréfi frá Miðbæ Hafnarfjarð-
ar hf., þar sem meðal annars er
óskað eftir að bærinn samþykki veð-
setningu fyrir 6 millj. króna skulda-
bréfi vegna endurfjármögnunar og
skipulagningar. Sérstaklega er tekið
fram að jafnhliða verði að fara yfir
samskipti Miðbæjar Hafnarfjarðar
hf. og bæjarsjóðs. Þá er óskað eftir
heimild til að veðsetja eignarhluta
fyrir 9 millj. króna tryggingabréfi á
2. veðrétti, en á þeim hluta væri
baktrygging bæjarins fyrir gatna-
gerðargjöidum. Þessum liðum var
frestað en samþykkt að aflýsa 10
millj. króna tryggingabréfi, sem gert
var ráð fyrir að yrði aflétt þegar
lokið væri við uppsteypu 1. hæðar.
Fyrri greinargerð Sinnu
Hinn 14. júní er lögð fram í bæjar-
ráði fyrri greinargerð Sinnu hf. Vitn-
að er til þess að Miðbær Hafnarfjarð-
ar hf. hafi óskað eftir að bærinn
keypti bílakjallarann fyrir rúmar
116,4 millj. og lækkaði gatnagerðar-
gjöldin um rúmlega 8,1
millj. Fjárhagsstaða fyrir-
tækisins hafi verið könn-
uð og í ljós komið að árs-
uppgjör lægi ekki fyrir,
en samkvæmt gögnum
sem lögð voru fram væri áætlað
söluverð óseldra eignarhluta um 420
millj., án bílakjallara. Jafnframt
væri gert ráð fyrir að sala á tveimur
óseldum eignarhlutum til Sambands
ísl. fiskframleiðenda gengi eftir, en
kaupsamningurinn hefði ekki verið
staðfestur af stjórn SÍF. Skuldir
væru áætlaðar um 475 millj., þar
af væru skammtímaskuldir um 150
millj. og umtalsverður hluti þeirra í
vanskilum. Skuldir umfram eignir
væru um 55 millj., án tillits til
hugsanlegs söluverðs bílakjallara.
Fram kemur að félagið væri í
raun komið í greiðsluþrot og ekki
megnugt að ljúka framkvæmdum
miðað við óbreytta stöðu. Ef ekki
rættist úr með sölu á eignum félags-
ins eða einhver önnur fjármögnun
kæmi til, væri einungis tímaspurning
hvenær kröfuhafar gengju að félag-
inu og rekstur stöðvaðist.
Skuld við bæjarsjóð
rúmar 206 millj.
Samkvæmt upplýsingum frá bæn-
um skuldi Miðbær Hafnarfjarðar hf.
bæjarsjóði 206.735 þús kr. Jafn-
framt væru skuldabréfin sem bæjar-
sjóður væri í ábyrgð fyrir tryggð
með 1. veðrétti í sex
eignarhlutum. í skýrsl-
unni er fjallað um bíla-
kjallarann og þar kemur
fram að þegar ákvörðun
um byggingu hans hafi
verið tekin hafi bæjarráð
samþykkt að endurgreiða gatna- og
bílastæðagjöld að upphæð 50 millj.
gegn því að fyrirtækið byggði bíla-
geymsluna. í samþykkt sem allir
rekstraraðilar hafi skrifað undir
segði að eigendur bæru allan kostn-
að við rekstur kjallarans. Júlíus
Karlsson verslunareigandi, fyrir
hönd verslunareigenda, teldi hins
vegar að bærinn ætti að sjá um
reksturinn.
Bent er á að óljóst virtist hvort
fyrirtækið hefði leyfi til að leigja út
bílastæði. Einnig væri ljóst að aðilar
væru ekki sammála um hver ætti
að greiða rekstrarkostnaðinn. Loks
væri ekki sami skilningur á því hvort
kvaðir sem fylgdu kjallaranum féllu
niður eftir 15 ár auk þess sem Mið-
bæjarmenn teldu kvöðina ekki taka
til alls kjallarans eins og fram komi
í samþykkt bæjarráðs.
Kaup á bílakjallara nægja ekki
Niðurstaða ráðgjafanna var að ef
bæjarsjóður samþykkti án breytinga
umrædda beiðni um kaup á kjallara
þyrfti bæjarsjóður að greiða 8,4
millj., fella niður kröfur að fjárhæð
26 millj. og skila húsnæði, sem ætl-
að væri fyrir bókasafn, en það væri
metið á 36 millj., eða samtals 70,4
millj. Að auki yrði bæjarsjóður áfram
í ábyrgð vegna skuldabréfanna að
ljárhæð 145 millj. og loks væru
ógreidd gatnagerðargjöld 35,7 millj.,
eða samtals 180,7 millj. Bent var á
að vegna erfiðrar greiðslustöðu
fyrirtækisins og mikilla vanskila
nægði ekki að kaupa bílakjallarann
til að leysa fjárhagsvandann.
Skammtímaskuldir eftir viðskiptin
yrðu um 120 millj. að verulegum
hluta í vanskilum.
Þá segir: „Ef félagið fer í þrot
teljum við miklar líkur á að gatna-
gerðargjöld að fjárhæð 50 millj. inn-
heimtist ekki þar sem bæjarsjóður
hefur engar þinglýstar tryggingar
vegna þeirra og verða þau
því almenn krafa í þrota-
búið. Aðrar skuldbindingar
félagsins gagnvart bæjar-
sjóði eru tryggðar með
veðum í eignarhlutum í
Fjarðargötu 13-15. Eignarhlutimir
eru mikið veðsettir, sumir allt að
100% af áætluðu söluverði. Miklar
líkur eru á að bæjarsjóður þurfí að
leysa eignirnar til sín og selja þær
aftur með þeim kostnaði, fyrirhöfn
og óvissu sem því fylgir." í niðurlagi
skýrslunnar er tekið fram að um flók-
ið mál sé að ræða og óráðlegt að
tekin verði ákvörðun fyrr en fyrir
liggi áætlun um hvernig að yrði stað-
ið og lagt mat á þá valkosti sem
fyrir lægju. Bæjarráð samþykkti á
fundinum að fela Sinnu að vinna frek-
ari athugun á málefnum Miðbæjar-
ins.
MENNTAMÁLARÁÐHERRA segir
þingsályktunartilögu sem lögð hefur
verið fram í danska þinginu, þess
efnis að efla skuli dönskukennslu á
íslandi með 120 milljóna króna
framlagi á næstu fimm árum, vera
mikið fagnaðarefni. Hans Engell,
fyrsti flutningsmaður tiliögunnar,
kveðst álíta að frumvarpið fái víð-
tækan stuðning í danska þinginu.
„Vonandi verður tiliagan sam-
þykkt en það hlýtur að vera ákvörðun
Dana hvemig þeir ráðstafa fé á fjár-
lögum sínum,“ segir Bjöm Bjamason
menntamálaráðherra. Hann segir
ljóst að danska sé hvergi kennd í
heiminum með sama hætti og tíðkast
hérlendis og hafi Danir sýnt því mik-
inn áhuga að búa kennsluefni þannig
úr garði að það fullnægi nútímalegum
kröfum, auk þess sem til álita komi
framhaldsmenntun dönskukennara
og fleiri verkefni.
„Tillagan er sprottin af þeirri
ákvörðun íslendinga að danska verði
áfram fyrsta erlenda tungumálið
sem kennt er í íslenskum skólum og
Danir eru að bregðast við þeirri póli-
tísku ákvörðun með þessari ályktun.
Við getum því ekki annað en fagnað
viðbrögðum þeirra. Það er gleðiefni
hversu áhugi Dana er mikill, ekki
síður en margra hér á landi, á að
dönskukennsla verði áfram við lýði,
með þeim hætti að hún standist all-
ar kröfur sem til hennar eru gerð-
ar,“ segir Björn.
Hans Engell leiðtogi danska
íhaldsflokksins og fyrsti flutnings-
maður tillögunnar segir hugmyndina
sprottna upp af langvarandi kynnum
sínum af Islandi og íslendingum og
einnig þekki hann vel til umræðna
á íslandi um dönsku og dönsku-
kennslii.
Afgreitt fyrir jól
Enginn vafi er á því i huga Eng-
ells að frumvarpið eigi fylgi að fagna
á þingi, þar sem stjórnin sé á því
að það sé vel þess virði að styrkja
stöðu dönskunnar á íslandi. Frum-
varpið kemur til fyrstu umræðu á
næstunni og flutningsmenn hafa
áhuga á að það verði afgreitt í sam-
bandi við fjárlögin, sem samþykkt
verða fyrir jól.
Til sölu við
Hjallabraut
Mjög góð 3ja herb. íbúð á 1- hæð til sölu í fjölbýli, sem
nú hefur verið klætt að utan. Nýyfirbyggðar svalir að
hluta. Ný baðinnrétting. Nýslípað parket. Stutt íverslun
og þjónustu. Mjög góð eign á frábærlega góðu verði.
Upplýsingar hjá:
Valhús, sími 565 1122,
og eiganda, Kristínu, sími 568 2904.
Mikil áhætta
að leggja fé í
hótelrekstur
Áætlaðar
skuldir 475
millj.
>1104 U09