Morgunblaðið - 12.10.1995, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUÐAGUR 12. OKTÓBER 1995 13
LANDIÐ
Heilsuskór frá Skagaströnd
verða seldir í Þýskalandi
Ný tegund hagla-
skota á markað
Húsavík - Hlað sf. er fyrirtæki sem þrír ungir menn
á Húsavík stofnuðu fyrir 11 árum. Þeir hófu fram-
leiðslu haglaskota og hefur framleiðsla þeirra líkað
vel og aukist með ári hveiju svo nú munu þeir selja
um helming þeirra skota sem notuð eru í landinu.
Hlað sf. hefur hafið framleiðslu nýrrar tegundur
haglaskota sem nefnast „Patriot“. Þessi skot eru
með nýja Gordon system-demparanum og hlaðin
Diamond-höglum. Telja framleiðendur þetta byltingu
á íslenskum markaði þar sem skotin fara betur með
veiðimanninn og auka hæfni hans.
Við framleiðsluna vinna tveir eigendanna, þeir
Jónas Hallgrímsson og Trausti Gunnarsson, en hjá
Hlaði sf. er selt flest það sem skotveiðimennsku til-
heyrir og í verslun þeirra má sjá hvatninguna: „Góð-
Morgunblaðið/Silli
TRAUSTI Gunnarsson og Jónas Hallgrímsson,
tveir eigenda Hlaðs sf.
ir veiðimenn bera virðingu fyrir náttúrunni. Skiljið
ekki eftir tóm skothylki og/eða annað drasl.“
Skagaströnd - Skóverksmiðjan
Skrefíð hefur nú hafið útflutning á
Fet-heilsuskóm til Þýskalands. Þar
eru skórnir seldir í gegnum þarlend-
an pöntunarlista, „Pro Idee“, sem
dreift er um allt Þýskaland.
Að sögn Bryndísar Guðjónsdóttur,
framkvæmdastjóri Skrefsins, bindur
hún ákveðnar vonir við útflutninginn
en segir þó að auðvitað geti hann
brugðist til beggja vona. „Heilsu-
skómir hafa verið mjög vinsælir hér
á landi og nú eru farnar tvær send-
ingar til Þýskalands, um 1.000 pör.
Pro Idee hefur áður verið með ís-
lenskar vörur á lista og þama em
náttúrulega um gríðarlegan stóran
markað að ræða, markað sem er
tilbúinn að borga gott verð fyrir
góða og vandaða vöru.“
Verðið viðunandi
Að sögn Bryndísar er verðið sem
fæst fyrir skóna vel viðunandi. Fyrri
skósendingin, sem var 500 pör, var
send út í byijun september, eða um
svipað leyti og pöntunarlistinn kom
út í Þýskalandi. Nú nýverið kom
svo pöntun upp á sama magn og
Morgunblaðið/Ólafur Bemódusson
ÞÓR Arason við skósmíði í verksmiðju Skrefsins.
verður það að teljast góðs viti fyrir
Skrefið, þar sem skórnir hafa ekki
verið í sölu nema tæpan mánuð.
Árssala Skrefsins á skóm hefur
verið um það bil 9.000 pör, þannig
að útflutningurinn getur orðið veru-
leg lyftistöng fyrir fyrirtækið, verði
framhald á sölunni. í dag eru fimm
stöðugildi í skóverksmiðjunni en
stækkunarmöguleikarnir era miklir
ef nýir markaðir vinnast fyrir fram-
leiðsluvörarnar.
Morgunblaðið/Valdimar Guðjónsson
MAGNIJS Baldursson (t.v.) afhendir Andra Ástráðssyni á Eystri-
Hellnum árangur söfnunarinnar. Skólasystkinin í Gaulverja-
skola eru
Aldrei
jafn mikil
umferð
Eyrarbakki - Dagur iðn-
aðarins sl. sunnudag heppn-
aðist mjög vel á Eyrarbakka.
Veður var hið besta og fróð-
ustu menn telja að aldrei
hafi önnur eins bílaumferð
verið í þorpinu.
Á annað þúsund gestir
skoðuðu verksmiðju Alpan hf.
og margir fjárfestu.í potti eða
pönnu.
Um 500 manns skrifuðu
nafnið sitt í gestabók Húss-
ins, sem er hluti af byggða-
safni Árnesinga.
Öllum ber saman um að
dagurinn bafí verið hinn
ánægjulegasti.
baksýn.
Söfnuðu
fé handa
skólabróður
Gaulverjabæ - Andri Ástráðsson,
10 ára, á Eystri-Hellnum í Gaul-
verjabæjarhreppi missti allt sitt
í bruna 27. september sl. Ákváðu
skólasystkini Andra í Gaulveija-
skóla að safna fé handa honum
og afhentu þau honum afrakstur-
inn, 20.300 kr., á tröppum skól-
ans fyrir skömmu.
Krakkarnir fundu að sjálf-
sögðu til með Ándra að missa
allt sitt dót og persónulega muni.
Allir nemendur skólans voru með
í þessu myndarlega framtaki og
héldu allir þessu leyndu fyrir
honum, jafnt sex ára börnin sem
hin. Hlutavelta var haldin í hlöð-
unni á bænum Dalbæ og síðan
selt kaffi og meðlæti í eldhúsinu.
Andri þakkaði kærlega fyrir
sig. Hann sagði sér koma þetta
mjög á óvart og hann tryði þessu
varla.
og ENDINGARGOÐUR fatnaður fyrir káta krakka ca. 5-12 ára
mwií*
YSTI
VERSLANIR
UUGAVEGI51 - S. 551 -7717 - SKEIFUNNI19 - S. 568-1717
____________ Útsöluaðilar___________________
K-Sport, Keflovík Siglósport, Siglulirði
Nína, Akranesi Tóp og fjör, Egilsstöðum
Heimahornið, Stykkish. Við lækinn, Neskaupsstað
i-sport, ísafirði Orkuver, Höfn Hornofirði
Heilsuræktin, Souðórkr. 69, Vestmannaeyjum
Sportver, Akureyri Sportlíf, Selfossi
Fjölsport, Hafnorfirði
Litir: Ljósgrátt, dökkblátt,
Verð kr. 2.990.-
Litir: Ljósgrátt.dökkblátt,
rautt, dökkgrænt
Verð kr. 1.190.-
Litir: Ljósgrátt, dökkblátt,
rautt, dökkgrænt
Verð kr. 1.990.-
Litir: Ljósgrátt, dökkblátt
Verð kr. 2.700.-
Litir: Ljósgrátt, dökkblátt,
Verð kr. 2.290.-
Litir: Ljósgrátt.dökkblátt,
Verð kr. 1.150.-
WÍVW.T'I"
HETTUPEYSA RENND ' *. PEYSA T-BOLUR
HETTUPEYSA HEIL BUXUR §|§§||É STUTTBUXUR