Morgunblaðið - 12.10.1995, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 1995 37
STEINEY
KETILSDÓTTIR
+ Steiney Ketils-
dóttir (Sína)
fæddist í Hafnar-
firði 26. júní 1931.
Hún lést á Borgar-
spítalanum í
Reykjavík 4. októ-
ber síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru hjónin Anna
Kristinsdóttir, hús-
móðir, f. í Hafnar-
firði 29. júlí 1898,
d. 17. október 1983,
og Ketill Gíslason,
kaupmaður, f. í
Reykjakoti í Olfusi
28. janúar 1892, d. 4. mars 1970.
Systkini Steineyjar eru Krist-
inn, skrifstofumaður, búsettur
í Hafnarfirði, f. 5. apríl 1934,
Gísli, f. 21. júní 1938 (lést í
frumbernsku) og Vigdís, hús-
móðir, búsett í Garðabæ, f. 4.
september 1940.
Fyrri maður Steineyjar var
SÍNA tengdamóðir mín er nú látin
eftir löng og erfið veikindi. í byrjun
þessa árs versnaði henni mjög mik-
ið og var vart hugað líf, en svo
hjarnaði hún við og í sumar og fram
á haust var hún bara all hress. Sína
hafði búið sig vel undir lokin og tók
þeim af einstöku æðruleysi. Hún
gekk vel frá öllum sínum málum.
Sína var mjög vinamörg og má
með réttu segja að það hafi verið
fullt starf að sinna öllum vinkonun-
um. Það starf rækti hún með ein-
stakri prýði og hún naut þess að
vera innan um allar vinkonurnar
sínar. Það sem fólk tók strax eftir
í fari hennar var hversu listelsk hún
var. Hún hafði unun af klassískri
tónlist og lestri góðra bóka og þá
sérstaklega ævisögum. Það voru
ófáar bækurnar sem hún annað-
hvort gaf mér eða lánaði.
Sína var einnig mikið gefin fyrir
ferðalög og var þá Frakkland í sér-
stöku uppáhaldi. Hún hafði búið í
Frakklandi sem ung kona í nokkur
ár og tekið alveg sérstöku ástfóstri
við allt sem franskt var og var
bæði talandi og skrifandi á franska
tungu. Voru París og franska rivier-
an í miklu dálæti.
Hin síðari ár voru bamabörn
hennar, Valdís og Halldór Örn, sól-
argeislar í lífi hennar og þótti henni
mjög miður að fá ekki meiri tíma
með þeim. Sína trúði mjög á annað
lif og sagði að hún hlakkaði til að
hitta þau aftur í næsta lífi.
Sína var mjög kraftmikil og lífs-
Snorri Þorvaldsson
fiðluleikari og eign-
aðist hún með hon-
um einn son, Haf-
þór, f. 21. nóvember
1954, sem býr og
starfar á Selfossi.
Seinni maður henn-
ar var Halldór
Hjálmarsson, inn-
anhúsarkitekt og
eignaðist hún tvö
börn með honum,
Örn Þór, arkitekt,
f. 9. júní 1965, og
Önnu Margréti,
húsmóður, f. 29.
október 1966, í sambúð með
Ragnari Birgissyni. Börn
þeirra eru Valdís og Halldór
Órn. Halldór Hjálmarsson og
Steiney slitu samvistir.
Útför Steineyjar fer fram
frá Neskirkju í Reykjavík í dag
og hefst athöfnin klukkan
15.00.
glöð manneskja sem því miður
kvaddi þennan heim allt of ung og
alltof snemma. Við söknum hennar
sárt. Nú er komið að kveðjustund
og við óskum henni alls hins besta
í næsta lífi.
Ragnar.
Að kvöldi eins fegursta dags
haustsins kvaddi elskuleg vinkona
okkar, Steiney, þetta líf eftir harða
baráttu við illvígan sjúkdóm. Mörg
orrustan hafði unnist með hjálp
góðra manna, en'nú var komið að
leiðarlokum.
Fundum okkar bar fyrst saman
fyrir hartnær 40 árum, þegar við
ungar og hressar réðum okkur til
tímabundins verkefnis við gerð
nýrrar símaskrár hjá Pósti og síma.
Steiney var þá nýkomin frá heims-
borginni París þar sem hún hafði
búið um skeið með fyrri manni sín-
um, Snorra Þorvaldssyni fiðluleik-
ara, og syni þeirra Hafþóri. Hún
bar með sér andblæ stórborgarinnar
og var alla tíð mikill fagurkeri og
listunnandi, sérstaklega hafði hún
yndi af myndlist og klassískri tón-
list og átti gott plötusafn. Á mörg-
um ferðum erlendis naut hún þess
að skoða söfn og sækja tónleika.
Hún hafði dálæti á góðum bók-
menntum og las ógrynnin öll sér
til fróðleiks og ánægju. Steiney var
kjarkmikil kona, hlý og örlát. Hún
var gædd sterku aðdráttarafli og
sjaldgæfum persónutöfrum, já-
ARNIJAKOBSSON
+ Árni Jakobsson
var fæddur á
Siglufirði 27. júlí
1936. Hann lést í
Reykjavík 2. októ-
ber síðastliðinn.
Foreldrar hans
voru Þóra Guð-
mundsdóttir og
Jakob Jóhannes-
son. Bræður Árna
eru Jóhann, Þórar-
inn * og Sigurður.
Árni átti fimm
börn, þau eru:
Þóra, Sverrir, Birg-
ir, Haukur og Haf-
dís.
Útför Árna Jakobssonar fer
fram frá Fossvogskapellu í dag
og hefst afhöfnin klukkan
13.30.
VINUR minn, Árni Jakobsson, er
látinn.
Fram í hugann streyma minning-
ar um snjallan skákmann, traustan
skák- og mótstjóra, bridsspilara í
fremstu röð, mikinn keppnismann,
góðan ferðafélaga, útsjónarsaman
og hæfan ökumann, fengsælan
veiðimann, lipran vinnufélaga,
hvetjandi og hug-
myndaríkan æfinga-
stjóra, frábæran og
skemmtilegan stílista
og indælan mann á
góðum stundum. Þau
voru örlög hans að
verða snjall í, öllu.
Hvert nýtt verkefni var
honum áskorun um að
ná á því fullkomnum
tökum. Að lokum náði
hann líka fullkomnum
tökum á áfenginu sem
síðan fjötraði góðan
dreng í heljar böndum.
Um þessar mundir
er þriðjungur aldar síðan við kynnt-
umst. Þá voru hátíðir þegar við
Ragna Freyja og Árni og Jóna kom-
um saman heima og heiman.
Skemmtun okkar var gleðileg og
við áttum saman ævintýr. Við ferð-
uðumst á bílum okkar um fáfarnar
slóðir og þvert yfir hálendið jafnt
á sumri sem á vetri og myndavél-
arnar stóðu sig vel. Ein var þó sú
vetrarferðin að við vorum einir á
ferð í undursamlegri veröld og
myndavélin skilaði engri mynd en
að lokum varð ferðin okkur eilíf í
40 erinda ljóði.
kvæðni og léttri lund svo unun var
að vera í návist hennar, enda var
hún með afbrigðum vinsæl og vin-
mörg. Kæmum við hnípnar á henn-
ar fund nú síðustu mánuðina, tókst
henni ætíð að senda okkur heim
léttari í lund, smituðum af bjartsýni
hennar og kjarki.
Steiney sinnti ýmsum störfum
utan heimilis, en starfaði lengst af
hjá Pósti og síma, bæði í 03 og hjá
talsambandi við útlönd. Um árabil
stundaði hún verslunarstörf hjá
tískuversluninni Feldinum og síðar
hjá versluninni Álafossi, auk þess
sem hún rak sólbaðsstofu um skeið.
Steiney giftist öðru sinni Hall-
dóri Hjálmarssyni innanhússarki-
tekt og eignuðust þau tvö börn,
Önnu og Örn. Barnabörnin eru tvö,
Valdís og Halldór Örn, og voru sam-
verustundirnar með þeim bestu
stundir ömmu Sínu.
Vinahópurinn, sem í dag kveður
okkar elskulegu vinkonu, er stór.
Öll eigum við það sameiginlegt að
stórt skarð verður nú ófyllt í hjarta
okkar, en minningin um trygga vin-
konu og þakklæti fyrir allar okkar
ógleymanlegu samverustundir í ár-
anna rás, verðuir okkar huggun.
Önnu, Ragnari og börnum, Hafþóri
og Erni, sendum við og fjölskyldur
okkar einlægar samúðarkveðjur.
Hervör og Sigrún.
Úti er þetta ævintýr.
Yfiuskuggum kvöldið býr.
Vorsins glóð á dagsins vöngum dvín.
Þögnin verður þung og löng
þeim, sem unnu glöðum söng,
og trúað hafa sumarlangt á sól og vin.
(Tómas Guðmundsson)
í dag kveðjum við elskulega vin-
konu Steineyju Ketilsdóttur (Sínu)
hinstu kveðju.
Það er erfitt að þurfa að sætta
sig við að Sína skuli vera horfín
úr vinahópnum, því henni fylgdi
mikill lífsþróttur, umhyggja og
gleði sem allir hrifust af. Þegar
Sína kom í heimsókn til okkar á
Grenimelinn var eins og birti yfír
umhverfínu og léttir straumar fylltu
loftið.
Sína rak snyrtistofu og sólbaðs-
stofu í nokkur ár þegar hún bjó á
Grenimel 9. Sólbaðsstofan var
sannarlega kapituli út af fyrir sig.
Hún minnti einna helst á félagsmið-
stöð, þar var einatt margt um
manninn. Fólk kom í sólbað, settist
síðan niður og naut ljúfra veitinga
sem voru undantekningarlaust á
boðstólum. Enginn var að flýta sér
því það var alltaf svo gaman.
Þótt henni mætti margs konar
andstreymi í lífinu, kom hún alltaf
auga á björtu hliðamar á tilver-
unni, og var jafnan létt og kát í
daglegum samskiptum. Fólk laðað-
Árni hafði jafnan mörg járn í
eldinum. Hann rak fyrirtæki í iðn
sinni og hafði menn í vinnu. Samt
lét hann sig ekki rriuna um það,
þegar við hjónin vorum erlendis við
nám, að bæta því á sig að annast
öll okkar fjármál hér heima. Eftir
að hann hætti rekstri fyrirtækisins
vann hann víðar þar sem menn
komu saman - meðal annars fyrir
Skáksambandið. Hann átti stóra
fjölskyldu sem hann mat mikils,
kynntist fjölda manns í störfum sín-
um og áhugamálum og eignaðist
marga góða vini. Öllum var það
þungbært þegar hann sogaðist út
í hringiðu vínsins.
Líf Árna var kaflaskipt. Við sem
áttum með honum samleið hugsum
til hins ljósa kafla. Við kveðjum
þann góða dreng og vottum fjöl-
skyldu hans okkar innilegu samúð.
Þegar við lítum til baka eigum við
öll um hann ljúfar og ógleymanleg-
ar minningar sem við lyftum skírum
til vegs í gegnum mistur næstlið-
inna ára.
Gísli Ólafur Pétursson.
Crfisclrykkjur
A
'VeWA9tthð/ið
CAft-mn
Sími 555-4477
ist að Sínu. Hún hafði mikið að
gefa, kunni að samgleðjast öðrum
á góðum stundum eða létta þeim
byrðar ef á þurfti að halda. Vinum
og kunningjum tók hún opnum örm-
um á hlýlegu heimili sínu á Eiðis-
torgi, allir voru velkomnir og veitt
var af konunglegri rausn.
Sína var mikil kúltúrkona, sem
hafði dálæti á tónlist og myndlist
að ógleymdum bókmenntunum.
Hún fylgdist vel með í þeim efnum
og bar heimili hennar þess glöggt
vitni. Allt yfirbragð sýndi að menn-
ingararfur var í mikilum metum hjá
henni og þar hafði hún af miklu
að miðla. Það fylgdi því sérstök
stemmning að hlusta á tónlist með
Sínu, sérstaklega verk gömlu meist-
aranna, sem hún hafði einstakt
dálæti á, því hún átti svo auðvelt
með að hrífa aðra með sér.
Það var mikil upplifun að koma
við hjá Sínu eftir kvöldgöngu um
Seltjarnarnesið, þiggja hressingu á
yndislegu heimili. Oft var hlustað á
tónlist og horft á kvöldsólina baða
sig í haffletinum, áður en hún sétt-
ist úti við sjóndeildarhringinn.
En eins og sólin kemur upp að
morgni með birtu og yl munu Ijúfar
minningar um góða vinkonu geym-
ast í huga okkar og ylja okkur um
hjartarætur.
Elsku Sína, ekkert varð úr að
við færum með þér til Parísar sem
þú dáðir svo mjög, maðurinn með
ljáinn sá um það, en þú manst að
þú lofaðir að vera með okkur á þinn
hátt.
Við þökkum samfylgdina sem var
allt of stutt og biðjum guð að blessa
minningu þína. Hafþóri, Erni,
Önnu, Ragnari og litlu barnabörn-
unum þínum Valdísi og Halldóri,
sem fengu ekki að kynnast ömmu
sinni nema fyrstu ár ævi sinnar, svo
og öðrum vandamönnum, vottum
við okkar dýpstu samúð.
Kristín og Valdimar.
Nú haustar að og hverfa blóm
og húmið völdin tekur.
í okkar huga er einnig tóm,
sem endurminning vekur.
Um hana, sem að hvarf á braut
og holl oss alltaf reyndist
og hugrökk var í hverri þraut
og hennar reisn ei leyndist.
Upp, upp mín sál. Litlar vörður
um langan veg eru raddir minning-
anna sem við rifjum upp í góðum
hópi. Þar eru engar tvær eins en
allar bjartar og fullar af baráttu-
þreki sem dygði heilum her til sig-
urs. Þessi stórkostlega kona sem
við dáum svo takmarkalaust er
komin í höfn. Hætt að beijast, sátt,
sigurvegari, sama hvað á dundi.
Risastór prjónaður jólasveinn
dáður af ungviðinu, erlendar bréfa-
skriftir, Álafosstrefillinn, ótal kaffi-
húsaferðir, matarboð og veislur til
að fagna því að einhver okkar var
á landinu eða í bænum. Þessi hópur
sem kom úr mörgum áttum átti það
eitt sameiginlegt að hafa hér einu
sinni í fymdinni unnið saman í Ála-
fossbúðinni. Stundum var hann
stærri, stundum minni, en ákveðinn
kjarni hélt alltaf saman og ljúf
stund á Landakoti var þar engin
undantekning. Við fórum allar bros-
andi af þeim fundi þó við vissum
að hann gæti vel verið sá síðasti.
Þannig var Sína.
Hún hertist við hveija raun, og
þær voru ófáar. En alltaf var hún
full af hvatningarorðum til okkar
hinna. Umræðuefnin í okkar breiða
hópi voru fjölbreytt og ævinlega
hafði Sína sitt til málanna að leggja.
Hún var amma barnanna okkar,
félagi okkar og trúnaðarvinur. Ald-
ur var ekki til fyrir Sínu, hún sá
bara fólk - misjafnlega úr garði
gert. Ekki var amast við öðru en
leiðinlegu fólki.
Við alla gat hún talað og um
allt. Gott var að sækja í smiðju til
hennar ýmislegt smálegt sem sam-
ferðamanninn vantaði, uppörvun,
hvatningu, girnilegar matarupp-
skriftir, svo ekki sé talað um allan
þann fróðleik sem þessi óforbetran-
legi sögu-grúskari bjó yfir.
Listakonan verður ekki frá okkur
tekin. Tónlistin hljómar áfram,
óperumar lifa í minningunni - hluti
af ástríðum síungrar heimskonu
sem drakk í sig menningu og listir
af einlægni og ákafa ungviðisins.
Héðan liggur leiðin áfram eins og
upp var lagt. En hugurinn mun
hvarfla að veginum varðaða og þá
verður brosað og hlegið og hlaðið
enn um sinn.
Dóra, Þorbjörg, Guðrún,
Björg og Asa.
Hún kunni vel að gleðja geð,
- lét gneista í orðum skína -
og einnig hryggjast hryggum með
og hjálpa og bæta, hún Sína.
Hvar, sem var í heimi stödd
þá hélt hún vináttuna.
Því er hún hér af konum kvödd,
sem kynning góða muna.
(Elín Þ.)
Vinkonur.
Erfidrykkjur
Glæsileg kaffi-
hlaðborð, fallegir
salir og mjög
góð þjónusta
Upplýsingar
í síma 5050 925
og 562 7575
FLUGLEIÐIR
BÍTEL LBFTLElllB
ERFIDRYKKJUR
P E R L A N sími 562 0200
Blómakrossar,
Utfarakransar&
Kistuskreytlngar
Blómaskreytingar
og afskorin blóm
við öll tækifæri
I i s t i n a ð s k r e y t a
Hlíðasmára 8 • Miðjan • Kðpavogi
Sími: 564 4406
Opið frá kl. 10 til 21
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F
Hamarshöfða 4 - sími 587 1960