Morgunblaðið - 12.10.1995, Qupperneq 46
46 FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Innmatur
Matur og matgerð
Mörg böm vilja ekki lifur, hjörtu og nýru,
segir Kristín Gestsdóttir, sem gefur
okkur uppskriftir af þunnt sneiddri, snögg-
steiktri lifur og nýrum og djúpsteiktum
hjörtum, en þannig matreitt borða
flestir þetta með bestu lyst.
SLÁTURTÍÐ var hér áður fyrr mik-
ill anna- og tilhlökkunartími íslend-
inga. Það var eini tíminn sem þeir
fengu nýtt kjöt, þótt stundum væri
slátrað jólaá um jólin. Allt var nýtt
af skepnunni, jafnvel lungu og heili,
sem við íslendingar borðum ekki
lengur, þótt sumar þjóðir, jafnvel
nágrannaþjóðir okkar, geri það enn.
Í þessum þætti eru uppskriftir með
svokölluðum innmat, þ.e. lifur,
hjörtum og nýrum. Þetta er mjög
jámauðugur matur og því hin holl-
asta fæða, en ekki er sama hvemig
hann er matreiddur. Hægt er að
sjóða hjörtu nær endalaust, en þau
verða samt aldrei meyr, lifur verður
óæt ef nú er látin sjóða eða steikj-
ast of lengi og verður að vera þunnt
sneidd til þess að hún verði
góð og nýran mega
heldur ekki sjóða lengi. -■
Þegar við borðum jár-
nauðugan mat þurfum við
helst að borða C-vítamínríkan
mat með, svo sem kartöflur,
grænmeti eða ávexti, til þess
að líkaminn nýti járnið til fulln-
ustu. Slíkt ætti að vera auð-
velt, þegar margir eiga nýupp-
tekið grænmeti og veslanir era
fullar af því.
1. Þvoið lifrina, óþarft er að
taka himnu af lambslifur. Skerið
hana á ská í örþunnar sneiðar og
skerið allar æðar og taugar úr.
Blandið saman hveiti, salti og pip-
ar, setjið í plastpoka, látið lifrar-
sneiðarnar í pokann og hristið.
2. Setjið kálið í lítið saltvatn og
sjóðið í 5-7 mínútur. Það má gera
í örbylgjuofni.
3. Sennilega þarf að steikja lifr-
ina í tvennu lagi á pönnunni. Byij-
ið á að steikja laukinn í hluta af
feitinni, takið hann síðan af pönn-
unni bætið olíu á pönnuna og steik-
ið lifrina í 2-3 mínútur á hvorri
hlið. Síðan á öll lifur og laukur
að vera á pönnunni þegar bætt er
í vatni og soðkraftsdufti.
Djúpsteikt hjörtu og
steinselja
Djúpsteikt hjörtu eru
fljótmatreidd, þau
verða strax meyr
og mjúk, en engin
fita leitar inn í þau.
Þeir sem forðast
fituríkan mat geta
borða hjörtun svona
matreidd.
_________6 hörtu_________
2 dl matarolía
safi úr 1 lítilli sítrónu
1 54 tsk. fínt salt
14 tsk. pipar
Hrærið
saman. Hristið saman hveiti og
vatn og jafnið sósu. Látið allt sjóða
við hægan hita í 2-3 mínútur.
Setjið þá kálið ofan á og berið
fram.
Meðlæti: Soðnar kartöflur.
________1 msk. soyasósa__________
______ólífuolía til aó steikjo í_
1. Hreinsið fituna efst á hjörtun-
um af, klippið úr æðar og sinar.
Skerið hvert hjarta í 8 rif, langsum.
2. Setjið matarolíu, sítrónusafa,
salt, pipar og soyasóu í skál. Þeyt-
ið saman með þeytara, en setjið
síðan hjartabitana úr í og látið
liggja í leginum, á eldhúsborðinu í
2 tíma en lengur í kæliskáp, jafn-
vel til næsta dags.
3. Hitið feitina, þerrið hjörtun
og steikið í feitinni í 3-4 mínútur,
leggið á eldhúspappír.
4. Setjið steinseljugreinarnar of-
an í og djúpsteikið smástund og
berið með.
Meðlæti: Hvítlauksbrauð eða
snittubrauð með smjöri og einhveij-
ir ferskir ávextir í bátum.
Steikt lifur með lauk
og grænmeti
1 lifur, u.þ.b. 600 g
1 dl hveiti
1 Vt tsk. fínt salt
14 tsk. pipar
'/2 dl matarolío
1 tsk. soðkraftsduft
3-4 dl vatn
1 meðalstór laukur
3 meðalstórar gulrætur
blómkól, sprotakól, (brokkólí)
hvítkól eða rósakól
Steikt nýru með
sveppum
Látið nýran liggja í saltvatni í
30 mínútur. Hreinsið himnuna af
og takið fítuvefínn efst af. Klippið
úr taugar og æðar.
12 nýru
200 g sveppir
__________30 g smjör_________
'á tsk. karrí
'/2 dl matarolía
I '/2 tsk. salt
_______nýmoloður pipar_______
1 dl vatn + /2 dl mjólk
25 g hreinn rjómaostur
1 -2 msk. parmesanostur
1. Skerið nýran í þunnar sneið-
ar þversum. Skerið sveppina í
sneiðar.
2. Setjið smjör og karrí á pönnu
og steikið sveppina í því í 2-3
mínútur. Takið af pönnunni um
leið og fer að renna úr sveppun-
um.
3. Setjið olíuna á pönnuna og
steikið nýran í henni í 2-3 mínútur
á hvorri hlið. Stráið salti og pipar
yfir. Setjið sveppina á pönnuna,
hellið vatni og mjólk yfír og sjóðið
í 5 mínútur. Búið til hveitihristing
og jafnið sósu. Hrærið ijómaosti
út í. Látið sjóða upp. Stráið Par-
mesanosti yfir og berið fram með
brauði og hrásalati.
IDAG
SKÁK
Umsjðn Margcir
Pétursson
SVARTUR leikur
og vinnur
Staðan kom upp á heims-
meistaramóti unglinga 20
ára og yngri í Dortmund í
Þýskalandi, sem nú stendur
yfir. Kínveijinn Chunhui
Zhu (2.350) var með hvítt,
en þýski alþjóðlegi meist-
arinn Christopher Gabriel
(2.475) var með svart og
átti leik.
20. — Ref5! (Sterkara en
20. - Rxd5 21. f4 - Rxe4
22. Rxc7. Nú er 21. exf5?
svarað með 21. — Dh4 og
mátar og 21. Rc2 — Dh4 22.
Hfcl með 22. — Rfd4! og
vinnur) 21. f4 — Rxe4 22.
Bb4 - Red6 23. Rxd6 -
cxd6 24. Bd3 (24. fxe5 -
Rd4 var litlu betra, né
heldur 24. Rf3 — e4) 24.
— e4! og hvítur gafst upp,
því 25. Bxe4 er auðvitað
svarað með 25. — Bd4+.
íslendingar hefðu getað
sent tvo fulltrúa á mótið,
en Helgi Áss Grétarsson
vildi ekki reyna að vetja
titil sinn frá því í fyrra.
Aðrir ungir íslenskir skák-
menn sem boðin var þátt-
taka höfðu heldur ekki
áhuga. Staðan eftir 8 um-
ferðir af 13: 1. Slobodjan,
Þýskalandi 6'A v. 2-4.
Spangenberg, Argentínu,
Onísjúk, Úkraínu og Istrat-
escu, Rúmeníu 6 v. o.s.frv.
Onísjúk er langstigahæstur
keppenda með 2.575 stig.
Það verður ekkert af
skemmtikvöldi skákáhuga-
manna á föstudagskvöld 13.
október, þar sem úrslitin eru
ráðin í HM í New York.
Með morgunkaffinu
Að hvísla: Ég elska þig
TM Rog. U.S. Pat. Off. — all rtghts roserved
(c) 1995 Los Angeles Tlmes Syndicate
BÚÐU þig nú undir enn eina lygaveiðisöguna hans.
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Heiðarleg kona
í Hagkaupum
SVANHILDUR Sigur-
jónsdóttir hringdi til Vel-
vakanda því hún vildi
koma á framfæri þakk-
læti til heiðarlegrar konu
sem fann innkaupapok-
ana hennar í Hagkaup-
um sl. laugardag. Svan-
hildi bauðst verslun-
arferð í Hagkaup en hún
er orðin roskin. Hún
keypti í fjóra fulla poka
en fyrir misskilning urðu
tveir þeirra eftir á bíla-
stæðinu. Hún uppgöt-
vaði það ekki fyrr en hún
kom heim og ákvað þá
að hringja í Hagkaup og
athuga hvort einhver
heiðarlegur hefði fundið
pokana. Og svo reyndist
vera og vill Svanhildur
þakka konunni sem fann
pokana og kom þeim í
upplýsingarnar hjá Hag-
kaupum kærlega fyrir
heiðarleikann.
Hundaskítur á
Miklatúni
HVAÐ er til ráða? Ég er
eldri borgari sem fæ mér
oft göngutúr um Mikla-
tún því það er yndislegur
staður að ganga um að
undanskildu því að það
er varla hægt að ganga
á gangstígum fyrir
hundaskít. Það er bannað
að vera með hunda þar
en nú í skjóli myrkurs
læðast hundaeigendur
með hunda sína á kvöldin
og láta þá gera sín stykki
þar.
Myndavél
í pant
LÍTIL myndavél í hulstri
var sett í pant upp í leigu-
bílafargjald aðfaranótt
sl. laugardags. Leigubíll-
inn var tekinn úr mið-
bænum og upp á Grens-
ás, en viðkomandi man
ekki hvaða leigubílastöð
það var. Nú vill viðkom-
andi borga bílinn og fá
myndavélina til baka.
Upplýsingar í síma
587-3485. Svava.
Sjónauki og
myndavél
töpuðust
LITILL sjónauki og ein-
nota myndavél hurfu jir
bíl aðfaranótt 7. október
sl. I myndavélinni er
átekin filma sem mér er
annt um og skora ég á
þann sem hefur þetta
undir höndum að koma
því til mín. Þorvaldur
Skúli, vs. 568-7333.
Seðlaveski
tapaðist
BRÚNT herraseðlaveski
tapaðist fyrir utan
Krossinn í Hlíðarsmára
5-7, Kópavogi miðviku-
dagskvöldið 4. október
sl. Finnandi vinsamlega
skili því til lögreglunnar
í Kópavogi. Fundarlaun.
Veski
BRÚNT peningaveski
með úlnliðsól tapaðist í
Skipholti sl. mánudags-
kvöld. Hafi einhver fund-
ið veskið er hann vinsam-
lega beðinn að hringja í
síma 552-8924. Fundar-
laun.
Lyklaveski
fannst
SVART lyklaveski með
átta lyklum fannst við
Borgarkringluna fyrir
u.þ.b. mánuði. Veskinu
var komið til óskila-
munadeildar lögreglunn-
ar í Reykjavík.
Kettlingur
í óskilum
LITIL ómerkt fjögurra
mánaða læða tapaðist frá
Kársnesbraut 79 í Kópa-
vogi eftir flutning fyrir
nokkram dögum. Hún er
svart- og hvítflekkótt.
Hafí einhver orðið ferða
hennar var er hann vin-
samlega beðinn að láta
vita í síma 554-0824 eða
554-0326.
Víkverji skrifar...
TVINNULÍF á Eyrarbakka
hefur til skamms tíma verið
tengt sjávarútvegi. Á síðustu árum
hefur þar orðið breyting á og þetta
litla bæjarfélag á suðurströndinni
tengist nú iðnaði sterkum böndum.
Það sést best á því að 45 manns
vinna hjá fyrirtækinu Alpan og er
það hátt hlutfall íbúa þessa forna
sjávarþorps. Eyrarbakki, þar sem
fram eftir öldum var aðalhöfn Sunn-
lendinga, einn helsti uppskipunar-
staður erlendra kaupskipa hér á
landi og verslunarstaður Sunnlend-
inga frá Lómagnúpi að Selvogi,
byggir nú afkomu sína að miklu leyti
á starfsemi í fangelsinu á Litla
Hrauni og rekstri fyrirtækisins Alp-
an, sem af stórhug og framsækni
býr til potta og pönnur fyrir kaup-
endur í 23 löndum víða um heim.
xxx
ADEGI iðnaðarins síðastliðinn
Sunnudag klæddist Eyrar-
bakki sparifötunum og bauð gesti
og gangandi velkomna. Margt var
um manninn í Búðargötunni, aðal-
götunni á Eyrarbakka, þar sem er
að fínna nokkuð heillega götumynd
frá því um síðustu aldamót. Magnús
Karel Hannesson, oddviti á Eyrar-
bakka, fór í gönguferðir með fólk
um staðinn. Byijað var í garðinum
við Húsið, sem byggt var árið 1765,
og þar innan dyra voru ýmsir munir
úr Byggðasafni Árnesinga til sýnis.
Hann fræddi um rúmlega aldar
gamla kirkjuna og benti m.a. á alt-
aristöfluna, sem máluð er af Louisu
Danadrottningu. Dönsku áhrifin eru
sterk í þessu þorpi, sem gegndi miklu
hlutverki í verslunarsögu landsins
fram undir 1925.
Sannarlega man Eyrarbakki
tímana tvenna. Það varð skrifara
best ljóst er hann stóð á sjóvarnar-
garðinum og horfði yfir skikann þar
sem dönsku verslunarhúsin stóðu
áður og líkan er af í glerkassa á
torfunni miðri. Hinum megin brotn-
aði úthafsaldan fyrir utan og göngu-
fólk lét hugann reika til þeirra að-
stæðna sem sjófarendur fyrr á öldum
og fram á síðustu ár glímdu við fyr-
ir opnu hafí í misjöfnum veðrum.
XXX
AÐ lokinni fróðlegri og skemmti-
legri gönguferð með oddvitan-
um og heimsókn í Alpan var ekki
úr vegi að líta inn á kaffi- og veit-
ingahús þeirra Eyrbekkinga. Það er
kennt við danska verslunarfélagið
Lefolii og er til húsa í gamla barna-
skóla staðarins. í húsi sem gert hef-
ur verið upp af myndarskap hefur
ungt fólk komið upp skemmtilegum
alhliða veitingastað þar sem þennan
sunnudagseftirmiðdag var m.a. boð-
ið upp á Ijúffengar eplakökur og
hnallþórur eins og þær gerast bestar.
Eyrbekkingar notuðu tækifærið á
degi iðnaðarins og kynntu ekki að-
eins fyrirtækið Alpan heldur einnig
sögu staðarins. Sannarlega er þar
fleira að skoða heldur en streitu
hlaðinn höfuðborgarbúi gerir sér
grein fyrir er hann brennir í gegnum
þorpið í skyldugum sunnudagsbíltúr.
XXX
IFRÉTTUM heyrist oft talað um
að báðir hafi verið sammála um
eitthvert tiltekið atriði. Þetta særir
máltilfinningu skrifara. í hans huga
eru menn annaðhvort sammála eða
þeir eru ósammála. Því er óþarfi, og
í raun vitlaust, að tala um að báðir
hafa verið sammála. Þetta væri eins
og að segja að tvö lið í fótboltaleik
hafi bæði gert jafntefli. Annaðhvort
eru menn sammála eða ekki. Annað-
hvoit gera lið jafntefli eða þau sigra
eða tapa.
Einnig fer í taugar skrifara þegar
talað er um undirgöng undir tiltekna
götu eða stræti. Er ekki nóg að tala
um göng undir viðkomandi götu?