Morgunblaðið - 12.10.1995, Side 56
Afl þcyav þörf krefur!
0m<
w >
RISC System / 6000 ~ ■
<0>nýh ERJI
OPIN KERFI HF.
Sími: 567 1000
pjpVectra
MORGUNBLAÐID, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL<S)CENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 1995
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Endurnýting vatns
Innflutt
grænmeti
á markað
eftir helgi
UPPSKERAN á blómkáli og
spergilkáli gengur væntan-
lega til þurrðar í lok næstu
viku og má þá búast við að
innflutningur á þessum
grænmetistegundum hefjist.
Þá eru innfluttar gúrkur einn-
ig væntanlegar á markaðinn
í næstu viku, að sögn Kol-
beins Agústssonar, sölustjóra
hjá Sölufélagi garðyrkju-
manna.
Kuldi setti strik í
reikninginn
Kolbeinn Ágúfetsson sagði
í samtali við Morgunblaðið í
gær að kuldi upp á síðkastið
hefði komið í veg fyrir frek-
ari útiræktun grænmetis.
Þannig myndi rófuuppskeran
væntanlega ekki duga nema
rétt fram yfir áramót.
Sömu sögu sagði Kolbeinn
að væri að segja af gulrótum
og kínakáli, en hvítkál yrði
lengur á markaði. Ástæða
þess er sú að það geymist
betur.
Hvað varðar inniræktað
grænmeti sagði Kolbeinn að
litaðar paprikur hyrfu vænt-
anlega af markaði innan
skamms.
Húshitunar-
kostnaður
*gæti lækkað
HITAVEITA Akureyrar hefur í
samvinnu við Orkustofnun, unnið
að tilraunum síðustu ár með að
endurnýta bakrásarvatn frá hita-
kerfum húsa. Bakrásarvatn frá
Kristnesi og Reykhúsum í Eyja-
íjarðarsveit, sem er nú um 40°C
heitt er nú látið niður í óvirkjaða
borholu við Reykhús þar sem það
hitnar upp í allt að 78°C áður en
því er dælt upp aftur.
Þá eru uppi hugmyndir um að
nýta allt bakrásarvatn á Akureyri
með þessum hætti, sem í framtíð-
inni gæti þýtt lægri hitakostnað
fyrir bæjarbúa en ella. Hér er um
að ræða fyrstu meiriháttar tilraun-
irnar til að endurnýta bakrásarvatn
hitaveitna hérlendis og er markmið-
ið að auka orkuframleiðsluna með
mjög litlum tilkostnaði.
Húshitunarkostnaður á Akureyri
er einn sá hæsti á landinu. Hér
gæti verið komin leið til þess að
lækka þann kostnað í framtíðinni,
bæjarbúum til hagsbóta.
■ Athyglisverð tilraun/12
Jafntefli
JAFNTEFLI varð í landsleik ís-
lands og Tyrklands á Laugar-
dalsvelli í gærkvöldi, 0:0. Voru
það talin sanngjörn úrslit.
■ Landsleikurinn/Dl-4
Morgunblaðið/RAX
Samningur um hluta eigna Miðbæjar Hafnarfjarðar hf.
Bærinn greiði nær
Viðræður íslendinga við Norðmenn og Rússa um veiðar í Smugunni
Bjóða allt að 15 þúsund
tonnum auk kvótaskipta
NOREGUR og Rússland gefa í skyn að hægt
sé að semja um allt að 15.000 tonna kvóta
íslenzkra skipa í Smugunni, auk þess sem semja
megi um gagnkvæm skipti á veiðiheimildum.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hefur
bilið á milli krafna íslands og boðs hinna ríkj-
anna stytzt undanfarið, þótt enn beri eitthvað
á milli.
Rætt hefur verið um að samið verði um
gagnkvæmar veiðiheimildir, sem tengist stofn-
stærð þorsks í Barentshafi annars vegar og
við ísland hins vegar. Þannig fengju Norðmenn
kvóta við ísland ef þorskstofninn hér efldist,
en Islendingar kvóta í Barentshafinu þegar
þorskstofninn þar væri í góðu ásigkomulagi.
Fyrirkomulag af þessu tagi myndi líkast til
koma íslendingum til góða í upphafi. Rætt
hefur verið um að veiðiheimildir í þessum kvóta-
skiptum gætu numið 3.000-5.000 tonnum og
heildarkvóti íslands því nálgast 20.000 tonn.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er
ekki útilokað að samningur um lausn Smugu-
deilunnar myndi kveða á um að gengið yrði
frá grunnkvótanum strax, en viðræðum um
gagnkvæm skipti veiðiheimilda yrði haldið
áfram.
Samið um þorskveiðar í öllu Barentshafi
Þannig er litið á, af hálfu íslenzkra stjóm-
valda, að með samningum um þorskkvóta í Bar-
entshafínu yrði endi bundinn á deilur ríkjanna
um þorskveiðar í Barentshafi sem heild, þar með
talið á Svalbarðasvæðinu. Hins vegar er líklegt
að krafa verði gerð um að fá að veiða kvótann
á fiskvemdarsvæðinu við Svalbarða, jafnt og í
Smugunni, og að samið verði um veiðar á öðmm
fisktegundum en þorski á Svalbarðasvæðinu.
■ Fyrra boð endurtekið/6
600 tonn af
253 milljónir króna
kjöti á
Á NÆSTU dögum og vikum verða
600 tonn af kindakjöti frá síðasta ári
boðin til sölu á lækkuðu verði. 60-70
milljónum króna verður varið úr ríkis-
sjóði í niðurgreiðslur í þessu skyni.
Bændur á búnaðarþingi vildu helst
að allar kindakjötsbirgðir yrðu fluttar
úr landi, en stjómvöld munu hafa
krafist þess að a.m.k. 600 tonn yrðu
seld á innanlandsmarkaði á lækkuðu
Fulltrúar á búnaðarþingi lýstu
margir yfir miklum áhyggjum af því
að tímabundin útsala á kindakjöti
myndi raska öllu jafnvægi á kjöt-
markaðinum og leiða til almennrar
verðlækkunar. Auk þess væri hætta
á að verslanir og kjötvinnslur myndu
— ■ kaupa mikið af kjöti í heilum skrokk-
um, sem myndi síðan leiða til sölusam-
útsölu
dráttar á nýju kjöti. Þingfulltrúar
bentu á að þetta hefði að jafnaði
gerst þegar efnt hefði verið til útsölu
á kjöti. Til að koma í veg fýrir þetta
samþykkti þingið að kjötið, sem yrði
selt á lægra verði, yrði snyrt, sérpakk-
að og merkt sérstaklega. Jafnframt
var lögð áhersla. á að kjöt sem selt
yrði úr landi yrði flutt út með þeim
hætti að það spillti ekki því markaðs-
starfi sem nú er unnið að erlendis.
Ríkisstjómin hefur samþykkt að
veija 150 milljónum í ár til að lækka
birgðir á kindakjöti, en þær eru um
2.200 tonn. Miðað við að 60-70 millj-
ónir fari til afsetningar á kjöti innan-
lands fara 80-90 milljónir í að kosta
útflutning á kjötinu.
■ Búnaðarþing samþykkti/6
SAMNINGUR um kaup bæjar-
sjóðs Hafnarfjarðar á hótelturni
og bílageymslu í verslunarmiðstöð
Miðbæjar Hafnarfjarðar hf., liggur
fyrir. Kaupverð eignarhlutanna er
252,9 milljónir króna samkvæmt
samningnum auk þess sem gert
er ráð fyrir að bæjarsjóður leggi
til 24 milljónir króna í lokafrágang
á bílageymslu, samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins.
Leggja átti kaupsamninginn
fram á fundi í bæjarráði í dag en
í gær tilkynnti Ingvar Viktorsson
bæjarstjóri að málið myndi frest-
ast um viku.
Forsvarsmenn Miðbæjar Hafn-
arfjarðar hf. hafa nú þegar undir-
ritað samninginn sem felur í sér
kaup á hótelturni verslunarmið-
stöðvarinnar fyrir rúmar 169 millj-
ónir króna og bílageymslu fyrir
rúmar 83,7 milljónir.
Afgreiðslu bæjar-
ráðs Hafnarfjarð-
ar var frestað
um eina viku
Deilt um
leigugreiðslur
Styr hefur staðið um hvort
bærinn hafi leigt kjallarann fýrir
55 milljónir til 15 ára eða þegar
keypt hann fyrir sömu upphæð.
Þá eru í samningnum ákvæði um
að bæjarsjóður greiði 24 milljónir
fyrir frágang á umræddri bíla-
geymslu, auk þess sem felld verða
niður opinber gjöld, svo sem fast-
eignagjöld og um 30 milljóna
króna útistandandi gatnagerðar-
gjöld. Samkvæmt þessu nema út-
gjöld bæjarsjóðs Hafnarfjarðar
vegna samningsins að minnsta
kosti 307 milljónum króna.
Minnihluti ekki hafður
með í ráðum
Jóhann G. Bergþórsson og Ing-
var Viktorsson bæjarstjóri hafa
staðið að samningsgerðinni fyrir
meirihlutann, ásamt Steingrími
Eiríkssyni lögfræðingi, en hann
hefur áður unnið álitsgerð vegna
Miðbæjar Hafnarfjarðar að beiðni
Jóhanns. Af hálfu Miðbæjar Hafn-
arfjarðar hf., tóku þátt í samnings-
gerðinni Hrafnkell Ásgeirsson lög-
fræðingur og Viðar Halldórsson
framkvæmdastjóri Miðbæjar
Hafnarfjarðar hf. Enginn fulltrúi
minnihlutans í bæjarstjórn tók
þátt í samningsgerðinni.
■ í kapphlaupi/10