Morgunblaðið - 17.12.1995, Síða 1

Morgunblaðið - 17.12.1995, Síða 1
96 SÍÐUR B/C 289. TBL. 83. ÁRG. SUNNUDAGUR 17. DESEMBER 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Vasaþjófar í vanda HERT öryggisgæsla í Frakklandi í kjöl- far sprengjutilræða í sumar og lang- vinn verkföll ríkisstarfsmanna hafa nær kippt fótunum undan stétt vasa- þjófa og öðrum misindismönnum. Þeir stunda helst iðju sína í troðfulium strætisvögnum og neðanjarðarlestum en eftirlit með almenningssamgöngum var hert til muna eftir að sprengjutil- ræðin hófust. Þá hefur neðanjarðar- lestakerfið verið lamað í þijár vikur vegna verkfallanna. Lögreglustjórar Parísarborgar hafa greint frá því að 19% færri glæpir hafi verið tilkynntir í síðasta mánuði en í nóvembermánuði í fyrra. Eiturlyfjaglæpum fækkaði um 36%, stuldum úr bílum um 30% og vasa- þjófnuðum um 22%. Jackson var hætt kominn LÍFLÆKNIR bandaríska söngvarans Michael Jackson segir að ekki hafi mátt tæpara standa er Jackson var fluttur á sjúkrahús í New York eftir að hafa hnigið niður á æfingu fyrr í mánuðinum. Jackson greindist með veirusýkingu og var útskrifaður af sjúkrahúsinu sex dögum síðar. Læknir- inn Allan Metzger sagði að er sjúkralið- ar komu að söngvaranum hafi púls hans verið ógreinilegur og blóðþrýst- ingur „mjög, mjög lágur“. Hafi Jackson verið í lífshættu í nokkra klukkutíma. Hann sagði lækna sjúkrahússins og tryggingafélags Jackson hafa verið sammála um að söngvarinn hafi verið einungis fimmtán mínútum frá dauða. Fitan látin fjúka LÆKNAR í Los Angeles fjarlægðu á föstudag 45 kíló af húð og fitu af lík- ama Tommy McGruder, fyrrverandi vörubílsljóra. McGruder, sem er 35 ára gamall, segist hafa byijað að borða í óhófi er hann fékk þunglyndiskast fyr- ir níu árum. „Isskápurinn varð að besta vini mínurn," segir hann og lýsti venju- legum morgunverði þannig að hann hefði hámað í sig tólf egg, tólf þykkar pönnukökur, um það bil tólf pylsur og tvo pakka af beikoni. McGruder hét að hefja nýtt og heilbrigðara líf er hann var fluttur í flýti á spítala vegna hjartavandræða. Hafði hann misst 180 kíló fyrir aðgerðina á föstudag og vó því „aðeins" 180 kíló í stað 360 áður. Fitan, sem skorin var af McGruder, verður notuð til læknisfræðilegra rannsókna. .. .. Reuter ORYGGISVORÐUR fyígist með undirbúningi á kjörstað í miðborg Moskvu. Rússneska innanríkisráðuneytið óttast hryðjuverk í tengslum við kosningarnar og hefur skipulagt umfangsmikla öryggisgæslu á kjörstöðum. Rússar ganga til lýðræðislegra þingkosninga í annað sinn Flókið kerfi talið kommúnistum í hag Moskvu. Reuter. RÚSSAR ganga að kjörborðinu í dag í öðr- um lýðræðislegu kosningunum, sem haldnar eru frá því Sovétríkin leystust upp. Mikil óvissa rikir um úrslit kosninganna, en talið er að hið flókna kosningakerfi muni frekar koma Kommúnistaflokknum til góða en ftjálslyndum flokkum, sem eru margir og tvístraðir. Borís Jeltsín Rússlandsforseti hvatti á föstudag kjósendur til að afstýra því að „öfl fortíðarinnar" kæmust aftur til valda í kjölfar kosninganna. „Það væru hörmuleg mistök,“ sagði forsetinn í sjónvarpsávarpi. Þó að hann nefndi hann ekki beint lá í orð- um forsetans að hann átti við flokk komm- únista, sem kannanir benda til að muni vinna nokkuð öruggan sigur. Kommúnistaflokkurinn svaraði þessum yfirlýsingum forsetans í opnu bréfi á forsíðu dagblaðsins Sovietskaja Rossíja í gærmorg- un, þó svo að forsetinn sé ekki nefndur á nafn. í bréfinu sagði að flokkurinn hefði gengið í gegnum ítarlega naflaskoðun vegna mistaka fortíðarinnar. Flokkurinn hefði lært af reynslunni og byði nú upp á nútímalega stefnu er miðaði að því að blása nýju lífi í efnahag landsins, útrýma glæpum og láta ríkisvaldið ganga í endurnýjun lífdaga. Aragrúi frambjóðenda Hver kjósandi í kosningunum fær tvo kjörseðla, annan til að kjósa þingmenn í einmenningskjördæmum en á hinn eru skráð nöfn þeirra 43 framboðslista er bjóða fram á landsvísu. Er helmingur hinna 450 þing- manna neðri deildarinnar kjörinn í einmenn- ingskjördæmum en helmingurinn í lista- kosningum. Alls keppa 2.687 einstaklingar um sætin í einmenningskjördæmunum. Ekki hefur mátt birta skoðanakannanir síðustu fimm dagana fyrir kosningar og en þær beindust aðallega að listakosningunum. Flokkar verða að fá að minnsta kosti 5% kjörfylgi til að ná manni á þing og er markm- iðið að koma í veg fýrir aragrúa smáflokka. Kerfið er hins vegar fyrst og fremst talið eiga eftir að koma vel skipulögðum flokkum fyrrum kommúnista og bændaflokkum til góða en ekki fijálslyndum umbótasinnum, sem ekki hafa náð að sameina krafta sína. Margir stjórnmálamenn i Moskvu kjósa því frekar að bjóða sig fram í einmenningskjör- dæmum þar sem þeir óttast að flokka þeirra nái ekki 5% fylgi. Opinber úrslit kosninganna verður að birta innan 10-30 daga og hið nýkjörna þing að koma saman innan mánað- ar. ■ Jabloko helsta von/10 Rússar að kjör- borðinu 12 IINGLIN6AR ERIILÍFSGLADIR ÚRBRUNAÍ BREYTINGAR VIÐSKIPnfflVINNULÍF OO ÁSUNNUDEGI AJk V-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.