Morgunblaðið - 17.12.1995, Qupperneq 16
16 SUNNUDAGUR 17. DESEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Þöífm fyrir bóluefnið er
mjög brýn,“ segir Ingileif.
„Þessi stofn pneumó-
kokka, sem barst hingað
frá Spáni árið 1989, er ónæmur
fyrir flestum algengum sýklalyfjum.
Einu lyfin sem vinna á honum eru
sýklalyf sem gefin eru í æð og krefj-
ast innlagnar á sjúkrahús. Þetta er
baktería sem böm geta gengið með
í hálsinum án þess að sýkjast, en
þau sem sýkjast geta verið mjög
illa sett. Þarna er um að ræða svo-
kallaða pneumókokka sem geta
valdið lungnabólgu og heilahimnu-
bólgu og eru einnig mjög algeng
orsök eymabólgu."
Rannsóknirnar hafa beint
hagnýtt gildi fyrir þjóðfélagið
Á rannsóknastofu í ónæmisfræði
er unnið að mjög áhugaverðum
rannsóknum sem hafa beint hag-
nýtt gildi í þjóðfélaginu. Eitt af
rannsóknaverkefnunum em prófan-
ir á hýjum tegundum bóiuefna gegn
lungnabólgubakteríum, þ.e. pne-
umókokkunum. Ingileif segir að hér
sé ónæmi þessara pneumókokka
fyrir sýklalyíjum stórt vandamál,
stærra vandamál sé þó að bóluefni
sem gerð hafa verið úr fjölsykruhjúp
pneumókokka veki ekki ónæmi hjá
börnum. Gagnslaust hafi því verið
að bólusetja börn undir tveggja ára
aldri og gagnslítið fyrir börn allt
að 5 ára aldri. Af þeim ástæðum
sé verið að þróa ný bóluefni sem
nái að vekja ónæmissvöran hjá
bömum. Það era svokölluð prótein-
tengd bóluefni sem byggja á því áð
hjúpfjölsykrar bakteríanna eru
tengdar á prótein.
Verið er að rannsaka hvaða
mótefni hafa hámarksvirkni
Ingileif segir að Gestur Viðarsson
hafi í rannsóknarverkefni til meist-
araprófs unnið að því að skoða
mótefnamyndun gegn pneumókokk-
um og hvernig mótefnin stuðla að
útrýmingu á bakteríunni. „í fram-
haldi af því var gerð rannsókn sem
nú er að ljúka, notað var tilrauna-
bóluefni frá Heilbrigðisstofnun
Bandaríkjanna gegn þeim pneumó-
kokkum sem ónæmastar era fyrir
sýklalyfjum hérlendis, svokallaðri
hjúpgerð 6. Við prófuðum mótefna-
myndun bæði hjá fullorðnum og
ungbömum bg fengum spennandi
niðurstöður. Þær sýna að börn sem
byijað er að bólusetja þegar við
þriggja mánaða aldur svara þessu
bóluefni vel. Þó er mótefnamyndun
heldur minni en hjá fullorðnum og
virðist ekki jafnvirk við útrýmingu
á pneumókokkum. Við erum einnig
að rannsaka hvaða tegundir mót-
efna skipta mestu máli til að fá
hámarksvirkni."
Rannsaka bakteríur sem oftast
valda sýkingn í börnum.
„Við fórum af stað með mjög
stórá rahnsókn í vor, þar sem fleiri
próteintengdar hjúpflölsykrar era í
sama bóluefninu, eða þær 8 hjúp-
gerðir pneumókokka sem oftast
valda sýkingum í börnum,“ segir
Ingileif, „Þétta er stórt samstarfs-
verkefni ónæmisfræðinga, bama-
lækna, lungnalæknis. og sýklafræð-
ings, en auk þess vinna að rann-
sókninni hjúkrunarfræðingar og
meinatæknar. Rannsóknin er unnin
í samstarfi við lyfjafyrirtæki í
Frakkíandi og Bandaríkjunum og
styrkt af Rannsóknaráði íslands."
Ingileif segir að þetta sé sams-
konar bóluéfni og þróað hafi verið
gegn annari bakteríu ---------------------
„Haemophilus influ- Góð bóluefni
enzae“, sem veldur heila-
himnubólgu og öndunar-
færasýkingum og börn
eru bólusett við nú með
góðum árángri. Margir
Morgunblaðið/Sverrir
DR. INGILEIF Jónsdóttir ónæmisfræðingur vinnur að þróun bóluefnis gegn
bakteríum sem venjuleg sýklalyf vinna ekki á.
Rannsóknir sem
lækka útgjöld til
Unnið er að rannsókn á tilraunabóluefnum gegn harðgerum
lungnabólgusýkli en brýn þröf er fyrir bólefni sem vemdar böm
fyrir sýkingu af hans völdum. Margrét Þorvaldsdóttir ræðir
við Ingileifu Jónsdóttur ónæmisfræðing hjá Rannsóknastofu
Háskólans í ónæmisfræði sem ásamt Sigurveigu S. Sigurðar-
dóttur bamalækni leiða þessar rannsóknir.
geta skilað
miklum ávinn
ingi
arangn.
aðilar vinna að þróun sambærilegra
bóluefna. „Góð bóluefni geta skilað
miklum ávinningi í bættri heilsu og
lækkun útgjalda í heilbrigðismál-
um,“ segir hún, „Þessi verkefni eru
ekki aðeins fræðileg, það er brýn
þörf fyrir þau.“
Verið er að rannsaka tengsl
streptókokka við psoriasis
Á rannsóknastofu í ónæmisfræði
er einnig verið að rannsaka tengsl
psoriasis við streptókokkasýkingar
undir forystu prófessors Helga
Vaidemarssonar. Ingileif segir að
þekkt hafi verið í um 40 ár að sum-
ir fái psoriasis í kjölfar streptó-
kokkasýkinga sem valda venjulegri
hálsbólgu. „Þar sem sameindir í
streptókokkum líkist sameindum í
húðinni erum við að skoða hvort
ónæmiskerfið ruglist og svari
streptókokkum en ráðist á eigin
sameindir í húðinni og orsaki psor-
iasis-útbrotin. Niðurstöður Heklu
Sigmundsdóttur, sem er að ljúka
rannsókn til meistaraprófs, benda
til þess að við séum á réttri leið.“
Skortur á starfsöryggi fólks í
vísindarannsóknum
áhyggjuefni
Á rannsóknastofu í ónæmisfræði
starfa margar konur og var Ingileif
spurð hvernig það sé að vera kona
í visindarannsóknum á íslandi?
„Mér finnst það að mörgu leyti
gott,“ segir hún. „en það
er áhyggjuefni hve marg-
ir sem vinna að vísinda-
rannsóknum á Islandi,
búa við lítið starfsöryggi,
eru á lausum styrkjum
og' án fastrar stöðu. Ég
held að konur, sérstaklega þær sem
eru að koma heim frá námi, eigi
að mörgu leyti erfitt uppdráttar.
Ef karlar koma heim með góða
menntun er kerfið tilbúið að skapa
þeim aðstöðu. Það er mun sjaldnar
brugðist þannig við fyrir konur.
Fáar konur komast í fastar góðar
stöður á rannsóknastofnunum eða
verða prófessorar.“
Ingileif segir að hluti skýringa
geti verið sá, að ennþá þyki eðii-
legra að karlmenn séu í forsvari,
og e.t.v. geri konur ekki sömu kröf-
ur um starfsvettvang eða um að
vera í forsvari. Karlmenn komi sér
frekar á framfæri og forsvarsmenn
stofnana virðast álíta að karlmenn
þurfi góðar stöður fremur en konur.
Konur ráðnar með því skilyrði
að þær eigi ekki börn
- Getur verið að karlar séu taldir
stöðugri vinnukraftur?
„Þeirra fjölskylduaðstæður eru
oft þannig að þeir geta helgað sig
starfinu, þar sem konur þurfa oft
að skipta tíma sínum á milli heimil-
is, barna og starfsins," segir Ingi-
leif. „Það gæti átt sinn þátt í að
hindra konur í að komast í áhrifa-
stöður, þó að það sé ekki algilt. Ég
tei að fæðingarorlof skipti heilmiklu
máli og það sé mjög mikilvægt fyr-
ir báða foreldra að sinna foreldra-
starfinu. Það eru eflaust ekki marg-
ir feður sem hafa tekið mestan hluta
fæðingaroriofsins eins og maðurinn
minn gerði þegar við eignuðumst
yngri son okkar. Ef það væri viður-
kennt að foreldrar gætu skipt fæð-
ingarorlofi myndi það síður standa
í vegi fyrir _að konur kæmust i góð-
ar stöður Ég þekki nokkur dæmi
um að konur hafi verið ráðnar með
þeim skilyrðum að þær eignist ekki
börn,“ segir hún.
Ákvað snemma að fara í
langskólanám
Ingileif er fædd í Reykjavík og
alin upp í Laugarneshverfinu. Faðir
hennar var kennari og móðirin var
heimavinnandi á þeim tíma. Eftir
Laugalækjarskóla fór hún í Kvenna-
skólann, síðan lá leiðin í MR og þar
á náttúrafræðibraut. „Ég var ákveð-
in í að fara í langskólanám og naut
hvatningar foreldra minna,“ segir
hún, „en ég tók ekki ákvörðun fyrr
en viku áður en kennslan hófst í
Háskólanum að fara í líffræði frek-
ar en íslensku. Hins vegar fann ég
mig þar mjög fljótt og fannst nám-
ið mjög skemmtilegt. Margir kenn-
arar voru mjög uppörvandi en ég
held að prófessor Guðmundur Egg-
ertsson hafi ráðið því að ég valdi
að fara á þetta svið, hjá honum tók
ég rannsóknarverkefni sem hafði
úrslitaáhrif á þá ákvörðun mína. í
líffræðideild var mikil hvatning að
fara í framhaldsnám og þegar iíða
tók á námið var engin spurning um
að valið yrði frumulíffræði, sam-
eindalíffræði eða ónæmisfræði.“
Eignaðist syni og var við
kennslu samhliða doktorsnámi
Ingileif hélt síðan til London þar
sem hún hafði fengið inngöngu í
doktorsnám og' starfaði -----;---
hún þar í hálft ár hjá
Helga Valdimarssyni.
Áður en hún fór utan
hafði ástin komið til sög-
unnar. „Ég hafði þá
kynntist manninum mín- ——
um sem heitir Birgir Björn Sigur-
jónsson og var í námi í Svíþjóð,"
segir Ingileif, „ég flutti mig yfir til
Svíþjóðar svo við gætum verið sam-
an þar. Þar var ég frá 1976 til 1984,
eignaðist tvo syni, vann að ýmsum
rannsóknaverkefnum og var jafn-
framt í hálfri kennslustöðu með
doktorsnáminu. Kennslan fannst
mér mjög gagnleg. Þegar ég lít til
baka finnst mér að hún hafi ekki
síður verið mikilvæg en rannsóknar-
vinnan sjálf,“ segir Ingileif sem nú
er einnig dósent við námsbraut í
hjúkrunarfræði.
„Já, ég fór heim áður en ég hafði
lokið doktorsgráðu. Ég var búin að
fá birtar nokkrar greinar og fannst
lengi vel sem gráðan skipti ekki
mestu' máli, þekkinguna hefði ég
og þyrfti ékki prófstimpil upp á
það. En þar kom að því að ég skrif-
aði doktorsritgerð og varði hana við
Stokkhólmsháskóla árið 1991.
Prófgráða skiptir máii þegar kemur
að stöðu- og styrkveitingum.“
Doktorsritgerð um rannsóknir
á vaxtarhormóni.
- Hvað tókstu fyrir i doktorsrit-
gerðinni?
„Ég bjó til einstofna mótefni.
Framleiðsla og notkun einstofna
mótefna var á þeim tíma ný tækni,
en þau hafa síðan reynst mikilvæg
greiningartæki við rannsóknir á
flestum sviðum líf- og læknisfræði.
Ritgerðin ijallaði um. greiningu á
vaxtarhormóni og afbrigðum þess,
og þróun aðferða til að mæla og
einangra hormónið, þ.e. nota ein-
stofna mótefni sem tæki til að skoða
hormónið sjálft. Vaxtarhormónið
stýrir vexti. Það er aðallega notað
til að gefa börnum sem ekki vaxa
eðlilega, en hefur Iíka verið misnot-
að til að byggja upp vöðvamassa.
Vaxtarhormón var áður einangrað
úr heiladingli látinna en er nú fram-
leitt í bakteríum með hjálp erfða-
tækni. Þess má geta til gamans að,
niðurstöður rannsókna minna á
vaxtarhormóni sem framleitt var i
bakteríum, vora einn þáttur í að fá
það skráð sem lyf - hið fyrsta sinn-
ar tegundar."
Konur þurfa að sanna hæfni
sína frekar en karlar
Talið berst að konum í vísinda-
rannsóknum hér á landi. Ingileif
segir að þáttur kvenna í líffræði
fari mjög vaxandi. Margar konur
vinna að rannsóknum á sviðum hug-
og félagsvísinda, en hún segist helst
vilja halda sig við sitt fræðasvið.
- Telur hún ákveðin vísindasvið
vera_ opnari konum en önnur?
„Ég þekki best til í lífvísindum
og í þeim greinum sem byggja mik-
ið á tilraunavinnu fer hlutur kvenna
vaxandi, hvort sem það er yegna
þess að sú vinna hentar konurh vel
eða vegna þess að á þeim vettvangi
er víða mikil framþróun og meiri
möguleikar á að finna starf. Konur
eru margar í námi í líffræði og í
mörgum árgöngum i læknisfræði
eru konur í meirihluta.“
Ingileif telur að konúr séu jþft
metnar á forsendum karla. „KÓriur
þurfa að sanna sig jafnvel enn frek-
ar en karlar, en þar sem þær hafa
fengið tækifæri hafa þær ekki reynst
síðri. Hins vegar skortir þær oft sam-
bærileg tækifæri og karlar og því
þarf að breyta. Margar konur þurfa
ekki aðeins að sýna góðan árangur
í starfi, þær verða að sinna fjöi-
skyldu sinni og heimili. Það er mikiu
sjaldgæfara að karlmenn styðji við
bakið á konum í kreijandi staÆ, en
konur við bak eiginmanna sinna.“
Jafnréttisráð sendir hættuleg
skilaboð til kvenna
- Hvernig sér Ingileif stöðu ís-
lenskra kvenna í vísindastörfum í
framtíðinni?
„Staðan tengist launastefnunni
og misræmi í launamálum,“ segir
hún. „Það er mikill munur á launum
kvenna og karla í vísindastörfum
eins og öðrum í störfum í þjóðfélag-
inu. Afleiðingin getur orðið sú að
gott rannsóknarfólk leiti annað.“
Hún tekur dæmi um ungan líffræð-
ing sem fór að vinna sem
flugfreyja þar sem launin
voru hetmingi hærri en
laun_ líffræðings.
„Ég hef einnig miklar
áhyggjur af túlkun á síð-
““““ ustu könnun Jafnrétt-
isráðs á launamun karla og kvenna.
Þar kom fram að karlmenn hefðu
meiri hag af að fara í háskólanám
en konur, þar sem námið skilaði
körlum hlutfallslega meira í launum
en konum. Ég tel það vera mjög
hættuleg skilaboð til kvenna að þær
eigi ekki að fara í nám þó að launa-
munur komi fram. Það er mikil-
vægt að gefast ekki upp. Ég tel
að þrátt fyrir allt sé aukin menntun
besta leiðin til að ná fram bættri
stöðu kvenna á vinnumarkaði og
jafnari stöðu karla og kvenna í
þjóðfélaginu."
Konur þurfa að
sanna sig jafn-
vel enn frekar
en karlar