Morgunblaðið - 23.12.1995, Síða 2
2 LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 1995
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Urslit á Guðmundar Arasonar-mótinu í skák réðust í síðustu umferðinni
Þröstur og
Albert Blees
urðu efstir
ÞRÖSTUR Þórhallsson og Albert
Blees urðu efstir og jafnir að
stigum, með 7 vinninga hvor, á
Guðmundar Arasonar-skákmót-
inu sem lauk í gær.
í þriðja til fjórða sæti urðu
jafnir að stigum Andrew Martin
og Niklaj Borge með sex vinn-
inga. í fimmta til níunda sæti
urðu jafnir að stigum Jón Garðar
Viðarsson, Jón Viktor Gunnars-
son, Liafbem Riemersma, Ivar
Bera og Tobias Christensen með
fímm og hálfan vinning hver.
Alls voru tefldar níu umferðir
á mótinu og réðust úrslit í efstu
sæti í seinustu umferðinni í gær
þegar Þröstur Þórhallsson og
Andrew Martin gerðu jafntefli.
Skák Jóns Garðars Viðarssonar
og Alberts Blees lauk einnig með
jafntefli en Jón Garðar þurfti á
sigri að halda til að ná áfanga
að alþjóðlegum meistaratitli.
Morgunblaðið/Asdís
GUÐMUNDUR Arason afhendir Jóhanni Hjartarsyni stórmeistara íslandsmeistarabikarinn en ein-
vígi Jóhanns og Hannesar Hlífars Stefánssonar um íslandsmeistaratitilinn fór fram samhliða Guð-
mundar Arasonar-mótinu og lauk með sigri Jóhanns sl. miðvikudag.
Lagt til að stofna sjálfseignarstofnun um rekstur Háskóla íslands
Gæti þýtt hærri skólagjöld
Bankamenn
mótmæla
afgreiðslu-
tíma
STJÓRN Sambands íslenskra
bankamanna hefur samþykkt álykt-
un þar sem því er harðlega mót-
mælt að bankar og sparisjóðir skuli
einhliða ákveða að hafa afgreiðslu-
tíma nokkurra þjónustustaða sinna
opna á Þorláksmessu.
Stjómin bendir á að bankarnir
hafi tekið þessa ákvörðun án sam-
ráðs við samninganefnd SÍB. Þar
með hafi þeir brotið ákvæði 12.
greinar kjarasamnings banka-
manna þar sem segi að leita skuli
samkomulags við stéttarfélagið
vegna breytinga á opnunartíma.
Kannað var hvort
starfsmenn vildu vinna
Samband íslenskra viðskipta-
banka (SÍV) sendi í gær frá sér
fréttatilkynningu þar sem ásökun
SIB um brot á kjarasamningum er
mótmælt. „Af þessu tilefni vill Sam-
band íslenskra viðskiptabanka taka
fram að í kjarasamningi banka-
starfsmanna er kveðið á um sam-
ráðsskyldu við starfsmannafélögin
og/eða SÍB í tilvikum sem þessum.
Stjórnendur bankanna höfðu sam-
band við starfsmannafélögin í
tengslum við þessa ákvörðun auk
þess sem kannað var hvort þeir fáu
starfsmenn sem hér um ræðir væru
reiðubúnir að vinna þetta^ kvöld,“
segir í fréttatilkynningu SÍV.
og fæm nemendur í HI
NEFND á vegum Háskóla íslands hefur skilað afdráttarlausri niður-
stöðu á þá leið að mælt er með að hafist verði handa við undirbúning
sjálfseignarstofnunar um rekstur HÍ. Það sé álitlegasti kosturinn, hvort
sem litið sé á fjárhag, starfsmannamál, stjórnkerfi eða gæði menntunar
og rannsókna. Sveinbjöm Bjömsson háskólarektor segir að málið verði
tekið til umræðu innan háskólaráðs 4. janúar. Hugmyndin sé ekki ný
af nálinni en hann reikni með að hún verði skoðuð veí. Slík breyting á
rekstrarformi gæti þýtt takmörkun á fjölda nemenda og ekki sé víst
að pólitísk samstaða sé um að takmarka aðgang að Háskóla íslands.
Deilumar í Langholtskirkju
Sóknamefnd hefur
útvegað organista
ENGAR líkur eru nú taldar á að
sættir náist í deilu organista og
kórs Langholtskirkju annars vegar
og sóknarprestsins hins vegar.
Herra Ólafur Skúlason, biskup ís-
lands, hefur leitað sátta undanfama
daga en án árangurs.
Sóknamefnd Langholtskirkju
hefur nú útvegað annan organista
til að leika á orgel við messur um
jólin en allt er í óvissu um hvort
tekst að fá söngfólk til að annast
kórsöng.
„Spillir jólafriði
og jólagleði“
„Ég er mjög hryggur og leiður
yfír þessu. Þetta varpar dimmum
skugga, ekki aðeins yfir Langholts-
„STAÐAN er óviss. Það er verið
að leitast við að kanna hvort það
sé einhver samkomulagsgrundvöll-
ur. Enn er þó ekkert sýnilegt í hendi
en það er viðleitni á báða bóga þó
það beri ennþá mikið á milli,“ sagði
Þórir Einarsson ríkissáttasemjari í
samtali við Morgunblaðið í gær-
kvöldi. Þá stóð enn sáttafundu'r í
kjaradeilu flugumferðarstjóra og
ríkisins sem hófst upp úr hádegi.
sókn, heldur yfír kirkjulíf og kristni
á íslandi. Við vissum að það yrðu
skuggar um þessi jól vegna hörmu-
legra slysa í Súðavík og á Flateyri.
Það fólk hefur gert sitt til þess að
horfast í augu við lífíð og framtíð-
ina þrátt fyrir mikinn missi og mik-
ið tjón. Ég var hjá því fyrstu helg-
ina í aðventu og dáðist að því hvað
fólkið er duglegt og ákveðið að
halda áfram að lifa. Ég vissi að
margir skuggar lægju yfir allri
þjóðinni af þessum hörmungum en
mér datt aldrei í hug að svona
skuggar af mannavöldum myndu
spilla fyrir okkur jólafriði og jóla-
gleði,“ sagði Ólafur Skúlason bisk-
up í samtali við Morgunblaðið í
gærkvöldi.
Sáttafundur með samninga-
nefndum ríkisins og Félagi íslenskra
flugumferðarstjóra hófst hjá ríkis-
sáttasemjara á fimmtudag. Var
honum haldið áfram kl. 13 í gær
og stóð fundurinn enn yfir þegar
Morgunblaðið fór í prentun. Hugs-
anlegt var talið að boðað yrði aftur
til fundar í dag. Að sögn Þóris eru
deiluaðilar nú famir að ræðast við
af meiri alvöru en áður.
Nefndin leggur einróma til að
rekstarformi HI verði breytt úr rík-
isstofnun í sjálfseignarstofnun og
telur kosti slíkrar breytingar ótví-
ræða. Nefndin telur að breyting
skólans í sjálfseignarstofnun sé
hagkvæmasta leiðin til að tryggja
að tekjur séu jafnan í samræmi við
nemendafjölda og að gæði kennslu
og rannsókna rými ekki vegna fjár-
skorts, sem nú sé augljós hætta á.
Pólitísk samstaða óviss
Sveinbjöm Bjömsson segir að til-
lögur nefndarinnar hafí ýmislegt
jákvætt að geyma, en einnig geti
leynst þar gallar. „Yrði þetta gert
er líklegt að við fengjum skóla sem
gæti betur stýrt kostnaði sínum, en
eina leiðin til þess er að stýra fjölda
nemenda inn í skólann, sem ýmsum
þætti ókostur," segir hann.
Nefndin telur ekki síst mikilvægt
að skólinn fengi fullt ákvörðunar-
vald um kjör starfsmanna sinna.
„Hjá sjálfseignarstofnun eru
starfsmenn ekki ríkisstarfsmenn og
þá ræður skólinn því á hvaða kjörum
Málið
AUSTURRÍSKA fyrirtækið Rubert
Hofer Gmbh. kveðst ekki vera hætt
við að kaupa Sorpu, eins og fram
hefur komið í fjölmiðlum, heldur
hafi fyrirtækið ákveðið að draga sig
í hlé meðan nefnd sem skipuð hefur
verið til að skoða rekstrarbreytingar
á Sorpu er að störfum. Jónas H.
Guðmundsson, umboðsmaður Ru-
bert Hofer hérlendis, segir forráða-
menn fyrirtækisins undrandi yfir að
svar við tilboði fyrirtækisins í Sorpu
hafi ekki borist.
í frétt frá fyrirtækinu kemur fram
að forstjóri Rubert Hofer hafi gert
munnlegt tilboð í rekstur Sorpu í
mars sl., á þá leið að sveitarfélögin
sem eiga Sorpu myndu eiga fyrir-
tækið áfram en reksturinn yrði leigð-
ur Rubert Hofer að öllu leyti eða
hluta, eftir því sem best þætti henta.
þeir eru fengnir til vinnu. Það er
að vissu leyti kostur, einkum í þeim
greinum sem skólinn gæti þurft að
keppa við frjálsan markað um starfs-
menn. Til að fjármagna skólann
finnst mér líklegt að sjálfseignar-
stofnun yrði bæði að taka há skóla-
gjöld og takmarka fjölda í hveija
námsgrein. Það er nokkuð róttæk
breyting og spumingin er hvort þjóð-
in vilji að háskóli, sem litið er á að
þjóðin öll eigi, vinni með slíkum
hætti,“ segir Sveinbjöm.
Lagt er til að fjárframlög úr ríkis-
sjóði yrðu ákvörðuð með samningi
skólans og ríkisvaldsins, þar sem
tekið yrði mið af fjölda nemenda
og kostnaði þess náms sem nem-
andi stundar.
Nefndin telur að með samþykki
laga um listmenntun á háskólastigi
hafi ríkisstjórn og Alþingi lagt til
að sjálfseignarstofnun annist slíka
menntun og undirstrikað kosti þess
rekstrarforms. í skýrslunni er bent
á að nokkrir skólar á háskólastigi
starfi nú þegar samkvæmt þessu
fyrirkomulagi.
Borgarstjóri Reykjavíkur hafi síðan
óskað eftir skriflegu tilboði í þessa
veru.
Engin viðbrögð borgar
„Þar sem engin viðbrögð vom
við þessu tilboði að hálfu borgarinn-
ar,“ segir Jónas, „var ákveðið af
hálfu Rubert Hofer að fara út í
samkeppni við Sorpu. ítarlegar
markaðsrannsóknir vom gerðar hér
í allt sumar og var ákveðið að fara
út í móttöku iðnaðarsorps með þar
til gerðum flokkunarvélum sem
fyrsta skref. Þetta mál var komið
það langt á veg, að hafin var gerð
útboðsgagna og innlendum aðilum
kynnt áform vegna hugsanlegra
hlutabréfaútboða sem Austurríkis-
menn ætluðu að bjóða innlendum
sjóðum og fyrirtækjum."
Eru ekki skyldugir til
að koma til vinnu
Stjórn SÍB segist líta svo á að
starfsmenn banka og sparisjóða séu
alls ekki skyldugir til að koma til
vinnu á Þorláksmessu.
-----» ♦ ♦----
Laufa-
brauðsdeigið
flatt heima
HEILBRIGÐISNEFND Eyjafjarðar
sendi brauðgerðum á Akureyri er-
indi fyrir nokkm, þar sem fram kom
að bannað væri að fletja út laufa-
brauðsdeig sem búið væri til í
heimahúsum. Var þetta gert til að
fyrirbyggja hugsanlegt smit frá
heimilum í brauðgerðir bæjarins.
Nokkuð hefur verið um að al-
menningur léti einstaka brauðgerð-
ir fletja út deigið, en nú er sá mögu-
leiki ekki lengur fyrir hendi. Valdi-
mar Brynjólfsson, heilbrigðisfull-
trúi, sagði að einhverrar óánægju
hefði gætt hjá fólki með þessa
ákvörðun en slík viðbrögð hafí ekki
komið frá brauðgerðunum.
Hann segir ennfremur að þegar
átti að fara að hrinda þessari að-
gerð í framkvæmd hafí umræða um
Sorpu loks hafist í borgarstjórn og
samkvæmt þeim upplýsingum sem
borist hafi RH verið samþykkt þar
að breyta rekstrarfyrirkomulagi
Sorpu yfír í hlutafélagsform og
bjóða innlendum sem erlendum aðil-
um upp á að gerast hluthafar í fyrir-
tækinu.
Hættir við samkeppni
„Þegar þessi frétt barst eigend-
um Rubert Hofer var sú ákvörðun
tekin að hætta við áðumefnda
framkvæmd. Er það því rangt að
eigendur Rubert Hofer séu hættir
við að kaupa Sorpu. Rétt er að
þeir em hættir við að fara út í sam-
keppni við Sorpu að svo stöddu."
Sáttasemjari um flugvirkjadeiluim
Meiri alvara í viðræðum
Austurríska fyrirtækið ekki hætt við að kaupa Sorpu
er í biðstöðu