Morgunblaðið - 23.12.1995, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 1995 37
MINNINGAR
miklu í lífí Dísellu, allt frá barns-
aldri. Ung lærði hún að spila á píanó
og hún lék á það hljóðfæri meðan
hún hafði heilsu til. A Akureyri tók
Herdís Elín þátt í að byggja upp
tónlistarlíf, sat í stjórn Tónlistarfé-
lagsins og hlúði að músíklífi í bæn-
um.
Herdísi Elínu var margt gefið.
Hún var vitur, glaðvær og bjartsýn.
En hún hafði líka til að bera festu
og ákveðni og var trú lífsgildum
sínum; mannúð, kærleik og um-
burðarlyndi. Hugsun og afstaða
Matthíasar afa hennar var henni
alla tíð mjög mikils virði. í Barna-
sálmi segir Matthías meðal annars:
Þú býr á háum himnastól
og hefur skapað þessa sól
og alla veröld víða;
þú klæðir grösum fagra fold
þú fæðir veikan orm í mold
og dýr og fuglinn fríða.
Þitt blessað ljósið lýsir mér,
svo lifi ég og fylgi þér
á vísdóms vegi sönnum;
en auk mér þroska dyggð og dáð,
svo dafni ég í Jesú náð
hjá Guði og góðum mönnum.
Ég þakka tengdamóður minni
samfylgdina.
Sumarliði R. ísleifsson.
Það er stundum sagt að við eig-
um að gleðjast, þegar einhver deyr
sem á enga batavon og hefur þjáðst
lengi. Það er nefnt lausn. Líklega
er það rétt, en það er sárt. Andláts-
frétt æskuvinkonu minnar Herdísar
Elínar Steingrímsdóttur kom ekki
á óvart en það var samt sárt.
Við Dísella, eins og hún var ávallt
nefnd meðal vina, kynntumst á
Akureyri ungar stelpur. Þá voru
foreldrar hennar skilin, en Díselta
kom norður á sumrin meðan faðir
hennar bjó þar enn og hélt sínu
gamla heimili í glæsilegu læknis-
húsi skammt fyrir neðan gamla
sjúkrahúsið. Systir Steingríms,
Matthea, var þar um skeið og ég
man Halldóru, sem Dísella nefndi
ævinlega Abdúllu og mjög kært var
með þeim. Læknisheimilið var fal-
legt með garði sunnan við húsið.
Þar man ég marga glaða stund í
sumarsól, þegar vinir og kunningjar
unga fólksins litu inn. Við vinstúlk-
urnar fórum saman í sund daglega
og lékum stundum tennis áhyggju-
lausar og kátar, og þegar Dísella
fór hófust miklar bréfaskriftir.
Þetta var yndislegur tími og lífið
framundan óskrifað blað.
Ellefu ára að aldri hafði Dísella
farið með móður sinni til Indlands,
siglt með stóru skipi um Miðjaðar-
haf og Súezskurð, og ég man hvað
hún sagði skemmtilega frá og hve
mér þótti þetta stórkostlegt ævin-
týri, enda sjaldgæft að fólk færi til
íjarlægra landa á þessu skeiði sög-
unnar. Við Dísella vorum 13 og 14
ára sumarið sem við fórum saman
ógleymanlega ferð þótt ekki væri
langt farið. Faðir hennar átti bústað
í Vaglaskógi og Dísella hafði nefnt,
að okkur langaði mikið að fá að
fara í Skóginn. Það var auðsótt ef
ég fengi leyfi foreldra minna, og
ekki stóð á því. „Dísella er skáti
og kann allt,“ sagði ég og það var
t
Móðursystir mín,
GUÐRÚN LOFTSDÓTTIR
frá Haukholtum,
verður jarðsungin frá Fossvogskapellu
miðvikudaginn 27. desember kl. 13.30.
Fyrir hönd vandamanna,
Hulda Gunnlaugsdóttir.
t
Hjartans þakkir til þeirra, sem sýndu okkur samúð og elskuleg-
heit vegna andláts móður minnar og ömmu,
GUÐLAUGAR BJÖRNSDÓTTUR,
Fögrugrund,
Akranesi.
Unnur Leifsdóttir,
Hrönn Eggertsdóttir, Hlynur Eggertsson
og fjölskyldur.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við fráfall og
útför móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og systur,
KRISTÍNAR GUÐBRANDSDÓTTUR,
Njálsgötu 80,
Reykjavik.
Franz Jezorski, Sesselja Berndsen,
Guöbrandur Jezorski, Barbara Haage,
barnabörn, barnabarnabörn
og systkini hinnar látnu.
t
Þökkum innilega samúð og vinarhug við
andlát og útför móður okkar, fóstur-
móður, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
KRISTÍNAR GUÐJÓNSDÓTTUR,
Búrfelli,
Grímsnesi.
Guð gefi ykkur öllum gleðileg jól.
Guörún Á. Halldórsdóttir, Björn Jensen,
Ólöf Erla Halldórsdóttir, Róbert Björnsson,
Kristín Sólveig Krowl, Skúli Þór Smárason,
Hjördís Davíðsdóttir, Halldór Björnsson,
Benedikt Smári Skúlason, Róbert Sindri Skúlason,
Gauti Gunnar Halldórsson.
rétt, hún var sannur skáti og fór
víða um heim á skátaþing og fundi.
En Steingrímur setti skilyrði: Við
áttum að ganga upp að Hálsi og
bera séra Ásmundi kveðjur hans
og svo yrðum við að yrkja brag,
sem hann fengi að sjá, þegar við
kæmum heim’. Oft minntuijist við
stöllur þessarar dýrðlegu viku, sem
við vorum í Selinu. Við böðuðum
okkur í Fnjóskánni, stripluðumst
eins og böm og burstuðum tennur
léttklæddar úti í ánni. Heim komum
við gangandi yfir Vaðlaheiði og
bárum Steingrími kveðjur séra Ás-
mundar og afhentum honum brag-
inn inni á skristofu hans. Þetta var
langur bragur, en ég þóttist lesa
úr svip og viðbrögðum læknisins,
að heyrt hefði hann betur kveðið.
Meðan Steingrímur las braginn
hlustuðum við grafalvarlegar. Hann
kom til okkar, klappaði okkur og
sagði að við værum ágætar stelpur.
Steingrímur kunni að tala við börn
og mér þótti strax vænt urri hann.
Árin liðu og leiðir skildi, en þau
eru býsna haldgóð böndin sem
bundin eru á æskuárum, og þau
slitnuðu aldrei, þótt vík væri milli
vina. Herdís Elín gekk að eiga Sig-
urð Ólason lækni árið 1943, eignað-
ist ijögur börn sem hún annaðist
af miklum kærleika og dáði, síðar
komu barnabörnin tíu, sem hún til-
bað. Ég heimsótti þau þegar Sig-
urður var við framhaldsnám árið
1947. Þá bjuggu þau í Södertálja
skammt frá Stokkhólmi ásamt
fyrsta barni sínu, Sigríði. Þegar þau
settust að á Akureyri þar sem Sig-
urður starfaði lengst af sem yfir-
læknir á röntgendeild sjúkrahúss-
ins, var ég að flytja af landi burt
og kom ekki aftur til búsetu á
Akureyri. Fundir urðu strjálir en
þegar ég var í Davíðshúsi á útmán-
uðunum 1993 hittumst við oft, og
ég hlakkaði til að fá hana suður.
Sigurður var hættur störfum, og
þau vildu vera nálægt börnum sín-
um og höfðu búið vel um sig á
Öldugötu 3 hér í borg. En dvölin
þar varð skemmri eri vonir stóðu
til. Heilsu hennar hrakaði stöðugt,
og þótt hún væri glöð og nokkuð
bjartsýn framan af, segðist hlakka
til að fara að aka bíl og heilsa upp
á gamla vini með vori, þá kom það
vor aldrei í hennar lífi heldur upp-
hófst spítaladvöl á Vífilsstöðum sem
varð löng og erfið. Nú er hún far-
in, þessi góða og gáfaða kona, sem
var dul og prúð en bjó yfir miklum
hæfileikum, tónlistamæmi og ást á
fögrum listum eins og hún átti kyn
til. í blóma lífsins var hún hlátur-
mild og skemmtileg og húmorinn
afar fínn. Ég kveð kæra æskuvin-
konu með söknuði og þökk.
Guð blessi hana og styrki ástvini
hennar.
Anna S. Snorradóttir.
-------» ♦ 4--------
BRIPS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Bridsfélag Akureyrar
Þriðjudaginn 19. desember var spil-
aður eins kvölds jólatvímönningur og
fengu þrjú efstu pörin hangikjöt í verð-
laun. Utslit urðu þessi:
Skúli Skúlason - Guðmundur Jónsson 192
Stefán Sveinbjörnsson - Öm Einarsson 189
Stefán Ragnrsson - Sigurbjöm Haraldsson 189
Þetta var síðasta spilakvöld félags-
ins á þessu ári, en Akureyrarmót í
sveitakeppni hefst þriðjudaginn 2. jan-
úar.
Skráning sveita er þegar hafin hjá
Páli H. Jónssyni sími 462-1695 og
væri gott að menn létu skrá sig fyrir
áramót. íslandsbankamót sem er
Mikael-tvímenningur verður spilaður
laugardaginn 30. desember í Alþýðu-
húsinu, Skipagötu, og hefst kl. 10.
Skráning keppenda er hafin hjá Páli
H. Jónssyni, sími 462-1695, og er
æskilegt að menn láti skrá sig fyrir
kl. 20 föstudaginn 29. desember.
íslandsbanki gefur öll verðlaun í
mótið. Útslit í Sunnudagsbridsi 17.
desember urðu þessi:
Sveinbjöm Sigurðsson - Tryggvi Gunnarsson 189
Anton Haraldsson - Sigurbjöm Haraldsson 188
Sveinbjöm Jónsson - Sveinn Torfi Pálsson 179
Eiður Gunnlaugsson - Guðmundur Jónsson 176
Matur og matgerð
Ósætt
jólabakkelsi
Flestar uppskríftir af jólabakkelsi eru
með sykri, en sykursjúkir þurfa líka að
fá sitt segir Kristín Gestsdóttir og gefur
okkur uppskriftir af ósætu jólabakkelsi.
FLESTIR íslendingar hafa kom-
ið sér upp einhverjum hefðum í
mat og drykk um jólin. Bland
úr malti og appelsíni er ómiss-
andi hjá mörgum, svo ómissandi
að það er sent milli heimsálfa
til að hafa um jólin. Þegar ég
var í skóla hér áður fyrr voru
samgöngur þannig að ég komst
aldrei heim um jól og páska enda
átti ég heima á Seyðisfirði og
ferðir strandferðaskipanna pöss-
uðu ekki við jólafríið. Ég var
alltaf boðin til ættingja í mat
um jólin og fékk auðvitað alltaf
mjög góðan mat þó það væri
ekki sami matur og ég hafði
vanist heima hjá pabba og
mömmu. Eitt sinn rifust systkin-
in á einu af þessum heimilum
mikið út af því að systir þeirra
hefði eyðilagt jólin með því að
búa til ananasfrómas í stað kaf-
fifrómas. Ég hefi aldrei getað
gleymt þessu, mér fannst þetta
svo léttvægt og fjarri því að
skyggja á jólagleðina. Vissulega
gleðjumst við við góðan mat og
drykk um jólin og nú hin síðari
ár við mikið sælgæti. Kökurnar
eru víða borðaðar á jólaföstu en
sælgætið bíður jóla. Sumir mega
aldrei borða neinn sykur en jólin
koma samt til þeirra. í þessum
þætti verða uppskriftir af ósætu
jólabakkelsi.
Nú fæst alltaf frosið smjördeig
(butterdeig) í útflöttum plötum,
sem legga má saman með ein-
hvetju gómsætu, skera í ræmur
og baka. Þetta eitthvað getur
verið alls konar ostur sem strá
má á ýmiss konar jurtakryddi,
poppyseed eða sesamfræi, einnig
má nota muldar jarðhnetur eða
aðrar hnetur, tómatsósu eða pizz-
usósu, smátt mulið steikt beikon
eða pylsur, kjöt- eða grænmetis-
kraft eða Marmite. I þessu er
best að láta smekk og þarfir
hvers og eins ráða, en ekki skað-
ar að hafa svolítið hugmyndaflug
með. Gæta verður þess vel að
baka þetta við frekar lágan hita,
smjördeig er ekki gott þegar það
brúnast.
Smjördeigvafningar
með Marmite
3 plötur smjördeig
2 tsk. sveppasmurostur
eða annar ostur
2 tsk. Marmite
1. Raðið plötunum á bretti,
smyijið smurosti á eina plötu, legg-
ið aðra ofan á, smyrjið Marmite á
hana, leggið þriðju plötuna ofan á
2. Fletjið þetta örlítið út með
kökukeflefli, skerið síðan í cm
ræmur á styttri hliðina, vefjið örlít-
ið upp á og leggið á bökunarpapp-
ír, þrýtið aðeins á endana svo að
vafningarnir losni ekki.
3. Hitið bakaraofn í 150-160
C, blástursofn í 140-150 C. Setjið
í miðjan ofninn og bakið í 15 til
20 mínútur. Þetta á alls ekki að
brúnast.
Kryddað uppblásið
jólakex
Notið piparkökumót
500 g hveiti
1 'A tsk. salt
‘A tsk. turmeric, gult ódýrt krydd,
má sleppa
'A msk. papríkuduft
2 msk. poppyseed, gráleitt krydd
fersk eða þurrkuð steinselja
5 egg
1 dl kalt vatn
1. Setjið hveiti, salt, turmeric
papríkuduft, poppyseed og stein-
selju í skál.
2. Setjið egg og vatn út í og hnoð
ið deig.
3. Fletjið deigið þunnt út, skerið
með pipaarkökumótunum og raðið
á bökunarpappir.
4. Hitið bakaraofninn í 250 C, setj
ið í miðjan ofninn og bakið í urn
5-6 mínútur. Við þennan rnikla
hita á kexið að blása eins og pítu
brauð.
5. Geymið á köldum stað eða
frySt' Gleðileg jól.