Morgunblaðið - 07.01.1996, Blaðsíða 2
2 SUNNUDAGUR 7. JANÚAR 1996
FRÉTTIR
33 þúsund
fjölskyld-
ur eiga
hlutabréf
RÚMLEGA 33 þúsund manns áttu
hlutabréf í árslok 1994, samtals að
Qárhæð rúmlega 20 milljarða kr.
að nafnverði, samkvæmt skatt-
framtölum. Samsvarar þetta liðlega
600 þúsund kr. á mann eða hjón.
Raunverulegir eigendur hlutabréfa
eru þó töluvert fleiri því á skatt-
framtölum eru eignir hjóna færðar
saman, á það hjóna sem hærri hef-
ur tekjurnar.
Kaup almennings á hlutabréfum
hafa aukist mjög á síðustu árum,
meðal annars vegna skattaafslátt-
ar. Ekki liggja fyrir tölur um hluta-
bréfaeign um þessi áramót en sam-
kvæmt upplýsingum Ríkisskatt-
stjóra úr framtölum síðustu ára
hefur hlutabréfaeign vaxið stöðugt.
Taka ber fram að hlutabréf eru
skráð á nafnverði í skattframtali
en ekki markaðsverði. í árslok 1987
nam hlutabréfaeignin 5,5 milljörð-
um á verðlagi þess árs en var kom-
in í rúma 20 milljarða í lok ársins
1994. Á þessum tíma hefur íjöldi
hlutabréfaeigenda vaxið um liðlega
50%, úr 21.253 í 33.210.
40% af þeim sem
eiga fasteign
Til samanburðar má geta þess
að í árslok 1995 áttu 79.260 fram-
teljendur fasteign. Hafa ber í huga
að fasteignir hjóna eru skráðar á
annað nafnið, eins og hlutabréfin.
íbúðareign virðist því liðlega helm-
ingi algengari en eign hlutabréfa.
----------♦ ♦ ♦-----
Tekinná
160 kmhraða
MAÐUR á tvítugsaldri var stöðvað-
ur á bíl sínum á Reykjanesbrautinni
aðfaranótt laugardagsins á 161 km
hraða á klst.
Þrír menn hafa verið teknir fyrír
að aka á meira en 160 km hraða
á Reykjanesbrautinni á þessu ári.
Vegurinn var mjög blautur og
þarf vart að fjölyrða um þá hættu
sem ökumaðurinn hefur sett sjálfan
sig og aðra í með slíkum hrað-
akstri. Hann var sviptur ökuréttind-
um á staðnum.
Milljónatjón á
Akureyrinni
TJÓN á Akureyrinni EA-110
gæti numið nokkrum milljón-
um króna samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins. Akur-
eyrin fékk á sig brot á svoköll-
uðu Hampiðjutorgi, um 100
sjómílur vestur af Vestfjörð-
um, á ellefta tímanum á föstu-
dagsmorgun.
Brotsjórinn reið yfir allt
framskipið, sveigði inn fram-
hliðina og skekkti dekkið lít-
ilsháttar. Gluggi í brúnni
brotnaði og sjór flæddi niður
á neðri þilför. Árni Bjarnason
skipstjóri var niðri þegar brot-
ið reið yfir. Hann segir að
svakalegt högg hafi komið á
skipið, eins og við mikinn
árekstur, og hann hafi flýtt
sér upp í brúna. í stiganum
fékk hann yfir sig „sturtu" af
köldum sjó. Stýrimaðurinn
var einn í brúnni og varð hann
ekki fyrir brotrnu. Árni sagði
að illa hefði getað farið ef
einhver hefði orðið fyrir því.
Rafeindatæki skemmdust
Eftir að brotið reið yfir var
haldið af miðunum og komið
til hafnar í Reykjavík eftir
20 tíma siglingu. Skemmdir
höfðu ekki verið fullkannaðar
í gærmorgun. Engu að síður
var ljóst að gírókompás, sigl-
ingatölva og fleiri rafeinda-
tæki í brúnni höfðu skemmst.
Árni sagðist vona að hægt
yrði að halda á miðin á nýjan
leik eftir 2 til 3 daga. Skipið
var nýkomið á miðin og hafði
fengið 8 til 9 tonn af grálúðu
í einu holi þegar brotið reið
yfir. Átta til tíu vindstig voru
á miðunum.
Bjarni Sæmundsson á
Vestfjarðamið
Leitað með
bergmáls-
mælingum
HAFRANNSÓKNASKIPIÐ Bjarni
Sæmundsson átti að halda í leiðang-
ur á Vestfjarðamið kl. 20 í gær-
kvöldi, laugardag, en ferðinni var
ekki frestað fram yfir helgi eins og
sagði í Morgunblaðinu í gær. Til-
gangur ferðarinnar er að rannsaka
þorskgengd á miðunum.
Fregnir hafa borist um mikinn
þorsk á Vestfjarðamiðum að undan-
förnu. „Við munum taka fleiri sýni
til aldursgreiningar til að átta okk-
ur betur á hvort þarna sé eitthvað
óvanalegt á ferðinni,“ sagði Sigfús
Schopka fískifræðingur og einn
leiðangursmanna.
„Hugmyndin er sú að reyna að
slá á magnið þama með bergmáls-
aðferðinni. Það er ekki mikil reynsla
af þeirri aðferð hér við land en
Norðmenn hafa notað hana meðal
annars í Barentshafi með mjög
góðum árangri," sagði Sigfús.
, # # Morgunblaðið/Kristinn
ARNI Bjarnason við gírókompásinn í brúnni. Neglt hafði verið fyrir gluggann þar sem sjórinn fór inn.
Tuttugu þús. kr. símreikningur fyrir tímabil þegar enginn var heima
Braust inn á
símalínuna og
hringdi á símatorg
KVÖRTUN símnotanda vegna
óeðlilega hás símreiknings hefur
leitt til þess að i ljós er komið
að „brotist hafði verið inn“ á
símalínu hans og síðan hringt á
hans kostnað í símatorg oft og
talað lengi.
Póstur og sími hefur kannað
málið og að sögn Bergþórs Hall-
dórssonar yfírverkfræðings er
niðurstaðan sú að reikningur
notandans verður lækkaður.
Málinu verður hins vegar ekki
vísað til lögreglurannsóknar þar
sem ekki eru taldar líkur á að
sannað verði hver var að verki.
Jónas Ólafsson, sveitarstjóri á
Þingeyri, er símnotandinn sem
kvartaði við Póst og síma þegar
honum barst á dögunum 20 þús-
und króna símreikningur en
hann og fjölskylda hans höfðu
verið að heiman stærstan hluta
tímabilsins sem reikningurinn
náði til.
Jónas sagðist í samtali við
Morgunblaðið hafa talið sím-
reikninga sína óeðlilega háa und-
anfarin tvö ár og sagðist hafa
talið að sitt heimafólk notaði
símann óhóflega en um þverbak
hefði keyrt þegar síðasti reikn-
ingur barst. „Þá hafði ég ekki
verið heima og þetta gat alls
ekki staðist," sagði hann. Hann
sneri sér til Pósts og síma þar
sem málið var tekið til athugun-
ar.
Erling Sörensen, umdæmis-
stjóri Pósts og síma á Isafirði,
sagði í samtali við Morgunlaðið
að ljóst virtist að um misnotkun
á símkerfínu væri að ræða og
að reikningur Jónasar yrði lækk-
aður þannig að hann biði ekki
tjón af.
Bergþór Halldórsson, yfir-
verkfræðingur hjá Pósti og síma,
sagði að ekki væri um einsdæmi
að ræða hér á landi en mál af
þessu tagi væru þó afar fátíð.
Varla til lögreglurannsókn
Bergþór sagði að Póstur og
sími teldi nánast víst að sá sem
misnotað hefði símann í þessu
tilviki væri annar notandi á Þing-
eyri. Ekki væri vitað hver það
væri og ólíklegt væri að það
fengist upplýst. Því yrði málinu
tæplega vísað til lögreglurann-
sóknar.
Bergþór sagði að „innbrotið“
á símalínuna væri þannig fram-
kvæmt að farið væri í tengibox
utan við heimili notandans og
því teldist sú óeðlilega notkun
sem af leiddi á ábyrgð Pósts og
síma.
„í sumum tilfellum hafa
tengibpx ekki verið nógu vel
varin. í þessu tilfelli sýnist okkar
mönnum að málið sé þess eðlis,“
sagði Bergþór.
Hann vildi að öðru leyti lítið
ræða um hvemig að verkinu
hefði verið staðið eða hvaða
tækniþekkingu þyrfti til að fram-
kvæma verknað eins og þennan.
Hann sagði að misnotkun af
þessu tagi væri mun sjaldgæfari
hérlendis en í flestum öðrum lönd-
um þar sem víða hefði orðið
umtalsvert tjón af þessum sökum.
Póstur og sími hefði nýlega óskað
heimildar til að skrá öll símtöl
m.a. til þess að eiga auðveldara
með J)ví að vinna gegn misnotk-
un. Aður hefur komið upp dæmi
þess að farsímanotandi hafi látið
aðra greiða fyrir eigin notkun og
sagði Bergþór að í framhaldi af
því hefði stofnunin sett í gang
reglubundna vinnu til að standa
betur að vígi varðandi það að
koma í veg fyrir svindl. „Við vilj-
um helst geta komið upp um
svona mál áður en við fáum
kvartanir frá notendum,“ sagði
Bergþór Halldórsson.
MORGUNBLAÐIÐ
► 1-56
Stefnumörkun
er tímabær
►Háskólamenn teljatímabært að
rætt verði um framtíðarskipan
náms4 háskólastigi hér á landi.
/10
Röð af mistökum
►Röð mistaka flugmanna virðist
hafa leitt til flugslyssins við Cali
í Kólumbíu fyrir jól. /12
Launinj Hanstholm
Lífið á íslandi
►Rætt er við íslendinga sem flutt
hafa til Hanstholm í Danmörku.
Fólkið lýsir muninum á lífinu og
vinnunni í Danmörku og heima á
íslandi. /16-18
Hvötinni má líkja
viö veiðieðli
► Páll Steingn'msson í Kvik hf.
hefur helgað sig gerð heimildar-
kvikmynda. Nýlega frumsýndi
hann mynd um sambúð manns og
æður. /22
Stærstir á
möppumarkaðinum
►Margir öryrkjar starfa hjá Múia-
lundi, helsta framleiðanda bréfa-
binda í landinu. /24
B
► l-36
Hver rödd verður
að heyrast
►Séra Bernharður Guðmundsson
er yfirmaður ráðgjafarþjónustu
Lúterska heimssambandsins á
sviði boðmiðlunar. /1-4
Átján barna faðir
í djassheimum
►Paul Weeden, djassgítaristi
kemur hér reglulega til að kenna
galdur djassins. /6
í draumi sérhvers
manns er kona hans
falin . . .
►Bubbi Morthens tónlistarmaður
er mikill bókaormur og hefur skoð-
anir á lífínu og listinni, ekki síst
bókmenntum. /16
Heimshornaflakkari
og hugsjónamaður
►Pétur Valgeirsson hefur meira
og minna verið á ferðalögum um
heiminn undanfarin níu ár. /18
BÍLAR_____________
► 1-4
Alþjóðlega bíla-
sýningin í Detroit
►Margar gerðir hugmyndabíla
bar fyrir augu sýningargesta í
Detroit. Ford sýndi m.a. götubíl
með afl á við kappakstursbíl. /1-2
Reynsluakstur
►Afimiklum fimm manna Izusu
pallbíl með fjórhjóladrifi var
reynsluekið.
/4
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/6/bak
Uiðari 28
Helgispjall 28
Reylqavikurbréf 28
Minningar 33
Myndasögur 40
Bréf til blaðsins 40
ídag 42
Brids 42
Stjömuspá
Skák
Fólk i fréttum
Bíó/dans
Útvarp/sjónvarp
Dagbók/veður
Gámr
Kvikmyndir
Dægurtónlist
INNLENDAR FRÉTTIR-
2-4-8-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR-
1-6
42
42
44
46
52
55
4b
12b
14b