Morgunblaðið - 19.01.1996, Qupperneq 16
16 FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
LAIMDIÐ
Morgnnblaðið/Dagný Hildisdóttir
JÓN Hjálmarsson, forstöðumaður íþróttamiðstöðvarinnar, veitir
sundjökkunum viðtöku. Konurnar, sem afhentu gjöfina, eru
Guðrún Pétursdóttir, formaður deildarinnar, Kristbjörg Halis-
dóttir, Sigrún Oddsdóttir og Birna Margeirsdóttir.
Sundhöllinni gefnir sundjakkar
Garði - Enn á ný koma konurnar
færandi hendi. Sl. mánudagskvöld
færði kvennadeild Björgunarsveit-
arinnar sundhöllinni 10 sundjakka
til almennrar notkunar fyrir börn
3-9 ára.
Jakki þessi er sérstaklega
hannaður til að veita börnum ör-
yggi í vatni og hjálpa þeim að
fljóta.
Þegar íþróttamiðstöðin var opn-
uð gaf kvennadeildin ásamt kven-
félaginu myndavélar í sundlaugina
sem gerir starfsmönnum kleift að
fylgjast mjög náið með öllum ör-
yggismálum laugarinnar.
Útköll og önnur þjónusta slökkviliðs ísafjarðar á árinu 1995
A þriðja hundrað útköll
vegna sjúkraflutninga
ísafirði - Slökkvilið ísafjarðar var
kallað út 398 skipti á síðasta ári
vegna ýmiss konar þjónustu sem
slökkvilið veitir. 5 sinnum var liðið
kallað út vegna bruna, 19 sinnum
vegna eldvarnakerfa, 42 sinnum
vegna eldvamareftirlits og 22
sinnum vegna funda. Þá var liðið
kallað 15 sinnum út vegna æf-
inga, 217 sinnum vegna sjúkra-
flutninga, 14 sinnum vegna
helgarvakta, 32 sinnum vegna
annarrar þjónustu og 30 sinnum
var liðið kallað út vegna funda
almannavarnanefndar.
Fyrsta brunaútkall ársins var
10. júní en þá var slökkviliðið kall-
að út vegna sinuelds í Hnífsdal.
25. júlí var slökkviliðið kallað út
vegna elds um borð í skuttorgar-
anum Páli Pálssyni og var það
umfangsmesta brunaútkall ársins.
16. ágúst var liðið kallað út vegna
elds í rafmagnstöflu í húsnæði
Básafells og í október var liðið
kallað tvisvar út vegna bilunar í
mótorum hjá Flugfélaginu Erni.
Flest útköll í janúar
Flest útköll vegna sjúkraflutn-
inga voru í janúar eða 55, þá kom
október með 29 útköll og apríl og
ágúst með 18 útköll. Flest útköllin
voru innanbæjar á Ísafírði eða
118, 50 voru vegna flutninga
sjúklinga frá FSÍ að ísafjarðar-
flugvelli og 20 vegna flutnings
sjúklinga frá Flateyri en níu þeirra
voru í október þegar snjóflóð féll
á staðinn. Átta sjúkraflutningar
voru frá Súðavík til ísafjarðar og
voru þeir allir í janúar á síðasta
ári í tengslum við snjóflóðið sem
féll á staðinn.
Ef litið er á yfirlit yfir sjúkra-
flutninga slökkviliðsins á síðustu
fimm árum kemur í ljós að flestir
voru þeir árið 1990 eða 243. Árið
1991 var liðið kallað 212 sinnum
út vegna sjúkraflutninga, árið
1992 voru þeir 203, 163 árið
1993, 224 árið 1994 og á síðasta
ári voru útköllin 217. Á síðasta
ári var slökkviliðið kallað 21 sinni
út vegna bilunar í eldvarnarkerf-
um fyrirtækja og stofnana, þar
af 11 sinnum vegna Fjórðungs-
sjúkrahússins á Isafirði. Fjórum
sinnum var liðið kallað út vegna
eldvarnarkerfis í Turnhúsinu í
Neðstakaupstað og þrisvar sinn-
um vegna Framhaldsskóla Vest-
fjarða.
Stoppaði á
þúfum sem
stóðu upp
úr gljánni
Jökuldal - „Eg ákvað að
stökkva ekki út úr traktornum,
því þá var ég í hættu með að
lenda undir honum,“ sagði
Snæbjörn Ólason bóndi á
Hauksstöðum eftir að traktor
sem hann var á lenti á gljá
við fjárhúsin hjá honum og
rann niður brattan bakka við
fjárhúsin og stöðvaðist á þúf-
um sem stóðu upp úr gljánni.
Mikil hálka og svellalög
hafa verið á Jökuldal undan-
farið og hafa íbúar hreppsins
Ient í nokkrum hremmingum
vegna þess. Eins og fram kom
í Morgunblaðinu lenti vörubíll
í gil við bæinn Merki, bílar á
ferð um hringveginn lentu í
erfiðleikum í Arnórsstaða-
múla, og nemendur Skjöldólfs-
staðaskóla voru heima einn
dag vegna hálku á vegum
meðan vegagerðarmenn unnu
að úrbótum þar á.
Snæbjörn var að fara með
fjórhjól í vetrargeymslu á
traktornum þegar hann lenti
út á svell við hlöðuhomið og
rann á stað niður brattan
bakka við fjárhúsin. Ekki var
tími til að gera neitt nema
láta þyngdarklossa sem er aft-
an á traktomum síga og setja
niður skófluna sem er á
ámoksturstækjunum, og bíða
þess er verða vildi sagði Snæ-
björn.
Snæbjöm sagði að ekki
hefði komið til greina að
stökkva út úr vélinni þar sem
þá hefði verið hætta á að lenda
undir henni, hann reiknaði
með að vélin mundi renna nið-
ur á tún, eitt til tvö hundruð
metra, og stöðvast þar. Trakt-
orinn stoppaði hinsvegar þeg-
ar hann hafði dengst niður
brattan kant fyrir ofan túnið,
um þijátíu metra, og stoppaði
á þúfum sem stóðu upp úr
svellinu.
Aðspurður sagði Snæbjöm
að þetta hefði gerst svo hratt
að enginn tími hefði verið til
að verða hræddur, en hann
hefði samt verið feginn þegar
traktorinn stoppaði. Ural-
tmkkur með spili, frá Slysa-
varnasveitinni Jökli, var feng-
inn til að draga traktorinn upp
bakkann og gekk það vel.
Morgunblaðið/Silli
GAUKUR Hjartarson við talningu.
Vetrar-
fugla-
talning á
Húsavík
Húsavík - Fuglatalningarmenn á
Húsavík og í nærsveitum töldu
að þessu sinni á 10 afmörkuðum
talningarsvæðum og töldu þeir
10.094 fugla sem skiptust í 37
tegundir.
Samkvæmt upplýsingum
Gauks Hjartarsonar sem hefur
heildaryfirlit yfir talninguna,
voru sjaldgæfustu tegundirnar,
sem sáust, toppskarfur, grágæs,
urtönd, grafönd og æðarkóngur.
Allar þessar tegundir hafa sést
í fáein skipti. Gráönd hefur nú
vetursetu á Húsavík 3. árið í
röð. Kvenfugl æðarkóngs, æðar-
drottning, hefur haldið sig við
Húsavík frá apríl sl. og fannst
nú í talningunni.
Fjöldi æðarfugla var í meira
lagi. Þeir eru þó dreifðari en
verið hefur undanfarin ár enda
ekki stór hópur við afrennsli
rækjuverksmiðja eins og oft hef-
ur verið enda verulega minni
úrgangi hleypt í sjó en áður.
Meira sást af rjúpum en undan-
farið en hinsvegar sáust færri
fálkar nú en oft áður.
Óvenjufáir svartfuglar sáust í
þessari talningu enda hefur tíð-
arfar verið gott en þeir sjást
mest við land eftir vond veður.
Aðeins sáust tveir músarrindl-
ar en svo fáir hafa þeir ekki
verið frá 1985. Fremur lítið sást
af snjótittlingum enda hefur ver-
ið mjög snjólétt það sem af er
vetri. Aftur á móti sáust óvenju
margir skógarþrestir. Fleiri grá-
þrestir sáust nú en áður og sáust
þeir víða á fjörum norðan Húsa-
víkur, en það hefur ekki gerst
áður.
Skilyrði til talningar voru með
besta móti.
Innbrotið í Shell-
skálann í Bolungarvík
Stór hluti
þýfisins kom-
inn í leitirnar
Isafirði - Mönnunum þremur, sem
settir voru í gæsluvarðhald á ísafirði
vegna innbrotsins í Shell-skálann í
Bolungarvík og áhaldahús bæjarins
aðfaranótt síðastliðins föstudags hef-
ur verið sleppt.
Sýslumaðurinn í Bolungarvík
sagði í samtali við blaðið, að rann-
sókn málsins væri lokið og að stór
hluti þýfisins kominn í leitimar.
Þýfið, sem í leitirnar er komið, er
að verðmæti um 300 þúsund krónur,
en um 100 þúsund krónum höfðu
mennirnir eytt.
-----» ♦ ♦-----
Smygl í
Hegranesi
UPP komst um smygl í togaranum
Hegranesi á Sauðárkróki aðfaranótt
þriðjudags. Togarinn var að koma
úr siglingu frá Þýskalandi og viður-
kenndu sjö af tólf skipverjum að eiga
smyglið.
Leitarflokkur frá Tollgæslunni í
Reykjavík fann smyglið um borð í
skipinu, alls vel á þriðja hundrað lítra
af sterku víni, 150 Iítra af bjór, 15
lítra léttu víni og eitthvað af vindling-
um. Málið er að fullu upplýst. Sam-
tals námu sektir vegna smyglsins á
aðra milljón króna.
Fjallað um græna ímynd Fljótsdalshéraðs
Egilsstöðum - Atvinnumálanefnd
Egilsstaða og atvinnumálanefndir
annarra sveitarfélaga á Héraði
stóðu fyrir fundi nýverið þar sem
fjallað var um ,græna stefnu“ í
umhverfísmálum. Mikill áhugi er
fyrir málefni þessu og mættu um
hundrað manns á fúndinn.
Sveinn Jónsson, formaður at-
vinnumálanefndar Egilsstaða,
kynnti efni fundarins og velti fram
þeirri spurningu hvaða ávinning það
hefði fyrir Egilsstaði og Hérað að
taka upp „græna ímynd1'. Fram-
sögumenn voru Baldvin Jónsson,
verkefnisstjóri hjá bændasamtök-
unum, sem fjallaði um „Lífrænt
Island“ sem markaðstæki. Sigur-
borg Hannesdóttir ferðamálafræð-
ingur sagði frá grænni ferða-
mennsku og Kristján Aðalsteinsson,
framkvæmdastjóri Sæplasts á Dal-
vík, kynnti umhverfisstefnu síns
fyrirtækis og árangur sem náðst
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
UM HUNDRAÐ manns sátu fund um græna ímynd Fljótsdalshéraðs.
hefur með slíku starfi.
Nefnd á vegum Egilsstaðabæjar
vann að hugmyndum um gildi
grænnar ímyndar á síðasta ári og
var þessi fundur nokkurs konar
framhald þess. Allmargir bændur
mættu til fundarins og í máli þeirra
flestra komu fram efasemdir um
framkvæmd hugmyndar um „líf-
rænt ísland“ en þeir töldu þó vist-
vænan landbúnað mögulegan. Með-
al bænda var Eymundur Magnús-
son í Vallanesi, sem hefur undan-
farin tíu ár unnið að lífrænni rækt-
un í landbúnaði og nýverið fengið
vottun á framleiðslu sína. Hann
lýsti áhuga á verkefninu og taldi
mikilvægt að stíga skref sem fyrst
í þessu máli. Á fundinum var sam-
þykkt áskorun til sveitarstjórnar-
manna á Héraði, að huga að þessum
málaflokki og standa fyrir úttekt á
stöðu umhverfismála og möguleik-
um til framkvæmdar.