Morgunblaðið - 19.01.1996, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 1996 19
UR VERIIMU
Lx)kað eftir erfitt ár
GALERIES LAFAYETTE, hin
kunna verzlanakeðja í Frakk-
landi, hyggst loka nokkrum
verzlunum eftir erfitt ár vegna
nýlegra verkfalla á þeim árstíma
þegar mest er verzlað. Galeries
Lafayette mun loka verzlunum í
Lyon, Nevers, Avignon, Valence
og Evreux og 1.000 manns verð-
ur sagt upp störfum. Myndin sýn-
ir aðalverzlunina við Haussmann
breiðgötuna í París.
Uppsagiur
hjá Apple
San Francisco. Reuter.
APPLE hefur skýrt frá 69 milljóna
dollara tapi á síðasta fjórðungi
reikningsárs fyrirtækisins og
ákveðið að segja upp 1300 starfs-
mönnum á næstu 12 mánuðum
samkvæmt áætlun um breyttar
áherzlur í rekstrinum.
Uppsagnirnar ná til 8% allra
starfsmanna, þar á meðal lausráð-
inna og þeirra sem vinna hluta-
störf, og þær eru fyrsta skrefið í
áætlun um að snúa tapi á þremur
mánuðum til desemberloka upp í
jákvæða afkomu.
Hart er lagt að Michael Spindler
forstjóra að koma umskiptum til
leiðar og hann sagði að Apple yrði
að draga úr kostnaði fljótt til að
treysta samkeppnisaðstöðu sína.
„Brýnasta og augljósasta verk-
efnið er að einfalda reksturinn
fljótt," sagði hann, „og aðallega
verður byrjað á sölu, markaðssetn-
ingu og stjórnun," sagði Spindler í
yfirlýsingu."
Umskiptaáætlunin olli ýmsum
sérfræðingum vonbrigðum, þar sem
þeir telja að ekki sé nógu glögg
grein gerð fyrir því smáatriðum
hvernig fyrirtækinu eigi að takast
að skila aftur hagnaði án þess að
glata meiri hlutdeild á einkatölvu-
markaði.
Spindler hét „skipulögðu mati á
stefnumarkandi fjárfestingum og
viðskiptum" Apple og gaf í skyn
að fleiri breytingar yrðu gerðar síð-
ar. Hann sagði að áfram yrði tap
á rekstrinum til marzloka.
Tapið til desemberloka kom ekki
á óvart, en sérfræðingar höfðu spáð
að allt að 3.700 af 14.000 starfs-
mönnum Apple yrði sagt upp.
„Þetta er aðeins dropi í hafið,“ sagði
sérfræðingur Dataquest Inc.
Dregið er í efa að Spindler sé
traustur í sessi. Sumir spá því að
hann verði rekinn eða að Apple
ráði annan framkvæmdastjóra, sem
sjái meira um daglega stjórn fyrir-
tækisins. í yfirlýsingu Apple er
þeim möguleika haldið opnum að
fleiri starfsmönnum verði sagt upp
síðar é þessu ári.
Sala togarans Höfðavíkur AK 200 til Húsavíkur
Bæjarstjórn Akraness
fellur frá forkaupsrétti
BÆJARSTJÓRN Akraness hefur
samþykkt að falla frá forkaupsrétti
að togaranum Höfðavík AK 200, en
eigandi hans, Krossvík hf., seldi
hann til Húsavíkur á dögunum.
Skipið verður afhent á næstu dögum
og er ætlun nýju eigendanna að
breyta því til veiða á loðnu og síld.
Þá hefur bæjarstjóm staðfest end-
anlega kaupsamning Svans Guð-
mundssonar í Krossvík hf. En ásamt
honum eru átta fjárfestar með
Harlad Böðvarsson í fararbroddi
sem leggja í fyrirtækið 80 millj. kr.
sem skiptist þannig: Haraldur Böðr-
varsson leggur 20,5 millj. kr.,
Tryggingamiðstöðin 13 millj.,
Jöklar hf. 12,5 millj., Miðnes hf.
12 millj., Skeljungur hf. 10 millj.,
Nótastöðin hf., Akranesi, 6 millj.,
Olís 5 millj. og Verslunarþjónustan
á Akranesi 1 millj. kr.
Aflakvóti Krossvíkur hf. verður
vistaður á skip Haraldar Böðvars-
sonar hf. og veð í fyrtækinu sömu-
leiðis. Miklar umræður urðu um
málið í bæjarstjórn og komu fram
efasemdir um framhaldið, sérstak-
lega gagnvart áframhaldandi starf-
semi Krossvíkur hf. en fyrir liggur
að hinir nýju eigendur ætla að halda
áfram arðvænlegum rekstri þó fyrir
liggi að lykill að því að semja við
lánardrottna um skuldir sé að sam-
eina fyrirtækin.
Stefnt að fullvinnslu
Vonir standa til að fyrirtæki í
fullvinnslu fiskafurða verði flutt til
Akraness og mun þar verða um að
ræða Franskt/íslenskt eldhús og þá
muni rætast úr í atvinnutækifær-
um. Öllum ábyrgðum bæjarsjóðs
vegna Krossvíkur verður létt af
sjóðnum.
Gunnar Sigurðsson, forseti bæj-
arstjórnar, segir að hann telji að
hagsmunum fólksins og bæjarfé-
lagsins í heild sé langbest borgið
með þessari hugmynd sem nú liggi
fyrir, og hánn hafi trú á því að
þetta muni skapa vaxtarbrodd í
atvinulífi Skagamanna.
130 milljónir voru í vanskilum
Þegar nýir hluthafar koma að
Krossvík hf. eru í vanskilum og á
dráttarvöxtum um það bil 130 millj-
ónir króna. Þar af eru vanskil við-
skiptaskulda 50 milljónir króna og
vanskil langtímalána 80 milljónir.
Þegar hefur verið samið um skuld-
breytingu á hluta þessarar upphæð-
ar og greiðslu á því, sem út af stend-
ur, ef fyrirvarar nýrra hluthafa
verða ekki virkir. Ljóst er talið að
lykillinn að samningum við lánar-
drottna um hagkvæmari viðskipta-
kjör, sé að tengslin séu sem mest
á milli Haraldar Böðvarssonar hf.
og Krossvíkur hf. og bestu lánakjör
fáist við sameiningu fyrirtækjanna.
Morgunblaðið/Jenný
MAGNÚS Ásbjörnsson landar um 4 tonnum af rækju af Gunnhildi ST 29,
en skipsljóri á bátnum er Birgir Guðmundsson.
Rækjumok á Húnaflóa
Drangsnesi. Morgunblaðið
MJÖG góð rækjuveiði er nú á Húna-
flóa og hefur svo verið allt frá því
veiðar hófust í haust. Má segja að
mokveiði hafi verið á rækjunni al-
veg síðan vertíðin hófst og virðist
ekkert lát á. Og er þá sama hvar
þeir kasta, á Steingrímsfirði, Vatns-
nesál eða Hrútafirði. Bátarnir hafa
verið að koma með þetta 2 til 6
tonn að landi á dag.
Ásbjörn Magnússon á Sundhana
ST 3 sem gerður er út á rækju frá
Drangsnesi sagði i viðtali við frétta-
ritara að hann teldi að afli á tog-
tíma væri allt að því helmingi meiri
en í fyrra. Þetta er ágæt rækja,
svona 260-300 í kílóið. Þeir á Sund-
hana eru búnir að fá rúm 15 tonn
í fjórum róðrum frá því veiðar hóf-
ust eftir áramótin og hefðu getað
verið komnir með meira ef undan
hefðist í vinnslunni.
Hann taldi sjómenn vonast til
þess að aukið yrði við magnið sem
veiða mætti eftir að fiskifræðing-
arnir hefðu rannsakað svæðið aftur
í febrúar. Það er almennt gott hljóð
í rækjusjómönnum núna, veðrið,
veiðin, og verðið með því besta sem
gerist.
Frá Drangsnesi eru gerðir út sex
bátar og af þeim hefur einn, Gríms-
ey ST 2, verið gerður út á línu og
er Friðgeir Höskuldsson skipstjóri
á Grímsey bara ánægður með veið-
ina það sem af er.
Veistu
POSTUR OG SIMI
...að afnotagjald af sjónvarpi í Svíþjóð
Hr er 1200 kr. á mánuði. Fyrir það verð fæst
■ símtal í 2 klst. á milli Gautaborgar og Stokkhólms.
I ...að afnotagjald af sjónvarpi á íslandi er 2000 kr.
jjk á mánuði. Fyrir það verð fæst símtal í 5 klst.
\ og 20 mín. á milli Reykjavíkur og Egilsstaða.