Morgunblaðið - 19.01.1996, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 1996 25
Morgunblaðið/Ásdís
TRIPPICCHIO, Underland & co.
Með bakpoka og banana
TOM GULLIKSEN og Jósefína-
Nikóletta-Rósetta-Víóletta-Dobb-
eltmansjetta Amundsen eru per-
sónur i barnaleikritinu Með bak-
poka og banana, sem sýnt verður
í Möguieikhúsinu við Hlemm í
dag, á morgun og sunnudag ki.
14. Höfundar og leikarar eru An-
ita Trippicchio og Nils Peter Und-
erland frá Noregi, sem mynda
leikhópinn Tripicchio, Underland
& co, en píanóundirleik annast
Ellen Marie Carlson. Sýningin
hefur að undanförnu verið sýnd
víðsvegar í Noregi og eru þær
orðnar um 120 talsins. Sýningin
er fyrr alia, þriggja ára og eldri.
„Þessi sýning er kannski fyrst
og fremst ætluð börnum," segir
Anita, „en þar sem fullorðnir
koma iðulega með þeim á sýning-
una gætum við þess að þeir fái
líka eitthvað fyrir sinn snúð. Það
er því ýmislegt falið í textanum
sem fullorðnir geta skilið á annan
hátt en börnin sem skilja sýning-
una kannski fyrst og fremst út frá
látbragðsleiknum sem við leggjum
mikla áherslu á.“
Sagan segjr frá kynnum þeirra
Tom og Jósefínu sem takast ekki
mjög vel til að byija með. Hinn
hávaxni, horaði og ruglaði Tom
verður enn ruglaðri er hann kynn-
ist Jósefínu. Hún er lítil, þybbin
og duttlungafull dama af ítölskum
ættum sem dýrkar óperur. I fyrstu
gengur ekki á öðru en misskiln-
ingi og árekstrum í samskiptum
þeirra en smám saman læra þau
að meta hvort annað og verða vin-
ir.
„Við erum sífellt að rekast á,“
segir Nils Peter, „í fyrstu skiljuin
við hvort annað kannski ekkert
sérstaklega vel, við þrefum eilítið
en á endanum tekst með okkur
góð vinátta."
Sýningin byggist mikið upp á
látbragðsleik þótt einnig sé í henni
texti. Anita segir að þau hafi leik-
ið fyrir erlend börn í Noregi og
að þau hafi skilið verkið þrátt
fyrir að þau hafi kannski ekki
skilið öll orðin sem þau segðu.
„Það er líka mikið um tónlist og
söng í verkinu sem hjálpar upp á
skilninginn. Fyndni verksins virð-
ist líka hafa náð til allra aldurs-
hópa, þriggja ára, fimm ára og
fullorðinna."
Anita og Nils Peter hafa mikla
leikreynslu, bæði í heimalandi sínu
og annars staðar. Anita hefur
fengist við klassískan leik sem og
leik í nútímaverkum, auk þess sem
hún hefur fengist við tónlist en
hún semur tónlistina í þessu verki.
Nils Peter er útskrifaður úr Ecole
Internationale de Theatre Jacques
Lecoq í París og hefur leikið í
Sviss, Ítalíu, Frakklandi, Svíþjóð
og Noregi þar sem hann fæst einn-
ig við kennslu.
LEIKSKÁLD í Höfundasmiðju Leikfélags Reykjavíkur.
Höfundasmiðja 1
Borgarleikhúsinu
HÖFUNDASMIÐJA Leikfélags
Reykjavíkur verður opnuð í Borgar-
leikhúsinu á morgun, laugardag.
Höfundasmiðjan er hópur ís-
lenskra leikskálda sem „hyggja á
landvinninga" í framtíðinni, eins og
segir í kynningu, en hafa nú um
nokkurt skeið haft aðstöðu í Borgar-
leikhúsinu til að gera tilraunir með
verk sín ásamt leikurum Leikfélags
Reykjavíkur.
Um er að ræða 17 „unga“ höf-
unda og verða verk þeirra kynnt
annan hvern laugardag frá og með
20. janúar.
Allt eru þetta smærri verk; einþát-
tungar, örleikrit, barnaleikrit,
hreyfiljóð og ein örópera, svo eitt-
hvað sé nefnt. Tilgangur Höfunda-
smiðjunnar er sá að þroska hæfni
höfundanna, styrkja tengsl þeirra
við leikhúsið og deila síðan afrakstr-
inum með áhorfendum.
Eftirtaldir höfundar munu kynna
verk sín í vetur; Anton Helgi Jóns-
son, Benóný Ægisson, Björg Gísla-
dóttir, Bragi Ólafsson, Elísabet K.
Jökulsdóttir, Friðrika Benónýs, Guð-
laug Erla Gunnarsdóttir, Ingibjörg
Hjartardóttir, Jónína Leósdóttir,
Kristján Kristjánsson, Linda Vil-
hjálmsdóttir, Súsanna Svavarsdóttir,
Svala Arnardóttir, Valgeir Skagfjörð
og Þorgeir Tryggvason.
Fyrsta verkið sem kynnt verður í
Höfundasmiðju er einþáttungurinn
Grámann eftir Valgeir Skagfjörð.
Höfundur er jafnframt leikstjóri, en
leikarar eru Ellert A. lngimundar-
son, Jón Hjartarson og Theódór Júl-
íusson. Verkið gerist á bar í Reykja-
vík nútímans og segir frá óvæntum
endurfundum tveggja manna.
Tabula rasa
TÓNLISI
Iláskólabíó
SINFÓNÍUTÓNLEIKAR
Flutt voru verk eftir Arvo Part,
Schumann og Beethoven. Einleikar-
ar voru Gréta Guðnadóttir, Hildi-
gunnur Halldórsdóttir í verki Avro
Part og Melvyn Tan í pianókonsert
Schumanns. Stjómandi: Osmo
Vanska. Fimmtudagurinn 18. janúar,
1996.
TÓNLEIKARNIR hófust á sér-
kennilegu verki eftir Arvo Párt,
sem hann nefnir Tabula rasa. Þýð-
ingin er óskrifað blað og er einnig
notað í yfírfærðri merkingu um
einþvern þann sem ekkert er vitað
um, rétt eins og nokkur viti hvað
framtíðin gefur mönnum færi á
að sýrta varðandi hæfileika sína.
Tónsmíð er í upphafi óskrifað blað
og ekki að fullu lokið við hana
fyrr en tónleikagestir hafa með-
tekið verkið og jafnvel dæmt.
Arvo Part er meðal sérkennileg-
ustu tónskáldum -samtímans og
hefur ekki bundið bagga sína sömu
hnútum og þeir sem vilja vita sig
í sátt við samfélag sitt. Tabula
rasa er ákaflega einfalt hvað varð-
ar hljómskipan, tóntegundir og
lagferli. Framan af er unnið með
þríundir, fyrst stóra, og er sam-
spil einleikaranna fyrst eins og
millispil á milli samleiks strengja-
sveitarinnar, en síðan þéttist tón-
vefurinn án þess þó að nýtt tó-
nefni sé tekið fyrir, en bætt í tón-
ferlið hraðari línum, aðallega þó
hjá einleikurunum. Seinni hlutinn
er byggður á sexundum, fyrst litl-
um, og endaði verkið á fallandi
tónstiga. Það verður ekki sagt að
þessi tónlist sé tilþrifamikil eða
vekjandi og t.d. var seinni hlutinn
blátt áfram leiðinlega langdreginn
og skiptir þá engu hvað vakti fyr-
ir tónskáldinu, nema þá að reyna
þolrifin í hlustendum. Gréta og
Hildigunnur léku verkið mjög fal-
FIÐLULEIKARARNIR Gréta Guðnadóttir og
Hildigunnur Halldórsdóttir
lega og hljómsveitin
sömuleiðis undir
stjórn Osmo Vánská.
Annað verk tónleik-
anna var píanókon-
sertinn í a-moll eftir
Schumann og var ein-
leikari Melvyn Tan,
frábær píanóleikari,
sem lék konsertinn á
fínlegu nótunum og á
köflum svolítið óró-
lega. Það vantaði í
konsertinn andstæður
í styrk og í heild var
hann helst til léttilega
leikinn og vantaði nær
með öllu þá róman-
tísku tilfinningu sem einkennir
stíl Schumanns.
Tónleikunum lauk með þeirri
fimmtu eftir Beethoven og í heild
var þetta meistaraverk of hratt
flutt. Ef það er rétt, að Beethoven
hafi verið að segja sögu sína, vant-
aði þá stemmningu sem margir
hafa viljað heyra í þessu frábæra
listaverki. Sá sem hefur upplifað
einhveijar raunir ætti að skilja,
að það er skelfilegt fyrir tónskáld
og píanósnilling að verða heyrnar-
laus. Fyrsti kaflinn
gæti verið mettaður
þeirri angist sem slík
tíðindi hljóta hafa ver-
ið fyrir Beethoven.
Annar kaflinn er sorg-
arsöngur er brýst út í
sársaukafullt ákall og
bæn, er einskona
spurning: „Hvers
vegna?“ og eru síð-
ustu hendingar þessa
tregafulla kafla eins
og grátur, þar sem
höfundinum er varnað
máls af þungum ekka.
Þriðji þátturinn er tví-
skiptur, því þar má
finna vonleysið og baráttuna við
heymarleysið, sem á endanum, í
síðasta þættinum, brýst út í sigur-
söng þess sem hefur gengið á
hólm við örlög sín án þess að bogna
og gefast upp. Þrátt fyrir að verk-
ið væri vel flutt og af miklum
krafti vantaði skáldskapinn í leik
hljómsveitarinnar, sem eru ógn-
þrungin tíðindi, harmur, vonleysi,
barátta og sigur.
Jón Ásgeirsson.
Melvin Tan
píanóleikari
RAFIÐNAÐARSAMBAND
ISLANDS
x
Félagsfundur um lífeyrismál
Akveðið hefur verið að halda félagsfund á eftirtöldum stöðum;
Reykjavík laugardaginn 20. janúar kl. 10.30 á Háaleitisbraut 68, 3. hæð.
Suðurnes miðvikudaginn 24. janúar kl. 20.00 í félagsheimili Iðnsveinafélagsins,
Tjarnargötu 7, Keflavík.
Akureyri fimmtudaginn 25. janúar kl. 20.30 í Alþýðuhúsinu, Skipagötu, 3. hæð.
Dagskrá fundanna:
1. Sameining lifeyrissjóða RSÍ og matreiðslumanna.
2. Staðfesting á samkomulagi VSÍ og ASÍ.
3. Reglugerð lífeyrissjóðs RSÍ.
4. Önnur mál.
Á fundina mæta formaður RSÍ og stjórnarmenn úr Lífeyrissjóði rafiðnaðarmanna.
Heilsuvaknina Rafiðnaðaarsambands ísland
Miðvikudaginn 24. janúar kl. 17.00-20.00 gengst RSÍ í sanivinnu við forvarnar- og
líkamsræktarstöðina Mátt fyrir heilsuvakningu fyrir félagsmenn sína og maka
þeirra í Reykjavík, ef næg þátttaka fæst.
Heilsuvakningin byggist á:
Þol-, blóðþrýstings- og blóðfitumælingu ásamt einkaráðgjöf um þjálfun
og bættan lífsstíl.
Tímapantanir á skrifstofu RSÍ, sími 568 1433. Pantanir þurfa að berast i siðasta lagi
kl. 12.00 mánudaginn 22. janúar. Mæling og ráðgjöf tekur u.þ.b. 20 mín. og
fer fram á skrifstofu RSÍ. Hún er niðurgreidd af styrktarsjóði RSÍ og kostar kr. 1.000.
Stjórnin.