Morgunblaðið - 19.01.1996, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 19.01.1996, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 1996 41 KRISTENSA ANDRÉSDÓTTIR + Kristensa Andr- ésdóttir var fædd á Hellissandi 25. mars 1926. Hún lést í Borgarspíta- lanum að morgni 14. janúar síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru Andr- és Jónsson og Sveinbjörg Sveins- dóttir frá Hellis- sandi. Eftir lát móður sinnar, þá tæplega tveggja ára, fór hún í fóstur til hjónanna Andreu Kristjánsdóttur og Björgvins Alexanderssonar á Risabjörgum á Hellissandi, sem gengu henni í móður og föður stað. Kristensa var yngst tólf systkina og eru þrjú þeirra á lífi. Þau eru: Dagbjört, f. 29.9. 1897, Pálína Sveinbjörg, f. 23.12. 1916, Sigurlín, f. 26.9. 1924. Hinn 21. júlí 1962 giftist Kristensa eftirlifandi eigin- manni sínum, Sigurði Þorkels- syni, f. 23.6. 1922, pípulagn- ingameistara. Börn Kristensu eru: 1) Björgvin Andri Guð- jónsson, f. 7. júní 1954, kvæntur Sigrúnu Öldu Júl- íusdóttur, þau eiga þijú börn, Guð- rúnu Steílu, f. 20.2. 1977, Ásgeir Frey, f. 17.9. 1980, Andreu Björgu, f. 25.6. 1990. 2) Sveinbjörg Hrólfs- dóttir, f. 15.9. 1959, barn: Kristín Ragnarsdóttir, f. 12.12. 1982. 3) Birgir Sigurðsson, f. 1.7.1965, kvænt- ur Aðalheiði Guðmundsdóttur, barn: Telma Ýr, f. 1.2. 1992. Aðalheiður átti fyrir Guðmund Örn, f. 22.7. 1983. Sigurður átti frá fyrra hjónabandi: Vict- or, Elínu Láru, Árna og Ástu. Kristensa vann við ýmis störf, aðallega saumastörf, og nú síð- ast þjá Niðursuðuverksmiðj- unni ORA. Þau hjónin bjuggu alla sína tíð í Kópavogi, nú síð- ast í Lyngbrekku 20. Útför Kristensu fer fram frá Kópavogskirkju í dag og hefst athöfnin kl. 13.30. I DAG þegar elskuleg tengdamóðir mín verður lögð til hinstu hvílu vil ég minnast hennar og þakka henni fyrir allan þann kærleika og ást sem hún færði inn í líf mitt og fjölskyldu minnar. Ég var ung að árum þegar Björgvin minn kynnti mig fyrir mömmu sinni. Ég vissi það ekki þá hversu lánsöm ég var, en eftir því sem árin liðu og ég þroskaðist fann ég að þar var sérstæða perlu að finna, því það er ekki sjálfgefið að eignast tengdamóður eins og Stellu. Stella mín var ekki stór kona vexti en umhyggja hennar og vænt- umþykja gerði hana að risa í mínum augum og þeirra sem þekktu hana best. Heimilið, börn og barnabörn voru henni allt, umhyggja hennar sneri ekki aðeins að okkur fjölskyldu hennar heldur einnig að öðrum ætt- ingjum og vinum. Allt lék í höndun- um á henni, saumaskapur, prjónar, bakstur; bara nefna það, hún Stella gerði það betur en margur annar. Dugnaður hennar og eljusemi voru mér oft umhugsunarefni. Hún kenndi mér margt á sinn hægláta hátt, ég vissi það ekki alltaf hvernig hún fór að því, en tilsögn hennar festist í huga mér. Hún kenndi mér að lífið væri ekki sjálfgefið og ég ætti að greina rétt frá röngu. Aldrei heyrði ég hana hallmæla neinum manni, hún mátti ekkert aumt sjá og var sífellt að gefa af sjálfri sér. Hún var hraust fram á síðasta mánuð, eða svo töldum við, það var ekki hennar siður að kvarta. Alla tíð var hún útivinnandi og þeir sem höfðu hana í vinnu voru lánsamir. Vinnusemi hennar og húsbóndaholl- usta var einstæð. Stella mín hefði ekki kært sig um orðagjáfur, tilgerð og væmni voru ekki til í hennar orðabók. Trú, von og kærleikur voru hennar aðals- merki og það veganesti sem hún bjó börnum sínum út í lífið. Hún var yndisleg móðir, tengda- móðir og amma. Fyrir það viljum við að leiðarlokum þakka. Elsku Siggi, Björgvin, Sveinbjörg, Birgir og fjölskylda, í sorg okkar og sökn- uði lifir minningin um hennar fögru sál og í gegnum þá minningu verður hún alla tíð nálægt okkur. Elsku Stella mín, Guð geymi þig. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Þín tengdadóttir, Sigrún Júlíusdóttir. í dag verður lögð til hinstu hvíld- ar Kristensa (Stella) Andrésdóttir. Hún fékk alvarlegt hjartaáfall að- faranótt aðfangadags jóla og lést í Borgarspítalanum 14. þessa mán- aðar. Nú þegar komið er að leiðarlok- um er mér í huga að minnast Stellu með fáeinum kveðjuorðum og votta virðingu mína og þakkir. Ég horfi til baka og upp renna minningar frá góðum samverustundum með henni og eiginmanni hennar, Sig- urði bróður mínum, á heimili þeirra. Minningar um fyrstu kynni okkar Stellu eru frá árinu 1962, þegar hún gekk í hjónaband með Sigurði. Áður hafði ég þekkt til hennar, en ekki náið. Frá upphafi er mér eink- ar hugstæð hógværð hennar og yfírlætisleysi og hve sýnt henni var um að láta manni líða vel í návist sinni. Þessir eiginleikar eru oft vís- bending um mikla mannkosti og þroskaða skapgerð, sem koma fram í því, að hugsað er minna um sjálf- an sig en aðra og að því er virðist gleymt eigin ágæti og mikilvægi, en fremur vakin athygli á slíku í fari annarra. Þessi persónueinkenni fundust mér alla tíð vera venju fremur sterk í skapgerð Stellu. Minnist ég þess hve einstaklega hjálpsöm hún reyndist foreldrum mínum, þegar þeir voru komnir að fóturn fram og reyndi á aðstoð ann- arra. Þá hlúði hún sannarlega meira að öðrum en sjálfri sér og er það ekki eina tilvikið sem ég þekki til að svo hafi verið. Eru mér hugstæð þau orð móður minnar, sem hún hafði um það hvílíkt lán það hafi verið sér að eignast slíka tengda- dóttur. Og af því mér er málið ná- komið hlýnar mér um hjartarætur enn í dag þegar ég minnist lofsorða foreldra minna, sem horfnir eru fyrir mörgum árum, er þeir höfðu um Stellu, tengdadóttur sína. Stella var fremur kona athafna en orða. Hún framkvæmdi það sem þurfti að gera, en hafði ekki um það mörg orð. Hún bjó manni sínum og börnum gott og hlýlegt heimili þar sem maður fann sig ætíð aufúsugest. Hvar sem á var litið bar heimilið vott um myndarskap húsmóðurinnar. Fyrstu hjúskapar- árin bjuggu þau Stella og Sigurður með bömum sínum við Fífu- hvammsveg í Kópavogi, en fluttu síðar að Lyngbrekku 20, þegar börn þeirra voru uppkomin og höfðu stofnað eigið heimili. Um leið og ég kveð Stellu hinstu kveðju og þakka ánægjulega sam- fylgd vottum við Halla, kona mín, Sigurði og bömum þeirra innilega samúð okkar. Megi minningin um góða eigin- konu og kærleiksríka móður vera þeim huggun í harmi. Blessuð sé minning hennar. Sigurlaugur Þorkelsson. Kveðja frá barnabörnum: Allar stundir ævi minnar, ertu nálæg, hjartans Lilja. Þó er næst um næðisstundu návist þín og angurblíða, ástarljós og endurminning. Allar stundir ævi minnar, yndistíð og harmadaga, unaðssumur og sorgarvetur. Sakna ég og minnist þín. (Hulda.) Elsku Stella amma. Við eigum svo erfítt með að trúa því að þú hafir farið svona fljótt til englanna, því okkur þótti svo ólýsanlega vænt um þig og allar þær stundir sem við áttum hjá þér og afa í Lyng- brekkunni. Við vitum að þú munt passa okkur og afa sem á svo bágt núna. Elsku Siggi afí, megi Guð vera með þér um ókomna tíð. Ásgeir Freyr, Guðmundur, Andrea Björg og Telma Ýr. Elsku besta amma mín. Mér sem þótti svo vænt um þig og nú ert þú dáin. Ég sem hélt að við mamma gætum alltaf átt skjól hjá þér, því þú og afí studduð svo vel við bakið á okkur, en í okkar sorg höfum við hann Sigga afa. Mig langar til að fara með bænina sem þú kenndir mér. Faðir vor, þú sem ert á himnum, helgist þitt nafn, til komi þitt ríki, verði þinn vilji, svo á jörðu sem á himni. Gef oss í dag vort daglegt brauð og fyrirgef oss vorar skuldir, svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum. Eigi leið þú, oss í ffeistni, heldur frelsa, oss frá illu, því að þitt er ríkið, mátturinn og dýrðin að eilífu. Amen. Þín dótturdóttir, Kristín. Ég féll að fótum þínum og faðma lífsins tré. Með innri augum mínum ég undur mikil sé. Þú stýrir vorsins veldi og vemdar hveija rós. Frá þínum ástareldi fá allir heimar ljós. (Davið Stefánsson.) Með þessu ljóði langar mig að kveðja elskulega ömmu mína, sem mér þótti svo vænt um. Takk fyrir allt sem þú kenndir mér og gafst mér. Söknuður minn er mikill en ég trúi því að við munum hittast aftur. Elsku afi, Guð mun gæta þín og gefa þér styrk. Þín sonardóttir, Guðrún Stella. Mig langar að minnast Stellu með nokkrum orðum. Stella var sérstaklega góð og skemmtileg kona. Við unnum saman í sex ár og þrátt fyrir aldursmun vorum við mikið saman í vinnunni. í öllum pásum og þegar vélarnar biluðu sat ég inni hjá henni og við töluðum saman. Stella var mjög flink að ptjóna og gaf mér fallega peysu sem hún pijónaði. Þegar Stefán sonur minn fæddist pijónaði hún peysu, sokka og vettlinga handa honum. Flestalla vettlingana og hosurnar hans Stef- áns hefur Stella síðan pijónað. Hann var mjög ungur þegar hann svaraði fólki, sem var að segja hvað hann væri með fallega yettlinga: „Já, hún Stella pijónaði þá.“ Hún var alltaf svo glöð og þakk- lát fyrir gjafír sem ég gaf henni, en sjálf var hún alltaf að hugsa um aðra. Daginn áður en hún fór á spítalann sendi hún strákunum okk- ar Harðar sokka og vettlinga. Elsku Stella, við söknum þín og ég er þakklát fyrir að hafa kynnst þér. Ég og fjölskylda mín sendum Heiðu, Bigga og öllum öðrum að- standendum Stellu samúðarkveðj- ur. Blessuð sé minning hennar. Hanna Sigríður. t Elskuleg móðir okkar, GUÐLAUG HELGADÓTTIR frá Grímsey, Jaðarbraut11, Akranesi, lést í Sjúkrahúsi Akraness miðvikudaginn 17. janúar 1996. Helgi Danfelsson, Björgvin Danielsson, Hafdís Daníelsdóttir, Hlín Danielsdóttir og aðrir aðstandendur. t Eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, KRISTÍN GUÐMUNDSDÓTTIR, Hrafnistu, Hafnarfiröi, áður Breiðagerði 8, lést 17. janúar. Jarðarförin auglýst síðar. Magnús Júlíusson, Rúnar Magnússon, Svanhildur Stefánsdóttir, Margrét Jóna Magnúsdóttir, Haraldur Einarsson, Erna Magnúsdóttir, Gunnar Jakobsson og aðrir aðstandendur. t Móðir okkar, GUÐLAUG JÓNASDÓTTIR, dvalarheimilinu Hlíð, á andaðist í Fjórðungssjúkrahúsinu Akureyri að morgni hins 16. janúar. Jarðsett verður frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 23. janúar kl. 13.30. Guðrún, Anna Marfa og Auður Þórhallsdætur, Þráinn Þórhallsson. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞORVALDURÁRNASON, Freyjugötu 1, Sauðárkróki, verður jarðsunginn frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 20. janúar kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim, sem vildu minn- ast hans, er bent á bankareikning nr. 133600 í Búnaðarbankanum á Sauðárkróki. Ingibjörg Halldórsdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabarn. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, MARGRÉT TRYGGVADÓTTIR, sem andaðist föstudaginn 12. þ.m., verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju mánudaginn 22. janúar kl. 13.30. Anna Marfa Sigurgeirsdóttir, Svavar B. Magnússon, Katrfn Sigurgeirsdóttir, Sigurgeir Magnússon, Margrét Sigurgeirsdóttir, Sigurður Björnsson, Tryggvi Karlesson, Bergþóra Bergkvistdóttir og barnabörn. t Elskuleg eiginkona mín, móðirokkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, FREYJA GEIRDAL, Austurgötu 18, Keflavík, sem andaðist á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð þann 13. janúar 1996, verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju iaugardaginn 20. janúar kl. 14.00. Gísli Sigurðsson, Svanur Geirdal, Sigurður Geirdal, Örn Geirdal, Eygló Geirdal, Ægir Geirdal, Jóhann Geirdal, Una Guðmundsdóttir, Ólafía Ragnarsdóttir, Þórhalla Stefánsdóttir, GeorgV. Hannah, Lilja Jónsdóttir, Hulda Bjarnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.