Morgunblaðið - 19.01.1996, Page 45

Morgunblaðið - 19.01.1996, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 1996 45 Jóla- og líknarmerki 1995 JÓLA- og líknarmerki 1995. (SI.ANI) 2() «> 335A 335B 1 ()()'* tíunattugUT Stktt tw Krittin JorudMttr 336A 336B FUGLA- og málverkafrímerki 7. febrúar nk. FRIMERKl J 61a- o g líknarmcrki JÓL 1995 Jólamerki Thorvaldsensfélagsins, Líknaimerki Framtíðarinnar, Líknarsjóðs Lionsklúbbsins Þórs, Rotaryklúbbs Hafniirfjarðar, Ka- þólska safnaðarins og Ungmemia- sambands Borgarfjarðar. SJÁLFSAGT er að halda þeim sið, sem tíðkazt hefur um mörg ár, að segj a eitthvað frá þeim jóla- og líknarmerkjum, sem út koma fyrir hver jól. Bolli Davíðsson í Frímerkjahúsinu hefur sem jafnan áður sent þættinum þessi merki og jafn- framt upplýsingar um þau. Bolli tekur skýrt fram, að hann hafi ekki fengið önnur líknarmerki til sölu í verzlun sinni en þau, sem hér er getið um. Hins vegar er aldrei loku fyrir það skotið, að önnur merki hafi komizt í umferð innan einhverra sam- taka. Ef svo skyldi vera er feng- ur í vitneskju um það. Segja mætti mér, að jólafrímerki póst- stjórnar okkar hafi að þessu sinni reynzt skæður keppinautur líknarmerkja einstakra félaga. Þau þóttu sérlega vel heppnuð og minna ágætlega á jólin ein og sér. Er það vissulega mikil breyting frá því í fyrra, þegar póstnotendur munu mjög hafa sniðgengið þau jólafrímerki, sem þá komu út. Að sjálfsögðu hlýtur póststjórn okkar að vera ánægð þegar jólafrímerkin selj- ast vel, því að stefna hennar er einmitt sú að eiga sem minnst eftir af þeim, þegar jól og ára- mót eru að baki. Af þessu ættu hönnuðir jólafrímerkja að geta dregið nokkurn lærdóm. Að þessu sinni komu út sex jóla- og líknarmerki, eða jafn- mörg og í fyrra. Thorvaldsensfé- lagið lætur sem fyrr ekki deigan síga eftir rúm 80 ár, enda hefur það eitt þá sérstöðu, að jóla- merki þess eru seld á pósthúsum landsins. Er merki Thorvalds- ensfélagins að þessu sinni sér- lega frumlegt og jólalegt, ef svo má orða það. Kvenfélagið Fram- tíðin sendir einnig frá sér skemmtilegt merki. Líknarsjóð- ur Lionsklúbbsins Þórs er enn með mynd af Dómkirkjunni í Reykjavík, en nær óbreytt frá í fyrra nema ártalið. Þá kemur merki frá Rotaryklúbbi Hafnar- fjarðar. Kaþólski söfnuðurinn gefur enn út jólamerki og eins að útliti og áður nema með nýju ártali. Ungmennasamband Borgarfjarðar rekur svo lestina, en merki þess hafa verið með myndum af borgfirzkum kirkj- um. Að þessu sinni varð kirkjan í Norðtungu í Stafholtstungum fyrir valinu. Ný frímerki 7. febrúar nk. Póst- og símamálastofnunin eða Póstur og sími, eins og for- ráðamenn hennar virðast nú orðið nota nær eingöngu sem heiti stofnunarinnar, hefur sent út fyrstu tilkynningu sína á nýju ári. Þar eru boðaðar tvær útgáfur 7. febrúar. Af myndum að dæma verður vissulega feng- ur í þessum frímerkjum, bæði til landkynningar og eins ekki síður fyrir þá, sem safna ís- lenzkum frímerkjum eða sér- stökum mótífum. Fyrst eru tvö frímerki í fram- haldi þeirra fuglafrímerkja, sem áður hafa komið út og Þröstur Magnússon hefur hannað af al- kunnri smekkvísi. Á 20 króna frímerki er mynd af dílaskarfi. Um hann segir m.a. svo í til- kynningunni: „Dílaskarfar eru sjófuglar og með stærstu fugl- um landsins. ... Nafnið draga þeir af hvítum lærblettum." Þá er þess getið, að þeir hafi áður fyrr verið algengir um land allt, en nú verpi þeir við Breiðafjörð og Faxaflóa á afskekktum út- skeijum. „Hreiðrin eru þang- hraukar, fóðraðir með sinu, en eggin eru oftast 4-6.“ Er stofn- inn nú áætlaður um 2200 varpp- ör og hefur hann dregizt saman síðustu áratugi. Merkingar sýna, að þeir eru staðfuglar. Á 40 króna frímerki er mynd af húsönd. Um hana er þetta m. a. tekið fram: „Húsandahjón eru ólík að lit, eins og vani er með- al anda.“ Þessu eru síðan lýst nákvæmlega. Húsendur verpa aðeins í Þingeyjarsýslum, eink- um við Mývatn og Laxá. „Stofn- inn er lítill, 1700-1800 fuglar og halda flestir til á sama svæði allt árið.“ Fáeinir fuglar eru á Suðurlandi að vetri til og mest á Soginu. „Húsendur verpa 6-10 eggjum en oft verpa fleiri fuglar í sama hreiður.“ Þær verpa hvergi í Evrópu nema hér á landi og eru friðaðar. Þennan sama dag koma út tvö málverkafrímerki. Er ekki ólíklega til getið, að hér sé að fara af stað nýr flokkur slíkra merkja, enda þótt málverk á íslenzkum frímerkjum séu engin nýlunda. En svipmót þessara væntanlegu frímerkja er nokkuð á annan veg en áður hefur tíðk- azt og minnir um sumt á dönsku málverkafrímerkin, sem hafa verið að koma út á undanförnum árum. Sigríður Bragadóttir hef- ur hannað þessi nýju frímerki, en hún teiknaði einmitt jólafrí- merkin síðustu með miklum ágætum. Þessi málverkamerki verða áreiðanlega eftirsótt og ekki sízt af mótífsöfnurum. Ég verð því miður að finna að því, að nafnið ÍSLAND er lóðrétt á merkjunum, en ekki lárétt, eins og ætti helzt að vera. Þess hef- ur Þröstur aftur á móti gætt í sinni útfærslu. Merki þessi, eru að öðru leyti bæði falleg og stíl- hrein. Hér vil ég þakka alveg sérstaklega, að frímerkin eru af svo hóflegri stærð, að þau geta auðveldlega komizt á venjulegar sendingar. Hið sama verður ekki sagt um dönsku frí- merkin, sem eru falleg, en minna um of meira á glans- myndir en frímerki. Leitt er ein- ungis til þess að vita, að verð- gildi merkjanna er svo hátt, að þau mun of sjaldan koma fyrir augu venjulegra póstnotenda. Á öðru verðgildinu, 100 kr., er málverk eftir Gunnlaug Sche- ving, Sjómenn á báti, en það er frá árinu 1947. Er það eitt af fjölmörgum verkum Schevings með þessu myndefni. Á 200 kr. frímerki er málverk, sem nefnist Við þvottalaugarnar og er eftir Kristínu Jónsdóttur. Er það frá árinu 1931 og „sýnir konur að störfum við gömlu þvottalaug- arnar í Laugardal". I tilkynningu Pósts og síma er þess getið, að gerð hafi verið gjafamappa með fjórum síðustu fuglamerkjum póststjórnarinn- ar. Slíkar möppur hafa á liðnum árum verið eftirsóttar, enda smekklegar og því tilvaldar sem gjafir til frímerkjasafnara. Jón Aðalsteinn Jónsson Þarfir viðskiptavina ráða því hvaða vörur fást á ESSO stöðvunum. Ef þú ætlar að gera þér dagamun færðu þar alls konar snarl og góðgæti að ógleymdum vörum sem stuðla að öryggi manns eða bfls. E S S O ÞJÓNUSTA - s n ý s t u m þ i g Olíufélagið hf ~50ára —

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.